Morgunblaðið - 21.11.1989, Page 55

Morgunblaðið - 21.11.1989, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1989 55 Bókaútgáfan Ný sýn: Rit fyrir foreldra i um samkynhneigð ÚT ER komin á vegum bókaútgáfunnar Ný sýn, bókin „Veistu hver ég er?“ eftir bandarísku rithöfundana Betty Fairchild og Nancy Hayward. Bókin er sérstaklega ætluð foreldrum homma og lesbia og er fyrsta rit sinnar tegundar, sem kemur út á íslensku. Ný sýn er bókaútgáfa lesbía og homma og starfar innan vébanda Samtakanna ’78. í kynningu út- gáfunnar á bókinni „Veistu hver ég er?“ segir meðal annars: „For- V E I S T U HVER É6 ER? Kápa bókarinnar „Veistu hver ég er?“ eldi-um bregður oft illa í brún þeg- ar börn þeirra segja þeim að þau séu samkynhneigð., Sektarkennd og fordómar bijótast upp á yfir- borðið og fá útrás í árasargimi og ásökunum, einmitt á því augna- bliki þegar þörfin er mest á stuðn- ingi. Oft er erfitt fyrir lesbíur og homma að horfast í augu við kyn- hneigð sína og þá er mikilvægt að hljóta viðurkenningu þeirra, sem skipta mann mestu máli í lífinu. En foreldrar, systkini og vinir þurfa líka sinn tíma, stuðning og fræðslu.“ í tilkynningu útgáfunnar segir enn fremur, að höfundar bókarinn- ar séu mæður homma og lesbíu. Þær hafni því að samkynhneigð sé „hörmulegt áfall fyrir fjölskyld- una“. Þeir foreldrar sem skilji það, geti veitt barni sínu ómælda hjálp á leið út í lífíð. Það krefjist sam- vinnu og opins hugar og sé oft á tíðum erfítt, en ekki ómögulegt. „Veistu hver ég er?“ er 140 blaðsíður, prentuð hjá Stensli hf. Jón St. Kristjánsson þýddi og Tómas Hjálmarsson hannaði kápu. Egilsstaðir: ' Meirihlutinn sprakk Egilsstöðum. MEIRIHLUTINN í bæjarstjórn Egilsstaða sprakk á aukafundi bæjarsljórnar á fimmtudagskvöld. Þá lýsti Sigurjón Bjarnason forseti bæjarstjórnar því yfir að hann teldi sig óbundinn af form- legu meirihlutasamstíirfi. Á þessum aukafundi bæjarstjómar átti meðal annars að kjósa fulltrúa Egilsstaðabæjar í sljóm hlutafélags sem verið er að stofha um Hótel Valaskjálf. Meirihluta í bæjarstjórn mynduðu Sjálfstæðisflokkur með 2 fulltrúa, Alþýðubandalag með 1 fulltrúa og óháður listi með 1 fulltrúa. Sigur- jón Bjamason, Abl., sagðist að- spurður í samtali við Morgun- blaðið ekki vilja nefna neinar sér- stakar ástæður fyrir ákvörðun sinni nú. Jafnframt sagðist hann ekki myndu beita sér fyrir myndun nýs meirihluta. Sigurður Ananíasson, Sjálf- stæðisflokki, sagði að það hefði komið sér á óvart að þetta skyldi gerast núna. Samkomulag hefði yfirleitt verið gott í meirihlutanum og ekki verið um verulegan mál- efnaágreining að ræða. Sigurður sagði að Sjálfstæðismenn væru ekki farnir að huga að nýju meiri- hlutasamstarfí og átti ekki von á þeir beittu sér fyrir því. Björn Vestmannaeyjar: 1 Lokaprófanir á Bj örgvinsbeltinu Framleiðsla hefst á næstú vikum V estraannaeyj um. Stýrimannaskólanemar í Eyjum gerðu fyrir skömmu lokapróf- anir með Björgvinsbeltið svokallaða, en framleiðsla á beltinu er nú að heljast á Reykjalundi. Farið var út á Víkina í Eyjum þar sem prófanimar fóru fram. Voru gerðar ýmsar tilraunir til þess að gera lokaathugun á því hvort eitthvað mætti betur fara í hönnuninni, áður en framleiðsla hefst. Prófanirnar gengu mjög vel og voru allir þeir sem að þeim stóðu sammála um að Björgvins- beltið væri handhægt og mjög þarft björgunartæki. Það er nú orðið nokkuð langt síðan Björgvin hannaði upphaf- lega gerð af beltinu. Á því hafa síðan verið gerðar margar tilraun- ir og prófánir til þess að sníða mætti af því hugsanlega van- kanta. Beltið hefur tekið smá- vægilegum breytingum á þessum tíma og um leið hefur verið leitað að heppilegu efni í það. Björgvin Siguijónsson, hönnuð- ur beltisins, sagði í samtali við Morgunblaðið hann væri ánægður með niðurstöður prófananna nú. Engir vankantar hefðu komið fram og hann vonaðist til að þama væri komið gott öryggistæki fyrir sjómenn. Hann sagði að undirbún- ingurinn væri búinn að taka lang- an tíma og mun lengri tíma en hann hefði getað órað fyrir. Allt Lyngey SF-61 í höfti á Höfii, Morgunblaðið/Jón Gunnar Gunnarsson Höfti Ný Lyngey keypt til Haftiar Höfn. NYLEGA var vélbáturinn Lyngey SF-61 seldur til Ól- afsvíkur og í hans stað keypt Skipanes SH-608 frá Grundar- firði. Skipanes hefiir nú fengið nafnið Lyngey SF-61. Báturinn er 146 lesta smíðaður úr stáli í Garðabæ 1970, en eldri Lyng- ey var smíðuð á Seyðisfírði 1971 og er 92 lestir. Bátarnir voru seldir án kvóta og mun nýja Lyngey því halda kvóta hinnar fyrri. Skipstjóri á Lyngey er Páll Dagbjartsson, sem einnig var með eldri Lyngey. Verið er að .gera bátinn kláran á síldveiðar. Eig- andi er Borgey hf. á Höfn. - JGG Ritgerðarsamkeppni í firamhaldsskólum Norræna felagið: NORRÆNA félagið á íslandi, beitir sér fyrir ritgerðarsamkeppni i framhaldsskólum um efnið „Hvað eiga íslendingar sameiginlegit með öðrum Norðurlandaþjóðum” og bjóða verðlaun fyrir fimm bestu rit- gerðimar - flugfar til einhverrar höfuðborgar Norðurlanda að vali vinningshafa og 50 þúsund krónur í farareyri fyrir hvem og einn. Leitað verður eftir samvinnu við menntamálaráðuneytið um sam- keppnina að því er varðar kynningu málsins í framhaldsskólum og skipan dómnefiidar, en Norræna félagið mun sjálft greiða verðlaun- in. Áformað er að samkeppnin fari fram nú í vetur. í fréttatilkynningu frá Norræna félaginu segir að á þingi þess ný- lega hafí verið samykkt að stofna sjóð um norræna samvinnu með einnar milljónar króna fjárframlagi. Auk þess fær sjóðurinn í tekjur hluta af þeim ágóða, sem kann að verða hjá Norræna félaginu í framt- íðinni og mun ráðstafa árlega til styrkveitinga vöxtum af höfuðstól og helmingi af árlegu framlagi Norræna félagsins til sjóðsins eins og það kann að verða á hveijum tíma. Hlutverk sjóðsins er að styrkja félagsdeildir Norræna fé- lagsins, einkum hinnar minni, til norræns samstarfs og þátttöku í samnorrænum viðfangsefnum og til norræns kynningarstarfs. Fyrsta úthlutun úr hinum nýja sjóði mun fara fram á næsta ári. Þing Norræna félagsins á íslandi er haldið annað hvert ár. Að þessu sinni sátu þingið 73 fulltrúar, kjörn- ir fulltrúar félagsdeilda og áheyrn- arfulltrúar. Þingfundir hófust að morgni laugardagsins 28. október og lauk þinginu síðdegis sunnudag- inn 29. október. Meðal málefna, sem sérstök grein var gerð fyrir á Náttúruverndarráð: Mótmælir byggingu endurvinnslu- stöðvar við Dounreay Náttúruverndarráð hefur sent frá sér ályktun, þar sem mótmælt er harðlega áformum um byggingu endurvinnslustöðvar fyrir brennsluefiii kjarnaofna við Dounreay í Skotlandi. Ráðið hefur sent Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra ályktunina og ennfremur til sendiherra Bretlands, fyrir hönd ríkisstjórnar Bretlands. Þá fá Norðurlandaráð og umhverfisráðuneyti í Bretlandi og á Norðurlönd- unum ályktunina. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Nemendur Stýrimannaskólans í Eyjum prófa Björgvinsbeltið. hefði verið hálf þungt í vöfum en nú væri farið að sjást fyrir endann á þessu og hann vonaðist til að beltið kæmi á markað á næstu vikum. Hann sagði að Reykja- lundur hefði tekið framleiðslu beltisins að sér og væru þeir bún- ir að koma sér upp tækjakosti til framleiðslunnar. Grímur í ályktuninni segir meðal annars: „Það er óumdeilt að fyrirhuguð stöð og starfsemi tengd henni mun auka til muna hættu á geislamengun við norðanvert Atlantshaf. Áhrif slíkrar mengunar geta orðið geigvænleg fyrir allt líf á þessum slóðum. Það getur ekki verið einkamál einstakra þjóða þegar þær velta umhverfisvanda sínum yfir á aðra. Vanda sem getur orðið svo óyfirstíganlegur að hann verður þinginu, var starfsemi Nordjobb á Islandi en það er atvinnumiðlun fyrir ungt fólk á Norðurlöndum sem er í umsjá norrænu félaganna. Einnig var rætt um starfsemi upplýsingaskrifstofu, sem starf- rækt er á Akureyri í samvinnu Norrænu ráðherranefndarinnar og Norræna félagsins. Þá var rætt um umfangsmikla ferðaþjónustu Norræna félagins, þátttöku félagisns í norrænu sam- starfi o.fl. og samþykktar tillögur og lagabreytingar. A þinginu kom fram, að hagur félagsins stendur nú með miklum blóma. Formaður Norræna félagsins var endurkjörinn Gylfi Þ. Gíslason pn - aðrir í aðalstjóm em Haraldur Olafsson, Guðlaugur Þorvaldsson, Jóna Bjarkan, Kristjana Sigurðar- dóttir, Hreinn Pálsson, Sigurður Símonarson og Siv Friðleifsdóttir. Framkvæmdastjóri Norræna fé- lagsins er Sighvatur Björgvinsson. ekki bættur. Náttúruverndarráð skorar á ríkisstjórn Bretlands að hætta nú þegar við þessar hugmyndir. Jafn- framt skorar ráðið á ríkisstjórnir allra landa við norðanvert Atlants- haf, og aðra þá er láta sig um- hverfismál eihveiju skipta, að gera það sem i þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að nefnd endur- vinnslustöð verði reist í Dounreay.“^'

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.