Morgunblaðið - 22.12.1989, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 22.12.1989, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. DESÉMBER 1989; 29 Alsír: Sjónvarpið talið ógnun við íslam Algeírsborg. Reutcr. ALLT að 300.000 heittrúarmenn gengu í gær fylktu liði að þing- húsinu í Algeirsborg til að mót- mæla því, sem þeir kölluðu tilræði við íslamska trú. Voru unglingar fjölmennastir en göngunni stjórn- uðu menn úr nýstofnuðum flokki öfgatrúarmanna. I yfirlýsingu frá flokknum, sem heitir Dawra Islamiya, sagði, að gangan væri farin til að mótmæla öllu, sem misbyði „virðingu íslamskra kvenna og íslamskri trú“, en þá mun meðal annars vera átt við samkennslu pilta og stúlkna í skólum og kapaísjónvarp og mót- tökudiska, sem gera fólki kleift að horfa á erlenda dagskrá. Alsírskir fjölmiðlar hafa að und- anförnu sakað heittrúarmennina um yfirgang og ofbeldi og stjórnmála- flokkar og menntamenn hafa efnt til funda_ til að jnótmæla árásum þeirra. Á miðvikudag samþykkti þingið bann við fjöldafundum og nær það einnig til guðshúsa í landinu eða moskanna þar sem trúarofstækis- menn láta mest að sér kveða. Ekki kom til neinna átaka við þinghúsið í gær en fulltrúar kvenna í hópnum báðu þingið um að setja aftur í lög, að þeim bæri að hlýða og virða eiginmanninn. Þá úthúðuðu þær kvenréttindakonum, sem aftur hafa beðið um lögregluvernd vegna ofsókna öfgamanna. ■ Stokkhólmi. - Stjórnvöld í Svíþjóð hafa rekið sovéskan ríkis- borgara úr landi fyrir að njósna um hernaðarmannvirki og -reyna að afla upplýsinga um sænsk og erlend tæknimál. Maðurinn er starfsmaður sövésks fyrirtækis og nýtur ekki friðhelgi diplómata. Að sögn utanríkisráðuneytisins tókst með þessari ráðstöfun að vernda sænska hagsmuni í tíma. M Jakarta. — Nokkrir bændur á eynni Sulawesi í austurhluta Indó- nesiu hafa gripið til þess ráðs að selja börn sín í kjölfar uppskeru- brests. Bóndi að nafni Sapuan, sem settist að í Sulawesi fyrir nokkrum árum, seldi tvær litlar dætur sínar fyrir 200.000 rúpía (tæplega 7000 ísl. kr.) og notaði andvirðið tl að komast aftur til Jövu. Stjórnvöld á Jövu hafa verið gagnrýnd fyrir að senda fólk frá þéttbýlustu svæð- unum á móðureynni til afskekktra og stijálbýlla smáeyja í eyjaklasan- um. ■ Tokyo. — Tvö japönsk fyrir- tæki ætla að reisa smokkaverk- smiðju fyrir Sovétríkin, þar sem mikill skortur er á þessari vöru. Verksmiðjan, sem verður í Serpuk- hov um 100 kílómetra fyrir sunnan Moskvu, tekur til starfa síðla árs 1991 og mun framleiða 300 millj- ónir smokka á ári. Það er minna en helmingur áætlaðrar ársnotk- unar Sovétmanna sem hingað til hafa orðið að flytja inn veijur frá Indlandi. ■ Ankara. — Aflýsa varð öllu flugi frá Ankara, höfuðborg Tyrk- lands, í gær, þriðja daginn í röð, vegna þokuþykknis sem grúfði yfir borginni. Skyggnið var innan við 100 metrar. Mengun af brenni- steinsdíoxíði er tíu sinnum meiri á þessum slóðum en alþjóðlegir stuðlar kveða á um sem skaðleysis- mörk. ■ Kaupmannahöfn. - Nýr' yfir- maður tekur til starfa hjá SÁS í Kaupmannahöfn 1. janúar næst- komandi. Hann heitir Michael Morch, verkfræðingur að mennt og hefur starfað sem ráðgjafi hjá flugfélaginu í málefnum Evrópu- bandalagsins. Fyrir var fjögurra manna samstjórn sem tók við af Frede Ahlgreen Eriksen. ■ Kaupmannahöfh. — Tveir Pal- estínumenn, Mohammed Abu Taib og Marten Imandi, voru dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir rétti í Uppsöl- um í Svíþjóð í gær. Þeim var gefið að sök að hafa staðið fyrir sprengjutilræðum í Kaupmanna- höfn, Amsterdam og Stokkhólmi 1985 og 1986. Vegfarandi, sem átti leið fram hjá skrifstofum flug- félagsins Northwest Orient í Kaup- mannahöfn, lést af völdum spreng- ingarinnar þar. Ekkert mannfall varð af völdum tilræðanna í hinum borgunum tveimur. Harðlínukommúnistar stofiia flokk 1 Litháen: Ætla að styðja móð- urflokkinn í Moskvu Moskvu. Reuter. HÓPUR harðlínukommúnista í Litháen hefúr ákveðið að stofiia eig- in flokk sem verður deild í sovéska kommúnistaflokknum. Gera þeir þetta til að andmæla því, að stofiiaður hefúr verið kommúnistaflokk- ur í Litháen án formlegra og flokkslegra tengsla við Kommúnista- flokk Sovétríkjanna og bækistöðvar hans í Moskvu. Ákvörðun um að stofna óháðan Shveds og haldið sitt eigið þing kommúnistaflokk var tekin af þorra þeirra 1.000 fulltrúa sem sátu auka- þing kommúnistaflokksins í Litháen í fyrradag. Hins vegar var haft eft- ir blaðamönnum í Vilnius í gær að 135 fulltrúanna hefðu nú ákveðið að stofna eigin flokk. í forystu fyr- ir hópnum færi Vladislav Shved, sem var einn af helstu leiðtogum gamla kommúnistaflokksins í Lit- háen. Hann er Rússi. Að sögn blaðamannanna hafa mennirnir 135 undirritað skjal þar sem lýst er yfir trúnaði við sovéska kommúnistaflokkinn og höfuð- stöðvar hans í Moskvu. Edvinas Butkus, fréttamaður út- varpsins í Vilnius, sagði að hópurinn hefði farið rakleitt af aukaþingi kommúnistaflokksins til heimilis þar. Hefðu þeir síðan sent frá sér yfirlýsingu í gær þar sem þeir út- skýrðu áform sín. Míkhaíl Gorbatsjov, Sovétleið- togi, ræddi við fulltrúa Lítháens á sovéska þinginu í þinghléi í gær. Þar er hann sagður hafa harmað að sjálfstæður kommúnistaflokkur skyldi hafa verið stofnaður í lýð- veldinu. Að ósk hans ákvað stjórn- málaráð sovéska kommúnista- flokksins að efna til neyðarfundar í miðstjórninni á næstu dögum. Þar verður væntanlega tekin ákvörðun um hvernig bregðast skuli við nýja flokknum. Gorbatsjov og helstu valdamenn í Kreml lögðust í síðasta mánuði gegn áformum um sjálf- stæðan kommúnistaflokk í Litháen. Stýrisskíðið er með fjöðrum og sjálfupprúll- andi dragsnúru á sumum gerðum. Skiðin eru breið og stöðug og renna einstaklega vel. öryggisgrindin er úr sænsku gæðastáli. Þrælöruggar hand og fót- bremsur. Varnargrind fyrir framan fætur úr sænsku stáli. Mér sérhönnuðum útbúnaði sveigir sleðinn og stöðvast strax ef þú missir hann. Allur sleðinn er hann- aður með öryggið i fyrirrúmi í sam- vinnu við fjölmarga barnaserfræði- nga. ÖRNINN Spítalastíg 8 vió Óóinstorg símar: 14661,26888 Bretland: 225.000 Hong Kong-bú- ar fái bresk þegnréttindi London. Daily Teiegrapli. BRESKA sfjórnin hefúr lagt fram frumvarp, þar sem gert er ráð fyrir því að allt að 225.000 íbúum Hong Kong verði veitt bresk þegn- réttindi. Landstjóri nýlendunnar, Sir David Wilson, fagnaði frum- varpinu en ágreiningur er um það innan þingflokks íhaldsflokksins og ekki er talið víst að það verði samþykkt. Samkvæmt frumvarpinu verður allt að 50.000 fjölskyldum Hong Kong veitt bresk þegnréttindi án þess að þær þurfi að flytja úr ný- lendunni. Áætlað er að allt að 225.000 manns fái þessi réttindi, en íbúar Hong Kong eru 5,7 milljón- ir. Sir David Wilson sagði að frum- varpið myndi binda enda á óvissu sem ríkt hafi í nýlendunni frá því ákveðið var að Kínyeijar tækju við henni árið 1997. „Ég álít að þetta hafi góð sálræn áhrif á Hong Kong-búa og verði til þess að stór hluti þeirra, sem ella hefðu flúið burt, sjái sér nú fært að vera um kyrrt,“ sagði landstjórinn. Mikil óeining virðist ríkja innan þingflokks íhaldsflokksins um mál- ið. Norman Tebbit, fyrrum leiðtogi flokksins, gagnrýndi frumvarpið í þinginu og spurði Douglas Hurd utanríkisráðherra hvort það væri í samræmi við kosningafyrirheit íhaldsflokksins um að útlendingum verði ekki lengur heimilað að flytj- ast í stórum stíl til landsins. Er talið að þetta geti verið undanfari mestu uppreisnar innan þingflokks- ins gegn stjórn íhaldsflokksins til þessa. Frumvarpið mætti einnig and- stöðu þingmanna Verkamanna- flokksins. Þeir sögðu að ekki væri Reuter Götumynd frá Hong Kong. hægt að koma því í framkvæmd og að það myndi ala á sundurlyndi í Hong Kong. meiríháttar /TIGft. SLEÐAR trytötæki! Sænskur hágæðasleði með fjaðrandi stýris- skíði og öryggisbremsum. Þú getur sveigt, beygt og bremsað að vild. Stigasleðinn er níðsterkur og getur því líka borið bæði pabba og mömmu!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.