Morgunblaðið - 22.12.1989, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1989
Breytingartillaga við fjárlagafrumvarp:
Heidurslaun lista-
manna hækki um 25%
Fjárlög gera ráð fyrir sömu upphæð og í ár
FJORTÁN þingmenn hafa lagt fi’am þá breytingartillögu við frum-
varp til íjárlaga fyrir árið 1990 að heiðurslaun listamanna verði
samtals 12 milljónir 750 þúsund krónur, eða 25% hærri upphæð en
í frumvarpinu. Þar var gert ráð fyrir að fjárhæðin verði sú sama
og í fjárlögum ársins 1989, eða 10,2 milljónir króna.
I breytingartillögunni er lagt til
að sömu menn fái heiðurslaun
listamanna á næsta ári og fengu
þau í ár en þeir eru 17 talsins. Í
fyrra fékk hver þeirra 600 þúsund
krónur í heiðurslaun en samkvæmt
breytingartillögunni eiga 750 þús-
und krónur að koma í hlut hvers
og eins.
Þeir, sem fengu heiðurslaun
listamanna í fyrra, eru Ámi Krist-
jánsson, Finnur Jónsson, Guð-
mundur Daníelsson, Halldór Lax-
ness, Hannes Pétursson, Indriði
G. Þorsteinsson, Jakobína Sigurð-
ardóttir. Jóhann Briem, Jón Nord-
al, Jón úr Vör, Jórunn Viðar,
Kristján Davíðsson, María Mark-
VEÐUR
an, Matthías Johannessen, Stefán
íslandi, Valur Gíslason og Þor-
steinn Ö. Stephensen.
Morgunbladið/Bjami
Frá afhendingu fyrstu húsbréfanna í Húsnæðisstofiiun í gærmorgun.
Frá vinstri Sigurður Geirsson deildarstjóri húsbréfadeildar, Sigur-
laug Guðmundsdóttir seljandi og Stefán Guðleifsson kaupandi.
Fyrstu húsbréfin afhent
FYRSTU húsbréfin voru afhent
Sigurlaugu Guðmundsdóttur,
seljanda fjögurra herbergja
íbúðar á Þinghólsbraut 39 í
Kópavogi, í gærmorgun, viku
eftir að kaupsamningur hafði
verið undirritaður.
Kaupsamningur var undirritaður
þann 15. desember síðastliðinn milii
Sigurlaugar og kaupendanna, Stef-
áns Guðleifssonar og Köru Arn-
gi’ímsdóttur, hjá fasteignasölunni
Eignamiðlun í Reykjavík.
Kaupverðið er 5,5 milljónir króna
og húsbréfin fjármagna um 60%
af því, eða 65% að frádregnu
I DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFURIDAG, 22. DESEMBER.
YFIRLIT í GÆR: Um 300 km suðvestur af Reykjanesi er 975 mb
lægð, sem grynnist og þokast austur. Yfir Grænlandi er 1.018 mb
hæð. Hiti breytist lítið.
SPÁ: Austan- og norðaustanátt, 5-7 vindstig á Suðvestur- og Vest-
urlandi í kvöld og nótt en annars hægari vindur. Skýjað unn allt
land og sums staðar smáél eða dálítil snjókoma, einkum þó við
norður- og austurströndina. Frost um ailt land.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á ÞORLÁKSMESSU: Framan af degi lítur út fyrir hæga aust-
an- og norðaustanátt með smáéljum við norður- og austurströndina,
en annars úrkomulaust veður, en undir kvöld fer að hvessa með snjó-
komu sunnan- og suðaustaniands. Frost víðast 5-10 stig.
HORFUR Á AÐFANGADAG: Stif norðanátt með snjókomu um allt
norðan- og austanvert landið en éljum sunnanlands og vestan. Frost-
laust við austurströndina, en allt að 10 stiga frost norðvestanlands.
TAKN:
Heiðskírt
a Norðan, 4 windstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
r * r * Slydda
r * r
* * *
•**■** Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V E'
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—J. Skafrenningur
Þrumuveður
áhvílandi Byggingarsjóðsláni. Upp-
hæð fasteignaveðbréfsins sem
kaupendur gefa út á móti húsbréf-
unum er 3.255 þúsund krónur.
Þórólfur Halldórsson fasteigna-
sali, sem hafði milligöngu um kaup-
in, segir að viðskiptin hafi gengið
vel og að nánast sé um stað-
greiðslu að ræða, þar sem megin-
hluti kaupverðsins greiðist með
húsbréfum og eftirstöðvum á mjög
skömmum tíma.
Landsvirkjun:
Viðbrögð við
tekjuskatti
íhuguð frekar
Á stjórnarfúndi Landsvirkjunar
í gær voru engar ákvarðanir tekn-
ar um viðbrögð við fyrirhuguðum
tekjuskatti, sem á að leggjast á
fyrirtækið samkvæmt frumvarpi
ríkisstjórnarinnar. Halldór Jónat-
ansson, forsljóri Landsvirkjunar,
segir að þar sem afgreiðslu frum-
varpsins hafi verið frestað fram
yfir áramót, muni menn taka sér
tíma til íhugunar og til að reikna
betur út áhrif skattsins.
Á stjórnarfundinum var heldur
engin ákvörðun tekin um gjaldskrár-
hækkun, en hún verður til umræðu
áfram. Halidór sagði að gjaldskrár-
hækkun væri rædd vegna verðbólgu
og gengisbreytinga, en ekki væri von
á að hún yrði meiri en almennar
verðbreytingar.
Ljóst þykir að tekjuskatturinn,
sem leggjast mun á orkufyrirtæki,
vet'ði frumvarp ríkisstjórnarinnar að
lögum, muni nema hundruðum millj-
óna króna hjá Landsvirkjun einni.
Getum hefur verið leitt að því, að
skatturinn muni hækka orkuverð til
almennings og hafa áhrif á samninga
um nýja stóriðju hérlendis.
4 m w
% 1 w
T */
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að isl. tíma
hiti veður
Akureyri t13 aiskýjað
Reykjavik t4 alskýjað
Björgvin 4 rigning
Helsinki 4-1 léttskýjað
Kaupmannahöfn 10 skýjað
Narssarssuaq 47 snjókoma
Nuuk 410 snjókoma
Ósló 0 snjókoma
Stokkhólmur 2 rigning
Þórshöfn 0 skýjað
Algarve 19 skýjað
Amsterdam 13 skýjað
Barcelona 17 skýjað
Bertin 14 léttskýjað
Chicago -i-24 heiðskírt
Feneyjar 10 þokumóða
Frankfurt 14 skýjað
Glasgow 9 mistur
Hamborg 14 skúr
Las Palmas 25 heiðskirt
Lundúnir 14 léttskýjað
Los Angeles 9 heiðskírt
Lúxemborg 12 alskýjað
Madríd 18 þokumóða
Malaga 17 skýjað
Maliorca 17 skýjað
Montreal 419 léttskýjað
New York 48 snjókoma
Orlando 11 þokumóða
París 14 rigning
Róm 16 skýjað
Vín 8 skýjað
Washington 47 skýjað
Winnipeg 435 ísnálar
Stefán A. Pálsson látinn
STEFÁN A. Pálsson, fyrrverandi
stórkaupmaður, er látinn í
Reykjavík, 88 ára að aldri. And-
lát hans bar skjótt að, og hann
andaðist í Landspítalanum.
Stefán fæddist 2. febrúar 1901
á Hrauni á Djúpavogi. Hann stund-
aði nám við Verzlunarskóla íslands
1917-1919 og framhaldsnám í við-
skiptafræðum í Edinborg í Skot-
landi 1919-1921. Heim kominn setti
hann á stofn eigin heildverzlun, sem
hann rak til 1960, en eftir það varð
hann skrifstofumaður hjá Bæjarút-
gerð Reykjavíkur og sinnti því starfi
til 1979. Stefán var alla starfsævi
sína búsettur í Reykjavík.
Stefán sinnti mjög félagsstörf-
um. Hann var einn ötulasti starfs-
maður Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík um áratuga skeið. Kosn-
ingastjóri sjálfstæðismanna fyrir
allar bæjar-, sveitarstjórnar- og al-
þingiskosningar var hann frá 1932
til 1974. Hann sat í stjórn Lands-
málafélagsins Varðar 1934-1938
og 1940-1943. Formaður félagsins
var hann 1942-1943, og var gerður
að heiðursfélaga 1971. Stefán var
varatnaður í borgarstjórn 1938-
1946 og sat þá meðal annars í fram-
færslunefnd.
Hann var umboðsmaður Há-
skólahappdrættisins 1934-1948 og
forstöðumaður Vetrarhjálparinnar í
Reykjavík 1934-1954. Hann var
einnig formaður Knattspyrnufé-
lagsins Fram og var sæmdur silfur-
krossi félagsins. Þá var hann í
stjórn og formaður Ftjálslynda
safnaðarins 1942-1945.
Eftirlifandi eiginkona Stefáns er
Hildur E. Pálsson, fædd 1912.
Metsölulisti
Eymundssonar
Eymundsson hefur tekið saman lista yfir söluhæstu bækur í
versluninni. Listinn byggir á upplýsingum úr tölvuvæddu sölu-
kerfi Bókaverslana Sigfúsar Eyniundssonar við Austurstræti og
í Kringlunni d^gana 15.-21. desember.
1. Sagan sem ekki mátti segja. 10.-11. Kjölfar Kriunnar.
Nanna Rögn valdardóttir. Þorbjörn Magnússon og
2. Ég heiti Isbjörg - Ég,er ljón.
Vigdís Grímsdóttir.
3. Égoglífið.
Inga Huld Hákonardóttir.
4. Dauðalestin.
Alistair MacLean.
5. Sendiherrafrúin.
Heba Jónsdóttir.
6. Fransí biskví.
Elín Páimadóttir.
7. Með fiðring í tánum.
Þorgrímur Þráinsson.
8. Náttvíg.
Thor Vilhjáimsson.
9. Ráðgátan á Klukknahvoli.
Enid Blyton.
10.-11. Fimm hittast á ný.
Enid Biyton.
UnnurÞóra Jökulsdóttir.
12. Égget séð um mig sjálf.
Liz Berry.
13. Orrustuskipið Bismarck.
Von Mullenheim-Rechberg.
14. Snorri áHúsafelli.
Þórunn Valdimaisdóttir.
15.-16. Bakkabræður.
15.-16. Sandkorn tímans.
Sidney Sheldon.
17. Frændi Konráðs.
Vilhjálmur Hjálmarsson.
18. Skýrt og skorinort.
lndriði G. Þorsteinsson.
19. EvaLauna.
Isabel Allende.
20. Lata stelpan.
'Emil Ludvig og Zdenék Miler.