Morgunblaðið - 22.12.1989, Síða 34

Morgunblaðið - 22.12.1989, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1989 Þriðja umræða fjárlagafrumvarps 1990: Aætlaðiu* * ijárlagti- halli 3.639 milljónir Falinn Qárlagahalli allt að 3.000 m.kr. segja stjórnarandstæðingar Stjórnarfrumvarp til fjárlaga fyrir árið 1990 kom til þriðju og síðustu umræðu á Alþingi í gær. Samkvæmt breytingartillögum stjórnarliða í Qárveitinganefnd hækka útgjöld ríkissjóð við 2. og 3. umræðu samtals um 1.977.246 m.kr. frá fjárlagafrumvarpi, eins og það var lagt fram í haust. Samkvæmt sömu tillögum hækka tekjur [skattheimta] ríkisins um 1.193.000 m.kr. Að þessum breytingum sam- þykktum gera fjárlög komandi árs ráð fyrir 3.638.973 m.kr. ríkis- sjóðshalla, það er eyðslu umfram tekjur. Talsmenn stjórnarandstöðu telja að stjórnarliðar feli, auð auki, allt að 3000 m.kr. útgjaldavanda utan fjárlagadæmisins, þannig að hallinn á ríkisbúskapnum á kom- andi ári verði 6 til 7 milljarðar króna. Útgjöldin og skattheimtan Sighvatur Björgvinsson (A- Vf), formaður fjárveitinganefndar, sagði áætluð útgjöld ríkissjóðs 1990 hafa hækkað um 1.977.246 m.kr. í meðförum fjárveitinga- nefndar frá því fjárlagafrumvarp var lagt fram, eða um 2,1%. Á móti hafi áætlaðar tekjur ríkissjóðs hækkað um 1.193.000 m.kr., þ.e. beinir skattar um 1.180 m.kr., óbeinir skattar um 698.000 m.kr. og aðrar tekjur um 711.000 m.kr. Gjöld hafa því hækkað umfram hækkun tekna um 784.246 m.kr. Áætlaður fjárlagahalli vex því úr 2.854.727 m.kr., samkvæmt frum- varpinu, í 3.638.973 m.kr. í endan- legum fjárlögum, sem koma til at- kvæða á Alþingi í dag. Skynsamlegir kjarasamningar Formaður fjárveitinganefndar gerði þinginu grein fyrir þjóðhags- horfum, samkvæmt gögnum Þjóð- hagsstofnunar, og sagði m.a.: „Vinna verður með öllum ráðum að því að draga úr verðhækkunum og þörf til verðhækkana þannig að verðlag almennt í landinu hækki eins lítið og framast er unnt og helzt mun minna en áætlanir og spár gera ráð fyrir. Þetta er hægt með samstilltu átaki aðila vinnu- markaðarins og þar ráða úrslitum að sjálfsögðu þeir kjarasamningar sem gerðir verða á árinu. Stjórnvöldum ber að greiða fyrir því svo sem framast er unnt að skynsamlegir kjarasamningar náist sem tryggi að undirstöðuatvinnu- vegirnir geti gengið án þess að til nokkurra gengisbreytinga þurfi að koma, en með gengisbreytingu mun verðbólguhjólið fara að snúast á ný. Þá á markmið slíkra samn- inga einnig að vera að varðveita atvinnuöryggið og lífskjörin . . .“ Feluleikur Ijármála- ráðherrans Pálmi Jónsson (S-Nv) sagði stjórnarliðið hafa efnt til stórkost- legs feluleiks við fjárlagagerðina milli 2. og 3. umræðu. „í stað þess að leiðrétta útgjaldaliði frumvarps- ins nokkurn veginn í átt að því sem ætla mátti að hægt væri að standa við hófst nú stórkostlegur feluleik- ur, vafalaust að forskrift fjármála- ráðherrans . . . í fyrsta lagi var það gert með því að ekki er áætlað fyrir útgjöldum sem sýnilega munu þó koma til greiðsiu á næsta ári. I annan stað er reynt að leyna raun- verulegum útgjöldum A-hluta ríkis- sjóðs með því að fela þau í heimild- arákvæðum 6. greinar. I þriðja lagi eru tillögur um niðurskurð út- gjalda, sem samkvæmt fyrri reynslu er ólíklegt að standizt. I fjórða lagi er möndlað með mál á þann hátt að tekinn er sjóður úr A-hluta, svokailaður Mannvirkja- sjóður menningarbygginga, og færður yfir í B-hluta. Þennan sjóð á síðan að láta taka lán sem veitt er þaðan yfir í A-hluta. Þetta síðasttalda atriði er með því ós- mekklegasta sem ég hef séð varð- andi blekkingar við afgreiðslu fjár- laga. Allt blasir þetta við okkur sem störfum í fjárveitinganefnd. En það ere.t.v. ekkijafn ljóstöðrum . . .“ Pálmi sagði að fjárlög ársins, 1990 stæðu til 3.700 m.kr. halla, samkvæmt tiliögum stjómarliðsins við þessa síðustu fjárlagaumræðu. Leyndur og geymdur vandi væri trúlega allt að 3.000 m.kr. til við- bótar. Fjárlagagatið gæti því stækkað til muna þegar öll kurl eru komin til grafar. Þrengt að almenningi og atvinnuvegum Pálmi Jónsson sagði undir lok máls síns, efnislega eftir haft: ★ 1) Fjárlög verða afgreidd með alvarlegum halla, 3,7 milljörðum króna, auk þess sem „falinn halli er allt að j)rír milljarðar króna“. ★ 2) Utþensla ríkiskerfisins stefnir í 2% aukningu þess, að raun- gildi, þrátt fyrir samdrátt í þjóðar- búskapnum. ★ 3) Eftir íslandsmet í skattpín- ingu á líðandi ári á enn að þyngja skattbyrðina, einkum með tekju- sköttum og eignasköttum, bifreiða- sköttum og launasköttum. ★ 4) Stjórnarstefnan, sem í fjár- lögunum felst, miðar að því að þrengja að almenningi og atvinnu- vegum, með þeirri viðsjárverðu af- leiðingu fyrir atvinnu- og efna- hagslíf þjóðarinnar, að það er gert torveldara að snúa vörn í sókn, breyta samdrætti í framfarír. Aðstaða fólks með glúten-óþol könnuð Hreggviður Jónsson (B/Rn) leggur það til að Alþingi álykti að fela ríkisstjóminni að skipa nefnd til þess að kanna aðstöðu einstakl- inga með glúten-óþol. Er lagt til að sérstaklega verði hugað að aukakostnaði þeirra við matargerð og fæðukostnað. Þá verði kannað með hvaða hætti einstaklingar með glúten-óþol njóti aðstoðar hins op- inbera annars staðar á Norðurlönd- um, svo sem með greiðslum frá almannatryggingum og hvaða skattalega meðferð þeir fá. Einnig er lagt til að kannað verði hvort gera megi glúten-óþol að skráning- Milljarður í mínus hjá Vegagerðinni Eggert Haukdal (S-Sl) hélt því fram að stjórnarliðið stefndi nú að 675 m.kr. framkvæmdaniður- skurði í vegamálum, miðað við gild- andi vegaáætlun, auk þess sem virðisaukaskattur 1990 hækkaði útgjöld vegagerðarinnar um 300-350 m.kr. Niðurskurðurinn í vegamálum spannaði því heilan milljarð króna. í skugga atvinnuleysis Málmfríður Slgurðardóttir (SK-Ne) sagði þjóðina nú ganga til jólahátíðar í skugga atvinnuleys- is og kvíða. Hún gagnrýndi skatt- lagningu á brýnustu nauðsynjar heimilanna með virðisaukaskatti. Ennfremur hækkun skatta á um- ferðina, benzíngjalds og bifreiða- gjalds. Nú er svo komið að lág- launafólk getur í raun hvorki hald- ið uppi eðlilegri neyzlu né staðið undir eigin bíl, sagði þingmaðurinn. Fleiri þingmenn tóku til máls þótt ekki verði frekað rakið. At- kvæðagreiðsla fer fram um fjárlög- in í dag, lokadag þingsins fyrir þinghlé fram yfir áramót. Svipmynd írá Alþingi Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, hefur staðið í ströngu undan- farnar vikur og daga. Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1990 hefur haft nokkum andbyr, sem og ýmis skattafrumvörp því tengd. Þetta eru önnur fjárlögin í ráðherratíð Ólafs Ragnars Grímssonar. Hér á myndinni sést ráðherrann í rökræðum við Þórð Skúlason, oddvita á Hvammstanga, vara- þingmann Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi vestra. Guðrún Helgadóttir, forseti Sameinaðs þings: Ekki ásetningnr minn að valda sjálfstæðismönnum sárindum GUÐRÚN Helgadóttir, forsetí Sameinaðs þings, gaf út þá yfirlýsingu í upphafi fundar í gær, að með ummælum sínum í fréttatíma Ríkisút- varpsins, hafi hún ekki haft þann ásetning að valda stærsta stjórn- málaflokki landsins sárindum. Olafúr G. Einarsson, formaður þing- flokks sjálfstæðismanna, segir málinu lokið af þeirra hálfú, þó ekki væri um eiginlega afsökunarbeiðni að ræða. Yfirlýsing Guðrúnar var svo- hljóðandi: „Allt frá því að forseti tók við embætti fyrir rúmu ári, hefur hann átt hið ágætasta samstarf við þing- menn alla, stjórnarþingmenn jafnt sem stjórnarandstöðu, enda telur forseti sig hafa reynt að láta eitt yfir alla ganga í störfum þingsins. Það vita þeir háttvirtir þingmenn sem forsetastörfum hafa gegnt, að nokkuð mæðir á forsetum, sem jafnframt því að vera starfandi þingmenn, skulu einnig hafa yfir- umsjón með þinghaldi' og rekstri þingsins. Það er engin nýlunda að miklar annir upphefjist síðustu vik- ur fyrir jólahlé. Svo hefur einnig, verið nú. AIÞinGI mála í gær og vonar að svo megi einnig verða í dag.“ „Við látum þetta duga, þótt þetta væri ekki eiginleg afsökunarbeiðni og er máiinu lokið af okkar hálfu nú,“ sagði Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks sjálfstæðis- manna, í samtali við Morgunblaðið. „í þessum orðum Guðrúnar fólst að hún hafi ekki af ásetningi ætlað að valda sárindum, að hún vonaðist til að þetta yrði ekki erft og að hún þakkaði gott samstarf. Allt er þetta mjög jákvætt.“ Ólafur sagðist hins vegar ekki' geta fallist á þá fullyrð- ingu Guðrúnar að þingskaparum- ræðan í Sameinuðu þingi á þriðju- dagskvöld hefði verið tilefnislaus. „Tilefni umræðunnar var ósæmileg- ar árásir forseta á Sjálfstæðisflokk- inn og bein ósannindi, þar sem hún sagði að við ætluðum okkur að koma í veg fyrir gildistöku laga um virðisaukaskatt og það sæmir ekki forseta að taka afstöðu með öðrum deiluaðila, það er að segja ríkis- stjórninni. Virðisaukaskattur: Það kemur í hiut forseta að vera talsmenn þingsins. Til þeirra er leit- að þegar spurst er fyrir um verk- stjórn og framvindu mála í þinginu. Viðtal fréttamanns ríkisútvarpsins við forseta Sþ. 18. des. sl. hefur valdið stærsta stjórnmálaflokki landsins sárindum, sem ekki var ætlunin að efna til. Kvöldið áður hafði forseti raunar gagnrýnt ríkis- stjómina fyrir að leggja mál sín of seint fram, svo að þau mættu að logum verða fyrir jólahlé. Því taldi forseti ekki á neinn hallað. Hafi forseti hagað orðum sínum svo, var ekki um ásetning að ræða. Umræða sú sem fram fór hér í fyrrakvöld var því langt umfram tilefni og þung orð féllu. Forseti mun ekki erfa það og vonar að hið sama gildi um umrætt viðtal. Forseti vill þakka öllum háttvirt- um þingmönnum góða og heiðar- lega samvinnu við afgreiðslu þing- Tillögur sem féllu Stjórnarliðar felldu sjö breytingartillögur Fijálslyndra hægri manna við stjórnarfrumvarp um breytingar á virðisaukaskatti, sem nú er orðið að lögum. Meðal tillagna, sem stjórnarliðar felldu, voru þessar: * 1) Að virðisaukaskattur skyldi lagður á í tveimur þrepum, hið lægra ekki hærra en 6%, sem nýtt yrði fyrir matvörur og helztu nauð- synjar heimilanna, samkvæmt nán- ari skilgreiningu í reglugerð. * 2) Að fallið væri frá því ákvæði í stjórnarfrumvarpinu sem kveður á um fyrirfram númeraða reikninga í viðskiptum með virðisaukaskatts- skyldar vörur, enda útiloki það ákvæði nútíma vinnubrögð, þ. e. tölvuútskrift reikninga. * 3) Að skattskyldum aðilum skuli heimilt að greiða fyrirfram áætlaðan virðisaukaskatt einu sinni á ári. Sé slík fyrirframgreiðsla vanáætluð umfram 5% er heimilt að leggja á álag með sama hætti og frumvarpsgreinar heimila þegar um vangreiddan skatt er að ræða. Flutningsmenn töldu þetta mikil- vægt til að skattgreiðendur, einkum einyrkjar, gætu með sæmilegu móti komizt í orlof. * 4) Að endurgreiða skuli eigend- um íbúðarhúsnæðis virðisaukaskatt sem þeir hafa greitt af vinnu manna við viðhald og/eða endurbætur þess, enda sé heildarkostnaður a.m.k. 3% af fasteignamati húseignar. Þessar tillögur sem og aðrar breytingartillögur FH vóru felldar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.