Morgunblaðið - 22.12.1989, Síða 35

Morgunblaðið - 22.12.1989, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ' FÖSTUÐAGUR 22. DESEMBER 1989 35 Viðtal Morgunblaðsins vlð sendiherra Bandaríkjanna á íslandi: Opinber afskipti af inn- anríkismálum Islendinga - segir Steingrímur Hermannsson STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra telur að bandaríski sendiherrann hafi í viðtali við Morgunblaðið blandað sér með óvið- eigandi hætti inn í íslensk innanríkismál og með því brotið gegn Vínarsamningnum. Kom þetta fram í utandagskrárumræðum í Sam- einuðu þingi í gær. Jón Sigurðsson, sitjandi utanríkisráðherra, kvaðst ekki vera á sama máli, um væri að ræða persónulegt viðtal við sendiherrann. Málshefjandi, Hjörleifur Gutt- ormsson (Ab/Al), hóf mál sitt með því að gera grein fýrir lögum og alþjóðlegum samþykktum þess efn- is að erlend sendiráð skipti sér ekki af innanríkismálum viðkom- andi lands. Hann vitnaði síðan til viðtals Morgunblaðsins þann 17. desember síðastliðinn við nýskipað- an sendiherra Bandaríkjanna á ís- landi, Charles Cobb. Taldi hann að ummæli sendiherrans í viðtalinu væru gróf afskipti af innanríkis- málum íslands og brot á 41. gr. Vínarsamningsins. í viðtalinu greinir sendiherrann frá þeim áhuga sínum að greiða fyrir samn- ingum íslenskra stjórnvalda og bandaríska álfyrirtækisins Alumax um byggingu nýs álvers og hvað hann hefði gert í þeim málum. Einnig greindi hann þar frá þeirri skoðun sinni að mikilvægt væri að ákvörðun yrði tekin um byggingu nýs alþjóðlegs varaflugvallar á Is- landi. Hjörleifur innti forsætisráð- herra álits á þessu og hver við- brögð ríkisstjórnarinnar yrðu. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra kvaðst telja eftir að hafa skoðað viðtalið að sendi- herrann hefði farið út fyrir mörk sín, samkvæmt Vínarsamningnum og hefð. Hefði sendiherrann opin- berlega verið að reyna að hafa áhrif á viðkvæmt deilumál. ,',Ég verð því miður að staðfesta að út fyrir mörk hafi verið farið og mun ræða þetta mál við utanríkisráð- herra þegar hann kemur heim,“ sagði Steingrímur og bætti við að hann myndi einnig ræða við sendi- herrann um þessi mistök hans. „Viðtalið var annars um margt mjög gott.“ Jón Sigurðsson, sitjandi ut- anríkisráðherra, taldi umrætt við- tal við bandaríska sendiherrann persónulegt og því ekki þess eðlis að ástæða væri til að gera athuga- semdir við það eða efna til um- ræðna á Alþingi. „Sendiherrann fjallaði á persónulegan hátt um tvö umdeild deilumál hérlendis.“ Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra kvaðst vera sam- mála forsætisráðherra um að um- mæli sendiherrans væru óeðlileg tilraun til að hafa áhrif á ákvarð- anatöku íslenskra stjórnvalda. „Það er leitt að þurfa að lýsa því yfir að ég er algerlega ósammála yfirlýsingum viðskiptaráðherra og verð að lýsa yfir ágreiningi við hann.“ Taldi Ólafur það vera öllum Ijóst að um formlegt viðtal væri að ræða þar sem sendiherrann tal- aði sem sendiherra. Anna Ólafsdóttir Björnsson (SK/Rn) taldi nauðsynlegt að fá fram skýr viðbrögð um viðbrögð ríkisstjórnarinnar. Ingi Björn Albertsson (FH/VI) tók undir málflutning Jóns Sigurðs- sonar. Um væri að ræða persónu- legt viðtal og við það væri ekkert að athuga. Einnig væri vert að benda á það að það væri hlutverk sendiherra að liðka til fyrir við- skiptum landanna. Kristín Einarsdóttir (SK/Rv) lýsti yfir furðu sinni á ummælum sitjandi utanríkisráðherra. Fagnaði hún skoðunum fjármálaráöherra og forsætisráðherra. Þorsteinn Pálsson (S/Sl) taldi umræðuna varpa ljósi á alvarlegan ágreining ráðherra ríkisstjórnar- innar í þessu máli sem öðrum. Hann taldi yfirlýsingar forsætis- ráðherra marklausar ef ekki fylgdu frekari viðbrögð. „Ætlar forsætis- ráðherra að beita sér fyrir því inn- an ríkisstjórnarinnar að aðstoðin samkvæmt tilvitnuðu viðtali verði afþökkuð? Ef svo er ekki er lítið að marka yfirlýsingu forsætisráð- herra. Stefán Valgeirsson (SJF/Ne) kvað viðtalið vera íhlutun í inn- anríkismál, hvaða skoðanir sem menn hefðu á málunum efnislega. „Það er hastarlegt ef menn geta ekki gert athugasemdir við slík afskipti. Júlíus Sólnes hagstofúráð- herra taldi þingmenn gera of mik- ið veður út, af viðtalinu. Kvaðst hann ekki sjá að um óeðlileg af- skipti af innanríkismálum íslend- inga væri að ræða, heldur kæmi þar fram einlægur vilji til góðra samskipta landanna. Árni Gunnarsson (A/Ne) kvaðst hafa lesið viðtöl við sendi- herra Sovétríkjanna og Kína um áhuga á auknum samskiptum án þess að það kallaði fram viðbrögð. Það sem skakkt væri hins vegar hjá ráðherra væri að ræða um við- kvæm deilumál. Árni kvaðst ekki fá skilið að vikugamalt viðtal væri tekið uþp á dagskrá á næstsíðasta þingdegi fyrir jólahlé. Hreggviður Jónsson (FH/Rn) taldi að sumir ættu ekki að lesa blöðin, því þeir mættu greinilega ekki sjá neitt úr ákveðinni átt án þess að fá hland fyrir brjóstið. Benti hann á að utanríkisviðskipti hefðu verið færð til utanríkisráðu- neytisins og því ekki óeðlilegt að sendiherra tjáði sig um slík mál. Steingrímur J. Sigfússon sam- gönguráðherra taldi ekki heppi- legt að sendiherra væri að blanda sér með þessum hætti í umræðu um varaflugvallarmálið. Hann taldi þó ekki „íblöndunina" af eins alvar- legum toga - miðað við íbúa Pan- Oska eftir skýrslu um kaup Landsbankans á Samvinnubanka: Ríkír almannahags- muiiir eru þama í húfi - segir Þorsteinn Pálsson NÍU þingmenn Sjálfstæðisflokks, Kvennalista og Frjálslynda hægri flokksins hafa óskað eftir því að viðskiptaráðherra gefi Alþingi skýrslu um fyrirhuguð kaup Landsbanka íslands á hlutabréf- um Sambandsins í Samvinnubank- anum vegna almannahagsmuna sem þar séu í húfi. Er þess farið á leit, að skýrslan verði tekin til umræðu á Álþingi áður en ráð- herra staðfesti kaupin. Þingmennirnir óska eftir því að sérstök grein verði gerð fyrir efni fyrirhugaðs kaupsamnings Lands- bankans á hlutabréfum í Samvinnu- bankanum, kaupverði og kjörum og hvaða skuldbindingar Landsbankinn myndi taka á sig ef kaupin yrðu samþykkt. Þá er óskað eftir því að gerð verði grein fyrir álitsgerðum bankaeftir- litsins og Ríkisendurskoðunar um málið, sem viðskiptaráðherra hefur beðið um. Spurt er hvert eigið fé bankanna sé og hvert hlutfall útlána og ábyrgða þeirra af eigin fé sé vegna Sambands íslenskra sam- vinnufélaga. Þá er spurt hvort líkur séu á að Landsbankinn og Sam- vinnubankinn þurfi að afskrifa lán vegna SÍS. I skýrslubeiðninni er vitnað í við- tal Morgunblaðsins við forsætis- ráðherra 17. september sl. en þar sagði ráðherrann að honum skildist að skuld Sambandsins við Sam- vinnubankann að upphæð 1,6 mijlj- arðar, verði „parkerað" í Seðlabank- anum .{ 15 ár. Af þessu tilefni er óskað eftir að gerð verði grein fyrir því hvort bankaeftirlitið hafi rækt skyldur sínar samkvæmt bankalög- um varðandi viðskipti SIS við Lands- bankann og Samvinnubankann. Beiðnin er undirrituð af Þorsteini Pálssyni, Kristínu Einarsdóttur, Inga Birni Albertssyni, Friðriki Sop- hussyni, Birgi ísleifi Gunnarssyni, Þórhildi Þorleifsdóttur, Pálma Jóns- syni, Ragnhildi Helgadóttur og Ey- jólfi Konráð Jónssyni. Þorsteinn Pálsson sagði við Morg- unblaðið, að þetta mál tengdist ríkum almannahagsmunum. Fréttir af þessum fyrirhuguðu kaupum bentu til þess að kaupa ætti Sam- vinnubankann á yfirverði og ef svo sé vakni spurningar hvort um væri að ræða réttlætanlega meðferð á ■ eigum almennings. Þá væri nauðsynlegt að fá upplýs- ingar um fjárhagslega stöðu SÍS gagnvart Landsbankanum ef af kaupunum verður og hvort hugsan- legt væri að SÍS skuldaði Lands- bankanum svo mikið að það ráði raun bankanum. ^ Óskað er eftir því að umbeðin skýrsla viðskiptaráðherra verði lögð fram og rædd á Alþingi áður en ráðherrann staðfestir hugsanleg kaup og er vitnað í lög um viðskipta- banka í því sambandi. Sú umræða getur héðan af ekki farið fram fyrr en þing kemur saman eftir jólaleyfi í janúarlok. Hveijar eru skuldir bankans og eignir? Eyjólfur Konráð Jónsson (S-Rv) hefur í þingræðu krafið ráðherra bankamála sagna uni það hvort Samvinnubankann hafi verið seldur. Ef svo er hvert er kaupverð hans? Og hvers virði er hann? Hefur ráðherra samþykkt þessi kaup? Á máske að veita erlendum bönkum ríkisábyrgð vegna skulda bankans? Eyjólfur Konráð Jónsson (S-Rv) í það færi? Hvernig hanga þessi mál minnti í þingræðu á ummæli fjár- málaráðherra á Alþingi í nóvember- mánuði á sl. ári, þar sem hann hafi látið að því liggja, að Samband íslenzkra samvinnufélaga gæti orðið gjaldþrota á næstu 10-14 mánuðum, ef ekkert óvænt gerðizt til að rétta hlut þess. Það var mat sjálfs fjár- málaráðherrans að þetta stærsta fyrirtæki landsins riðaði á gjald- þrotsbarmi, ætti máske eitt ár ólif- að. Þegar þessi orð vóru mælt horfði illa fyrir íslenzkum atvinnuvegum almennt. Þingmaðurinn vék síðan að hugs- anlegri sölu Samvinnubankans. „Yið vitum að einhvers konar óformlegt tilboð var gert, eða samningsdrög", sagði hann. Þessvegna spyr ég við- skiptaráðherra og fjármálaráðherra. Hefur Samvinnubankinn verið sgld- ur? Hver er kaupandinn? Hvert er kaupverðið? Hveijar eru raunveru- legar eignir Samvinnubankans og hvetjar eru skuldirnar? Og hveijir eru skuldareigendur og hveijar eru tryggingarnar? Hefur ráðherra bankamála kynnt sér þessi kaup eða heimilað þau? Þingmaðurinn sagði: „Það er á allra vitorði að það eru milljarða skuldir við erlenda banka algjörlega ótryggðar. A kannski að veita er- lendu bönkunum ríkisábyrgð en íslenzku bankarnir að tapa sínu ef öll saman?" Þingmaðurinn sagði og að hann tryði því ekki að bankamálaráðherra hafi samþykkt slík kaup eða slíka sölu öðruvísi en í samráði við Al- þingi. „Eg vona að hann geri hreint fyrir sínum dyrum. En fjármálaráð- herra verður líka að segja okkur, hvað það er sem hann átti við með því að Satnband ísl. samvinnufélaga hefði bjargat'ð sér með sölu Sam- vinnubankans þegar allir vita að samvinnufélögin og Sambandið sjálft eru aðalskuldararnir í Sam- vinnubankanum." Guðmundur H. Garðarsson (S- Rv) sagði í sömu umræðu: „Gæti ráðherra upplýst það eftir hvaða upplýsingum hann er að sækjast í sambandi við Samvinnubankann, þannig að hugsanleg viðskipti geti átt sér stað milli Landsbankans ann- ars vegar og Samvinnubankans hinsvegar, þ.e. kaup og sala?“ Hann sagði að ekki mætti lengur dragazt að það uppgjör fari fram sem lýtur að SÍS og Samvinnubankanum, „sem hlýtur að verða ‘ að eiga sér stað með tilliti til þess ef á að tak- ast að tryggja það að þarna eigi sér ekki stað hugsanlegt stórslys og stórtöp, ekki aðeins fyrir viðkomandi fyrirtæki heldur fyrir þjóðina í heild.“ ÞJONUSTA FYRI e\nn Foróist örtröó á aðfangadag. Leigið myndina á Þorláksmessu og skilið á annan í jólum. Við bjóðum upp á allar nýjustu myndirnar og gott úrval eldri gæðamynda. HERALIBI Er ástin á góðri leið með að koma Tom Selleck í gröfina? QAUCKBUSTERS Glæný teiknimynd þar sem Daffi önd og félagar gerast draugabanar. DROPOUT FATHER Skemmtileg gamanmynd með Dick Van Dyke í aðalhlutverki. FATHER CLEMENTS STORY Sönn saga um kaþólskan prest (Lou Gosset) sem ættleiðir vand- ræðaunglinginn Joey (Malcolm- Jamal Warner). Þar sem myndirnar fást S T E I N A R MYNDIR myndbandaleigur Álfabakka14 Austurstræti 22 Reykjavíkurvegi 64 Skipholti 9 sími 79050 • sími 28319 % sími 651425 fsími 626171

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.