Morgunblaðið - 22.12.1989, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 22. DESEMBER 1989
Leikfélag Akureyrar:
Flóttamenn frá Sebra-
kabra í Eyrnalöng-
um og öðru fólki
LEIKFÉLAG Akureyrar írumsýnir á annan dag jóla barna- og fjöl-
skylduleikritið Eyrnalangir og annað fólk, eftir Iðunni og Kristínu
Steinsdætur. Tónlist í leikritinu er eftir Ragnhildi Gísladóttur, en
mikið er um söng í verkinu. í sýningunni taka þátt sextán leikarar,
þar af átta unglingar á aldrinu firá 12 til 14 ára. Leikritið verður
sýnt alla daga á milli jóla og nýárs, en efitir áramót verða sýningar
tvisvar til þrisvar í viku.
í verkinu segir frá íslenskri fjöl-
skyldu sem fær til sín flóttamenn,
börn og fullorðna frá eyjunni
Sebrakabra. Spinnast af því margs
konar uppákomur og ævintýr, enda
eru hinir aðkomnu sérkennilegir
útlits og háttalag þeirra annarlegt.
í leikritinu er einnig farið til fyrrum
heimkynna þeirra á Sebrakabra, en
þar er með afbrigðum litskrúðugt
og búa þar margar kynjaverur. Þá
koma einnig við sögu lánlausir inn-
brotsþjófar, nágrannakonan Elín-
óra, hrekkjusvín og fleira gott fólk.
í leikskrá sýningarinnar er kynnt
verðlaunasamkeppni um bestu
myndina af einhvetjum persónum
leikritsins og er öllum börnum heim-
il þátttaka, en niðurstöður verða
kynntar fyrir páska.
Slippstöðin:
Fiskveiðasjóður hafiiar samningi
ar Jónasson, Steinunn Ólafsdóttir,
Þráinn Karlsson, Sunna Borg, Jón
Stefán Kristjánsson, Sóley Elías-
dóttir og Árni Valur Árnason og
fylla þau hóp fullorðinna, en krakk-
arnir eru þau Jóhanna Sara Krist-
jánsdóttir, Guðmundur Ingi Gunn-
arsson, Páll Tómas Finnsson,
Kristín Jónsdóttir, Hlynur Aðal-
steinn Gíslason, Sólveig Ösp Har-
aldsdóttir, Hildur Friðriksdóttir og
Ingvar Gíslason.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
í barna- og fjölskylduleikritinu Eyrnalangir og fleira fólk, segir frá íslenskri fjölskyldu sem fær til sín
flóttamenn frá eyjunni Sebrakabra og spinnast upp úr því mikil ævintýr. Myndin var tekin á æfingu á
fimmtudagskvöld, en þá var fyrsta rennsli á leikritinu.
um kaup Meleyrar á nýsmíðaskipi
FISKVEIÐASJÓÐUR hafnaði samningi um kaup Meleyrar hf. á
Hvammstanga á nýsmíðaskipi Slippstöðvarinnar hf. á Ákureyri á
fundi sem haldinn var i gær. Áður höfðu Landsbankinn og sjávarút-
vegsráðuneytið samþykkt þá hluta samningsins sem að þeim snéru
Forsendur Fiskveiðasjóðs fyrir synjuninni voru þær að rekstraráætl-
anir Meleyrar vegna útgerðar skipsins væru óraunhæfar. Ljóst er
að neitunin í Fiskveiðisjóði eykur mjög á vanda Slippstöðvarinnar,
bæði fjárhagslega og verkefhalega, þar sem áætlað hafði verið að
vinna við skipið frá janúarmánuði og fram i apríl er afhenda átti
skipið.
Leikstjóri verksins er Andrés Sig-
urvinsson, Hallmundur Kristinsson
-> gerði leikmynd og Rósberg Snædal
búninga og gervi. Lýsingu hannar
Ingvar Bjömsson og Lára Stefáns-
dóttir sér um hreyfingar. Sýningar-
stjóm er í höndum Nönnu Ingi-
bjargar Jónsdóttur. Leikendur eru
Guðrún Þ. Stephensen, Gestur Ein-
Magakveisa
ríkjandi
IÐRAKVEF lujáði Akureyringa
í síðasta mánuði og fjölmargir
þjáðust einnig af kvefi, hálsbólgu
og flensu.
í skýrslu um smitsjúkdóma frá
Heilsugæslustöðinni á Akureyri
kemur fram að alls vora 316 ein-
staklingar skráðir með kvef, háls-
bólgu eða flensu. Þá voru 103
skráðir með magakveisu sem er
talsvert mikið, en að sögn læknis á
Heilsugæslustöðinni er hún nú í
rénun. Hlaupabólu fengu 19 í
síðasta mánuði, 13 lungnabólgu og
3 hettusótt.
Bjarki Tryggvason fram-
kvæmdastjóri Meleyrar hf. á
Hvammstanga sagði að neitun
Fiskveiðisjóðs mikið áfall. „Að
mínum dómi er þessi neitun byggð
á frekar veikum forsendum," sagði
Bjarki. Hann sagði að tekjuáætlun
fyrirtækisins fyrir skipið miðað við
heilt ár væri 162 milljónir króna,
en það hefði verið talið óraunhæft.
Bjarki sagði að sjóðurinn hefði mið-
að við tekjur skipa á þessu ári, en
þetta ári hefði verið óvenju lélegt
í rækjunni og mun verra en síðasta
ár. Hann sagði að með því að bera
sambærileg skip eins og Nökkva,
Oddeyrina eða Gissur saman, en
þau vora á rækju á síðasta ári og
taka verðhækkkun á rækju á verð-
lagsráðsverði og gengishækkanir
inn í dæmið væri hægt að sýna
fram á að rekstraráætlunin stæðist
fyllilega.
Hvað rekstraráætlunina varðar
sagði Bjarki að sýnt hefði verið
fram á að hægt hefði verið að
greiða skipið niður um 20% strax,
auk þess hefði fyrirtækið yfir að
ráða afkastamikilli rækjuverk-
smiðju og um hana væru mörg skip
og ef því væri að skipta væri hægt
að flytja kvóta á milli skipa.
Sjávarútvegsráðuneyti hafði
samþykkt flutning á kvóta Glaðs,
sem Slippstöðin ætlaði að taka upp
í kaupin, yfir á nýsmíðaskipið og
einnig lá fyrir að fyrirtækið upp-
fyllti skilyrði fyrir úreldingu fyrir
hið nýja skip. Þá lá samþykki
Landsbanka á eigin framlagi fyrir-
tækisins lá einnig fyrir. „Að mínu
mati eru einu skynsamlegu rökin
fyrir þessari neitun þau að Fisk-
veiðisjóður vill ekki skapa þau for-
dæmi að skipasmíðastöðvar taki
gömul skip upp í eins og Slippstöð-
in ætiaði að gera,“ sagði Bjarki.
í kjölfar neitunar Fiskveiðasjóðs
er ljóst _að Slippstöðin á í miklum
vanda. Áætlað hafði verið að ljúka
smíði skipsins í apríl og átti vinna
við það að hefjast strax í janúar.
Um fjórðungur mannskapsins hjá
Slippstöðinni hefði fengið vinnu við
skipið þessa mánuði. Einhver verk-
efni eru í gangi hjá stöðinni og svo
verður áfram í janúar, en þá blasir
verkefnaleysi við. „Þetta er jólagjöf
Fiskveiðasjóðs til starfsmanna
Slippstöðvarinnar, ég hef í sjálfu
sér ekkert meira um það að segja,“
sagði Sigurður Ringsted forstjóri
Slippstöðvarinnar í samtali við
Morgunblaðið.
Guðsþjón-
ustur um
jóladagana
AÐ VENJU verður mikið um að
vera í kirkjunum á Akureyri jóla-
dagana. Aftansöngur verður í
Akureyrarkirkju og hefst hann kl.
18, Björn Steinar Sólbergsson
leikur á orgel frá kl. 17.30. í Gler-
árkirkju verður einnig aftansöng-
ur kl. 18 og leikur Lúðrasveit
Akureyrar jólalög milli kl. 17 og
18. Við messuna leikur Hólmfríður
Þóroddsdóttir einleik á óbó.
i
Jólatrén seljast vel:
Rauðgreni sótt austur
í Hallormsstaðarskóg
ALLT stefiiir í að metsala verði á jólatrjám hjá Skógræktarfélagi
Eyfírðinga fyrir þessi jól, en um miðjan dag í gær var búið að
se\ja um 1.500 tré. Fyrir síðustu jól seldust rúmlega 1.600 tré
og var það aukning um 200 tré frá árinu þar á undan. I fyrra-
kvöld og í gærkvöld fengu skógræktarmenn send jólatré austan
úr Hallormsstaðarskógi, alls 230 tré.
Aðalsteinn Sigfússon, yfirverk-
stjóri hjá Skógræktarfélagi Ey-
firðinga, sagði rauðgrenið vinsæl-
asta tréð og vora öll slík tré uppur-
inn þannig að gripíð var til þess
ráðs að fá viðbót senda að austan
svo allir sem vildu fengju öragg-
lega jólatré.
„Það hefur verið mjög áberandi
að fólk sé að kaupa jólatré í fyrsta
sinn og skýringing á því getur
verið sú að undanfarin ár hefur
rauðgrenið verið mjög gott, það
hefur staðið vel og fólk er að átta
sig á þessu. Það era um tíu ár
síðan trén voru slæm og felldu
barrið fljótt, en það er einkum
veðurfarið sem hefur áhrif á það,“
sagði Aðalsteinn.
Þá sagði Aðalsteinn að vinsæld-
ir Norðmannsþins færu dvínandi
og væri áberandi að fólk bæði um
íslensk tré, það vildi heidur styðja
íslenska skógrækt en danska.
' MorgunblaðiO/Kúnar Pör
Jólatréssala Skógræktarfélags Eyfírðinga hefúr gengið vel og
stefhir allt í að um metár í sölunni verði að ræða. Rauðgrenið
er vinsælast og voru birgðir á þrotum þannig að gripið var til
þess ráðs að fá tré send austan úr Hallormsstaðarskógi, en þaðan
hafa komið 230 jólatré til viðbótar þeim rösklega 1.600 sem skóg-
ræktarfélagið hafði ætlað í söluna.
Á aðfangadag verður hátíðarguðs-
þjónusta á Dvalarheimilinu Hlíð kl.
15.30 og þar syngur kór Barnaskóla
Akureyrar. Miðnæturguðsþjónusta
verður í Akureyrarkirkju kl. 11.30
að kveldi aðfangadags og þar munu
félagar úr Kammerhljómsveit Akur-
eyrar leika. Á aðfangadagsmorgun
verða jólasöngvar barnanna kl.
11.00.
Á jóladag verður hátíðarguðs-
þjónusta á Fjórðungssjúkrahúsinu
kl. 10.00. Þá verður einnig hátíðar-
guðsþjónusta á hjúkrunardeild aldr-
aðra að Seli kl. 14.00. Félagar úr
Karlakórnum Geysi syngja. Hátíð-
arguðsþjónusta verður í Akureyrar-
kirkju á jóladag og leika Hólmfríður
Þóroddsdóttir og Dagbjörþ Ingólfs-
dóttir með við athöfnina. í Glerár-
kirkju verður hátíðarguðsþjónusta
kl. 14 þar sem Pétur Eiríksson leikur
einleik á básúnu. Skírnarguðsþjón-
usta verður kl. 15.30. Annan dag
jóla verður barna- og fjölskylduguðs-
þjónusta í Akureyrarkirkju kl. 13.30
þar sem kór Barnaskólans syngur
og hátíðarguðsþjónusta í Minjasafns-
kirkju kl. 17.00. Fjölskylduguðs-
þjónusta verður í Glerárkirkju kl.
13.30 annan dag jóla.