Morgunblaðið - 22.12.1989, Blaðsíða 38
38
MORöUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGÚR 22. DESEMBER 1989
Keimur án keppinauta
BOSS
HUGO BOSS
Ert þú í húsgagnaleit
FRÁ FRAKKLANDI
ný sending af glæsilegum og vönduðum
leðursófasettum
OPIÐ TIL KL. 23.00 LAUGARDAG
VALHÚSGÖGN
Ármúla 8, sími 82275.
Kynning á
virOisaukaskatti
Landssamband iðnaðarmanna
heldur almennan kynningarfund
um virðisaukaskatt og framkvæmd
hans fimmtudaginn
28. desember nk. kl. 16.30.
Fundarstaður: Hallveigarstígur 1,
Reykjavík.
Forstöðumenn iðnfyrirtækja og
þeir, sem sjá um bókhald þeirra,
eru hvattir til að mæta á fundinn.
LANDSSAMBAND
IÐNAÐARMANNA
Nýi grjótgarðurinn á Bakkafirði. Morgunblaðið/Áki H. Guðmundsson
Bakkafj örður:
Haftiargerð á Bakkafírði lokið
Bakkafirði.
HÉR HEFUR staðið yfir bygging
á nýrri bátahöfn sem kemur til
með að gjörbreyta allri aðstöðu
til sjósóknar héðan í íramtíðinni.
Verkið hófst fyrstu viku júlímán-
aðar og lauk um miðjan nóvember.
Það var reistur gijótgarður fyrir
innan skjólgarð sem reistur var fyr-
ir nokkrum árum. Nýi gijótgarður-
inn er um 120 metra langur og
gijótmagnið í honum er 20 þúsund
rúmmetrar sem allt fékkst með
sprengingum á hafnarsvæðinu, svo
ekki þurfti að fara langt eftir efni
í garðinn. Garðurinn var unninn af
heimamönnum en 20 metra langa
viðlegubryggju við nýja gijótgarð-
inn smíðuðu smiðir frá Vopnafirði.
Verkstjóri yfir verkinu var frá Vita-
og hafnarmálastofnun. Kostnaðar-
áætlun hljóðaði uppá 26 milljónir
og virðist hún hafa staðist í megin-
dráttum.
Nýi garðurinn lokar fyrir vestan-
vindáttirnar, en þær hafa verið
mjög skaðlegar hér. Sem dæmi þá
slitnaði 26 tonna bátur upp af legu-
færum og sökk inni í höfninni. 7
tonna bátur slitnaði einnig upp af
legunni fyrir tveimur árum og eyði-
lagðist. Einnig urðu tvö önnur
óhöpp þar sem tókst að bjarga bát-
unum lítið skemmdum. Andvirði
þessara tjóna á núvirði eru meiri
en sú upphæð sem þessar hafnar-
framkvæmdir kosta. Vonast menn
nú til að svona uppákomur verði
úr sögunni hér og héðan komi út-
gerð og fiskvinnsla til með að auk-
ast og blómstra í framtíðinni með
batnandi aðstöðu.
- Á.H.G.
A _
Menningarsjóður Islands og Finnlands:
2,6 milljómim króna
varið til 31 verkeftiis
STJÓRN Mienningarsjóðs íslands og Finnlands hefur komið saman
til að ákveða árlega úthlutun styrkja úr sjóðnum. Umsóknarfrestur
var til 30. september sl. og bárust alls 129 umsóknir, þar af 96 frá
Finnlandi og 33 frá íslandi. Úthlutað var 176.000 mörkum sem eru
j afnvirði um 2,6 milljóna króna og hlutu eftirtaldir umsækjendur
styrki samkvæmt fi-étt frá menntamálaráðuneytinu:
1. Daníel Benediktsson, lektor,
5.500 mörk, ferðastyrkur til að
ljúka doktorsprófi í bókasafnsfræði
í Finnlandi.
2. Eyvindur P. Eiríksson, rithöf-
undur, 5.500 mörk, ferðastyrkur til
Finnlandsfarar til að safna heimild-
um fyrir skáldsögu.
3. Guðrún Kristjánsdóttir, mynd-
listarmaður, 5.500 mörk, til að
halda sýningu í Helsingfors.
4. Guðrún Magnúsdóttir, bóka-
safnsfræðingur, 5.500 mörk, til að
kynna sér ný bókasöfn og listamið-
stöðvar í Finnlandi.
5. Háskólaútgáfan, 3.000 mörk,
til að gefa út íslensk-finnskt orða-
safn.
6. Hrafnhildur Schram, listfræð-
ingur, 5.500 mörk, ferðastyrkur til
að kynna sér söfn og listamiðstöðv-
ar í Finnlandi.
7. Kristín Bjarnadóttir, fulltrúi,
5.500 mörk til að kynna sér starfs-
aðferðir finnsku krabbameins-
skráningarinnar.
8. Kristín Eggertsdóttir, for-
stöðukona veitingastofu Norræna
hússins, 5.500 mörk til að kynna
sér hliðstæðan veitingarekstur til
Helsingfors.
9. Mímir, félag ísler.skunema við
HÍ, 10.000 mörk, ferðastyrkur til
að endurgjalda heimsókn nemenda
og kennara við norrænu deildina í
Helsingforsháskóla.
10. Reynir Adamsson, arkitekt,
5.500 mörk, til að undirbúa sam-
starf við arkitektafélög og arki-
tektaskóla í Finnlandi.
11. Tríó Reykjavíkur, 10.000
mörk til hljómleikaferðar til Finn-
lands.
12. Þórdís Árnadóttir, stúdent,
3.000 mörk, til að sækja námskeið
í finnsku.
13. Erik Ahonen, tónlistarblaða-
maður, 5.000 mörk, ferðastyrkur
til íslandsferðar.
14. Boklaget, Helsingfors, 5.000
mörk, styrkur til að gefa út íslenskt
smásagnasafn á sænsku.
15. Friðþjófssögu-vínnuhópur-
inn, 10.000 mörk, til að flytja verk
um Friðþjófssögu á íslandi.
16. Félagið Islandia, 11.000
mörk, ferðakostnaður tveggja
hrossadómara frá íslandi vegna
hestasýningar á íslands-vikunni í
Tammerfors haustið 1990.
17. Páivi Jukola, myndhöggvari,
5.000 mörk, til náms- og vinnuferð-
ar til íslands.
18. Sænski menntaskólinn í
Karleby, 8.000 mörk, styrkur til
námsferðar tveggja bekkjadeilda til
íslands.
19. 9. bekkur grunnskólans í
Parppei, 5.000 mörk, styrkur til
námsferðar til íslands.
20. Timo Karlsson, lektor, og
Tuomas Járvelá, kennari, 6.000
mörk, til að vinna að finnsk-í
slenskri orðabók.
21. Borgarbókasafnið í Kuopio,
5.000 mörk, til kynnisferðar bóka-
varðar til Islands.
22. Bókaútgáfan Like Kustann-
us, 5.000 mörk, til að bjóða Einari
Kárasyni, rithöfundi, til Finnlands.
23. Starfshópur um sýningu
listamannsins Olli Lyytikáinens,
5.000 mörk, ferðastyrkur vegna
sýningar listamannsins i Reykjavík.
24. Seppo Metso, listgagnrýn-
andi, 5.000 mörk, til kynnisferðar
til íslands.
25. Moisio-grunnskólinn í Ylöj-
árvi, 5.000 mörk, til námsferðar
nemenda í 9. bekk til íslands.
26. Auli Mákinen, dósent, 5.000
mörk, ferðastyrkur til að kynna sér
rannsóknastofnanir landbúnaðar og
bændaskóla á Islandi.
27. Kirsti Petajániemi, leikstjóri,
5.000 mörk, til kynnisferðar til ís-
lands.
28. Anne Tainio, gullsmiður,
5.000 mörk til að halda sýningu á
íslandi á verndargripum frá heim-
skautabyggðum.
29. Eva Jansson, þýðandi, 1.000
mörk, til að fullgera kver um fram-
burð í finnsku fyrir íslenska stúd-
enta.
30. Tammerfors-háskóli, málvís-
indastofnunin, 10.000 mörk, til
námsferðar 20 stúdenta til íslands.
Til viðbótar framangreindum
styrkjum var ákveðið að veija
150.000 mörkum til íslands-
vikunnar í Tammerfors haustið
1990.
Stofnfé sjóðsins var 450.000
finnsk mörk sem finnska þjóðþingið
veitti í tilefni af því að minnst var
1100 ára afmælis byggðar á íslandi
1974, en nemur nú um 1,7 millj.
marka. Stjóm sjóðsins skipa Matti
Gustafson, deildarstjóri í finnska
menntamálaráðuneytinu, formaður,
Juha Peura, fil. mag., Kristín Þór-
arinsdóttir Mántylá, fulltrúi, og
Þórunn Bragadóttir, deildarstjóri.
Varamaður af finnskri hálfu er Ann
Sandelin, fil. mag., en af íslenskri
hálfu Þórdís Þorvaldsdóttir, borgar-
bókavörður.