Morgunblaðið - 22.12.1989, Side 48

Morgunblaðið - 22.12.1989, Side 48
 -48- G8ei HaaMMsaci ,ss auoAQUTSöa MÖRGUN-BLAÐIÐ FÖSTUÐA'--- xím Minning: Magnús Blöndal Sigurbjörnsson Fyrir nokkrum vikum frétti ég að vinur minn og skólabróðir, Magnús Blöndal, lægi þungt hald- inn á spitala og væri tvísýnt um líf hans. Eins og skiljanlegt er kom þessi frétt mjög ilia við mig. Eg átti síst von á að illvígur sjúkdómur væri að leggja að velli þennan vin minn aðeins tuttugu og fjögurra ára að aldri, þar sem hann hafði alltaf lifað mjög heilbrigðu lífi. Hvorki notað tóbak né áfengi, en þess í stað stundað íþróttir, aðallega handbolta, og var hann búinn að ávinna sér mjög gott orð sem þjálf- ari í þeirri grein með yngri deildum Vals. Það var einmitt í gegnum íþrótt- ir sem ég kynntist Magga fyrst, þegar við vorum tíu ára á fótbolta- æfingum hjá Val. Maggi var hærra skrifaður I þeirri íþrótt en ég og ílengdist hann hjá Val en ég hætti. Kynni okkar urðú því ekki mikil á þessum æskuárum, en í Mennta- skólanum við Hamrahlíð lágu leiðir okkar aftur saman og tókst þá með okkur góður vinskapur. Maggi reyndist mér sannur vinur á erfið- leikatímabili, sem ég gekk þá í gegnum og sá stuðningur hans treysti vináttuböndin. Það sem ég dáði mest í fari Magga var hvað hanri var óhræddur við að láta skoð- anir sínar I Ijós við kennara, jafnt sem nemendur skólans, og hræddist ekki afleiðingar þess að einhverjir tækju orð hans sem persónulega gagnrýni. Hann fór ekki í mann- greiningarálit við að velja sér vini meðal skólafélaga. Sóttist hann meira eftir félagsskap við þá sem voru utanveltu við lokuð samfélög eða klíkur sem oft myndast í menntaskólum eins og MH. Maggi var farsæil námsmaður, þó hann keppti ekki um hæstu einkunnir, enda. eyddi hann dágóðum hluta af tíma sínum og orku í störf fyrir íþróttafélagið Val og önnur lík áhugamál. Þegar litið er til baka koma margar skemmtilegar minn- ingar upp í hugann frá þessum tíma. Því vildi bregða við að við félagarnir drógum fram á seinustu stundu að sinna því sem okkur hafði verið sett fyrir. Eg man sérstaklega eftir einu skipti að við Maggi höfð- um dregið fram á síðasta dag að vinna að verkefni um íslenska nas- ista og tíminn því orðinn naumur. En fyrir tilviljun lítur Maggi í Dag- blaðjð og rekst þar á ítarlega um- fjöllun um nasista á íslandi. Greinin var klippt úr blaðinu og lesin í sögu- tímanum næsta dag með þeim árangri að við hlutum ágætis ein- kunri fyrir. Þá eru ógleymanlegar margar ánægjulegar samveru- stundir og öll samvinna í útskriftar- hópnum okkar vorið 1981. Veturinn eftir stúdentspróf höfðum við ráð- gert að fara saman til Noregs og stunda nám í tannlækningum, en atvikin höguðu því þannig að sú ferð var aldrei farin. leiðir skildu og við héldum hvor í sína átt og fundum fækkaði, þó stóð alltaf til að við tækjum þráðinn upp að nýju, en því miður auðnaðist okkur ekki að koma því í framkvæmd. Við uggðum ekki að okkur og héldum að við hefðum nægan tíma til stefnu. Ég hlýt að velta því fyrir mér, hvers vegna er ungur maður, sem ekki hefur einu sinni lokið skólagöngu, kallaður burt. Mér verður svarafátt. Er lífið og endalok þess tilviljunin ein? Eða er jarðneska lífið ákveðin reynsla sem hver og einn gengur í gegnum á mismun- andi hátt? Leyf mér að gista í garði þínum því ég næ ekki háttum hjá sumamóttinni þegar þú vaknar vei-ð ég. á braut en skil eftir lága rödd í tijánum (S.H.) Ég þakka Magga af alhug sam- fylgdina og bið honum guðsblessun- ar á nýju tilverustigi. Unnustu hans, foreldrum, systur og öðrum vanda- mönnum sendi ég innilegar samúð- arkveðjur. Marteinn Arnar Marteinsson Kveðja frá vinnufélögum í Sumarbúðum í borg Þó dánarfréttin hafi ekki komið óundirbúin, þá sló hún okkur öll, sem unnum með Magga -að stofnun og framkvæmd Sumarbúða í borg. Söknuður og eftirsjá er mikil, en í hugum okkar lifir minningin um góðan og duglegan dreng. Þegar stjórn Vals ákvað að stofna íþróttaskóla fyrir börn á sumrin var Magnús strax fenginn til að vinna að undirbúningi. Kom fljótt í ljós að þar var réttur maður á réttum stað. Hans hlutverk var í fyrstu að kynna skólann út á við. Við það starf var hann óþreytandi enda varð troðfullt á öll námskeið sumarsins. Magnús stjórnaði svo handknatt- leikskennslu á námskeiðunum á sinn skemmtilegan hátt og átti mik- inn þátt í öllum nýjungum sem tekn- ar voru upp í Sumarbúðum í borg. Það var ómetanlegt að fá að kynnast Magnúsi í starfi með börn- unum. Hann hafði einstakt lag á að ná til barnanna. Það er okkur ógleymanlegt -hvernig Magnús stjórnaði lokahátíð námskeiðanna þannig að öll börnin geisluðu af gleði. Vinnu Magnúsar fyrir Sumar- búðir í borg og allt æskulýðsstarf í Val verður ávallt minnst og hans verður sárt saknað af ungum sem öldnum í Val. Við sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til foreldra Magn- úsar, systur og annarra nákominna. t Stjúpmóðir mín, UNNUR ÓSKÁSMUNDSDÓTTIR, lést 20. desember sl. á Hrafnistu í Hafnarfirði. Fyrir hönd aðstandenda, Hulda Ásgeirsdóttir. t Elskuleg móðir okkar, BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR, Reykjum, Vestmannaeyjum, lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 20. desember. Börnin. t Móðir okkar, MONA GUÐRÚN SIGURÐSSON ANDERSSON, Hjallabraut 7, Hafnarfirði, er látin. Jarðarförin verður auglýst síðar. Róbert S. Sigurðsson, Stefán S. Sigurðsson. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, LOVÍSA JÚLÍUSDÓTTIR, Skeiðarvogi 21, ándaðist í Borgarspítalanum 21. desember. Þórarinn Sigurgeirsson, Julíus Þórarinsson, Mari'a Þórarinsdóttir, Örn Þorsteinsson, Sigurgeir Þórarinsson, Charlotta Ingadóttir og barnabörn. Lokað eftir hádegi í dag föstudaginn 22. desember vegna jarðarfarar KRISTÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR. AUKhf. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HULDAR GÍSLADÓTTUR. Guðbjörg Ólöf Bjarnadóttir, Jón Ægir Ólafsson, Atli Hauksson, Sigríður C. Nielsen, barnabörn og barnbarnabörn. t Þökkum hluttekningu við andlát og jarðarför KNUD A. KAABER, Hæðargarði 7. Jónína Ásgeirsdóttir, Guðrún Elín Kaaber, Ásgeir Kaaber, Eva Kaaber, Kári Kaaber, Birgir Kaaber, tengdabörn og barnabörn. t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar SIGRÚNAR JÓHANNESDÓTTUR, Höfða, Grýtubakkahreppi. Guð gefi ykkur öllum gleðilega jólahátíð. Börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og kærleika við andlát og jarðarför SIGURÐAR BJÖRGVINS JÓNASSONAR frá Hróarsdal. Sérstaklega þökkum við starfsfólki á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og Sjúkrahúsi Sauðárkróks fyrir umönnun í veikindum hans. Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur gleðileg jól. Elsku Margrét, megi minningar um góðan dreng styrkja þig í þinni miklu sorg. F.h. okkar allra, Torfi í mars sl. fengum við þær sorgar- fregnir að hann Maggi þjálfari væri veikur. Við héldum að hann myndi sigrast á þessu eins og öllu öðru, því við vissum ekki hvað þetta var. Hann lá á sjúkrahúsi fram að sumri en sýndi þá geysilegan styrk og reif sig upp, og byrjaði að vinna í sumarbúðum Vals. Þá byijaði hann að þjálfa okkur með haustinu. í lok september var hann síðan lagður inn og þá var hann orðinn mikið veikur. Eftir að hann var lagður inn sáum við hann ekki aft- ur. Það síðasta sem við gerðum fyrir Magga var að vinna Reykjavikurmeistaratitilinn. A æfingu þann 12. desember fréttum við að hann Maggi væri dáinn. Okkur var sagt að hann hefði sofnað rólega og ekki vaknað aftur. Maggi var topphandboltaþjálfari og besti félagi sem hægt er að hugsa sér og öllum þótti okkur mjög vænt um hann og munum aldrei gleyma honum né hans frá- bæra húmor. Við hugsum um hann fyrir leiki og reynum að vinna þá fyrir hann og ekkert gladdi hann meira en sigur í Reykjavíkurmótinu. Við ætlum að halda áfram á þeirri braut sem við erum á. Við vottum unnustu, foreldrum, systur hans og hennar fjölskyldu svo og öðrum ástvinum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. 4.11. Vals í handknattleik 1989. Aðeins sá, sem drekkur af vatni þagnarinn- ar, mun þekkja hinn volduga söng. Og þeg-. ar þú hefur náð ævitindinurn, þá fyrst munt þú heíja fjallgönguna. Og þegar jörðin krefst líkama þíns, muntu dansa í fyrsta sinn. (Kahlil Gibran) I örfáum orðum langar mig til þess að minnast ljúfs drengs með söknuði - drengs sem helgaði Val áhugamál sín og starfaði af heilum hug fyrir félagið. Magnús hefur á stuttri ævi unnið hug og hjörtu ungra íþróttamanna í Val því með starfi sínu sem handboltaþjálfari og leiðbeinandi á sumarnámskeið- um Vals hefur hann sáð fræjum sem eru þegar farin að blómstra. Þau blóm vaxa nú og dafna, sum þeirra eru sprungin út en önnur blómstra þegar fram í sækir. Magnús var einlægur í hjarta sínu, gjöfull á tilfinningarnar og lærlingar hans nutu nærveru hans og leiðsagnar. Að Hlíðarenda naut Magnús sín best. Því þar vissi hann að hann gat látið gott af sér leiða og þar gat hann fylgst með íþrótt- um frá morgni til kvölds. Og verið virkur þátttakandi á margvíslegan hátt. Þótt handknattleikur hafi verið helsta áhugamál Magnúsar lét hann fátt fram hjá sér fara sem snerti Val. Hann fylgdist með knattspyrn- unni og körfuknattleiknum þegar tækifæri gafst því þar tóku þátt Þ.ÞOBBRÍMSSOM tCD Ármúla 29. Sími 38640 - Reykjavík HASLE KLINKER LEIRFLÍSAR FRÁ BORNHOLM Á GÓLF + VEGGI FYRIR IÐNAÐ. Þola frost, sýru og lút. Minningarkort Blindrafélagsins, Hamrahiíð 17, sími 687333. Lllja Sigurðardóttir og aðrir vandamenn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.