Morgunblaðið - 22.12.1989, Síða 59

Morgunblaðið - 22.12.1989, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FðSTUDAGUR 22. DESEMBER 1989 59 KORFUBOLTI Pétur með landsliðinu í Njarðvík PÉTUR Guðmundsson leik- ur með íslenska landsliðinu í fyrsta sinn í níu ár á annan dag jóla. Þá klæðist hann búningi íslenska landsliðs- ins í leik gegn Suðurnesja- úrvalinu og þeim Banda- ríkjamönnum er leika með liðunum. Daginn eftir heldur liðið svo til Danmerkur þar sem það tekur þátt i þriggja liða móti milli jóla og nýárs og Péturtekur einnig þátt í mótinu. m Íslenska Iandsliðið hefur æft af kappi fyrir Danmerkur- ferðina en þar mætir liðið A- og B-liði Danmerkur og landsliði Eistlendinga. í B-liði Danmerk- ur eru reyndar ekki aðeins Dan- ir heldur einnig bandarískir leik- menn í dönsku deildinni. Fjórir leikmenn gefa ekki kost á sér fyrir leikina, Pálmar Sigurðsson, Friðrik Ragnarsson, Guðni Guðnason og Magnús Guðfinnsson. í stað þeirra koma Axel Nikulásson og Birgir Mika- elsson. KNATSPYRNA / SKOTLAND Guðmundur kjörinn maður mánaðarins Besti leikmaður úrvalsdeildarinnar í desember GUÐMUNDUR Torfason var í gær útnefndur knattspyrnu- maður mánaðarins í skosku úrvalsdeildinni. Guðmundur, sem leikur með St. Mirren, hef ur gert tíu mörk í vetur og leikið vel með liði sínu. Þessi útnefning þykir mikill heiður í Skotlandi og mikið gert úr henni í skoskum fjölmiðlum. Eg fékk að vita þetta í dag og er að sjálfsögðu mjög ánægður enda er þetta mikil viðurkenning," sagði Guðmundur. Hann fær glæsi- legan verðlaunagrip auk peninga- verðlauna. Guðmundur hefur gert tíu mörk í vetur og er næst markahæstur á eftir Ally McCoist hjá Rangers sem hefur gert 13 mörk. McCoist var einmitt valinn leikmaður nóvember- mánaðar ng þar á undan var það KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN Michael Jordan sá um Lakers Gerði 89 stig í tveimur leikjum MICHAEL Jordan hefurfariðá kostum með liði sínu Chicago Bulls í NBA-deildinni í vetur. Hann átti stórleik í vikunni og gerði 37 stig í sigri Chicago á Los Angeles Lakers, 93:83 en þetta eru tvö af bestu liðum deildarinnar. Jordan var allt í öllu hjá liði Chicago, sem var yfir allan tímann, og það hafði lítið að segja að varnarmenn Lakers höfðu sér- stakar gætur á hon- Frá Gunnarí um. Það var ekki til Valgeirssyni í að hjálpa Lakers að Bandankjunum ginn besti maður liðsins, Mychal Thompson er meiddur og hefur ekki leikið með í vikunni. Liðið hef- ur þó náð ágætum úrslitum leikjum sínum á útivelli, unnið 5 af síðustu 6. Jordan átti annan stórleik gegn Orlando Magic. Þar gerði hann 52 GETRAUNIR 7VJóla- bónus“ Þrefaldur pottur annan dagjóla Þrefaldur pottur verður hjá íslenskum getraunum á annan dagjóla og því um hálfgerðan ,jóla- bónus“ að ræða hjá tippurum. Sölu- kerfinu verður lokað á Þorláks- messu klukkan 20.15. Yfirferð verður síðan á morgni miðvikudags- ins 27. desember. Fyrsti vinningur frá síðustu lei- kviku, 1.710.256 krónur, gekk ekki út og flyst því yfir á 1. vinning annan í jólum. Það má því búast við að potturinn verði vænlegur, allt að þremur milljónum króna. . Fjölmiðlakeppni. getrauna lauk í stig en það nægði þó ekki. Oriando sigraði 110:109 og gerði sigurkörf- una á síðustu sekúndu leiksins. Patrick Ewing hjá New York Knicks hefur einnig leikið mjög vel í vetur og hann var maðurinn á bakvið sigur New York á Utah, 115:107. Ewing gerði 41 stig og tók 15 fráköst en einn besti leik- maður liðsins, Charles Oakley lék ekki með. Hann lenti í slagsmálum við Xavier McDaniel í leik New York og Seattle. Þeir voru báðir sektaðir um tæplega hálfa milljón króna og fengu eins leiks bann. Larry Bird er einnig að koma til og lék mjög vel gegn Milwaukee, gerði 21 stig og 40 stig daginn eftir er Boston sigraði Utah. Leikirnir í vikunni voru nokkurs- konar úrslitaleikir. New York, LA Lakers, Utah og Chicago léku inn- byrðis en þau voru öll í efstu sætun- um í riðlunum fjórum. Guðmundur Torfason knatt- spyrnumaður desembermánaðar í Skotlandi. James Bett hjá Aberdeen sem hlaut þennan eftirsótta titil. Þjálfarar geta einnig unnið til þessara verð- launa og næstur á undan Bett var Andy Roxburgh, þjálfari skoska landsliðsins, valinn maður mánað- arins. „Mér hefur gengið vel í vetur þó að við séum ekki nógu vel staddir í deildinni. Við erum með gott lið en meiðsli hafa angrað okkur og komið í veg fyrir að við næðum að stilla upp sterkasta liði okkar," sagði Guðmundur. Guðmundur hefur vakið athygli 4 skosku deildinni en hann sagðist þó ætla að halda áfram hjá St. Mirren, þrátt fyrir áhuga annarra liða. „Eg gerði þriggja ára samning og kann vel við mig hér. Því hef ég lítið velt þessum málum fyrir mér,“ sagði Guðmundur. Spámadur vikunnar: Jólasveinn- inn. síðustu viku og varð Alþýðublaðið sigurvegari í annað sinn með 87 'stig- ..........--'v------*.......- Michael Jordan hefur átt frábæra leiki með Chicago Bulls síðustu vikur. Spámaðurvikunnar: Jólasveinninn Jólasveinamir eru nú að skiia sér til byggða einn af öðrum. Við náðum tali af einum þeirra í gær og báðum hann að spá í leiki helgarinnar í tilefni jólanna. Hann tók vel í það, en sagðist ekki hafa mikla þekkingu á íþróttúm. „Ég vona bara að ekkert lið þurfi að tapa um hátíðarnar því það er svo leiðinlegt. Þess vegna tippa ég á jafntefli í öllum leikjunum," sagði Sveinki. Bjarni Felixson, íþróttaf- réttamaður RÚV og spámaður síðustu viku, stóð sig vel og ■ hafði- áttæ teiki -r-ótta.—--- Leikir 26. des. X Aston Villa — Man. United 1X Crystál Palace — Chelsea X2 Derby — Everton X Luton — Nott. Forest X Manchester City — Norwich "IX Q.P.R. — Coventry X2 Southampton — Arsenal 1X Tottenham — Millwall X Wimbledon — Charlton ■ •■■■■ ..................... 1X Ipswich — West Ham X Sheffield United — Leeds X Swindon — Blackburn .. „...bMHIIIIIiMIHgiHII foúm FOLX ■ EINAR Friðþjófsson, sem Iék á sínum tíma með IBV, hefur verið ráðinn þjálfari Þróttar frá Nes- kaupstað sem leikur í 3. deild. Einar er ekki alveg ókunnur þj álfun fyrir austan því hann hefur áður stjórnað Einherja, Austra og Hug- inn. Fyrsti leikur Þróttar í 3. deild: inni næsta sumar verður gegn BÍ frá ísafirði 25. maí. ■ SAAB, lið Þorbergs Aðal- steinssonar, hefur tryggt sér sæti í úrslitum sænsku bikarkeppninnar í handknattleik. Saab sigraði Ystad 25:17 og gerði Þorbergur fjögur mörk fyrir Saab en Gunnar Gunn- arsson fimm mörk fyrir Ystad. Saab mætir Lugi í úrslitaleik bikar- keppninnar, 6. janúar. ■ ÍÞRÓTTAMENN eru oft mjög hjátrúarfullir og eru leikmenn NBA-deildarinnar engin undan- tekning. Magic Johnson og James Worthy í liði Los Angeles Lakers hafa verið með alskegg í mörg ár en rökuðu það í sumar, eftir að lið- ið tapaði meistaratitlinum til Detro- it Pistons. í vetur hefur Lakers gengið vel og hafa þeir ekki í** hyggju að safna aftur. ■ GERRY Sichting, sem leikur með Sacramento, sagðist hafa íhugað að leggja skóna á hilluna eftir leik Sacramento gegn Phoen- ix í vikunni. Sichting, sem lék með Boston og Indiana, kom inná í leiknum og þegar ein sekúnda var eftir af fyrri hálfleik fékk hann boltann í eigin vítateig og reyndi skot. Boltinn fór alla leið yfir og beint í körfuna við gífurlega fagn- aðarlæti áhorfenda. Þess má geta að þetta voru einu stig Sichting í leiknum en Sacramento tapaði naumlega. ■ DAVID Stern, framkvæmda- stjóri NBA-deildarinnar, var val- inn framkvæmdastjóri áratugarins af bandarísku fréttastofunni AP. Stern tók við NBa-deildinni fyrir nokkrum árum og hefur aukið veltu hennar um milljónir dollara. ■ GREGLeMond, sem sigraði á Tour de France hjólreiðakeppninni í sumar, var valinn íþróttamaður ársins í Bandaríkjunum af banda- ríska tímaritinu Sports Illustrated. Le Mond vann nokkuð óvænt í _ Tour de France en hann var 50 sekúndum á eftir fyrsta manni fyr- ir síðasta áfangann en „það er eins og að vera sjö höggum á eftir Jack Nicklaus á 18. holu,“ sagði í grein Sports Illustrated. U BRASILÍUMENN hafa þekkst boð Englendinga um að leika landsleik í knattspyrnu á Wembley í lok mars á næsta ári. Englending- ar höfðu í hyggju að leika gegn Irum en þar sem lið þeirra lentu saman i riðli í heimsmeistarakeppn- inni var hætt við leikinn. Englend- ingar urðu þó að finna leik því búið var að selja 50.000 miða og Brasilíumenn komu þeim til bjarg- ar. FRJALSAR Gamlárs- hlaup ÍR Gamlárshlaup ÍR fer fram 14. árið í röð á Gamlársdag. Hlaupið hefst kl. 14.00 og er hlaup- inn 9,5 km hringur frá ÍR-húsinu við Túngötu, um Seltjarnarnes og Vesturbæinn. Hlaupið er öllum opið og er tekið við skráningu í síma 28228 og einn- ig verður hægt að skrá sig á staðn- um. Búist er við að flestir bestu hláuparar landsins keppi í hlaupinu, m.a. nokkrir þeirra sem dvalið hafa erlendis í haust ogeru hérí jðlaleyfi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.