Morgunblaðið - 23.02.1990, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1990
Evrópska eftiahagssvæðið:
Undirbúningsviðræður
EFTA og EB á lokastigi
FUNDI stjórnarnefndar undirbúningsviðræðna Evrópubandalags-
ins (EB) og Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) lauk í Briissel
á þriðjudagskvöld. Á fiindinum varð samkomulag um þau atriði
sem leggja ber áherslu á í þeim vinnuhópum sem fjalla um inni-
hald væntanlegs samnings um evrópskt efhahagssvæði (EES).
Samkvæmt heimildum innan
framkvæmdastjómar EB er stefnt
að því að undirbúningsviðræðurn-
ar verði langt komnar þann 20.
mars nk. en þá kemur stjómar-
nefndin aftur saman til fundar.
Óvíst er hvort nefndin heldur fleiri
fundi eftir það. Sömu heimildir
herma að vinnuhópar I.-IV. sem
fjalla um óheft vöruviðskipti,
fijálst flæði ijármagns og þjón-
ustu, atvinnu- og búsetufrelsi íbúa
EFTA og EB og samstarf á sviði
menningar og umhverfísmála, eigi
fyrir þann tíma að hafa lokið að
mestu undirbúningsviðræðum
sínum.
Lögð verður áhersla á að finna
þau lög og reglugerðir innan EB
sem eiga við EES, sömuleiðis að
fara yfir tillögur sem unnið er að
innan framkvæmdastjómarinnar
um þessar mundir og snerta sam-
eiginlega efnahagssvæðið. Þá er
vinnuhópunum ætlað að taka sam-
an þau atriði sem einstök EFTA-
ríki géta ekki fellt sig við og em
þess eðlis að ástæða sé til þess
að veita undanþágur eða aðlögun-
artíma. Sömuleiðis er til þess ætl-
ast að vinnuhópamir kanni enn
frekar möguleika á samstarfi s.s.
á sviði menntunar og umhverfís-
verndar. Vinnuhópunum er og fa-
lið að kanna í hvaða nefndum
Evrópubandalagsins EFTA-ríkin
þyrfti að hafa fulltrúa vegna EES,
þetta verður gert á grundvelli skil-
greininga sem framkvæmda-
stjórnin mun leggja fram.
Fyrir vinnuhóp V., sem fjallar
um stofnana- og lagalegar hliðar
væntanlegs samstarfs, er lagt að
gera úttekt á þeim stjómunarað-
ferðum og stofnunum sem nauð-
synlegar teljast til þess að EES
verði komið á fót. Þessi vinna og
sömuleiðis atriði sem snerta eftir-
lit og framkvæmd samkomulags-
ins skulu hafa forgang í störfum
hópsins. Hópnum ber að sama
skapi að leggja fram hugmyndir
vegna sameiginlegs undirbúnings
ákvarðana og sameiginlegra
ákvarðana sem varða EES. Reikn-
að er með því að hóparnir þurfi
að starfa eitthvað fram á vor.
VEÐURHORFUR í DAG, 23. FEBRÚAR
YFIRLIT í GÆR: Austlæg átt á landinu, sums staðar stinningskaldi
við suðausturströndina, en annars gola eða kaldi. Lítilsháttar snjó-
koma var sums staðar á Austfjöröum, en úrkomulaust í öðrum
landshlutum. Víða var bjart veður um vestanvert landið. Mildast
var á Vatnsskarðshólum og á Stórhöfða, 2ja stiga hiti, en kaldast
10 stiga frost á Hveravöllum, GrímsstÖðum og Stafholtsey.
SPÁ: Norðan- og norðaustanátt, viða gola eða kaldi. Dálítil él við
norður- og austurströndina, en þurrt og bjart veður annars staðar.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðaustanátt og snjókoma á Suður-
og Vesturlandi þegar líður á daginn, en þurrt á Norður- og Austur-
landi. Frost 2 tíl 10 stig.
HORFUR Á SUNNUDAG: Austan- og norðaustanátt og snjókoma
á Norður- og Austurlandi, en annars þurrt að mestu. Frost 0 til 4
stig.
TÁKN:
O:
s, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
10° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
stefnu og fjaðrirnar • Skúrir
Heiðskírt vindstyrk, heii fjöður V
er 2 vindstig. * .V Él
Léttskýjað r r r r f r f Rigning == Þðka
r r r zzz. Þokumóða
Háifskýjað * r * ? ? 5 Súld
Skýjað / * / * Slydda / * / oo Mistur
* * * 4 Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * 4 Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyrl +1 skýjað
Reykjavfk +1 léttskýjað
Bergen vantar
Helsinki 3 skýjað
Kaupmannah. 8 rigning
Narssarssuaq +10 heiðskírt
Nuuk +S snjókoma
Ostó vantar
Stokkhólmur 9 rígning
Þórshöfn 5 hálfskýjað
Algarve 17 heiðskírt
Amsterdam 9 léttskýjað
Barcelona 16 heiðskfrt
Berlín 14 léttskýjað
Chicago 6 alskýjað
Feneyjar 9 þokuruðningur
Frankfurt 16 skýjað
Glasgow 7 skýjað
Hamborg 9 léttskýjað
Las Palmas 21 léttskýjað
London 9 skýjað
Los Angeles 14 alskýjað
Lúxemborg 9 skýjað
Madríd 18 léttskýjað
Malaga 16 alskýjað
Mallorca 15 skýjað
Montreal +1 skýjað
New York 7 heiðskfrt
Orlando 27 skýjað
Parfs 12 léttskýjað
Róm 13 þokumóða
Vín 7 þokumóða
Washington 9 léttskýjað
Winnipeg 1 alskýjað
Islensk skip hafa veitt
518.000 tonn af loðnu
Bolungarvík:
Ekkert lát á fugladauða
Boiungrarvík. dauðir og að minnsta kosti þrir
EKKERT lát virðist vera á til fjórir aðrir illa á sig komnir.
fugladauða við Boungarvíkur- Er ekki að sjá annað en fuglinn
höfn. Fuglinn heldur sig nokk- bókstaflega veslist upp. Náttúru-
uð mikið á litlu svæði í innsta fræðistofnun hefur fengið dauða
krika hafiiarinnar, þar sem fugla til rannsóknar og er að
Hólsá rennur til sjávar. væntá niðurstöðu úr þeim rann-
Þar fundust í gær tveir fuglar sóknum á næstu dögum.
Frá höfiiinni í Bolungarvík. Á
innfelldu myndinni heldur Guð-
jón Kristinsson á dauðum fitgli,
en hann hefur fylgst með fiigl-
alífinu þarna í nokkrar vikur.
FJÖRUTÍU og fjögur íslensk skip höfðu síðdegis í gær, fimmtudag,
veitt um 518 þúsund tonn af loðnu á haust- og vetrarvertíðinni. Afla-
hæstu loðnuskipin síðdegis í gær voru Hilmir SU með 20.424 tonn
og Helga II RE með um 20 þúsund tonn en loðnuskipin hafa mo-
kveitt við Reykjanes og út af Alviðru undanfarið.
Norsk skip veiddu rúm 113 þús-
und tonn af loðnu á haust- og vetr-
arvertíðinni og færeysk skip rúm
26 þúsund tonn. Á haust- og vetrar-
vertíð 1988-1989 veiddu norsk skip
hins vegar 67.530 tonn af loðnu,
færeysk 48.515 tonn og íslensk
920.491 tonn. Loðnukvóti íslensku
skipanna er nú 760 þúsund tonn,
þannig að síðdegis í gær áttu þau
eftir að veiða um 242 þúsund tonn
á þessari vertíð.
Síðdegis í gær höfðu eftirtalin
skip tilkynnt um loðnuafla: Guð-
mundur 900 tonn til FES, Sigurður
1.400 til FES, Gullberg 620 óákveð-
ið hvert, Örn 750 óákveðið hvert,
Sunnuberg 200 til ýmissa aðiia,
Dagfari 520 til Njarðar hf., Höfr-
ungur 910 óákveðið hvert, Háberg
400 til ýmissa aðila, Skarðsvík 620
óákveðið hvert, Sjávarborg 790 til
Siglufjarðar, Þórshamar 580 óá-
kveðið hvert, Sighvatur Bjarnason
300 til FIVE og Fífill 370 til ýmissa
aðila.
Á miðvikudag tilkynntu þessi
skip um loðnuafla: Hilmir 1.240
tonn til SR á Seyðisfirði, Svanur
660 til Siglufjarðar, Sighvatur
Bjarnason 500 til FIVE, Sunnuberg
500 til ýmissa aðila, Dagfari 520
til ýmissa aðila, Júpíter 1.200 til
Bolungarvíkur, Guðmundur Ólafur
600 til Þórshafnar, Fífíll 370 til
ýmissa aðila, Súlan 700 til Raufar-
hafnar, Grindvíkingur 1.000 til
Hafsíldar á Seyðisfírði, Harpa 620
til Hafnar í Homafírði, Háberg 300
til ýmissa aðila, Keflvíkingur 250
til ýmissa aðila, Björg Jónsdóttir
540 til Neskaupstaðar, Bjarni Ól-
afsson 950 til Siglufjarðar, Rauðsey
200 til ýmissa aðila og Erling 550
til Eskifjarðar.
Síðdegis á þriðjudag tilkynntu
eftirtalin skip um loðnuafla: Fífill
230 tonn til ýmissa aðila, Rauðsey
250 til ýmissa aðila, Bergur 520
til Færeyja, Þórður Jónasson 600
til Seyðisfjarðar, Börkur 1.100 til
Noregs og Háberg 300 til ýmissa
aðila.
Alþýðubandalagið í Reykjavík:
Óskað eftir tilnefn-
ingnm í prófkosningn
FÉLÖGUM í Alþýðubandalaginu í Reykjavík hefur verið sent bréf
þar sem óskað er eflir skriflegum tilnefiiingum í prófkosningu fyrir
borgarstjórnarkosningarnar í vor.
Stefnt er að því að prófkosningin
verði í mars og fari þannig fram
að félagar í Alþýðubandalaginu fái
sendan atkvæðaseðil í pósti. Á at-
kvæðaseðlinum verði nöfn þeirra
sem tilnefndir verða nú, en auk
þess hefur kjörstjórn rétt til að
bæta nöfnum á seðilinn.
Búist er við að framboðslisti Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík verði
tilbúinn um mánaðamótin mars-
apríl. Sveitastjórnarkosningarnar
fara fram í lok maí.
Í
l
i
i
i
í
i
i
i
>
i
i