Morgunblaðið - 19.04.1990, Page 2

Morgunblaðið - 19.04.1990, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1990 Ingólfiir segir upp hjá SH í Grimsby SKÝRT var frá því á fundi stjórnar SH í gær, að Ingólfur Skúlason, forstjóri Icelandic Freezing Plants Ltd. (IFPL), dótturfyrirtækis SH í Grimsby, hefði sagt starfi sínu lausu fi-á og með fyrsta maí næstkom- andi. Jafnfi-amt var frá því skýrt frá því, að Agnar Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Umbúðamiðstöðvarinnar, taki við af Ingólfi í Grimsby. Afkoma fyrirtækisins hefúr batnað verulega síðustu mánuði eftir tíma- bil umtalsverðs taps síðastliðin tvö ár. Formaður stjórnar IFPL, Jón Páll Halldórsson, sagði í samtali, við Morgunblaðið, að það væri alfarið ákvörðun Ingólfs að segja starfí sínu lausu. Ingólfur telji það fyrirtækinu fyrir beztu að nýr maður taki við rekstrinum og fylgi eftir þeim ár- angri í starfseminni, sem náðst hafi. „Það hefur verið stöðug söluaukn- ing hjá fyrirtækinu síðastliðna 8 mánuði,“ segir Jón Páll. „Flest bend- Borað á ný við Kröfluvirkjun FORBORUN að djúpri gufúöflun- arholu við Kröflu er nú að hefj- ast. Síðast var boruð grunn hola við Kröflu fyrir tveimur árum, en djúp hola hefúr ekki verið boruð síðan upp úr 1980. Knútur Ottersted, svæðisstjóri Landsvirkjunar á Akureyri, segir að þrátt fyrir borun þessarar holu, hafi ekki verið tekin ákvörðun um það hvort síðari hverfill virkjunar- innar verði settur upp á næstu miss- erum. Fyrst verði að koma í ljós árangur af borun þessarar holu, en verði hann góður, sé þar um að ræða ódýra leið til öflunar viðbótar- orku. Þá þúrfí einnig að skoða fjöl- marga aðra þætti áður en komi til þess að taka ákvörðun'um stækkun virkjunarinnar. Holan, sem nú verður boruð, er uppi á hæðinni norðan við veginn að Víti, ekki ýkja langt frá Víti. ir til þess að salan aukist áfram. Afkoman hefur batnað stórlega fyrsta fjórðung þessa árs, langt umfram það, sem menn þorðu að vona. Ég geri mér vonir um að þessi bati haldi áfram og að aðgerðir síðustu tveggja ára séu nú að skila sér, að vísu síðar en menn vonuðust til. Ég vil nota tækifærið og þakka Ingólfi Skúlasyni góð störf í þágu fyrirtækisins og býð um leið Agnar Friðriksson velkominn til starfa,“ sagði Jón Páll Halldórsson. Sjá viðtöl við Agnar og Ingólf á bls. 26. Andrésar andar-leikarnir settir Andrésar andar-leikamir voru settir í fímmtánda sinn á Akureyri í gær. Um 750 börn undir 12 ára aldri taka þátt í þeim og keppa á skíðum í Hlíðarfjalli næstu daga. Myndin var tekin þegar hópurinn gekk fylktu liði um götur Akureyrar í gær, að íþróttahöllinni, þar sem setningarathöfnin var. Framkvæmdastjórn EB: Skilmngur á sérstöðu Islend- inga í sjávarútvegsmálum Forsetinn í afmæli drottningar VIGDÍS Finnbogadóttir for- seti íslands, er væntanleg til landsins í dag frá Kaup- mannahöfn þar sem hún tók þátt í hátíðarhöldum í tilefni 50 ára afinælis Margrétar Danadrottningar. Forsetinn hélt utan síðastlið- inn mánudag og sat þá meðal annars veislu í Kristjánsborgar- höll. Á þriðjudag var hátíðar- sýning í Konunglega leikhúsinu og á miðvikudag skoðuðu gestir sýningu franska málarans Cha- gall, sem nú stendur yfir í Lou- isiana listasafninu í Humlebæk. Hátíðarhöldunum iauk með kvöldverði og dansleik í Kristj- ánsborgarhöll. Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Á FUNDI Steingríms Hermanns- sonar forsætisráðherra með fúll- trúum úr framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins (EB) í Brussel í gær kom fram mikill skilningur innan framkvæmda- stjórnarinnar á sérstöðu Islend; inga hvað varðar sjávarútveg. I viðræðum Steingríms og Jacques Delors, forseta framkvæmda- sljórnarinnar, lýsti Delors áhyggjum sínum vegna takmark- aðra aðgerða EFTA-ríkjanna til að efla EFTA sem stofiiun er gæti átt samskipti við EB um stjórn sameiginlegs efiiahags- svæðis. í gærmorgun sat forsætisráð- herra fund með Delors þar sem þeir ræddu almenn samskipti ís- lands og EB auk þess sem fjallað var um væntanlegar samningavið- ræður EFTA og EB um sameigin- legt efnahagssvæði. Forsætisráð- herra sagði Delors hafa lýst áhyggj- um sínum vegna seinagangs EFTA-ríkjanna í að efla sameigin- legar stofnanir sínar og vegna fyrir- vara, sem EFTA-ríkin hafa sett vegna þeirra samþykkta EB sem taka á upp í samninginn um evr- ópska efnahagssvæðið. Að loknum fundinum með Delors sat Steingrímur hádegisverðarfund með tólf af sautján framkvæmda- stjórum EB. Sá fundur snerist fyrst og fremst um samskipti íslands og Morgunblaðið/Kristófer Már Kristinsson Jacques Delors og Steingrímur Hermannsson heilsast í höfúðstöðvum Evrópubandalagsins í Brussel. EB á sviði sjávarútvegsmála. Steingrímur kvaðst hafa gert fram- kvæmdastjórunum grein fyrir hags- munum íslendinga og bent á, að fríverslun kæmi þeim að takmörk- uðum notum, á meðan sjávarafurð- um væri haldið utan við hana. Strax að loknuin inngangsorðum Steingríms tók Manuel Marin, framkvæmdastjóri fiskimála, til máls og sagði það eindregna stefnu EB að leita veiðiheimilda fyrir að- gang að mörkuðum bandalagsins. Steingrímur sagði að í máli þeirra sem töluðu um þetta efni, að Marin undanskildum, hefði komið fram mikill skilningur á sérstöðu íslands og heldur hefði verið til þess hvatt, að Marin endurskoðaði þá afstöðu sína að fara ekki til viðræðna á íslandi. Henning Christophersen hefði eindregið lagt til að tekið yrði tillit til hagsmuna íslendinga og í sama streng hefðu fleiri fram- kvæmdastjórar tekið. Steingrímur sagði að í lokaorðum sínum hefði Delors tekið mjög jákvætt á þessu máli. Síðdegis í gær fóru fram viðræð- ur við forseta Evrópuþingsins, Enrique Baron og Willy de Clercq, formann utanríkisnefndar þingsins. Steingrímur sagði fundinn með Baron fyrst og fremst hafa verið til að sýna þinginu virðingu en á fundinum með de Clercq hafi verið fjallað um viðræður EFTA og EB og þann ágreining sem virðist milli framkvæmdastjórnar EB og þings- ins. Steingrímur sagði ekki ljóst hvort um væri að ræða valdabar- áttu milli þessara aðila eða baráttu þingsins fyrir auknum völdum. Það væri hins vegar Ijóst að þingið myndi í framtíðinni ekki sætta sig við að framhjá því væri gengið þeg- ar um samskipti við ríki utan EB væri að tefla. Með' Steingrími á fundinum voru Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra, Einar Benediktsson •'sendiherra, Hannes Hafstein sendi- herra og Bolli Héðinsson efnahags- ráðunautur. Utanríkisráðherra ger- ir sendiherrum EFTA-ríkjanna grein fyrir viðræðunum í dag. Sjávarútvegurinn: 10 milljarða styrkir og skuld- breytingar á tveimur árum - segir Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfi*æðingur LIU „ÞAÐ er dapurlegt að horfa upp á þá niðurlægingu, sem íslenzkur sjávarútvegur hefur mátt þola undanfarin ár. Áfkoma greinarinnar hefur verið folsuð með beinum og óbeinum styrkjum í stórum stíl. Líklega er búið að lána, skuldbreyta og styrkja fyrirtæki innan greinar- innar fyrir nála'gt 10 milljarða króna úr þremur opinberum sjóðum á um tveimur árum. Þessar aðgerðir hafa ekki leyst vanda viðkomandi sjávarútvegsfyrirtækja, heldur aðeins framlengt dauðastrið þeirra eitt- hvað áfram eða þar til kemur að greiðslu lána,“ segir Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur LIU. Sveinn Hjörtur flutti fyrir skömmu fullyrðingu að afkoma sjávarútvegs- erindi á fundi Skrifstofu viðskipt- ins hafi batnað verulega með hækk- alífsins, þar sem hann ræddi þetta andi verði á útfluttum sjávarafurð- TnSmanrTflreprTstðrlep f éfá'þá—am: Aðrir þættir ráðrTnetru wrþað ’' hver afkoma sjávarútvegsins sé og ráði^þar mestu þrír opinberir sjóðir. „A annað ár hafa starfað tveir sjóðir, sem hafa haft það að mark- miði að endurreisa illa stödd sjávar- útvegsfyrirtæki. Þessir sjóðir eru Atvinnutryggingarsjóður og Hluta- fjársjóður. Auk þess hefur Verðjöfn- unarsjóður fiskiðnaðarins greitt verðbætur til sfðustu áramóta á frystan fisk. Þá mætti nefna Byggða- stofnun og fyrirgreiðslu annarra lánastofnana. Milljörðum króna hef- “úrvériðvartð'ttPskuldbreyttnga.'táTi^ veitinga og annarrar fyrirgreiðslu. Þannig hefur hvert fyrirtækið á fæt- ur öðru verið endurreist, burtséð frá því hvernig að málum þess hefur verið staðið. Þetta eru í sjálfu sér ekki nýjar fréttir, en við eigum eftir að súpa seyðið af aukaverkunum vegna þessa styrktarkerfis á næstu árum. Það er búið að skapa tvo hópa atvinnurekenda í þessu landi. Annars vegar eru þeir, sem verða að borga skuldir sínar og standa við ábyrgðir. Hins vegar eru þeir, sem þurfa hvorki að borga skuldir sínar né standa við ábyrgðir og síðarnefndi hópurinn fer “örtrstækktmdiT'segir^veiim:-------------- Áburðarverksmiðjan: Orsök eldsins er enn ókunn ORSÖK eldsins sem kviknaði á ammoníakstanki Áburðarverk- smiðjunnar í Gufunesi á páska- dag er enn ókunn, að sögn Eyj- ólfs Sæmundssonar forstöðu- manns Vinnueftirlits ríkisins. Rannsóknarlögregla ríkisins og Vinnueftirlitið vinna að rannsókn eldsupptaka. Fræðilega eru nokkrir möguleik- ar á hvernig eldurinn kviknaði. Að sögn Víðis Kristjánssonar efna- fræðings hjá Vinnueftirlitinu er meðal annars mögulegt að eldurinn hafi.kviknað út frá rafmagnsljósi, sem var ofan á tankinum. Annar möguleiki er að núningur ammon- íakgassins við plaströr sem það streymdi um hafi myndað raf- hleðslu sem gaéti hafa gefið frá sér neista. Þá gat Víðir þess, að ef ammohíak kemst í snertingu við zink eða ál, þá gefur það frá sér vetni, sem er ofurviðkvæmt fyrir eldi. Ekki er þó vitað til að ammon- íakið hafi komist í snertingu við þessa málma. Búist er við að rannsókn eldsupp- taka ljúki ekki fyrr en að nokkrum dögum liðnum. Sjáeiimig^ áblsr26r '

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.