Morgunblaðið - 19.04.1990, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1990
27
Bragi er fæddur í Reykjavík
1932, hann er lögfræðingur að
mennt og hefur starfað sem banka-
stjóri Iðnaðarbankans, hann hóf að
mála á árunum 1966-’67 og hefur
numið málaralist hjá nokkrum af
helstu listmálurum landsins.
Á sýningunni nú eru nýjar olíu-
myndir. Landslagsmyndir í ljóðræn-
um expressjónískum stíl sem Bragi
er fyrir löngu orðinn þekktur fyrir
en hann hefur tekið þátt í mörgum
samsýningum hér heima og erlend-
is, hann hefur haldið margar einka-
sýningar, t.d. í Norræna húsinu og
Gallerí Borg.
Sýningin er opin virka daga frá
kl. 10-18 og um helgar frá kl.
14-18. Sýningunni lýkur þriðjudag-
ið og Laugarnesið í stefnu á mið-
borgina.
Berist skýið yfir byggðina er
líklegt að afleiðingarnar yrðu skelfi-
legar og fjöldi manns myndi farast,
einkum þeir sem væru utandyra.
Þeir sem dveldust innandyra í bygg-
ingum gætu lifað af ef gluggar
væru iokaðir og loftræstikerfi ekki
í gangi. Mjög lítið ráðrúm gæfist til
almannavarna.
Umfang skýsins yrði minna ef geym-
irinn væri ekki fullur, en ekki er
metið nánar hver áhrif þess yrðu á
ofangreint mat.“
Starfshópurinn fjallaði einnig um
hugsanlegar orsakir þess að leki,
stór eða smár, ætti sér stað og bend-
ir á eftirfarandi:
„N áttúruhamfarir.
Skemmdarverk.
Flugslys.
Efnisgallar í geymi eða leiðslum.
Mistök eða óhöpp við dælingu úr
og í geymi og við losun úr skipi.
Sprenging við aðra þætti fram-
leiðslunnar, svo sem við vetnisfram-
leiðslu, ammóníumnítratsframleiðslu
eða ammóníaksframleiðslu.
Ýmis óhöpp, svo sem ef ekið væri á
leiðslur eða geymi.“
Starfshópurinn benti á tvær leiðir
til að auka öryggi vegna ammón-
íaksins: Að byggja nýjan kældan
geymi, hins vegar að setja upp kæli-
kerfi fyrir kúlugeyminn og byggja
utan um hann öryggishús. Fyrri
kosturinn var valinn og er nú verið
að byggja nýjan geymi, kældan, en
þangað til því verki verður lokið
verður ekkeil ammóníak flutt til
verksmiðjunnar, samkvæmt ákvörð-
un Almannavarna Reykjavíkur á
sunnudagskvöld.
DAS-HUSIÐ
að Reykjabyggð 18, Mosfellsbæ,
ertil sýnis með öllum húsbúnaði
sumardaginn fyrsta, og um helgina, laugardag og sunnudag
kl. 13-18.
Glæsilegt 2ja hæða einbýlishús með blómaskála
og tvöföldum bílskúr, samtals 253 m2 á 17 millj. kr.
Leiöin er merkt.
Dregiðí 1. flokki 4. maí.
Happdrætti dvalarheimilis aldraðra sjómanna
Borgarleikhúsið:
Dagskrá um umhverfismál
í tilefiii af Degi jarðar
Ein mynda Braga Hannessonar í Gallerí Borg.
Bragi Hannesson
í Gallerí Borg
í GALLERÍ Borg verður opnuð inn 1. maí. Allar myndirnar eru til
sýning á verkum Braga Hannes- sölu.
sonar í dag, fimmtudaginn 19.
apríl.
Umhverfismálaráð Reykja-
víkur efhir til sérstakrar dag-
skrár um umhverfismál í Borg-
arleikhúsinu, svo og stuttrar
skemmtigöngu um Oskjuhlíð á
Degi jarðar, sunnudaginn 22.
apríl næstkomandi. Þennan dag
standa ýmsir aðilar í yfir 100
löndum fyrir átaki, sem miðar
að því að hvetja fólk til umhverf-
isverndar.
Dagskráin í Borgarleikhúsinu
hefst klukkan 17. Davíð Oddsson
borgarstjóri ávarpar samkomuna
en erindi flytja Matthías Johannes-
sen ritstjóri og Hulda Valtýsdóttir
formaður Skógræktarfélags ís-
lands. Þá flytja Sigfús Halldórsson
og Elín Sigurvinsdóttir lög eftir
Sigfús og kór Árbæjarskóla syngur
undir stjórn Áslaugar Bergsteins-
dóttur.
Skemmtigangan um Öskjuhlíð
hefst klukkan 14 á sunnudag. Far-
in verður stutt hringferð um hlíðina
undir leiðsögn göngustjóra frá
Skógræktarfélagi Reykjavíkur og
garðyrkjudeild borgarinnar. Að því
loknu verður haldin veisla við út-
sýnishúsið, þar sem boðið verður
upp á grillaðar pylsur og gos-
drykki, farið í leiki og tónlist leik-
in. Einnig verður almenningi gef-
inn kostur á að virða fyrir sér útsý-
nið úr nýja útsýnishúsinu á
Öskjuhlíð.
Átak í málefnum barna, á veg-
menntamálaráðuneytisins,
um
hefst á Degi jarðarinnar. Opnunar-
athöfn átaksins verður í anddyri
Borgarleikhússins klukkan 14.
Viðurkenningar veitt-
ar úr Rithöfiindasjóði
STJÓRN Rithöfundasjóðs íslands, scm skipuð er Árna Ibsen form-
anni, Ingibjörgu Haraldsdóttur ritara og Hermanni Johannessyni
meðstjórnanda, ákvað á fundi sínum 28. mars að veita 25 rithöfund-
um viðurkenningu fyrir ritstörf að upphæð kr. 150.000 hverjum.
Rithöfundarnir sem viðurkenn-
ingu hljóta eru: Agnar Þórðarson,
Andrés Indriðason, Atli Magnússon,
Berglind Gunnarsdóttir, Birgir
Engilberts, Birgir Sigurðsson, Dag-
ur Sigurðarson, Gissur Ó. Erlings-
son, Guðbergur Bergsson, Hjörtur
Pálsson, Jón O. Edwald, Kristín
Ómarsdóttir, Ólafur Gunnarsson,
Óskar Ingimarsson, Ragnhildur
Ófeigsdóttir, Sigfús Bjartmarsson,
Sigurður Pálsson, Stefán Júlíusson,
Steinar Sigutjónsson, Steinunn Jó-
hannesdóttir, Svava Jakobsdóttir,
Þorgeir Þorgeirsson, Þórarinn Eld-
járn, Þórunn Valaimarsdóttir og
Þuríður Guðmundsdóttir.
(Fréttatilkynning)