Morgunblaðið - 26.07.1990, Side 1
56 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
167. tbl. 78. árg.
FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovétríkin:
_ _ _ ^ ^ ^ 0 ivcutci
Tuttugu manns falla 1 strioi
s-affískra blökkumanna
Tuttugu manns hafa fallið frá því um helgina í bardögum í Sebokeng, borg blökkumanna skammt frá
Jóhannesarborg í Suður-Afríku, á milli félaga í Afríska þjóðarráðinu (ANC) og Inkatha-hreyfingunni, sem
nýtur einkum stuðnings Zúlú-manna. Stríð hreyfinganna hefur kostað meira en 3.000 manns lífið á undan-
förnum þremur árum. Á myndinni standa börn á brunnu bílflaki eftir að hlé varð á bardögunum í gær.
Gorbatsjov boðar
herferð gegn vopn-
uðum Armenum
Moskvu. ^Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov Sovétforseti greip í gær til róttækra aðgerða
gegn herskáum þjóðernissinnum í Sovétlýðveldinu Armeníu og
hótaði að beita hernum gegn þeim ef þeir létu ekki vopn sín af
hendi innan fimmtán daga.
Sovéska fréttastofan TASS
skýrði frá því að Gorbatsjov hefði
gefið út tilskipun um að allar ólög-
legar hreyfingar skyldu leystar upp
og að þeim bæri að afhenda her-
mönnum sovéska innanríkisráðu-
neytisins öll vopn sín. „Tilskipunin
kveður á um að yfirvöldum og
valdastofnunum í lýðveldunum beri
að tryggja að vopnin verði gerð
upptæk ef ekki verður gengið að
þessari kröfu,“ sagði fréttastofan.
Samkvæmt TASS nær tilskipunin
til allra ólöglegra hreyfinga sem
hafa vopn en henni er augljóslega
beint gegn herskáum þjóðernis-
sinnum í Armeníu, sem hafa hvað
eftir annað ráðist á sovéska her-
menn á undanförnum mánuðum.
Bardagar brutust út í höfuðborg
lýðveldisins, Jerevan, á milli sov-
éskra hermanna og þjóðernissinna
í maí og kostuðu þeir þrjátíu
manns lífið. Þar af féllu um tólf
er þjóðernissinnar sátu um her-
menn í járnbrautarstöðinni í borg-
inni.
Sovéskir fjölmiðlar hafa skýrt
frá því að tugir þúsunda þjóðernis-
sinna í Armeníu séu undir vopnum
með óbeinu samþykki stjórnvalda
í lýðveldinu. Júrí Shatalín, æðsti
hershöfðingi innanríkisráðuneytis-
ins, heimsótti lýðveldið nýlega og
sakaði stjórnina í Jerevan um að
hylma yfir með þjóðernissinnunum,
sem hann sagði hafa komið sér
upp gífurlegum vopnabirgðum með
árásum á sovéska hermenn og
hernaðarmannvirki.
Deilt um olíu og landsvæði við Persaflóa:
Kúvætar sagðir haí'a boð-
ið Irökum milljarð dala
Kaíró, Kúvæt. Reuter. n
Bandaríkin:
Foli seldur
fyrir metfé
Lexington í Kentucky. Reuter.
VETURGAMALL foli var
seldur Japana á 2;9 milljónir
dala (171 milljón ISK) á hinu
árlega tveggja daga Keene-
land-uppboði í Kentucky í
gær. Hann á að vera áfram
í Bandaríkjunum og keppa
þar.
Á uppboðinu voru 234 hest-
ar seldir á 82,3_milljónir dala
(4,9 milljarða ÍSK) samtals.
Meðalverð var 352.000 dalir
(rúmlega 20 milljónir ÍSK) en
í fyrra var það mun hærra, eða
395.374 dalir (tæplega 22
milljónir ÍSK).
Framkvæmdastjóri uppboðs-
ins, W. Rogers Beasley, sagð-
ist ekki hafa verulegar áhyggj-
ur af verðlækkuninni. „Eg er
alls ekki vonsvikinn. Það getur
ekki valdið vonbrigðum þegar
hestur selst á 2,9 milljónir
dollara," sagði hann.
Stærstu kaupendur á upp-
boðinu, líkt og undanfarin ár,
voru fjórir bræður af Makto-
um-fjölskyldunni frá Dubai.
Þeir keyptu 8 af þeim 11 hest-
um sem seldust á yfir eina
milljón dala.
SENDINEFNDIR frá írak og Kúvæt koma saman í Saudí-Arabíu
um helgina til að ræða deilu ríkjanna um olíu og landamæri, að því
er Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, sagði í gær. Ennfremur
skýrðu stjórnarerindrekar í arabaríkjunum frá því að Kúvætar
hefðu boðist til að greiða Irökum milljarð dala, rúmlega 58
milljarða ÍSK, fyrir olíu, sem írakar segja Kúvæta hafa stolið úr
umdeildum oliulindum við landamæri ríkjanna. Athyglin beinist nú
einnig til Genf þar sem ráðherrar landanna tveggja og annarra ríkja
í OPEC, Samtökum olíuútflutningsrikja, reyna að jafna ágreining sinn
um framleiðslu og verð á olíu.
Hosni Mubarak sagði að sendi-
nefndir íraks og Kúvæts kæmu
saman í Jeddah í Saudí-Arabíu á
laugardag eða sunnudag til að
ræða ásakanir íraka um að Kúvæt-
ar framleiddu of mikla olíu. Ríkin
hafa einnig sakað hvort annað um
yfirgang við landamæri þeirra. Þá
hefur Saddam Hussein, forseti ír-
aks, krafist þess að Kúvætar
greiði írökum 2,4 milljarða dala
fyrir olíu, sem hann segir þá hafa
stolið úr olíulindum á landsvæði,
er bæði ríkin hafa gert tilkall til.
Vestrænir stjórnarerindrekar í ar-
abaríkjunum sögðu að Kúvætar
hefðu boðist til að greiða tæpan
helming þessarar fjárhæðar, eða
milljarð dala.
Mubarak hafði einnig eftir Sadd-
am Hussein, forseta íraks, að írak-
ar hefðu „alls ekki i hyggju að
ráðast á Kúvæta eða aðrar þjóðir“
og bætti við að leiðtogar nágranna-
ríkjanna hefðu samþykkt að hætta
þrætu sinni í ijölmiðlum frá og
með deginum í dag. Deilan hafði
valdið miklum ugg í arabaheimin-
um og verð á olíu hækkað vegna
vangaveltna um að stríð kynni að
bijótast út á milli ríkjanna.
Rasheed Salim al-Ámeeri, olíu-
málaráðherra Kúvæts, gaf í gær-
kvöldi út yfirlýsingu um að Kúvæt-
ar léðu máls á öllum tillögum, sem
Reuter
Issam Adbul Raheem al-Chalabi, olíumálaráðherra íraks (til
vinstri), heilsar starfsbróður sínum frá Kúvæt, Rasheed Salim al-Ame-
eri, áður en fúndur Samtaka olíuútflutningsríkja, OPEC, hófst í Genf
í gær.
leitt gætu til þess að OPEC-ríkin
næðu samkomulagi um olíufram-
leiðslu sína. Fyrr um daginn hafði
hann sagt við blaðamenn að ekki
væri raunhæft að stefna að því að
olíuverð hækkaði í 25 dali á fatið
eins og Irakar kreijast. Olíuverðið
er nú um 17,50 dalir á fatið.
Heragi í japönskum skólum:
Mætti sekúndu of seint og dó
Tókíó. Daily Telegraph.
15 ÁRA japönsk stúlka lést nýlega þegar skólahliði var skellt á
höfuð hennar vegna þess að hún mætti sekúndu of seint í
skólann. Atvikið hefur að vonum vakið umræður um heragann í
japönskum skólum.
Stúlkan kom að hliðinu um leið
og bjöllunni var hringt og kenn-
ari, sem taldi sekúndurnar þar til
kennsla ætti að hefjast, skellti
hliðinu á hana með þeim afleiðing-
um að hún höfuðkúpubrotnaði.
Lögreglan rannsakar nú sekt
kennarans en skólastjórinn hefur
reynt að réttlæta gerðir hans og
kennir óstundvísi stúlkunnar um
hvernig fór. „Ég hef fengið fyrir-
mæli um að nemendurnir skuli
ekki mæta of seint, þannig læra
þau að koma skipulagi á líf sitt,“
segir hann.
Foreldrar nemendanna eru
sammála því að halda beri uppi
aga í skólanum en hafa fordæmt
afstöðu skólastjórans og sagt að
aginn hafi farið út í öfgar.
Japanskir Ijölmiðlar keppast nú
um að skýra frá ströngum refs-
ingum vegna smávægilegra yfir-
sjóna nemenda. Einn þeirra
greindi til að mynda frá því að
kennarar hefðu grafið tvo drengi
í sand við flæðarmál til að „bæta
hugarfar þeirra“.
Barsmíðar eru tíðar, til að
mynda barði kennari 16 ára ungl-
ing til bana fyrir nokkrum árum
og bar því við að nemandinn
hefði notað hárþurrkara sem var
bannaður samkvæmt skólareglun-
um.
Reglurnar eru einnig strangar.
Svo dæmi séu tekin segja þær til
um hversu langan salernispappír
nemendurnir megi nota (11,8
sm), hversu margar fellingar
skuli vera á pilsum stúlknanna
(24) og fjölda þráðaraugna á leik-
fimiskóm (12).