Morgunblaðið - 26.07.1990, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. -JULI 1990
Virkjanaundirbúningur vegna álvers:
VEÐURHORFUR í DAG, 26, JÚLÍ
YFIRLIT í GÆR: Um 500 km suðvestur af Reykjanesi er kyrrstæð
999 mb lægð, sem grynnist. Hæð er austan við Noreg.
SPÁ: Suðaustan- og sunnangola. Smáskúrir eða súld á Suður- og
Austurlandi. [ öðrum landshlutum verður þurrt og víða léttskýjaö
á Norðurlandi og Vestfjörðum. Áfram verður hlýtt í veðri, einkum
norðanlands.
VEÐURHORFUR NÆSW DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Hæg suðaustanátt.
Skýjað og sums staðar súld á Suðurlandi og sunnantil á Austfjörð-
um en annars víðast bjart veður. Hiti 12-17 stig sunnantil á landinu
en allt að 25 stigum í innsveitum norðanlands.
TAKN:
•O ► Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
a Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—[- Skafrenningur
jy Þrumuveður
VBÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri
Beykjavik
hHI
21
13
veftur
léttskýjað
úrkoma
Bergen vantar
Helsinki 20 léttskýjað
Kaupmannahöfn 21 skýjað
Narssarssunq 12 léttskýjað
Nuuk 8 skýjað
Óstó vantar
Stokkhólmur 20 skýjað
Þórshöfn 11 alskýjað
Algarve 25 léttskýjað
Amsterdam 17 alBfrýjað
fiarcelona vantar
Berlín vantar
Chicago vantar
Feneyjar 26 þokumóöa
Frankíurt 21 léttakýjað
Glasgow 22 mistur
Hamborg 20 skýjað
LaaPalmas 29 mistur
London 23 léttskýjað
LosAngeles 20 alskýjað
Lúxemborg 20 téttskýjaö
Madríd vantar
Malaga 28 léttskýjað
Mallorca 31 helðskírt
Montreal 19 þokumóða
NewYork 24 tóttskýjað
Orlando 26 skýjað
París 23 tóttskýjað
Róm 28 skýjað
Vin 23 skýjað
Washington 23 heiðskírt
Wlnnipeg 16 léttskýjað
Oskar Gíslason
ljósmyndari látinn
ÓSKAR Gíslason kvikmynda-
gerðarmaður og ljósmyndari lést
í Reykjavík í gær 89 ára að aldri.
Óskar var fæddur í Reykjavík
15. apríl 1901, sonur Gísla Þor-
bjarnarsonar búfræðings og kaup-
manns og konu hans Jóhönnu
Sigríðar Þorsteinsdóttur. Hann
stundaði nám í teikniskóla Stefáns
Eiríkssonar og Jærði ljósmyndaiðn
hjá Magnúsi Ólafssyni og Ólafi
Magnússyni í Reykjavík og síðar
hjá konunglegum ljósmyndara El-
felt í Kaupmannahöfn, þaðan sem
hann lauk prófi 1921.
Óskar starfaði við ljósmyndun í
Reykjavík í allmörg ár og starfaði
einnig að kvikmyndagerð frá árinu
1940. Fyrsta kvikmynd hans, sem
sýnd var opinberlega, var Lýðveld-
ishátíðarmyndin 1944, en meðal
annarra mynda hans voru Síðasti
bærinn í dalnum, Björgunarafrekið
við Látrabjarg, Reykjavíkurævin-
týri Bakkabræðra og Ágirnd.
Óskar Gíslason
Óskar kvæntist tvívegis. Af fyrra
hjónabandi átti hann sex börn og
eru fjögur á lífi. Eftirlifandi eigin-
kona hans er Ingibjörg Einarsdóttir.
i
Hvímild: VeðurEtola íslandE
(Byggl á veöurspá W. tft.fS í geer)
Morgunblaðið/Sverrir
Snorrastefha, fyrsta alþjóðlega ráðstefiian um norræna goðafræði
og Snorra-Eddu, var sett í Odda í gær.
Snorrastefna sett í Odda
FYRSTA alþjóðlega ráðstefnan um norræna goðafræði og Snorra-Eddu
var sett í Odda í Háskóla íslands í gær. Úlfar Bragason, forstöðumað-
ur Stofnunar Sigurðar Nordals, setti ráðstefnuna og talaði um þýðingu
hinna fornú fræða fyrir íslendinga, sem einstaklinga og þjóð. Hann
undirstrikaði jafnframt alþjóðlega skírskotun fræðanna og bauð er-
lenda og innlenda gesti velkomna.
Á dagskrá Snorrastefnu i gær
voru sex erindi. í dag hefst ráðstefn-
an klukkan 9 á erindi Olgu
Smirnickaja og því næst tala Harald-
ur Bessason, Else Mundal og Preben
Meulengracht Sörensen. Klukkan 13,
að loknu hádegishléi, flytja Fran-
cois-Xavier Dillmann, Svavar Sig-
mundsson og Ola Kyhlberg erindi.
Loks flytja Ulf Drobin, Lotte Motz
og Britt-Mari Nasström erindi og
lýkur dagskránni klukkan 17.30.
Iðnaðarráðherra segist
ákveða framhaldið í haust
telur að sá árangur hafi orðið í við-
ræðum um nýtt álver á samninga-
fundum með Átlantsálsaðilunum í lok
júní sl. að eðlilegt sé að hefja þegar
þann undirbúning sem Landsvirkjun
telur nauðsynlegan á þessu ári til
þess að unnt verði að afhenda nýju
álveri orku á árinu 1994.
Mál þetta var að nýju til umfjöllun-
ar í ríkisstjóminni í dag og með vísan
til bráðabirgðaákvæðis II við lög
74/1990, um breytingu á lögum um
raforkuver, og 6. og 7. gr. laga nr.
42/1983, um Landsvirkjun, veitir
ráðuneytið hér með samþykki fyrir
því að Landsvirkjun vinni að virkja-
naundirbúningi samkvæmt verká-
ætlun sinni, dags 3. þ.m., og taki lán
í því skyni, en í áætluninni kemur
fram að framkvæmdir í júlí og ágúst
nema um 100 millj. króna. Ráðuneyt-
ið leggur áherslu á að þess verði
vandlega gætt að ekki verði lagt
meira fé í virkjanaundirbúning á
þessu ári en brýn þörf er á til að
tryggja afhendingu orku árið 1994.
Ráðuneytið telur nauðsynlegt að
meta stöðu málsins að nýju í septem-
ber og óskar eftir því að Landsvirkj-
un geri þá nánari grein fyrir fram-
vindu verksins."
ÍDAGkl. 12.00
Dráttarbáturinn Orion II á leið til íslands.
Skipið eyddi meiri olíu
en okkur hafði verið sagt
- segir skipstjórinn á Orion II
„ÞAÐ var svolítil hreyfíng svo að það tók um fjóra tíma að koma olíu
á skipið. En þetta gekk ágætlega og við reiknum með að koma til lands-
ins aðfaranótt föstudagsins," segir Sigurður Guðmundsson skipstjóri á
dráttarbátnum Orion II sem er á Ieið frá Bandaríkjunum með tvo 60
metra flutningapramma í togi.
JÓN Sigurðsson iðnaðarráðherra segir að hann muni ákveða í byijun
september hvort frekari lántökur verði heimilaðar til undirbúnings
virkjana vegna nýs álvers. Páll Pétursson formaður þingflokks fram-
sóknarflokksins, sem sæti á í stjórn Landsvirkjunar, segir þetta mál
ríkisstjórnarinnar allrar, iðnaðarráðherra einn hafi ekki um það ákvörð-
unarvald.
Orion II er eign Köfunarstöðvar-
innar hf. Olíuskipið Kyndill fór á
móts við skipið um helgina og bætti
á geyma þess á mánudag. Sigurður
Guðmundsson segir að þurft hafi að
tengja Orion aftan í Kyndil til að
koma olíunni um borð en allt hafi
það gengið að óskum.
VEÐUR
„Skipið eyddi mun meiri olíu en
okkar var sagt,“ segir Sigurður.
„Við víssum þó af því strax úti fyrir
Nýfundnalandi að lítið yrði af olíu.
Þetta er auðvitað þungur dráttur sem
skipið hefur og eflaust er það svona
frekt á eldsneyti vegna þess.“
Jón SigurðsSon segir að hann
tnuni kynna framvindu málsins í
ríkisstjórninni. Ef líkur séu til þess
í haust að samningar náist um nýtt
álver veiti hann stjórn Landsvírkjun-
ar heimild til að halda undirbúnings-
framkvæmdum áfram. Nægjanlegt
sé að málið komi á sitt borð í haust.
I bréfí sem ráðherra sendi stjórn
Landsvirkjunar fyrir viku segir að
ráðuneytið telji þann árangur hafa
náðst í viðræðum um nýtt álver að
eðlilegt sé að hefja þegar þann undir-
búning sem Landsvirkjun telur nauð-
synlegan á þessu ári til að unnt sé
að afhenda nýju álveri orku 1994.
Stjórn Landsvirkjunar telur að
undirbúningsaðgerðir á árinu muni
kosta 300 milljónir. Unnið var fyrir
46 milljónir áður en Alþingi sam-
þykkti að veita til þeirra fé. Ríkis-
stjórnin ákvað nýlega að heimila 100
milljóna lán vegna vegagerðar á
Fljótsdalsheiði í þessum og næsta
mánuði. Iðnaðarráðherra segir að
hann skoði málið aftur í ágústlok en
líklegt sé að Landsvirkjun vinni að
undirbúningi álvers í ár samkvæmt
þeirri áætlun sem fyrir liggi.
Bréf iðnaðarráðherra
Hér fer á eftir bréf iðnaðarráð-
herra til stjórnar Landsvirkjunar frá
17. þessa mánaðar.
„Á fundi ríkisstjórnarinnar 12.
þ.m. gerði ég grein fyrir stöðu við-
ræðna um nýtt álver og undirbúningi
virkjanaframkvæmda. Þá gerði ég
grein fyrir umfjöllun stjórnar Lands-
virkjunar um málið 5. þ.m. og grein-
argerð Landsvirkjunar, dags. 3. þ.m.,
um stöðu virkjanaundirbúnings
vegna nýrrar stóriðju, og þar með-
fylgjandi verkáætlun. Ráðuneytið