Morgunblaðið - 26.07.1990, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JULI 1990
7
Steingrímur sýnir í Eden
70. sýning hans
STEINGRÍMUR St. Th. Sigurðs-
son listmálari opnar í kvöld
klukkan 21 sína 70. málverkasýn-
ingu, í Eden í Hveragerði. Sýnd-
ar verða 47 myndir, sem ýmist
eru olíu-, akrýl-, vatnslita-, eða
pastelverk. Að sögn Steingríms
er bæði um fantasiur og verk
með ákveðin mótív að ræða. Sýn-
ingin stendur til 6. ágúst næst-
komandi.
„Þetta eru nær allt nýjar mynd-
TR 90 ára:
2.000 maima
skákmót
í október
TAFLFÉLAG Reykjavíkur mun
í haust halda upp á 90 ára af-
mæli sitt, en félagið var stofnað
þann 6. október árið 1900. Margt
hefúr breyst frá því Pétur Zoph-
oníasson, Einar Benediktsson og
fleiri stofnuðu félagið á alda-
mótaárinu. Níutíu árum seinna
rekur Tallfélag Reykjavíkur
mikið félagsstarf og má þar sér-
staklega nefiia mjög öflugt
barna- og unglingastarf. í nóv-
ember síðastliðnum tók félagið í
notkun nýtt og glæsilegt félags-
heimili að Faxafeni 12.
Taflfélag Reykjavíkur hefur inn-
an sinna raða 6 stórmeistara, 5
alþjóðlega meistara og íjölda Fide-
meistara, auk margra annarra
skákmanna. Unglingar úr félaginu
hafa á síðustu fjórtán árum skilað
þremur heimsmeistaratitlum í yngri
flokkum. Keppnissveit TR er ein sú
sterkasta í heiminum og keppir nú
í haust í fjögurra liða úrslitum í
Evrópukeppni félagsliða við lið
þýska félagsins Solingen, en það
félag hefur Short, Spassky, Húbner
og.Kavalek innanborðs. Viðureignin
mun fara fram hér á landi í septem-
ber.
í tilefni afmælis síns mun Taflfé-
lagið halda mikla hátíð helgina 6.-7.
október. Laugardaginn 6. október
mun fara fram mót sem stefnt er
að því að verði hið íjölmennasta sem
haldið hefur verið hér á landi. Stefnt
er að því að fá allt að 2.000 skák-
menn til keppni. Munu þar annars
vegar skólaböm tefla saman og
hins vegar verður almennt hrað-
skákmót. Sunnudaginn 7. október
verður haldin ráðstefna þar sem
rædd verður staða skákarinnar í
dag.
Taflfélag Reykjavíkur hefur ráð-
ið til sín framkvæmdastjóra til þess
að standa að kynningu, undirbún-
ingi og framkvæmd afmælishá-
tíðarinnar. Hefur Einar Trausti
Óskarsson verið ráðinn til þessa
starfs, en hann er stjórnarformaður
í Taflfélagi Reykjavíkur.
(Fréttatilkynning)
ir, og ætti sýningin að bera vitni
um þá stórkostlegu vinnuaðstöðu
sem mér hefur hlotnast,“ sagði
listamaðurinn í samtali við Morgun-
blaðið og skírskotaði til vinnustofu
sinnar við Hallveigarstíg sem hann
kallar Galerie Roð-í-gúl. „Nú er ég
kominn í vígstöðu í hjarta
Reykjavíkur, og hér vantar mig
ekki innblástur, svo ég geri jafnvel
á tíðum tvo daga úr einum.“
Steingrímur segir efni tengd sjón-
um algengustu mótív sín, og bera
nöfn ýmissa verka á sýningaskránni
því glöggt vitni.
„Ég hef bundist Eden sérstökum
böndum í gegnum tíðina," segir
Steingrímur aðspurður um sýning-
arstaðinn. „Ég var á sínum tíma
fyrstur til að sýna þar, og finn þar
fyrir tengslum við þjóðarsálina sem
eru mér afar mikilvæg. Þessi tengsl
hefur mig stundum vantað þegar
ég hef sýnt í nafnkunnari galler-
íum.“
Eins og fyrr segir er þetta 70.
sýning Steingríms heima og erlend-
is, en hann hefur sýnt í Svíþjóð,
Kaupmannahöfn, Lundúnum og í
Lúxembúrg, auk íslands. Sína
fyrstu sýningu hélt hann í Boga-
salnum í desember árið 1966. Sýn-
ingin í Eden er tileinkuð fyrsta afa-
barni Steingríms sem er á leið í
heiminn, heimkomu einkasystur
hans og 65 ára afmæli hans sjálfs
í apríl síðastliðnum. Öll verkin á
sýningunni utan eitt eru til sölu.
Morgunblaðið/Þorkell
Steingrímur St. Th. Sigurðsson með mynd sína Við sjávarsíðuna
■ HLJOMS VEITIN Sálin lmns
Jóns míns leggur upp í langferð,
og að þessu sinni til Vestfjarða.
Þar verður komið við á tveimur
stöðum, Patreksfirði á föstudags-
kvöldi og Bolungarvík á laugar-
dagskvöldi. Þetta er í fyrsta skipti
í sögu sveitarinnar sem leikið er á
báðum þessum stöðum og eru þetta
jafnframt einu hljómleikar þeirra
vestra á þessu sumri. Hljómsveitin
sendi á dögunum frá sér tvö ný lög
á safnplötu, lögin Ég erá kafi og
Ekki og þess má geta að nýverið
er lokið gerð myndbanda við bæði
þessi lög. Skipan sveitarinnar er
óbreytt frá því sem áður var, en
um helgina mun bætast við hópinn
nýr söngvari sem undanfarnar vik-
ur hefur æft stíft með Sálar mönn-
um. Um næstu helgi, verslunar-
mannahelgina, mun Sálin hans
Jóns míns leika á Rokkhátíðinni
í Húnaveri ásamt Stuðmönnum,
Ný dönsk, Síðan skein sól og
íjölda annarra hljómsveita.
MUNAR ÞIG UM 340.000.- krónur?
Brimborg hf. hefur náð samningum viðVOLVO um að sérsmíða þessa glæsilegu og ríkulega
útbúnu lúxusbifreið fyrir íslenskan markað. Við köllum bifreiðina VOLVO 740 GLTi þar sem hún
er byggð áVOLVO 740 GLi og síðan útbúin öllum þeim aukabúnaði sem prýðir VOLVO 740 GLT.
Einnig er í bifreiðinni búnaður sem pantaður er sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður.Aukabúnaður
er m.a.:
mmm Sjálfskipting
mmm Læsivarið "ABS" hemlakerfi
wmm Læst drif (auðveldar vetrarakstur)
mm Álfelgur
mm VOLVO hljómflutningstæki með fjórum hátölurum
mm Pluss innrétting
m Upphituð sæti
7 Samlæsing á hurðum
Rafdrifnar rúður og speglar
Þessi búnaður gerir bifreiðina bæði öruggari og margfalt þægilegri í akstri við hvers konar
aðstæður. Það sem kemur hvað mest á óvart, viðjafn vel útbúna bifreið og hér um ræðir, er tvímæla-
laust mjög hagstætt verð: kr. 2.069.000 stgr. á götuna.
Þetta frábæra verð fékkst aðeins á takmarkað magn og með því að panta allan aukabúnaðinn
í einu lagi. Sem dæmi má nefna að þetta verð er 340.000 krónum hagstæðara en verð áVOLVO
740 GLi sem keyptur yrði með sama aukabúnaði samkvæmt verðlista. Við hvetjum einnig til
verðsamanburðar við aðrar bifreiðar með sambærilegum búnaði.
Kynnið ykkur glæsilega bifreið á einstöku verði.
VOLVO Brimborg hf.
- tíifreib sem þú getur treyst! Faxafeni 8, Simi 685870