Morgunblaðið - 26.07.1990, Blaðsíða 9
9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1990
Samtðk gegn nauðungarskðttun
Sími 641886 - opinn frá kl. 10-13 fyrir þá
sem vilja styðja samtökin. Fjárstuðningur
vel þeginn á tékkareikning 3000 hjá íslands-
banka.
Undirbúningsnefnd.
TOYOTA
NOTAÐIR BÍLAR
Athugasemd!
Bílar með staðgreiðsluverði
eru einnig fáanlegir með lánakjörum skv. lánatöflu Toyota bílasölunnar.
FORD BRONCO '86
Blár. 5 gíra. 3 dyra. Ekinn 90 þús/km.
Verð1350 þús.
SUBARU 4x4 STW ’86
Blár. 5 gíra. 5 dyra. Ekinn 110 þús/km.
Verð 590 þús. staðgr.
CHEVROLET BLAZER '85
Blár. 5 gíra. 3 dyra. Ekinn 100 þús/km.
Verð 950 þús. staðgr.
SAAB 99 GL ’82
Blár. 5 gíra. 3 dyra. Ekinn 95 þús/km.
Verð 265 þús. staðgr.
TOYOTA COROLLA LB. ’87
Rauður. Sjálfsk. 5 dyra. Ekinn 45
þús/km. Verð 670 þús.
MMC LANCER GL '86
Grár. 5 gíra. 4 dyra. Ekinn 57 þús/km.
Verð 490 þús. staðgr.
TOYOTA
NÝBYLAVEGI 6-8, KOPAVOGI
ödMÉmí?
Á Ólafur Rggnar ai segjo af sér?|
Rikisoaldid lagöi knlrungt mal á fynrvarann i l. fjrcin BHMR-samnin^sins^^^^^g^^
Hver er sökudólgurinn?
í stjómarflokkunum fer nú fram leit að því, hver beri ábyrgðina á
samningsgerðinni gagnvart Bandalagi háskólamenntaðara ríkis-
starfsmanna í maí 1989. Þá er einnig rannsóknarefni, hvers vegna
ráðherrar gripu ekki fyrr til úrræða, sem þeir töldu duga til að koma
í veg fyrir þá niðurstöðu, sem nú liggur fyrir og fjármálaráðherra
segir, að hafi sett „vítisvél óðaverðbólgunnar" í gang á nýjan leik.
í Staksteinum í dag er litið á það, sem kemur fram í stuðningsblöð-
um ríkisstjómarinnar um þetta mál.
Höfuð í veði
I sjónvarpsv><itali á
þriðjudagskvöldið viður-
kenndi Halldór Ásgríms-
son, starfandi forsætis-
ráðherra, að ríkisstjórnin
hefði gert mistök í sam-
skiptum sinum við
BHMR, hún væri nú að
súpa seyðið af þvi. Ingólf-
ur Margeirsson, ritstjóri
Alþýðublaðsins, ritar
grein í blað sitt í gær, sem
ber yfirskriftina: Á Ólafúr
Ragnar að segja af sér?
Þar segir meðal annars:
„í kjölfar dóms Félags-
dóms, er eðlilegt að menn
spyiji: Á fjármálaráð-
herra að segja af sér? Á
jafhvel ríkisstjómin öll að
segja af sér? Hvemig sem
þessum spumingum er
svarað, er ljóst að (jár-
málaráðherra og sér-
fræðingar ríkisvaldsins
gerðu alvarleg mistök í
samningagerðinni við
BHMR, sérstaklega með
tilliti til fyrirvarans í 1.
grein samningsins sem
tryggja átti að efhahags-
legt jafinvægi héldist á
vinnumarkaðnum. Og
þar á forsætisráðherra
einnig hlut að máli.“
Þá segir í grein rit-
stjóm Alþýðublaðsins:
„Hver ber ábyrgðina á
samningnum við BHMR?
Formlega er það fjár-
málaráðuneytið sem sem-
ur við starfsmenn ríkisins
og þ.á m. BHMR og það
er fjármálaráðuneytið
sem undirritar samninga
fynr hönd ríkisins.
I öðrum löndum væri
mikill og voldugur kór
upprisinn sem heimtaði
höfúð fjármálaráðherra á
fati.
Samkvæmt heimildum
Alþýðublaðsins var Qár-
málaráðherra ekki einn
um samningagerðina við
BHMR. Það sem gerðist
í raun, var að samninga-
nefnd ríkisins var stjakað
til hliðar i lok samninga-
lotunnar, þvi næst hafði
fjámiálaráðlierra verið
stjakað til hliðar og for-
sætdsráðherra ferið í mál-
ið sjálfúr.
Það eru þvi fleiri ráð-
herrahöfúð í veði en fjár-
málaráðherrans."
í þessari lýsingu fer
ekkert á milli mála. Rit-
stjóri Alþýðublaðsins er
síður en svo að segja nein
leyndarmál, þegar hann
minnist á hlut forsætis-
ráðherra. Þáttur hans
var á allra vitorði, þegar
samið var við BHMR og
gangi samningaviðræðn-
anna er nákvæmlega lýst
í niðurstöðum Félags-
dóms, sem birtust hér í
blaðinu i heild á þriðju-
dag. Þar kemur raunar
fram, að sérstök ráð-
herranefnd hafí staðið að
samningunurn við BHMR,
en í henni sátu auk for-
sætisráðherra þeir Svav-
ar Gestsson menntamála-
ráðherra og Jón Sigurðs-
son iðnaðarráðherra.
Gleymum
sökudólgum
Grein ritstjóra Alþýðu-
blaðsins snýst þannig um
leitina að sökudólgunum.
I forystugrein sama blaðs
í gær kveður hins vegar
við annan tón og þar
ræður umhyggjan fyrir
framhaldi á stjómarsam-
starfinu líklega ferðinni.
Þar segin „Ríkisstjórn-
inni, og einkum fjármála-
ráðherra, varð á ein
skyssæ Glufan sem skilin
var eftir í samningnum
við BHMR. Stjómvöld
em nú að súpa seyðið af
þeirri vitleysu; yfir höfð-
um landsmanna sveimar
nú verðbólgudrekiim á
nýjan leik og í landslagi
kjaramála djarfar aftur
fyrir víxlverkunaráhrif-
um. Mikilvægast fyrir
land og þjóð er þvi ekki
eltingarleikur við
pólitiska sökudólga, held-
ur aðgerðir sem tryggja
áframhaldandi stöðug-
leika og lága verðbólgu:
mestu kjarabótina."
Þegar þetta er lesið
vaknar sú spuming,
hvort Alþýðublaðið vilji
ekki horfast í augu við
þá staðreynd, að rikis-
stjómin, sem skildi eftir
„glufuna", er helsti skað-
valdurinn, undirrót ótt-
ans við verðbólguna. Það
er því nauðsynlegt að
finna hina pólitisku söku-
dólga til þess að tryggja
áfram stöðugleika.
í Þjóðviljanum í gær
er haft eftir Einari Oddi
Kristjánssyni, formanni
Vinnuveitendasambands
íslands, um „glufuna", að
hann hafi aldrei trúað á
fyrstu greinina í samn-
ingi BHMR og ríkisins,
en hann segist samt „liafa
haft ástæðu til að ætla
að samningurinn kæmi
ekki tfl framkvæmda.
Hann vill ekki fara nánar
út í þær ástæður," segir
i Þjóðviljanum. Hvað er
verið að gefe hér til
kynna? Að ráðherrar hafi
sagt formanni vinnuveit-
endasambandsins, að þeir
ætluðu að rifta samningn-
um við BHMR til að loka
„glufúnni"? Hvers vegna
var það ekki gert?
Glókollur og
Tíminn
Á forsíðu Þjóðviljans í
gær er gefið til kynna að
lagasetning kunni að
vera yfirvofandi og með
henni ætli ríkisstjómin
að veijast samningnum,
sem hún gerði við BHMR.
Segir Ólafúr Ragnar að
koma þurfi í veg fyrir „að
stöðugleikinn í efiiahags-
málum breytist í suður-
ameríska verðbólgu." Er
þetta nýjasta einkunnin
sem hann gefúr samningi
þeim sem hann sjálfúr
gerði og lét ná fram að
ganga. Er honum treyst-
andi fyrir skynsamlegri
aðgerðum nú? Hver er
þeirrar skoðunar?
Af ritstjómargrein i
Timanum má ráða, að
Ólafúr Ragnar eigi ekki
upp á pallborðið þar á
bæ. Hann er ekki nefiidur
á nafii Igá Garra, sem er
dulnefni ritstjóra Tímans,
heldur er hami uppnefiid-
ur Glókollur og talað um
að hann svíki loforð.
Greininni lýkur með þess-
um orðum: „Nú reynir á
Glókoll. Getur hann sann-
tært sína menn um að
betra sé að bíða með að
vera yfir aðra haftiir
þangað til sjóferðinni er
lokið? Eða gerir það ein-
hver annar? Á meðan við
bíðum flýtur þjóðarskút-
an stjómlaus milli rauð-
merktra hættusvæða?"
Hefúr Tíminn einnig
misst trúna á Steingrím?
Þú gelur eígnast
3,5 milljónir
ef þú leggur 7.000 krónur fyrir mónudarlega í 20 ór*
Nú getur þú lagt reglulega til hliðar ákveðna upphæð til kaupa á Eininga-
bréfum og safnað þannig smám saman þínum eigin varasjóði.
• UPPHÆÐINNBORGUNAR
RÆÐUR ÞÚ SJÁLF(UR),
• SJÓÐURINN ER ÆTÍÐ ÓSKIPT
EIGN ÞÍN EÐA AFKOMENDA
ÞINNA.
• HÆGT ER AÐ GREIÐA MEÐ
GREIÐSLUKORTl EÐA GÍRÓ-
SEÐLI.
• YFIRLIT YFIR HEILDARINN-
EIGN SENT ÁRSFJÓRÐUNGS-
LEGA.
Allar nánari upplýsingar gefa ráðgjafar
okkar í síma 689080.
*M.v. 7% vexti umfram verðbólgu næstu 20 árin.
Sölugengi verðbréfa 26. júlí ’90:
EININGABRÉF 1........................5.006
EININGABRÉF 2........................2.727
EININGABRÉF 3........................3.294
SKAMMTÍMABRÉF........................1.692
KAUPÞING HF
Löggilt verdbréfafyrirtœki,
Kringlunni 5, 103 Reykjavík,
sími 91-689080