Morgunblaðið - 26.07.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JULI 1990
19
Ríkissljórnin segir upp kjarasamningnum við BHMR:
Samningurinn gildir þar
til nýr hefiir verið gerður
- segir Páll Halldórsson, formaður BHMR
PÁLL Halldórsson, formaður Bandalags háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna, sagði eftir að ráðherrar ríkisstjórnarinnar höfðu til-
kynnt samtökunum að þau hygðust segja kjarasamningi aðila upp
frá 30. september í haust með mánaðarfyrirvara að ríkisstjórnin
hefði að sjálfsögðu heimild til þess, en það væri mjög óvenjulegt að
vinnuveitandi sæi sér hag i því að segja samningi upp.
„Ríkisstjórnin mun að líkindum
fylgja þessari uppsögn eftir með
kröfugerð og viðræður munu þá
væntanlega hefjast. Við munum að
sjálfsögðu ekki gera lakari samning
en við höfum og þangað til nýr
samningur hefur verið gerður er
þessi í gildi,“ sagði Páll.
Hann sagði að það ætti að fara
eftir samningnum þar til nýr hefði
verið gerður hvað varðaði öll
ákvæði hans, launahækkanir, kjar-
asamanburð, endurskoðun og ann-
að. Aðspurður sagði hann að upp-
sagnarákvæðin væru sett inn til
þess að mögulegt væri að taka
samninginn upp, ef menn teldu
ástæðu til þess. Að sjálfsögðu bæri
að greiða laun samkvæmt honum,
auk þess sem það væri heilmikið
verk eftir samkvæmt þessum samn-
ingi.
Formaður BHMR og formaður
Félags íslenskra náttúrufræðinga
voru boðaðir á fund fjármálaráð-
herra í gærmorgun fyrir ríkisstjórn-
arfundinn þar sem ákveðið var að
segja upp samningnum. Páll sagði
að fjármálaráðherra hefði í fyrsta
lagi spurt hvort samtökin væru til-
búin til að fresta því að 4,5% hækk-
unin kæmi til framkvæmda, en því
hefði verið hafnað, enda málarekst-
urinn fyrir Félagsdómi meðal ann-
ars snúist um að sú launahækkun
fengist viðurkennd. I öðru Iagi
hefði fjármálaráðherra spurt hvort
mögulegt væri að taka 15. grein
kjarasamningsins úr sambandi, en
hún er um að hækkanir komi til
BHMR-félaga í sama mæli og
launahækkanir á almennum mark-
aði. Því hefði verið svarað að aðild-
arfélögin og samninganefndir
þeirra gætu einar tekið afstöðu í
þeim efnum, en ekki væru sjáanleg
nein rök til þess. í þriðja lagi hefði
fjármálaráðherra rætt möguleika á
að endurskoða túlkun 1. greinar
samningsins sem er um að launa-
breytingar beri að framkvæma með
þeim hætti að það hafí áhrif á laun-
akerfið í iandinu. Því hefði verið
vísað á bug enda hefði Félagsdómur
túlkað greinina eftir orðanna hljóð-
an og ekkert vit í að breyta þeirri
túlkun. Ef hún hefði átt að segja
eitthvað annað hefði hún verið orð-
uð öðruvísi í upphafi.
Aðspurður um möguleikann á að
bráðabirgðalög verði sett á kjara-
samning BHMR, sagði Páll:
„Bráðabirgðalög er stjórnunarað-
ferð sem hefur verið beitt hér um
alllangt skeið til þess að grafa und-
an samningsrétti í landinu. Almennt
séð erum við mjög á móti bráða-
birgðalögum. Þessl bráðabirgðalög
væru hins vegar dálítið sérstök að
því leyti að þarna væri ríkisstjórnin
að setja bráðabirgðalög á eigin
gerðir til þess að sleppa undan því
að standa við það sem hún hefur
sjálf undirgengist," sagði Páll.
Hann sagði að ef bráðabirgðalög
yrðu sett þá ætti ríkisstjórnin að
segja af sér ef hún hefði einhveija
sjálfsvirðingu. „Ef viðsemjandi okk-
ar hefði haft einhveijar þungar
áhyggjur af þessu máli í framhaldi
af ASI-samningnum þá hefði hann-
sjálfsagt haft samband við okkur.
Hann gerði það ekki. Það var ekk-
ert við okkur rætt fyrr en 12. júní,
þannig að við hlutum auðvitað að
líta þannig á að ekkert hefði
breyst.“
Aðspurður hvort BHMR hefði
ekki verið gerð grein fyrir því meg-
ininntaki samninganna frá því í
vetur að ná verðbólgu og vöxtum
niður og það væri ávinningur sem
kæmi öllum þjóðfélagsþegnum til
góða, BHMR-félögum jafnt sem
öðrum, sagði Páll, að forsvarsmenn
BHMR hefðu að fýrra bragði haft
samband við forsv.arsmenn ASÍ
þegar samningsgerðin stóð yfir
vegna fregna í fjölmiðlum um að
það væri verið að semja um að taka
BHMR-samningana úr sambandi.
Forsvarsmenn ASI hefðu neitað
því. Það hefði og verið gerð grein
fyrir þessari stefnumörkun. „Það
Morgunblaðið/Einar Falur
Birgir Björn Sigurjónsson, hagfræðingur BHMR, Auður Antonsdótt-
ir, formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga og Páll Halldórsson,
formaður BHMR, ganga á fúnd fjármálaráðherra í gærmorgun.
var gerð grein fyrir því og þeir
hefðu alveg eins getað verið að lesa
20 ára gamlan Skírni. Það er búið
að vera að semja um þetta áratug-
um saman, það eru engin tíðindi.
Það er þjóðarsátt á hveiju ári, var
í fyrra líka og verður sjálfsagt á
næsta ári.“
Hann sagði að það væri almenn-
ur samningsréttur við lýði í landinu
og samningar ákveðinna aðila
hversu stórir sem þeir væru tak-
mörkuðu ekki þann rétt og enn síð-
ur gætu slíkir samningar takmark-
að eldri samninga sem þegar hefðu
verið gerðir.
Enginn annar kostur en
að segja samningnum upp
- segir Steingrímur Hermannsson
STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra segir að ríkisstjórn-
in hafí ekki átt annars úrkosta en segja upp kjarasamningnum við
Bandalag háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna, þar sem framkvæmd
hans, á grundvelli félagsdóms, hefði þýtt e&iahagslega kollsteypu.
Steingrímur sagði að ríkisstjórn-
in hefði á fundi sínum í gærmorg-
un, ítrekað nauðsyn þess að tryggja
þau efnahagslegu markmið sem rík-
isstjórnin, aðilar almenna vinnu-
markaðarins og BSRB hefðu sett.
Ljóst væri að framkvæmd á kjara-
samningi BHMR á grundvelli niður-
stöðu Félagsdóms, þýddi aðra koll-
steypu og verðbólgu upp í 30 af
hundraði um áramótin. Ríkisstjórn-
in sæi því ekki annan kost en segja
þeim samningi upp, og myndi gera
það. Samningurinn er uppsegjan-
legur eftir 30. september með mán-
aðarfyrirvara.
Ríkisstjórnin lýsti því jafnframt
yfir að hún muni tryggja, að höfðu
samráði við samtök launafólks, at-
vinnurekenda og bænda, að gripið
verði til hverra þerira aðgerða, sem
nauðsynlegar væru, til að tryggja
efnahagslegan grundvöll samning-
anna. Steingrímur sagði að best
væri ef slíkt tækist án bráðabirgða-
laga, en hann sagðist alls ekki úti-
loka þau í þessari stöðu.
Formenn stjómarflokkanna
ræddu í gær við forustumenn
BHMR, ASI, BSRB, Verkamanna-
sambandsins, VSÍ og VMSS. Stein-
grímur sagði að þeim hefði öllum
verði gerð grein fyrir því sem væri
að gerast, og spurningin væri um
hvaða leið yrði farin að því marki,
sem almennir kjarasamningar
hefðu sett, eftir það sem gerst
hefði. „Ég held að það sé mikill
vilji hjá þeim öllum, nema ef vera
kynni BHMR, að ná þessum al-
mennu efnahags-, launa- og kaup-
máttarmarkmiðum," sagði Stein-
grímur.
Forsætisráðherra hefur sagt að
hann teldi dóm Félagsdóms vera
byggðan á misskilningi. Þegar hann
var spurður nánar um þetta, sagð-
ist hann vera ósammála þeirri skoð-
un dómsins að aðstæður hefðu ekki
breyst, frá því samningurinn við
BHMR var gerður. Þá hefðu ASÍ
og VSÍ ekki verið búin að • gera
samning, og enginn fyrirvari legið
fyrir frá hinum almenna vinnu-
markaði. „Það er vitanlega sú stóra
breyting sem verður," sagði Stein-
grímur Hermannsson.
Morgunblaðið/Sverrir
Björn Arnórsson, hagfræðingur BSRB, Ragnhildur Guðmundsdóttir, varaformaður samtakanna, Ögmund-
ur Jónasson, formaður, Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson, Ijármála-
ráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og Júlíus Sólnes, umhverfisráðherra, á fúndi
skömmu eftir að ríkisstjórnin tók þá ákvörðun að segja kjarasamningi BHMR upp.
• •
Ogmundur Jónasson, formaður BSRB:
Sjáum til þess að launamumir
BHMR og BSRB aukist ekki
Getum núna boðið upp á
nokkur velmeðfarín hjólhýsi
á hagstæðu verði.
„VIÐ ítrekuðum það sjónarmið sem við höfum alltaf haldið fram að
það eigi að standa við gerða samninga. Við ræddum um það með
hvaða móti yrði staðið við samning BSRB og ríkisvaldsins," sagði
Ögmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja, í samtali við Morgunblaðið eftir fund forsvarsmanna BSRB
með ráðherrum ríkisstjórnarinnar í gærdag.
Ögmundur sagði að það væri
ekki ásættanlegt fyrir BSRB að
launamunur ríkisstarfsmanna ykist.
Aðspurður hvernig komið yrði í veg
fyrir það í ljósi þess að háskóla-
menn fá 4,5% hækkun 'launa frá
1. júlí um næstu mánaðamót, sagði
Ögmundur: „BHMR og ríkisvaldið
gera sína samninga og við skiptum
okkur í sjálfu sér ekki af þeim
samningum. Við höfum sagt að það
eigi að standa við gerða samninga
og höfum jafnan ítrekað það sjónar-
mið. Ef þú ert ekki sáttur við samn-
inga eða getur ekki lifað með þeim
þá segirðu þeim upp eða ræðir leið-
ir til að komast að annarri niður-
stöðu. Það er það sem átti að gera
að sjálfsögðu miklu fyrr. Það hefur
verið haldið fádæma klaufalega á
þessu máli af hálfu ríkisstjórnarinn-
ar. Það hefði átt að taka upp við-
ræður við BHMR miklu fyrr, en við
munum sjá til þess að launamunur
milli BHMR og BSRB aukist ekki.“
25%
ÚTBORGUN
og eftirstöðvar
á 30 mánuðum
Gísli Jónsson & Co.
Sundaborg 11 Sími 91-686644