Morgunblaðið - 26.07.1990, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JULI 1990
23
ontreal
Konungnr blúsins, B.B. King.
Wynton Marsalis í trompetsólói.
Marsalis. Samleikur þeirra í lokin
bar vitni um einstaka gagnkvæma
tilfinningu, þótt kynslóðabilið sé
bæði auðheyranlegt og um leið við-
brigðin skemmtileg. Hinn aka-
demíski leikur föðursins stakk í stúf
við fínlega abstraksjón sonarins,
sem aftur mátti les í túlkun hins
unga píanóleikara kvartettsins,
Marcus Roberts. Þetta var í fimmta
skipti, sem Wynton Marsalis sótti
hátíðina heim.
Annar meðlimur Marsalis fjöl-
skyldunnar er saxafónleikannn
Branford, sem var mættur með
kraftmikinn kvartett sinn. Kvartett
Branfords samanstendur af tenór,
bassa og trommum. Með þessari
samsetningu er Branford að leita á
svipaðar slóðir og Sonny Rollins,
frumkvöðullinn með þessa hljóð-
færaskipan.
Marsalis-bræðurnir eru án efa
skærustu stjörnur yngri jassleikara
nú á dögum. Þeir eiga rætur sínar
í sveiflu götu- og útfarartónlistar
New Orleans og í vöggugjöf fengu
þeir klassíska fágun frá föðurnum
Ellis.
Ray Charles.
fram eldri gestir, sem eru vitni þess,
að í gegnum tíðina hefur verið leit-
ast við að sýna fram á tengsl jass-
ins við aðra tónlist.
Astor Piazzola, meistari drag-
spilsins (bandonéonins eða „nikk-
unnar með sorgartóninn", eins og
hann orðar það sjálfur), og jafn-
framt nýja tangósins kom fram með
endurnýjaða hljómsveit sína,
áhugaverða, þó svo að leikur pían-
ósins hafi hljómað yfirklassískt.
Athyglisverður var samleikur
tveggja dragspila þar sem Piazzola
virtist vera í hlutverki kennarans
en Julio Osvar Pane í hlutverki
nemandans.
Piazzola lék einnig á jasshátíð
Montreal árin ’84 og ’86. Það má
segja að Piazzola hafi gert tangóinn
að sjálfstæðri tónlist með neó-
klassískum áhrifum, sem hann
kryddar um leið með jassi.
Síðan 1982 hefur hátíðin staðið
fyrir samkeppni innan Kanada í
þeim tilgangi að örva myndun nýrra
jasshljómsveita. Upphaflega var
þessi samkeppni eingöngu haldin
innan Québec, en með tímanum
í ár sem hófst 30. júní, gefa út
smáskífu og koma fram á aukatón-
leikum.
Þess má geta að íslenska hljóm-
sveitin Súld lék hér á hátíðinni árin
1987 og 1988 við góðan orðstír.
Um leið og fjárhagsgrundvöllur
þessarar jasshátíðar var tryggður
með framlögum hinna ýmsu einka-
aðila þá varð hún leikvöllur auglýs-
ingastríðs, sem lesa mátti í tvívídd,
þar sem ægði saman teiknum Al-
can-fyrirtækisins, bjórframleiðand-
anna Labatt, O’Keefe og Molson
svo og hinna ýmsu útvarpsstöðva.
Þótt gagnrýna megi hátíðar-
stjórnenduma fyrir léttmeti það
sem haft var með í floti, þá verður
þeim ekki annað en hrósað fyrir
þá frábæru skipulagningu, sem slíkt
fyrirtæki kostar. Sú athygli, sem
„Le festival international de jazz
de Montréal“ fær í dag er ekki ein-
ungis frá hljómlistarmönnum eða
almenningi, heldur er litið á hana
sem einn af mikilvægustu menning-
arviðburðum ársins í Kanada.
heiðraði með eigin hljómsveit,
Charlie Haden Liberation Music
Orchestra.
Sandra Reeves-Philips var sér-
stakur gestur á síðustu jasshátíð í
Club Soda skemmtistaðnum. Hún
sýndi þar og söng á hveiju kvöldi
skemmtiatriðið „The Late Great
Ladies of Blues and Jazz“, til heið-
urs söngkonunum Ma Rainey,
Bessie Smith, Ethel Waters og
Dinah Washington.
Einn af ógleymanlegum atburð-
um tíu ára afmælis þessarar jass-
hátíðar voru tónleikar Wynton Mar-
salis-kvartettsins, ásamt föður
Wynton, píanóleikaranum Ellis
Chick Corea mætti með sam-
stæðu sína, Akoustic Band, með
ká-i, sem hefur einmitt þá ná-
kvæmu merkingu, að hann er að
yfírgefa þessa rafmagnskenndu
tónlist, sem hefur einkennt hann í
gegnum árin. Þetta kraftmikla tríó
með Dave Weckl á trommunum og
John Patitucci á bassa er eflaust
einkennandi fyrir persónukennda
leit Corea að dýpt, þótt greina
megi áhrif Miroslavs Vitous í út-
setningunni og Keith Jarret í leik
Corea sjálfs.
Um leið og hátíðarstjórnin reyndi
að víkka áheyrendahópinn komu
hefur þessi viðburður, sem nú er
kenndur við Alcan náð miklum vin-
sældum frá Atlantshafi til Kyrra-
hafs. Haldin er forkeppni í stærstu
borgum Kanada og fara úrslitin
síðan fram meðan á hátíðinni stend-
ur í Montréal.
A lokatónleikum hátíðarinnar,
tónleikum Oscars Peterson, lýsti
Gary Burton sem formaður dóm-
nefndar Alcan jass samkeppninnar
hljómsveitina Fifth Avenue vinn-
ingshafa í þessari keppni. Fyrir
utan heiðurinn og peningaverðlaun
hlotnast þessum ungu tónlistar-
mönnum frá Vancouver að koma
fram sem þátttakendur á hátíðinni
Oscar Peterson, sem fæddur er í Montréal, var sér-
staklega heiðraður af borgarsljóranum Jean Doré,
meðan á hátíðinni stóð.
Chick Corea mættur til leiks ásamt samstæðu sinni,
Akoustic Band.
Oliver Jones með sinfóníuhljómsveit
Montréal og í lokin Oscar Peterson
með vinningshafa Alcan-samkeppn-
innar í jass 1989.
Hátíðin var tileinkuð Charlie
Haden, bandaríska bassaleikaran-
um, sem síðastliðin þrjátíu ár hefur
leikið með flestum áhrifamestu
nöfnum jassins. Haden, sem sleit
bernskuskónum í maíshéruðum
Iowa, í fjölskyldu sem söng country-
og western-tónlist í útvarpi, hefur
ævinlega og e.t.v. þess vegna kunn-
að að tengja saman þjóðlagatónlist
og framúrstefnu. Hann hefur m.a.,
leikið í kvartett Ornette Coleman,
þar sem þeir uppgötvuðu saman
fijálsa jassinn.
Charlie Haden kom fram á hverju
kvöldi í viku UQAM-háskólanum
með hinum ýmsu félögum, sem
hann hefur leikið með í gegn um
tíðina, s.s. Joe Henderson og A1
Foster, Don Cherry og Ed Black-
well, Geri Allen og Paul Motian,
Gonzalo Rubalcaba, Pat Metheny
og Billy Higgins, Egberto Gism-
onti, Paul Bley og Paul Motian.
Þessa tónleikaseríu endaði svo sá
HI stofiiar
Alþjóða-
málastofiiun
Alþjóðamálastofiiun Háskóla
íslands var nýlega sett á lag-
girnar. Að undirbúningi að
stoihun hennar stóðu þrjár
deildir Háskólans, lagadeild,
viðskipta- og hagfræðideild og
félagsvísindadeild.
I fréttatilkynningu frá Háskó-
lanum segir: „í Ijósi þeirra öru
breytinga sem nú eiga sér stað í
alþjóðamálum, m.a. er varðar sam-
vinnu Austur- og Vestur-Evrópu,
á ríki sem ísland augljóslega mik-
ið undir því að fylgjast vel með
málum þannig að ætíð sé fyrir
hendi staðgóð þekking á þróun
alþjóðamála á hinum ýmsu svið-
um. Hlutur upplýsinga og þekk-
ingar um almenna þróun milliríkj-
asamskipta verður æ mikilvægari
forsenda fyrir skynsamlegri af-
stöðu og ákvarðanatöku, hvort
sem er leikmanna, stjórnmála-
manna eða stjórnvalda.
Hlutverk hinnar nýju stofnunar
er að vera vettvangur rannsókna
og fræðslu um alþjóðamál. Að því
markmiði verður m.a. unnið með
því að standa fyrir rannsóknum á
sviði alþjóðamála, gagnast fyrir
námskeiðum, ráðstefnum og fyrir-
lestrum um alþjóðamál, gefa út
rit um athyglisverð efni á þeim
vettvangi og hafa samvinnu við
erlendar rannsóknastofnanir á
þessu sviði.
Háskólaráð hefur skipað fimm
menn í stjórn Alþjóðamálastofnun-
ar til næstu þriggja ára. Eru það
Gunnar G. Schram prófessor for-
maður, Gunnar Gunnarsson lektor -
varaformaður, Gunnar Helgi ~
Kristinsson lektor ritari og Guð-
mundur Magnússon prófessor og
Gísli Ágúst Gunnlaugsson lektor.
Hin nýja stofnun hefur í undir-
búningi nokkur rannsóknaverkefni
á framangreindum sviðum. Mun
hún nú í ágúst standa að ráðstefnu
um takmarkanir vígbúnaðar og
traustvekjandi aðgerðir á höfunum
í samvinnu við bandaríska rann-
sóknastofnun. Verður ráðstefna
þessi haldin á Akureyri dagana
15. og 16. ágúst og sækja hana
sérfræðingar og embættismenn
frá hinum ýmnsu ríkjum Atlants-
hafsbandalagsins."
Norræna húsið:
Opið hús
í kvöld
í KVÖLD, fimmtudagskvöld,
verður opið hús í Norræna hús-
inu kl. 20.30, þar sem Ingibjörg
Ilafstað mun flytja fyrirlestur
um konurnar í íslenzku samfé-
lagi. Fyrirlesturinn er á norsku.
Að loknu kaffihléi verður sýnd
kvikmyndin „Eldur á Heimaey"
með norsku tali.
I opnu húsi norræna hússins eru
fluttir fyrirlestrar um land og þjóð
og er þessi dagskrá einkum ætluð
Norðurlandabúum. Fyrirlestrarnir
era því fluttir á einhveiju Norður-
landamálanna.
Næst verður opið hús fimmtu-
daginn 2. ágúst, en þá talar Sig-
urður Blöndal, fyrrverandi skóg-
ræktarstjóri, um íslenzka skóga
og skógrækt á Islandi. Fyrirlestur-
inn verður á norsku. Að loknu
kaffihléi verður sýnd kvikmyndin
„Þijár ásjónur íslands" með
norsku tali.
Aðgangur að opnu húsi er
ókeypis.