Morgunblaðið - 26.07.1990, Side 32
MORGyNBLAÐip FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1990
32
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Góður tími til að sinna áhugamál-
um heima fyrir. Einhveijum gæti
dottið í hug að taka vinnuna með
sér heim. Hjón munu njóta þess
að fara út saman. Gættu þess að
hafa góða stjóm á skapsmunun-
um þegar líða tekur á daginn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert e.t.v. dálítið klaufskur í
vinnunni núna og ættir að reyna
að vera heima við ef þú getur.
Stutt ferðalög og afþreying tak-
ast vel núna.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 7»
Þú munt hafa gaman af að kaupa
inn fyrir heimilið en í kvöld gæt-
irðu orði'ð fyrir óvæntum útgjöld-
um. Heppilegur tími til að fara
út að skemmta sér og sköpunar-
gleðin er í hámarki.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) H§6
Þú færð góðar fréttir fyiir há-
degi. Þú gætir rekist á eitthvað
sérstakt ef þú færir í versianir í
dag. Náinn vandamaður kemur
þér á óvart með framkomu sinni
í kvöld.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þetta er árangut*sríkur dagur fyr-
ir þig og sjálfstraustið hefur sjald-
an verið meira. Áætlun getur tek-
ið brejdingum. Þú átt auðvelt með
að tala máli þínu sem stendur.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Vinir þínir eru hjálplegir og þú
færð e.t.v. kærkomið heimboð.
fjármálin þróast í rétta átt sem
stendur en þú gætir orðið fyrir
óvæntum útgjöldum í kvöld.
(23. sept. - 22. október) 2^2
Eitthvað ánægjulegt gerist í vinn-
unni. Heppilegra að heimsækja
vini en sýsla heima við núna. Þér
gengur afar vel í einhveiju sem
snertir félagslíf.
Sporddreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú gætir fengið afar skemmtilegt
tilboð um ferðalag. Gerðu ráðstaf-
anir í dag sem geta komið að
gagni varðandi starfsframa. Þú
ert óeirinn og það gæti valdið þér
einhveijum vanda í kvöld.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) &
Gríptu gæsina ef möguleikar opn-
ast á að klifra upp metorðastig-
ann. Heppilegt að stunda fé-
lagslífið i kvöld en vinur gæti
reynst óútreiknanlegur.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú átt góð samskipti við náinn
vandamann 1 dag. Þið munuð
gera vænlegar áætlanir saman.
Þú gætir lent í vanda í vinnunni
vegna óþarflega sjálfbyrgings-
legrar framkomu þinnar.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þér gengur best í vinnunni fyrir
hádegi. Þér gefst tækifæri á ein-
hveiju sem veitir þér mikla
ánægju. Kvöldið er heppilegt til
að sinna samskiptum við aðra.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þér gengur alit í haginn í vinn-
unni sem stendur og þetta er
góður tími fyrir ástvini. Það getur
samt verið að eitthvað breyti fyr-
irætlunum þínum síðdegis.
AFMÆUSBARNIÐ hefur sköp-
unargáfú jafnt sem metnað. Það
hefur næga kunnáttu til að nýta
sér listrænar gáfur sínar til fjár-
hagslegs ávinnings og leggur sig
mjög fram til að ná árangri. Það
er oft sér á parti og getur unnið
afrek sem eru langt á undan
samtimanum. Afmælisbamið á
auðveit með að vinna með öðrum
og hefur auk þess hugkvæmni til
að bera. Góðar hugmyndir taka
hug þess allan og það getur tekið
foiystu í menningarefnum.
Stjórnusþána á ai) lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
GRETTIR
SMAFOLK
YE5, MÁAM, I KNOU) WHY
llM IN 5UMMER 5CHOOL...
Já, kennari, ég veit af hverju ég er
í sumarskóla ...
BECAU5E I DIPN T PO
WELl PURINGTHE REGULAR
5EA50N...I MEAN TERM..
Y
L
6-1/
Af því að ég var ekki nógu dugleg
í vetur... ég á við á önninni...
Hvað svo sem...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Á að svína fyrir tígulkónginn
eða fella hann annan fyrir aftan?
Þetta er viðfagnsefni suðurs í 4
spöðum.
Vestur gefur; allir á hættu.
Norður
♦ ÁG109
V 72
♦ 743
♦ K853
Vestur Austur
♦ 2 ♦ 53
VÁKG105 V 9864
♦ K8 ♦ G109
♦ D10942 +ÁGT6
Suður
♦ KD8764
VD3
♦ ÁD652
+ -
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta Pass 2 hjörtu 2 spaðar
4 hjörtu 4 spaðar Pass Pass
Pass
Utspil: hjartaás.
Vestur tekur tvo slagi á hjarta
ög skiptir svo yfir í tromp. Ef
sagnhafi er fljótur að hugsa spil-
ar hann strax laufkóng úr blind-
um! Það er eðlilegt viðbragð að
leggja ásinn á kónginn. Suður
getur þar með dregið þá ályktun
að vestur eigi tígulkónginn, því
ella á hann tæplega opnun.
Austur er í þungri stöðu að
þurfa að dúkka laufkónginn á
augabragði. Vissulega er þetta
undarleg spilamennska, en það
kostar sennilega nokkra um-
hugsun að komast að réttri nið-
urstöðu. Og hér er hik sama og
tap.
t
Umsjón Margeir
Pétursson
Á millisvæðamótinu um daginn
kom þessi staða upp í skák Sovét-
mannanna Mikhail Gurevich
(2.640), sem hafði hvítt og átti
leik, og Mikhail Tal (2.580), fyrr-
um heimsmeistara. Svartur lék
síðast 25. — He8-e7, sem var
þvingað.
26. Bb5! (Með þessum glæsilega
leik vinnur hvítur lið. Ef svartur
leikur nú 26. — Dxb5 þá vinnur
27. Hc8+ - He8, 28. Bc5+,- Tal
tekur því hinn hvíta biskupinn:)
26. - Rf3+, 27. Kg2 - Rxd4,
28. Hc8+ — He8, 29. Bxe8 —
Dd5+, 30. Kh3 - Hxe8, 31.
Hxe8+ — Kxe8,32. Dxg7. Hvítur
hefur nú unnið skiptamun og
nokkrum leikjum sfðar gafst
svartur upp.