Morgunblaðið - 26.07.1990, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1990
37
HEIMSMETHAFI
Vélritar 813 slög
á mínútu
Nicole Buschina hefur fimm sinnum orðið heims-
meistari í hraðritun.
Þeir eru sennilega ófáir skrifstofustjórarnir sem
vildu fá Nicole Buschina í vinnu. Að minnsta kosti ef
þá vantaði góðan hraðritara. Nicole, sem fimm sinn-
um hefur orðið heimsmeistari í hraðvélritun, getur vélritað
813 slög á mínútu samfellt í hálftíma en villur í textanum
má telja á fingrum annarrar handar. Nicole, sem býr í
bænum Rodalben í Vestur-Þýskalandi, hefur æft vélritun
í tuttugu ár undir vökulu auga föður síns, Josefs
Buschina, sem er þjálfari bæjarliðsins í vélritun en liðs-
menn þess hafa verið afar sigursælir á mótum. Hundrað
þtjátíu og átta sinnum hafa þeir borið sigurorð af löndum
sínum í Vestur-Þýskalandi og fnnmtán sinnum orðið alþjóð-
legir vélritunarmeistarar. Ekki alls fyrir löngu vann liðið
tíu titla af fjórtán á heimsmeistaramóti í vélritun í Rem-
agen í Vestur-Þýskalandi. Að sögn Nicole er lítið um að
vera í bænum og því taki fólk því fegins hendi að slást í
lið með vélriturunum sem hafa æfmgaaðstöðu á heimili
Josefs.
Heimsmet Nicole er skráð í heimsmetabók Guinness en
í næstu útgáfu bókarinnar verður einnig mynd af Nicole.
TONLIST
Bobby kveður að sinni
Bobby Harrison hefur búið hér á
landi í fjölda ára og verið áber
andi sem tónlistarmaður og sem
innflytjandi hljómsveita að utan við
annan mann. Sá innflutningur gekk
upp og ofan og snemma á þessu
ári sleit Bobby samstarf við félaga
sinn og flutti sig um set til Bret-
lands þar sem hann hefur leikið
með blúshljómsveit.
Bobby segist þó ekki alfluttur
utan, hann sé að breyta aðeins um
umhverfi. Hann sagðist hafa tapað
miklu fé á að flytja inn hljómsveitir
að utan; það sé áhættusamt að
standa í því hér á landi, enda mark-
aðurinn lítill og ótraustur. Bobby
sagðist þó ekki vera hættur hljóm-
sveitainnflutningi; hann væri nú
með Paul McCartney, Billy Idol og
Metallicu í sigtinu, en framvegis
hyggist hann vinna einn að þessu
og ekki taka neina áhættu. Sam-
starfið við hans fyrri félaga hafi
gengið vel meðan meðvindur var,
en ver þegar á móti blés.
Bobby heldur kveðjutónleika í
Gikknum við hlið Hótel íslands, „ég
fékk til liðs við mig Guðmund Pét-
ursson á gítar og bauð vinum og
kunningjum úr ýmsum sveitum.
Þetta verður einskonar biúspartí."
Metsölublað á hverjum degi!
NÁMSKEIÐ í
„SHAMANISMA"
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Bobby Harrison með dóttur sinni.
Æk VER
beuRMip
VERSLUN í ANDA
NÝRRAR
ALDAR
Laugavegi66,101 Reykjavík, símar: (91 >623336 -626265
Greiðslukortaþjónusta.
David Carson og Nina Sammons, bæði af indíánaættum,
halda tvö námskeið í „Shamanisma" á íslandi,
annað laugardaginn 4. ágúst á SNÆFELLSÁSSMÓTINU,
hitt laugardaginn 11. ágúst í Reykjavík.
David er „shaman", en það er indíánaorð yfir þá
sem vinna að því að efla tengingu við
hinn innri anda og hið dulda í lífinu.
Námskeið Davids verður byggt upp
á tengingu einstaklingsins við upp-
runa sinn, hugleiðsluferðum, innra
jafnvægi, heilunareiginleikum ein-
staklingsins, kynningu á „Medicine
Cards" og nauðsyn á tengingu við
náttúruna.
Þátttakendur þurfa að hafa með sér
teppi, klút til að binda fyrir augun og eitthvað til
David Carson að skrifa á. Þeir, sem vilja, geta éinnig komið með
uppáhaldskristal eða annan hlut, sem þeir nota
við hugleiðslu.
David mun einnig taka í einkatíma og lesa í „Medicine Cards"
spil byggð á heimspeki indíána.
Innritun á bæði námskeiðin og í einkatímana, svo og allar nán-
ari upplýsingar eru veittar í
3ja daga af mælisveisla þriðjudag, miðvikudag og f immtudag
Hard Rock hamborgari... 395,-
Grísasamloka 490,-
BAR.B.Q. kjúklingur 790,-
Eftirlæti rokkarans.....990,-
(Glóðagrilluð lambasneið)
Eftirréttur fylgir öllum mat
Gosdrykkir 50,-
ALLIR VELKOMNIR Á HardRock°PaI
HARD ROCK CAFE
ELSKUM ALLA - Þ JÓNUM ÖLLUM
HARD ROCK CAFE, KRINGLUNNI8-12, SÍMI689888
Stýrishjól úr gamla
Glaumbæ sem brann
1971
Pecan baka í desert
JVl AD H ATTER" bún
ingur Eltons lohn
Heimsreisa 1974