Morgunblaðið - 26.07.1990, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1990
SPJOTKAST / FRIÐARLEIKARNIR I SEATTLE
Einar: 76,26 m
og sjötta sæti
EINAR Vilhjálmsson var tals-
vert frá sínu besta og þurfti
að sætta sig við sjötta sæti í
spjótkastskeppni Friðarleik-
anna, sem lauk um eittleytið í
fyrrinótt að íslenskum tíma.
Keppendur voru sjö. Lengsta
kast Einars mældist 76,26
metrar.
Einar var fyrstur í kaströðinni
og kastaði 73,66 metra í fyrstu
umferð. Viktor Zaitsev frá Sov-
étrkjunum, sem sigraði í spjótkast-
inu, byijaði mjög vel
Skapti — spjótið sveif 80,90
Hallgrímsson metra í fyrstu til-
skrifar frá raun hans 0g ; ann.
arri umferð kom sig-
urkastið — 84,16 m. Hann átti fjög-
ur köst yfir 80 metrum og reyndar
þijú lengstu köstin. Kúbúmaðurinn
Ramon Gonzales var sá eini hinna
sem náði að kasta lengra en 80
metra, 80,84 í þriðju tilraun, og
varð annar. Þriðji varð Masami
Yoshida frá Japan með 77,36 m,
ijórði Sovétmaðurinhn Marik Keleta
með 77,18 m, fimmti Klaus Tafel-
meier frá Vestur-Þýskalandi með
76,66 m og Einar sjötti með 76,26
— sem hann náði í fimmtu umferð.
Sjöundi og síðastur var Bandaríkja-
maðurinn Dave Stephens með 73,28
m.
Kaströð Einars var: 73,66; 72,72;
72,90; 75,38; 76,26; 75,08.
Einar Vilhjálmsson náði sér ekki vel á strik.
„Aldrei sterkarí en
veikasti hlekkurinn“
ffl
Eg er í sjálfu sér ekki óán-
ægður með útkomuna þó
eg sé auðvitað aldrei ánægður með
að tapa fyrir þessum körlum," sagði
Einar Vilhjálmsson
við Morgunblaðið
eftir spjótkast-
skeppnina.
Einar er meiddur
í hné og segist þurfa að losa sig
við skrekkinn sem því fylgir. „Mað-
ur er aldrei sterkari en veikasti
hlekkurinn," sagði hann og vísaði
til hnémeiðslanna.
Skapti
Hatigrímsson
skrífar
frá Seattie
„Ég ætlaði að leggja allt í fyrsta
kastið, en kiknaði þá í hnénu og
líka í öðru kastinu. Þau „klikkuðu".
í fyrstu þremur köstunum ætlaði
ég að hafa útkastsstöðuna þrönga;
koma beinn inn í útkastsstöðuna,
en kom skakkt á hnéð og kiknaði
undan því. Eftir það lenti ég í svo-
litlum vandræðum, stytti atrennuna
um þriðjung, og í lengsta kastinu
var hún eiginlega hálfgert labb.“
„Mér fannst að ég hefði átt að
getað hitt á lengra kast í rauninni
— en það er alveg ljóst að öryggið
í atrennunni er ekki fyrir hendi hjá
mér eins og í fyrra, vegna þess að
ég hef ekki kastað neitt að ráði
undanfarið.“
Tvær vikur eru í næsta mót hjá
Einari, í Malmö í Svíþjóð 7. ágúst.
Síðan keppir hann í Finnlandi'13.
ágúst, í landskeppni íslands, Belgíu
og Englands í London 19., Boras
23. og síðan kemur að Evrópumeist-
aramótinu 27. og 28. ágúst í Split
í Júgóslavíu.
■ NADEZHDA Rjastkina frá
Sovétríkjunum setti heimsmet í
10 kílómetra göngu á tímanum
41.56,21 mín., eftir • spennandi
keppni við fyrrum heimsmethafa
Kerry Saxby frá Ástralíu, á Frið-
arleikunum í fyrrinótt.
■ BANDARÍKJAMENN unnu til
langflestra verðlauna í sundkeppni
Friðarleikanna; alls unnu þeir 20
gullverðlaun, 18 silfurverðlaun og
4 bronsverðlaun. A-Þjóðverjar
unnu 6 gull, 9 silfur og 18 brons.
Sovétmenn unnu 3 gull, 9 silfur
og 8 brons.
■ MATT Biondi, sem vann til
fimm gullverðlauna í Seoul 1988,
bætti tveimur gullverðlaunum í
safnið í fyrrinótt og hefur alls unn-
ið til Ijögurra gullverðlauna á Frið-
arleikunum. Biondi vann í 100 m
skriðsundi á 49,02 sek., sem er
langt frá heimsmeti hans 48,42
sek. Hann á níu bestu tímana frá
upphafi í 100 m skriðsundi og hef-
ur ekki beðið ósigur í greininni síðan
1984.
■ SVMMER Sanders vann sín
þriðju gullverðlaun er hún sigraði
í 200 m flugsundi á 2.09,46, fimm
sekúndum betri tíma en Natalya
Jakovleva, Sovétríkjunum, sem
varð í öðru sæti.
■ MICHAEL Johnson, frá
Bandaríkjunum, sigraði í 200
metra hlaupi á 20,54 sekúndum.
Annar varð Robson da Silva, frá
Brasilú, á 20,77. Dennis Mitchell,
frá Bandaríkjunum, varð þriðji á
20,89.
■ SOVÉSKA íshokkísambandið
hefur sakað bandaríska atvinnu-
mannaliðið Red Wings, frá Detro-
it, um að hafa stolið tvítugum so-
véskum íshokkíleikara, Sergei
Fjodorov. Talsmaður Red Wings
sagði að Sergei hefði komist til
Detroit með aðstoð liðsins og hefði
sótt um atvinnuleyfi til að geta leik-
ið með bandaríska liðinu. „Við krefj-
umst þess að Fjodorov verði skil-
að. Hann ætti að taka þátt í Friðar-
leikunum sem meðlimur sovéska
liðsins," sagði fyrsti varaforseti so-
véska íshokkísambandsins, Júrí
Korolov. „Ég kann ekki við þjófn-
aði.“
■ MANUELA Stellmach vann til
einu gullverðlauna a-þýska kvenna-
landsliðsins í sundi á Friðarleikun-
um er hún sigraði í 200 m skrið-
sundi á tímanum 2.00,38, sem er
besti tími ársins.
H ROBERTO Hernandez frá
Kúbu sigraði í 400 metra hlaupi, á
44,79 sekúndum. Danny Everett
frá Bandarikjunum varð í öðru
sæti á 45,05.
■ JELENA Romanova frá Sov-
étríkjunum sigraði í 5000 metra
hlaupi á 15 mínútum 02,23 sekúnd-
um.
■ DAN OBrien frá Banda-
ríkjunum stendur best að vígi í
tugþrautinni, eftir fyrsta dag, með
4470 stig. Landi hans, Sheldon
Blockburger, er næstur, með 4190
stig.,
■ ÍNESSA Kravets, Sovétríkj-
unum, sigraði í langstökki, sveif
6,93 metra. Landa hennar, Larísa
Beresnaja, varð önnur, með 6,61.
■ BRIAN Diemer, Bandaríkjun-
um,sigraði í 3000 metra hindrunar-
hlaupi, á átta mínútum og 32,24
sekúndum. Sovétmaðurinn Vlad-
imír Koromyslova varð annar, á
8.33,76.
■ JORG Hoffman, A-Þýska-
landi, vann í 1,500 skriðsundi á
15.11,14 sek. Annar varð Sean
Killion, Bandaríkjunum, á
15.13,67. Heimsmetið í þessari
grein, 14.54,76, á Sovétmaðurinn
Vladimir Salknikov, og hefur það
staðið óhreyft frá 1983.
Körfubolti:
Bandaríkjamenn töpuðu
SOVÉSKA körfuknattleiksliðið
gersigraði það bandaríska á
Friðarleikunum í fyrrinótt. í leik,
sem einkenndist af þriggja stiga
körfum, sigruðu austanmenn með
92 stigum gegn 85.
Sovétmenn spiluðu mest upp á
Valerí Tikjonenko, 2,07 metra háan
framheija, sem skoraði 30 stig, þar
af mörg úr langskotum. „Sovét-
menn áttu einstaklega góðan leik.
Tikjonenko var frábær." sagði Mike
Krzyzewski, þjálfari Bandaríkja-
manna. „Strákarnir okkar léku
hreint ekki illa, en þeim gekk illa
að skora.“
FRJALSIÞROTTIR
Gestur f landskeppni getur ekki unnið
meistaratitil sem ekki er einu sinni keppt um
FJÖLMIÐLAR fluttu fregnir af
því um og eftir helgina að
frjálsíþróttakona hefði orðið
Norðurlandameistari ungl-
inga i grindahlaupi. Útvarpið
bætti um betur og sagði að
þetta væri í fyrsta sinn í sex
ársem íslendingar eignuðust
meistara í þessum flokki.
Hvort tveggja er rangt.
Að undanförnu hafa fregnir
borist um frækilega frammi-
stöðu íslenskra íþróttamanna.
Daglega berast fregnir af heims-
metum, meistara-
titlum og verð-
launum í hinum
A ýmsu íþróttagrein-
um. Ber það vott
um þróttmikið
íþróttastarf. Von-
andi er að rétt og
satt sé skýrt frá
því fréttin um
Norðurlanda-
meistaratignina í grindahlaupi er
röng, því miður.
AF
INNLENDUM
VETTVANGI
Ágúst
Ásgeirsson
skrifar
Hið rétta er að íslendingar hafa
í nokkur ár sent nokkra af sínum
fremstu fijálsíþróttaunglingum til
keppni sem gestir í áriegri ungl-
ingalandskeppni Norðmanna,
Svía og Finna. Þar er ekki um
Norðurlandameistaramót að ræða
og því engir meistaratitlar í húfi.
Þátttaka íslendinga í þessu
móti hófst 1979. Þá sendu þeir
sameiginlegt lið ásamt Dönum og
tefldi hvor þjóð fram einum manni
í grein en Norðmenn, Svíar og
Finnar hver tveimur í grein. Sama
fyrirkomulag gilti 1980 og á þess-
um árum unnu Oddur Signrðsson
KA, Vésteinn Hafsteinsson HSK
og Einar Vilhjálmsson UMSB eina
grein hver. Frá 1981 hefur aðeins
verið sent í hluta greinanna en
Dönum gefnar hinar eftir. Þess
vegna stórfækkaði íslenskum
þátttakendum í keppninni og voru
þeir t.a.m. engir 1985. Árið 1984,
en þá sagði útvarpið að við hefð-
um síðast átt sigurvegara í keppn-
inni, tóku sex íslenskir keppendur
þátt, fjórir drengir og tvær stúlk-
ur. Skemmst er frá að segja að
enginn þeirra komst á verðlauna-
pall.
Svo er frá því að segja að áhugi
Dana á þátttöku í unglingaland-
skeppni Norðmanna, Svía og
Finna hefur farið dvínandi og
undanfarið hafa þeir aðeins tekið
þátt í nokkrum greinum. Hefur
því ekki verið um sameiginlegt lið
þeirra og Islendinga að ræða.
Samþykktu keppnisþjóðirnar
þrjár fyrir nokkrum árum að þess-
ar tvær vinaþjóðir gætu eftir sem
áður sent gesti í nokkrar greinar.
Andstaða gegn meistaramóti
Sú almenna venja gildir í
íþróttakeppni að þátttakandi sem
keppir sem gestur hlýtur ekki
meistaratign þótt fyrstur komi að
marki. Á íslandsmeistaramótinu
í fijálsíþróttum hefur sú venja
t.a.m. verið í gildi í nokkur ár og
nokkur dæmi um sigurvegara af
því tagi. í unglingalandskeppni
þriggja Norðurlandaþjóða í frjáls-
um eru hins vegar engir Norður-
landatitlar í boði og hefur aldrei
verið. Sá skilningur er ekki fyrir
hendi hjá hinum norrænú sam-
böndunum og hefur ekki verið.
Á þingi norrænna fijálsíþrótta-
leiðtoga í Stokkhólmi 1988 báru
Norðmenn hins vegar upp tillögu
um að landskeppnin yrði lögð nið-
ur og efnt til Norðurlandameist-
aramóts í staðinn. Fulltrúar ís-
lands studdu þá tillögu en and-
staða var frá Svíum og Finnum.
Málið var að mörgu leyti spenn-
andi eins og það var sett fram
og því ákveðið að kanna það nán-
ar. Málinu hafði þó þokað fremur
lítið á næsta þingi, í Helsinki í
fyrrahaust, þar sem Norðmenn
höfðu ekki lokið þeirri heimavinnu
sem þeim var sett fyrir árið áður.
Er það því enn óafgreitt.
Ábyrgðin hjá FRÍ
Auðvitað er það ánægjuleg
fregn að íslenskur fijálsíþrótta-
unglingur skuli hafa farið með
sigur af hólmi í einni grein ungl-
ingalandskeppninnar. En það
þjónar engum tilgangi að almenn-
ingur sé blekktur með því að segja
að viðkomandi hafi unnið Norður-
landameistaratign. Væntanlega
ber Fijálsíþróttasambandið
ábyrgð á þessum fréttaflutningi.
Allur almenningur og ekki hvað
síst einstaklingar og fyrirtæki
sem styðja við bakið á íþróttunum
eiga það skilið að íþróttaforystan
komi hreint til jdyranna í svona
málum. Hún verður að njóta trún-
aðar og trausts og því dugar ekk-
ert minna en að starfa í apda Ara
fróða og hafa það sem sannara
reynist.
Hvers á Jón Arnar að gjalda?
Og hvers á Jón Arnar Magnús-
son HSK að gjalda. Hann er jú
eini íslenski frjáls-
íþróttaunglingurinn sem unnið
hefur Norðurlandameistaratitil í
frjálsíþróttum í seinni tíð með
sigri í sínum flokki á Norðurlanda-
meistaramóti unglinga í tugþraut
1988. Það var þó Norðurlanda-
meistaramót.