Morgunblaðið - 26.07.1990, Side 43
^ ^___r ■ - • - - - ■ '
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTÚDAGUR 26. JÚLÍ 1990
V
HANDKNATTLEIKUR / FRIÐARLEIKARNIR I SEATTLE
Konráð Olavson gerði glæsileg mörk í seinni hálfieik.
Þorbergi gengur vel.
að stilla „grtarinn“
„Vörnin frábær og sóknin batnar með hverjum
deginum," sagði Guðmundur Hrafnkelsson
„ÞETTA var alveg frábært. Nú náðum við að klára leikinn af
krafti og sigurinn var öruggur. Vörnin var frábær og sóknarleikur-
inn batnar með hverjum deginum," sagði Guðmundur Hrafnkels-
son, að öðrum óiöstuðum besti maður íslenska landsliðsins, við
Morgunblaðið eftir að ísland sigraði Suður-Kóreu mjög örugg-
lega, 26:17, á Friðarleikunum aðfararnótt miðvikudagsins. Island
fékk þvítvö stig í A-riðli, keppir um 5.-8. sætið og ætti, með
sama áframhaldi, að eiga alla möguleika á að ná 5. sætinu.
Guðmundur varði níu skot í
hvorum hálfleik. „Kóreubúar
eru þekktir fyrir að skora mikið af
mörkurn, oft 30 eða jafnvel meira.
Ég kalla það því
mjög gott að þeir
skyldu aðeins gera
17 mörk í leiknum.
Mér fannst hann í
einu orði sagt frábær hjá okkur,“
sagði Guðmundur.
Fyrri hálfieikurinn var jafn, ís-
land þó alltaf á undan að skora,
nema hvað Kórea komst í 2:1. Vörn-
in var góð sem í fyrri leikjum og
eftir þessa leiki hér í Seattle er ljóst
að Einar Þoi-varðarson þarf ekki
að hafa slæma samvisku yfir að
hafa hætt að spila með landsliðinu
— arftakinn Guðmundur hefur stað-
ið sig stórkostlega.
Eftir hlé breikkaði bilið síðan
jafnt og þétt og sigurinn var aldrei
í hættu gegn þessu unga en
skemmtilega suður-kóreska liði.
Hornin nýttust nú í fyrsta skipti
að einhvetju ráði í keppninni. Jakob
og Bjarki léku í fyrri háifleik og
gerðu tvö mörk hvor og Valdimar
og Konráð léku síðan mest allan
seinni hálfleikinn og stóðu sig ein-
staklega vel. Gerðu stórglæsileg
mörk.
Liðið virðist því vel mannað; í
því eru fjórir góðar hornamenn,
tveir snjallir línumenn, skytturnar
Júlíus og Héðinn eiga að vísu nokk-
uð misjafna daga enn, en með
tímanum og meiri reynslu verða
þeir örugglega mjög sterkir næstu
árin. Og allir þekkja Kristján Ara-
son. Þegar hann kemur inn á hægri
vænginn verður ekki hægt að
manna þá stöðu betur. Spurningin
er með leikstjórnandann; Óskar
leikur mest í því hlutverki hér,
Gunnar á mótinu í Hafnarfirði og
þeir eiga báðir eftir að sanna sig
betur. Frammistaða Óskars hefur
þó lofað nokkuð góðu.
Mjög gleðilegt hefur verið að sjá
hve góðum tökum strákarnir hafa
náð á flötu vörninni (6-0) á þeim
skamma tíma síðan Þorbergur og
Einar tóku við liðinu. Ekki er
árennilegt að leika gegn fjórmenn-
ingunum á miðjunni, Héðni, Gunn-
ari, Geir og Júlíusi, og leiðir þessi
góða útkoma hugann að því að
Bogdan viidi aldrei leika 6-0 vörn.
Sagði íslendinga ekki geta það en
strákarnir hafa afsannað það á ^
tæpum tveimur mánuðum.
Eftir fyrsta leik íslands undir
stjórn Þorbergs, gegn Kuwáit í
Hafnarfirði fyrir skömmu, sagði
hann við undirritaðan að liðið væri
eins og vanstilltur gítar, það þyrfti
að finna rétta tóninn. Ekki verður
annað sagt en að þjálfaranum gangi
vel að stilla...
Skapti
Hallgrímsson
skrifarfrá
Seattle
Starfið er að skila sér
- segirÞorbergurAðalsteinsson, þjálfari íslendinga
„ÞAÐ fyrsta sem ég ákvað þeg-
ar ég tók við liðinu var að
breyta varnarleiknum. Við höf-
um lagt aðaláherslu á hann
undanfarið og það starf er að
skila sér hrikalega vel,“ sagði
Þorbergur Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari, eftir sigurinn
á Suður Kóreu.
Lokastadan í
A-riðli:
Júgóslavía 3 3 0 0 6
Spánn 32104
ísland 3 10 2 2
Suður-Kórea 3 0 0 3 0
ísland leikur við Japan i dag,
fimmtudag, og við Tékkósló-
vakíu á morgun.
Markahæstir eftir riðla-
keppnina eru þessir:
Jae-Hwan Kim, Suður-Kóreu 26
AlexanderTútsjkín, Sovétr. ...20
Tsuyoshi Yamamura, Japan...l9
Enric Masip-Borras, Spáni.17
Craig Fitschen, Bandar....17
Igor Butulija, Júgóslavíu.15
Patrik Cavar, Júgóslavíu..12
Martin Setlik, Tékkóslóvakíu .12
Jose Garrido-Villaldea, Spáni 12
Kenji Tamamura, Japan.....11
Toshiyuki Yamamura, Japan .11
Júlíus Jónasson, íslandi.11/3
Konráð Olavson jslandi..9/2
Geir Sveinsson, Islandi...8
ÓskarÁrmannsson, íslandi ..8/2
KNATTSPYRNA
1. deild í kvöld:
Þrír leikir
Þrír leikir verða'í 1. deild karla
í kvöld og hefjast allir kl. 20.
Á Laugardalsvelli leika Fram og
Þór, ÍBV og KR leika í Vestmanna-
eyjum og Stjarnan og FH í
Garðabæ.
Þorbergur kvaðst mjög ánægður
með hve fá mörk liðið hefur
fengið á sig í leikjunum þremur,
18, 20 og síðan 17. „Vörnin hefur
verið góð og markvarslan stórkost-
leg. „Guðmundur virðist fínna sig
vel fyrir aftan 6-0 vörn. Síðan ég
tók við höfum við eytt 60% af tíman-
um í að æfa vörnina, ég gerði mér
það ljóst að í alþjóðlegum handbolta
„Islenska
vömin góð
ogmark-
vörðurinn"
- sagði þjálfari S-Kóreu
Lið mitt er skipað mjög ung-
r m um leikmönnum. Þá skortir
reynslu en þegar þeir fá hana held
að liðið geti orðið sterkt. Við skor-
uðum óvenjulítið af mörkum að
þessu sinni og aðalorsök þess var
auðvitað hve íslenska vörnin var
góð, svo og markvörðurinn,“ sagði
Kap-Kyung Kim, þjálfari Suður-
Kóreu.
Aðspurður um íslenska liðið sagði
þjálfarinn það ekki eins sterkt og
undanfarin ár, „eðlilega þar sem
umtalsverð mannaskipti hafa orðið.
ísland _er svipað að styrkleika og
bæði Jugóslavía og Spánn, sem við
höfum einnig leikið við hér í riðlin-
um; heldur lakari þó í augnablikinu
að mínu mati.“
Jón Hjaltalín Magnússon,
formaður HSÍ
„Þetta var mjög gott hjá strákun-
um. Vörnin hefur verið sérstaklega
góð og ég er sannfærður um að ef
Kristján Arason hefði leikið með
okkur hér, hefðum við einnig unnið
fyrri leikina tvo, síðan Bandaríkin
og leikið til úrslita við Sovétmenn.
Hvað þá ef Alfreð Gíslason hefði
gefið kost á sér og verið með.“
verða lið að geta beitt mismunandi
varnarafbrigðum; 6-0, 5-1 og 3-2.
Að sjálfsögðu er ég leiður að
hafa tapað hinum tveimur leikjun-
um af því að við spiluðum vel, en
ég tel bjart framundan og við ætlum
okkur að vinna bæði Japan og
Tékkóslóvakíu," sagði Þorbergur,
þjálfari liðsins.
ísland - Suður-Kórea
26:17
Friðarleikarnir í Seattle, 3. leikur í A-riðli, þriðjudaginn 24. ji'ílí, 1990.
Gangur leiksins: 1:0, 1:2, 3:2, 4:4, 6:4, 6:5, 7:5, 7:6, 8:6, 8:7, 9:7, 9:8, 9:9, 10:9,
10:10, 11:10, 12:10, 12:11, 16:11, 16:13, 17:13, 17:14, 19:14, 19:15, 22:15, 22:16,
25:16, 25:17, 26:17.
ísland: Óskar Ármannsson 4, Valdimar Grímsson 4, Júlíus Jónasson 4/2, Konráð
Olavson 3, Jakob Sigurðsson 2, Héðinn Gilsson 2, Bjarki Sigurðsson 2, Gunnar Gunn-
arsson 2, Geir Sveinsson 2, Birgir Sigurðsson 1. Guðjón Árnason, Magnús Sigurðsson.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 18 (þar af 4 er knötturinn fór aftur til mót-
heija). Hrafn Margeirsson.
Utan vallar: 6 mínútur.
Suður Kórea: Jae-Hwan Kim 6/4, Chi-Hoy Cho 4, Young-Shi Cho 3, Chae-Hong
Shim 3, Young-Sun Huh 1.
Varin skot: Dong-Hyun Lee 8 skot.
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómaran Bandaríkjamennirnir Peter Buhning (sonur formanns handknattleikssam-
bands Bandaríkjanna) og Bemard Iwasczyszyn.
Áhorfendur: Um 600.
Útivistarparadísin Hvammsvík í Kjós
GOLF - VEIÐI - HESTAR
OPIÐ GOLF
meistaramót
Forgjöf 24 og hærri.
36 holur
Höggleikur með/ön forgjafar 28. og 29. júlí.
„Hver er efnilegasti kylfingurinn ö íslandi?"
Stórglæsileg verðlaun.
Skröning fer fram í síma 91-667023 fyrir
kl. 21.00 föstudaginn 27. júlí.
Kylfingar ráða rástíma fyrri keppnisdaginn.
Ræst út eftir árangri seinni keppnisdaginn.
íþróftabúöin Borgartúni, Lacoste
Veitingahúsið við Tjörnina
Laxalón.
• J
Hvammsvík, Kjós,
LAXALÓN HF. \jfS