Morgunblaðið - 13.09.1990, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1990
3
HALLVARÐUR ERKIGAUR (t.v.) ÞAKKAR HENRIK FYRIR NAFNIÐ !
Hallvarður hefur sannarlega tekið sig á í sumar.
Nú, að loknu þriggja mánaða málræktarátaki, er hann því sem næst
hættur að sletta útlenskum orðum. Það þakkar hann ekki síst aðstoð
um 500 íslendinga sem tóku þátt í átakinu með honum.
Sérstök dómnefnd kom honum einnig til hjálpar á endasprettinum.
Dómnefndina skipuðu Kristín Þorkelsdóttir og Ólafur Pétursson, hjá AUKhf
og Baldur Jónsson frá Mjólkursamsölunni.
Eins og gefur að skilja tók töluverðan tíma að fara yfir tillögurnar.
Að lokum komst dómnefndin að þeirri niðurstöðu að
nafnið MJÓNA lýsti umbúðunum best auk þess sem það félli mjög vel
að íslensku beygingarkerfi og væri auðvelt í framburði, jafnvel fyrir lítil börn.
Fulltrúi borgarfógeta dró út fimm nöfn úr hópi þeirra 108 íslendinga
sem sendu inn MJÓNU-nafnið.
1. verðlaun, 100 þúsund krónur, hlaut Henrik Óskar Þórðarson,
Langholtsvegi 106, Reykjavík.
Aukaverðlaun, 4 kassa af Floridana MJÓNUM, hlutu
Garðar Garðarsson, Hrísholti 7, Garðabæ,
Guðrún Sigmundsdóttir, Eyjabakka 26, Reykjavík,
Halla Georgsdóttir, Markholti 24, Mosfellsbæ
og Ragnar Eiríksson, Logafold 74, Reykjavík.
Um leið og við óskum verðlaunahöfunum til hamingju,
þökkum við öllu því áhugasama fólki sem tók þátt í samkeppninni
til hj álpar Hallvarði erkigaur.
~TVS~