Morgunblaðið - 13.09.1990, Page 40

Morgunblaðið - 13.09.1990, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1990 Kjartan Gissurarson fisksali - Minning Fæddur 30. nóvember 1914 Dáinn 5. september 1990 Mig langar að kveðja afa minn, Kjartan Gissurarson fisksala, með nokkrum orðum. Þær eru ófáar stundirnar sem koma upp í hugann þegar ég lít til baka. Öll skiptin sem ég fór með afa niður á bryggju snemma á morgnana að sækja fisk. Þær voru ófáar sögumar sem afi var vanur að segja, frá því þegar hann var ungnr maður, eins og þeg- ar ferðast var á milli staða hvað það var miklu meira gengið heldur en nú er. Afi var alltaf mjög sanngjarn og skipti öllu jafnt á milli okkar bamabarnanna. Alltaf var gott að koma til afa og ömmu og eru þær mjög margar'-minningarnar sem ég á þaðan. Afi var alltaf hress og hafði mjög gaman af að tala við fólk. Ég vil þakka afa fyrir góðar stund- ir. Blessuð sé minning hans. Hanna Kristín Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jðrðin. Einir fara og aðrir koma í dag, því alltaf bætast nýir hópar i skörðin. Og til eru ýmsir sem ferðalag þetta þrá, en þó eru margir, sem ferðalaginu kviða. Og sumum liggur reiðinnar ósköp á, en aðrir setjast við hótelgluggann og bíða. Nú er hann Kjartan farinn í þá ferð sem allir hljóta að fara fyrr eða síðar, hvort sem þeim líkar betur eða verr. En alltaf er jafn erfitt að sætta sig við það þegar góðir vinir hverfa yfir landamærin, þó komnir séu á efri ár. Hann Kjartan var ekki bitur þó hann vissi fullvel að hveiju stefndi, fannst það ekkert meira þó hann fengi þennan illkynja sjúkdóm en aðrir sem yrðu að lúta í lægra haldi fyrir honum. Húmorinn var sá sami, hann fylgdist af lífi og sál með íþróttunum í útvarpi og sjónvarpi allt fram í andlátið. Hann kvartaði aldrei og ekki hef ég fyrr orðið vitni að öðru eins æðruleysi og þvílíkum sálarstyrk sem hann sýndi til hinstu stundar og með hve mikilli reisn hann kvaddi þetta líf. Kjartan var fæddur í Byggðar- horni í Flóaþann 30. nóvember 1914, sonur hjónanna Ingibjargar Sigurð- ardóttur og Gissurar Gissurarsonar. Hann var þriðji yngstur af 16 systk- inum en nú eru aðeins 8 á lífi og einn fósturbróðir. Ég kynntist Ingi- björgu lítilsháttar, hún var þá komin á efri ár en enga konu hef ég séð fallegri en hana á þeim aldri. Skammt er stórra högga á milli í þessum systkinahóp, því Óskar og Kjartan" létust með aðeins fjögurra daga millibili. Kjartan fór ungur að vinna fyrir sér enda þekktist ekki annað í þá daga en hann langaði til að læra og fór í Reykholtsskóla og var þar einn vetur. Fimmtíu ára nemendur þaðan hittust síðastliðið haust og var Kjart- an einn þeirra. Framan af ævi stundaði hann sjó- inn, var á smærri og stærri skipum og skömmu fyrir stríð réð hann sig á danskt skip og iokaðist inni í Dan- mörku ötl stríðsárin. Ekki hætti Kjartan á sjónum þó kominn væri til Danmerkur og stríðið í algleym- ingi og komst þá oft í hann krappan eins og nærri má geta. Eftir stríð kom hann heim með konu sína og dóttur og var þá á tog- urum eða þar til hann fór að vinna í fískbúð hjá Hafliða Baldvinssyni en stuttu seinna opnaði hann sína eigin fiskbúð, Saltfískbúðina á Frakkastígnum. Árið 1960 keypti hann verslunarhúsnæði í Álfheimum 2 og rak þar fiskbúð þar til fyrir sex árum að hann settist í helgan stein að mestu. Það er orðið langt síðan leiðir okk- ar Kjartans lágu fyrst saman, um það bil þijátíu og sex ár, hann var þá nýbyijaður í fisksölubransanum og bóndi minn fór út í slíkt hið sama skömmu síðar. Hann leitað þá stund- um ráða hjá kollega sínum sem orð- inn var forframaðri í starfinu. Þá var meira fyrir því haft að fá fisk í búð- irnar en nú, að vetrinum var farið suður með sjó og beðið eftir að bát- arnir kæmu að landi, oft seint á kvöldin og ekki komið í bæinn fyrr en komin var miðnótt. Mikið vatn hefur til sjávar runnið síðan þetta var og margt hefur breyst með tilkomu fískmarkaðanna. - Margar ferðir fórum við með þeim hjónum til Danmerkur og er mér sérstaklega minnisstæð ferðin þegar þau buðu okkur með sér til Vejle á æskustöðvar Karenar. Þangað var gott að koma og þar. var Kjartan eins og kóngur í ríki sínu, enda heimavanur þar, þangað sótti hann brúði sína, Karen fædda Sloth, og þar giftu þau sig 27. maí 1944. Það duldist mér ekki hvað tengdafaðir hans var ánægður með þennan íslenska tengdason, hann Kjartan, og hvað tengdafólkið hans allt mat hann mikils og var það gagnkvæmt. Ég veit líka að fólkið hennar Karen- ar í Vejle er með hugann hjá henni og börnunum hennar þessa dagana og sakna nú vinar í stað. Margar stundirnar höfum við átt með þeim Karenu og Kjartani og af þeim hefði ég ekki viljað missa, og nú þegar Kjartan er allur sé ég eftir að hafa ekki notað tímann betur meðan hans naut við. Kjartan var hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi og hvergi hef ég verið oftar í mannfagnaði við ýmis tækifæri en á hans heimili og þá var oft í koti kátt, spilað á píanó og mikið sungið því systkinin frá Byggðarhorni eru mikið söngfólk. Nú hefur stórt skarð verið höggvið í þennan glaðværa hóp sem ekki verður fyllt. Síðastliðið haust hélt Kjartan upp á sjötíu og fimm ára afmælið sitt með miklum myndarbrag, sendi gestunum boðs- kort með skrípamynd af sjálfum sér þar sem fiskkösin nær honum upp fyrir tiöfuð, það var honum líkt. Kjartan var sérlega geðgóður maður, tryggur vinur vina sinna og svo umtalsfrómur að ég minnist þess ekki að hann hafi halimælt nokkrum manni í mín eyru og mætti margur taka það sér til fyrirmyndar. Að mínu mati var Kjartan mikill gæfumaður, hann var heilsugóður fram undir það síðasta, átti einstak- lega góða konu sem stóð alla tíð sem klettur við hlið hans og átti miklu barnaláni að fagna og ég dáist oft að samheldni þessarar fjölskyldu og hef ég óvíða séð annað eins. Börn Kjartans og Karenar urðu átta en tvö létust í frumbemsku. Þau sem upp komust eru; Inga f. 27.12. 1945, fyrrv. deildarstjóri í Lands- banka íslands, Gunnar f. 6.3. 1948, viðskiptafræðingur, Anna f. 12.7. 1954, húsmóðir á Selfossi, Erla f. 6.6. 1956, skrifstofustúlka hjá Osta- og smjörsölunni, Sonja f. 5.8. 1964, gjaldkeri hjá Tryggingu hf., Kristján f. 5.8. 1964, fiskiðnaðarmaður hjá Lifrasamlagi Vestmannaeyja. Oll hafa þau komist vel áfram í lífinu og eru foreldrum sínum til mikils sóma. Börnin mín vilja færa Kjartani hjartans þakkir fyrir allt, hann var í miklu uppáhaldi hjá þeim frá því þau voru smábörn. Að hryggjast og gleðjast hér um vora daga, heilsast og kveðjast það er lífsins saga. Það er komið að leið- arlokum. Ég og fjölskylda mín kveðj- um kæran vin og þökkum honum fyrir allt og allt. Ég veit að Kjartan mun engu þurfa að kvíða í þeim heimi þar sem hann dvelur nú, þar munum við aftur hittast hress og kát. Elsku Karen mín, ég votta þér, börnunum þínum, og öllum öðrum ástvinum Kjartans mína innilegustu hluttekningu. Guðrún Elísabet Vormsdóttir Þú, Guð, sem stýrir sljama her og stjómar veröldinni, í straumi lífsins stýr þú mér með sterkri hendi þinni. Stýr minni tungu að tala gott og tignar þinnar minnast, lát aldrei baktal, agg né spott ' í orðum mínum finnast. (Vald. Briem) Ég get varla trúað því að hann afi minn sé dáinn og að ég eigi aldr- ei eftir að sjá hann oftar. Hann var alltaf svo góður við mig og við áttum svo margar skemmtilegar stundir saman. Afi hringdi oft í mig og var að glettast við mig, því hann gerði svo oft að gamni sínu. Það vaf gaman að vera í veislum hjá afa, því þegar systkini hans komu var sungið dátt og hlegið svo hátt, eins og þeim einum er lagið. Stundum fórum við afi með honum pabba á togaranum til Þýskalands, þá var afí í essinu sínu því hann var gamall sjóari. Þá var hann oft að segja mér sögur af því hvernig það var þegar hann var til sjós. Afí hafði alltaf jafn gaman af að spila, hvort sem það var við okkur krakkana eða þegar hann spilaði brids við félaga sína. Ég fór oft á spítalann í heimsókn til afa í sumar. Þar var hann alltaf t Faðir okkar, SNORRI BENEDIKTSSON stórkaupmaður, lést á heimili sínu í Kaupmannahöfn 8. september. Hulda Snorradóttir, Soffía Snorradóttir, Ásdis Snorradóttir. t Eiginmaður minn, AÐALSTEINN DAVÍÐSSON, Arnbjargarlæk, lést í sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 11. september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Brynhildur Eyjólfsdóttir. t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN Þ. SIGURÐARDÓTTIR, Jökulgrunni 1, Reykjavík, lést á heimili sínu 11. september. Ólafur E. Eínarsson, Ólafúr E. Ólafsson, Þorbjörg Jónsdóttir, Ásdís Ýr Ólafsdóttir, Kolbrún Ólafsdóttir. t SIGURÐUR BJARNASON rafvirkjameistari, Lindargötu 29, Reykjavík, andaðist í Borgarspítalanum 5. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd vina og vandamanna, Magnús Alexíusson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ARI LÁRUSSON frá Heiði, Langanesi, til heimilis að Heiðarvegi 23a, Keflavík, áður búsettur á Brimbakka, Bakkavegi 7, Þórshöfn, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 14. september kl. 14.00. Þeir sem vildu minnast hins látna, láti Hjartavernd njóta þess. Nanna Baldvinsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartfólgin móðir mín, eiginkona og systir okkar, MILDRÍÐUR SIGRÍÐUR FALSDÓTTIR frá Barðsvík, Grunnavíkurhreppi, húsfreyja í Bólstaðarhlið 50, Reykjavík, verður kvödd frá Dómkirkjunni föstudaginn 14. september kl. 13.30. Þeir, sem vildu minnast hinnar látny, láti kvennadeild Slysa- varnarfélags íslands njóta þess. Fyrir hönd ástvina. Helgi Falur Vigfússon, Vigfús Jóhannesson, Jakob Faisson, Rósa Falsdóttir. - svo kátur og ég var alltaf að vona að hann færi að koma heim, en hann var veikari en við héldum. Amma bað mig um að skila þakk- læti til þeirra sem hjúkruðu afa svo vel á Landspítalanum og lungnadeild V ífílsstaðaspítala. Við söknum afa öll mikið en amma hefur misst mest og ég bið Guð að styrkja hana. Að lokum þakka ég afa fyrir allt, og bið Guð að geyma hann. Maren Dröfn Ákveðnum atburðum í lífi hverrar manneskju minnist hún alla ævi eins og þessir atburðir hefðu gerst í gær. Fæðing barna og aðrir ánægjulegir atburðir eru að sjálfsögðu ofar í huga þegar litið er til baka. Flestir minnast þeirrar stundar þegar þeir voru fyrst kynntir fyrir nýrri fjölskyldu þegar þeir bundust maka úr þeirri fjölskyldu. Móttökur eru oft blendnar og makaval barn- anna skoðað og skeggrætt frá öllum hliðum. Við sem tengdumst fjölskyldu Kjartans minnumst fyrstu kynna fyrst og fremst vegna þess að við urðum strax frá fyrsta degi, hvert og eitt okkar, einn af fjölskyldumeðli- munum. Áhugi Kjartans á störfum og lífsafkomu íjölskyldna okkar var mikill en laus við öll afskipti að fyrra bragði. Ef leitað var til Kjartans var hann boðinn og búinn til aðstoðar en gjaman fylgdu ráð undir rós eða ábendingar í gátum eins og honum var gjarnt að tala. Hvað sem við tókum okkur fyrir hendur hvatti hann okkur áfram og fýlgdist náið með framvindunni. Kjartan fæddist á Byggðarhorni í Flóa og fór ungur til sjós og kom víða við á ferðum sínum. í lok seinni heimsstyijaldarinnar festi hann ráð sitt í Danmörku og kvæntist tengda- móður okkar, Karen Gissurarson, sem fædd er í Danmörku. Heim komu þau að stríði loknu og Kjartan hóf rekstur Saltfískbúðarinnar í Reykjavík. Kjartan var ekki einn af þeim sem lauk viðskiptum við við- skiptavininn með því að loka af- greiðslukassanum. Spjall um daginn og veginn, hnyttin tilsvör og glað- værð fengu viðskiptavinirnir í kaup- bæti. Hjónaband Kjartans og Karenar var farsælt. Aldrei skipti hann skapi eða gerði upp á milli manna og danska glaðværð tengdamóður okkar treysti enn betur hjónabandið. Kímnigáfa Kjartans var einstök og stundum kaldhæðnisleg en særði engan. Fram til síðustu stundar fylgdist hann vel með öllu sem gerðist í þjóð- félagimi og þá sérstaklega íþróttum sem hann fylgdist með af áhuga. Sérstakan áhuga hafði hann á brids- íþróttinni og tók gjarnan í spil til að „kenna“ okkur hinum. Börnin urðu sex en þau eru; Inga gift Guðna J. Guðnasyni, Gunnar, kvæntur Ágústu Árnadóttur, Anna, gift Birni S. Lárussyni, Erla, gift Sigurbirni Kristjánssyni, Kristján, sambýliskona hans er Stefanía K. Karlsdóttir og Sonja. Bamabömin em orðin 9 og barnabamabörnin 2. Okkur langar að leiðarlokum að þakka Kjartani fyrir allar samveru- stundimar sem við áttum með hon- Blessuð sé minning hans. Tengdabörn Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGASQN HF STEINSMIÐJA SKEMMLWEGI48. SIMI76677

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.