Morgunblaðið - 04.10.1990, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 1990
Kvennalistakonur hafna ál-
veri sem kosti í atvinnumálum
Kvennalistakonur klæddar
rykgrímum dreifðu í gær bækl-
ing í miðbæ Reykjavíkur þar
sem þær kynntu andstöðu sína
gegn byggingu nýs álvers. í
bæklingnum, sem ber heitið
Endurbætur
á Gjögurvelli
Trékyllisvík.
UNNIð hefur verið að lengingu
flugbrautarinnar á Gjögri og er
fyrri áfanga nú lokið. Flugvöllur-
inn er rekinn á undanþágu.
Framkvæmdimar hófust 1. ágúst
og lauk nú um mánaðamótin. Var
þá búið að lengja brautina um 200
metra. Næsta vor er vonast til að
brautin verði lengd um þá 40 metra
sem á vantar til þess að hún stand-
ist kröfu um 1000 metra, sem er
lágmarkslengd. - V. Hansen.
„Kvennalistakonur hafna ál-
veri“, segir að dýrmætasta auð-
lind okkar sé hrein og óspillt
náttúra og að mengun frá álveri
sé mikil ekki síst ef slakað sé á
kröfum um mengunarvarnir
eins og nú eigi að gera. Er spurt
hvort við viljum fórna náttúru
landsins fyrir erlenda stóriðju.
Á blaðamannafundi sem
Kvennalistinn boðaði til í gær til
að kynna sjónarmið sín í álversmál-
inu kom fram að þær höfnuðu stór-
iðju almennt sem kosti í atvinnu-
málum. Þarna væri um að ræða
mjög mikla fjárfestingu í of fáum
störfum og mengun af völdum ál-
vers væri einnig of mikil. Sú
áhætta sem við tækjum væri ekki
réttlætanleg, óvissuþættimir væru
stórir, og margt benti til að verð
á áli myndi fara lækkandi á næstu
árum m.a. vegna gruns um að það
gæti verið skaðlegt heilsu manna.
Sögðust þær telja að þróunin yrði
sú að fólk myndi í ríkara mæli
kjósa aðrar umbúðir um matvæli
en álumbúðir vegna þessa. Um-
búðasviðið væri hins vegar það
svið sem markaðsskrifstofa iðnað-
arráðuneytisins teldi mesta aukn-
ingu eiga eftir að verða á.
Kvennalistakonur væru þó ekki
á móti nýtingu þeirrar auðlindar
sem fallvötnin væru, sögðu þær,
og bentu á raforkusölu erlendis eða
vetnisframleiðslu sem álitlegri
kosti. Margt benti til að vetni yrði
eldsneyti framtíðarinnar og fram-
leiðsla á því væri ekki umhverfis-
mengandi.
Þær lögðu áherslu á að íslend-
ingar væru fyrst og fremst mat-
vælaframleiðendur og að álver
gæti hugsanlega haft skaðleg áhrif
á okkar fískiðnað.
Ekki mætti láta „peningasjónar-
mið“ ein og sér ráða heldur yrði
líka að hugsa um afkomendur okk-
ar.
VEÐURI iORFUF í DAQ, 4. OKTÓBER
YFIRLIT í GA mb lægð ser er vaxandi 9£ suðsuöaustu ER: Skammt n þokast aus 12 mb iægð s af Hvarfi er suðvestur af Færeyjum er minnkandi 972 .tur en um 500 km austur af Dalatanga em hreyfist norðnorðvestur. Um 700 km 983 mb lægð á leiö norðaustur.
vrA» NorOöU ara í öðrum stan- og noro landshlutum anait, öusiö&t q iönQ*riU, önnQöy" Skúrir víðast á annesjum norðan- og
austanlands en bjartviðri sunnaniands.
1/FfílJRHORFHR NÆ. 077/ ni \GA*
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðaust Er w U bfr an- og sunr ranátt með rign» igu
eða skúrum víða um land, síst á r 4orðau8turlí indi. Hiti 5-10.
HORFUR A LAUGAhDAG: Hvoss i Ing eða slydda norðanlands, skú lorðan- og rir vestania lorðvestanátt. Ri nds en léttsfcýjai gn- 5 á
Suðausturlandi. Kóinandi veður.
TÁKN:
Heiðskírt
'Qk
úk
m
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
# * *
* * * * Snjókoma
* * *
•JO H'rtastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
#
V
Él
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
Wtl veður
Akureyri 5 rigning
Reyfcjávik " 7 skýjað
Bergen aiekýiað
Heisinld siíld
Kaupmannahöfn 13 þokumóða
Narssarssuaq 6 skýjaS
Nuuk 1 léttskýjað
Osld 13 þokumóða
Stokkhólmur 13 skýjað
Þórshöfn 10 skúrásfð.klst.
Algarve 23 skýjað
Amsterdam 20 mistur
fiarcelona 20 skiir
Bertfh 18 léttskýjað
Chlcago 23 alskýjað
Feneyjar 23 heiðskírt
Frankfurt 16 þokumóða
Qlasgow 10 úrkomaígrermd
Hamborg 18 hálfskýjað
Lea Palmas 26 léttskýjað
LomJon 13 rlgnlng
LosAngeles 22 íéttskýjað
Lúxemborg vantar
Madrid vantar
Malaga 27 skýjað
Mallorca 28 hálfskýjað
Montreal 11 léttskýjað
NewYork 20 heiðskirt
Orlando 32 léttskýjað
Paris 21 skýjað
Róm 24 þokumóða
Vin 16 heiðekírt
Washington 23 léttakýjað
Winnipeg 23 alskýjaö
Fagur fiskur úr sjó
Þessi hámeri sem Húnaröstin dró úr sjó vegur 94 kg. Fiskverslun-
Hafliða keypti fískinn í gær á Faxamarkaðnum. Hámeri er háfíska-
tegund og þykir mikið lostæti en kostar þó ekki nema rúmar 300
kr. kílógrammið.
Alþýðubandalagið:
Umræðu um álmálið
frestað í þingflokki
ÞINGFLOKKUR Alþýðubandalagsins frestaði umræðu um álversmál-
ið í gærkvöldi til klukkan 8 í dag. Margrét Frímannsdóttir formað-
ur þingflokksins segir að óskað hafi verið eftir nánari upplýsingum,
varðandi það áfangasamkomulag sem iðnaðarráðherra hyggst stað-
festa i dag.
Margrét sagði við Morgunblaðið,
að m.a. væri ekki vitað um afstöðu
stjórnar Landsvirkjunar til fyrir-
liggjandi draga um orkuverðssamn-
ing. Ákveðin bóHun væri um Lands-
virkjun ætti fyrir sitt leiti að stað-
festa orkuverðið en það hefði hún
ekki gert ennþá. Einnig væri flest
annað í málinu ófrágengið enn,
nema staðarvalið.
„Raunar sér maður ekki hvað Jón
Sigurðsson ætlar að skrifa undir,
annað en einhverskonar fundar-
gerð. Það liggur ekki fyrir neitt um
mengunarmálin, ekkert varðandi
Fangelsaður
fyrir afbrot
gegn dóttur
MAÐUR hefur í sakadómi
Reykjavíkur verið dæmdur í 6
mánaða fangelsi fyrir kynferðis-
afbrot, önnur en samfarir, gegn
ungri dóttur sinni.
Brotin átt.u sér stað í Reykjavík
á árunum 1987 og 1988 en þá var
telpan 5 og 6 ára.
raforkuverðið og skattamálin eru
ekki að fullu frágengin. Þetta virð-
ist helst vera þannig að aðalmark-
mið iðnaðarráðherra sé að skrifa
undir eitthvað, af hvaða ástæðum
sem það er,“ sagði Margrét.
Þegar Margrét var spurð hvort
þingmenn Alþýðubandalagsins ótt-
uðust að undirritun áfangasam-
komulags um álver í dag leiði til
stjómarslita, sagði hún að þeim
mun meiri upplýsingar sem þing-
menn fengju um stöðu málsins,
þeim mun rólegri yrðu þeir, vegna
þess að það sé jafn óljóst og það
var fyrir mánuði síðan.
„Við höfum ekki neitt í höndum
í þá veru, að þarna sé um að ræða
samkomulag, heldur séu þetta ein-
hveijar hugmyndir sem iðnaðarráð-
herra ætlar að reifa á morgun og
fá menn til að setja nafnið sitt und-
ir. Og ef þetta eru bara hugmyndir
þá getur það ekki gerst í nafni ríkis-
stjómar,“ sagði Margrét Frímanns-
dóttir.
Framkvæmdastjóm Alþýðu-
bandalagsins fjallaði um álmálið á
fundi á þriðjudagskvöld. Þar var
formanni og varaformanni flokks-
ins falið að kalla sem fyrst saman
miðstjórn til að ræða þetta mál.
Ottast atvinnuleysi drag-
ist ákvörðun um álver
- segir Guðmundur J. Guðmundsson
GUÐMUNDUR J. Guðmundsson formaður Verkamannasambands
íslands, segist óttast stórfellt atvinnuleysi í vetur dragist ákvörðun
um byggingu álvers á langinn. Hann segir að ákvörðun um bygg-
ingu álvers og virkjanir muni hafa úrslitaáhrif á hverjar verði at-
vinnuhorfur verkafólks og falli þau áform niður eða dragist álang-
inn kveðst hann óttast víðtækari uppsagnir og deyfð í verklegum
framkvæmdum.
Þetta kom fram þegar leitað var
álits Guðmundar á atvinnuhorfum
þeirra starfsmanna Hagvirkis sem
sagt var upp störfum fyrir helgi en
hann segir yfírgnæfandi meirihluta
þeirra vera af höfuðborgarsvæðinu.
Að sögn Valdimars Guðmannssonar
formanns verkalýðsfélags A-Hún-
vetninga voru um 1Ó félagsmenn
þess félags í þeim hópi sem fékk
uppsagnir hjá Hagvirki fyrir heigi
og taldi hann að álíka margt væri
úr Skagafirði en allur þorrinn frá
Reykj avíkursvæðinu.
Að sögn Sigurðar T. Sigurðsson-
ar formanns Verkamannafélagsins
Hlífar í Hafnarfirði er ljóst að upp-
sagnir Hagvirkis snerta tugi félags-
manna hans og tók hann í sama
streng og Guðmundur um að at-
vinnuhorfur yltu á niðurstöðu ál-
versmálsins enda væri viðbúið að
áhrifa ákvörðunar um byggingu
þess tæki fljótt að gæta í auknum
framkvæindum þeirra sem vildu
ráðast í verk áður en óhófleg eftir-
spurn og jafnvel skortur yrði á
vinnuafli.