Morgunblaðið - 04.10.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.10.1990, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 1990 Ó, Súsanna eftir Karl Ágúst Úlfsson — „Mikið helvíti getiði verið smekklausir, strákar," sagði kunn- ingi minn við mig á dögunum. — „Smekklausir — ha? Við hveij- ir?“ Ég kom af fjöllum eins og oft áður. — „Nú, þið þetta Spaugstofu- gengi.“ Ennþá var ég eins og stillimynd í framan. — „Finnst ykkur þetta ekki full augljóst auglýsingatrikk?“ „Auglýsinga-hvað?“ — „Þetta með hana, hvað hún nú heitir — Súsanna, er það ekki?“ — „Súsanna? Hver er það?“ — „E he he,“ hann danglaði kumpánlega í öxlina á mér og blikk- aði laumulega, „e he he, ég sá í gegnum þetta einsog skot. Þetta var svosem eftir ykkur, andskotans orm- arnir. Búið til einhvem gagnrýn- anda, einhvem kvenkyns Ragnár Reykás, kallið hann Súsönnu Sva- varsdóttur, skrifið svo óhróður um sjálfa ykkur og fáið Moggann til að birta þetta eins og hveija aðra gagn- rýni. Ykkur er ekki viðbjargandi. Auðvitað þarf að auglýsa sýninguna, ég skil það vel, en er þetta ekki svolítið langsótt, ha?“ Og þar með tók hann undir sig þrístökk og hafn- aði inni í strætisvagni númer tvö, sem rann burt í reykjarmekki í sama bili. Ég verð að viðurkenna að mér brá illa. Margt höfum við félagamir á samviskunni og misfagurt, en þessu emm við alsaklausir af, það get ég svarið. Ég sá því ekki annan kost vænni en að leiðrétta þennan leiða misskilning opinberlega, og er þar komin helsta ástæðan fyrir skrif- um mínum í þetta ágæta blað: Sú- sanna Svavarsdóttir er ekki, ég end- urtek, er ekki hugarsmíð Spaugstof- unnar. Hreint ekki. Hún er í raun og vem blaðamaður og gagnrýnandi á blaði allra landsmanna. Um það hefur engu verið logið. Og jafnvel þó að upphafleg skrif hennar um sýninguna. „Örfá sæti laus“ hafí komið sér býsna vel, og einstök ummæli úr „umfjöllun" hennar séu þegar orðin hluti af sýningunni við fádæma kátínu leikhúsgesta, þá er fráleitt að halda því fram að Sús- anna hafi hagað orðum sínum eftir óskum Spaugstofunnar. Af og frá. Ég veit sem sagt ekki betur en að greinar Súsönnu í Morgunblaðinu séu skrifaðar í fúlustu alvöm, já, einhverri allrafúlustu alvöm sem ég hef orðið vitni að, en sé þetta mis- skilningur hjá mér vil ég heldur hafa það sem sannara reynist. Ég hef því reynt að lesa þessi skrif með því hugarfari að þau beri að taka alvarlega. í grein sem Súsanna nefnir því prýðilega nafni „Leikhús og leikhús- gagnrýni“ og birtist í Morgunblaðinu laugardaginn 29. september víkur hún að því að kröfur séu uppi um að hún biðjist afsökunar á skrifum sínum um fyrmefnda sýningu. Að sjálfsögðu telur Súsanna það af og frá og bendir réttilega á að afsökun- arbeiðni sín mundi ekki breyta sýn- ingu Þjóðleikhússins. Þó ekki væri. Og væri hætta á því að sýningin breyttist við það að Súsanna bæðist afsökunar veit ég fyrir víst að mað- ur gengi undir mannshönd til að koma í veg fyrir að sú afsökunar- beiðni færi fram. Leikhúsfólk ber nefnilega virðingu fyrir starfi sínu, og þegar því tekst vel upp, eins og með sýninguna „Örfá sæti laus“, vill það allt til vinna svo að þeim ágæta árangri verði ekki spillt. Súsanna bendir einnig réttilega á að hún hafi ekki skrifað verkið, og biðst heldur ekkj afsökunar á því. Þetta er alveg hárrétt. Og ég get fullvissað Súsönnu um að á því þarf hún hreint ekki að biðjast afsökun- ar, það er löngu fyrirgefíð, og satt best að segja veit ég ekki um nokk- um mann sem óskar þess að hún hefði skrifað umrætt verk. En svo heldur grein Súsönnu áfram, og þá kemur svolítið skrítið, nefnilega þetta: „Leikarar Þjóðleik- hússins eiga engra kosta völ. Þeir em á samningi og geta ekki neitað að leika í sýningu á vegum þess, nema það stríði gegn siðferðis- eða trúarvitund þeirra. Hefði sýningin verið á öðrum stað leyfi ég mér að efast um að margir af þesstím leik- uram hefðu tekið þátt í henni. Þeim hefði verið í sjálfsvald sett að velja og hafna.“ Þetta segir Súsanna, og þar sem mér skilst að hún hyggist sinna skrifum um leikhús eitthvað áfram fínnst mér ófært ajinað en að hún fái að vita eftirfarandi: í leik- húsi vinnur fólk saman að ákveðnu verkefni sem allir trúa á. Þar leggja sig allir fram. Þar gera allir sitt besta. Og til þess að jafngóður árangur náist og nú hefur náðst með sýningunni „Örfá sæti laus“, verður fólk að vera fullkomlega sátt við það sem það er að gera. Þess vegna er fólk aldrei neytt til að vinna ákveðin verkefni í leikhúsi þvert gegn vilja sínum. Hnútasvipur era sáralítið notaðar til að skikka leikara hlutverk. Heldur ekki handjám eða fótjám. Þetta vita þeir sem einhvern tíma hafa reynt að fræðast um leik- hús. Og nú veit Súsanna það líka. Þar að auki get ég glatt blaðakon- una og leiklistargagnrýnandann með því að langflestir leikararnir í sýn- ingunni „Örfá sæti laus“ óskuðu eftir því sérstaklega að fá að taka þátt í henni, og sömu sögu má segja um ýmsa aðra fastráðna leikara Þjóðleikhússins, sem því miður gátu ekki verið með í þetta sinn. Vonandi verður þessi vitneskja Súsönnu til einhverrar hugarhægðar. Þar með segir sig einnig sjálft að Súsanna getur íátið af meðaumkun sinni með leikkonum sýningarinnar, sem hún segir vera settar í „þá nið- urlægjandi stöðu að leika einhvers konar skopstælingar af sjálfum sér og öðram starfskonum leikhússins". Reyndar er það misskilningur hjá Súsönnu að leikkonumar séu að skopstæla sjálfar sig. Það sem trú- lega vefst fyrir henni er að átta sig á lagskiptingu leikverksins, þar sem höfundar leika sér að innri og ytri veraleika leikhússins, þar sem hver persóna sem leidd er fram fýrir áhorfendur. lifir í raun á þremur til fjórum plönum samtímis, sem látin eru skarast, þar sem leikhúsverkið sjálft er dregið sundur og saman og krafíð til mergjar á öllum stigum, jafnt sem bókmenntaverk og sjónar- spil, þar sem reynt er á þanþol formsins og klisjumar miskunnar- laust afhjúpaðar, en birtu er brugðið á leikhúsmiðilinn og hann sýndur í spéspegli, en, vel að merkja, ekki í spegli sem hefur innbyggt hefðbund- ið eða fýrirsjáanlegt spé, heldur er leitað nýrra leiða. Það hentar ekki metnaðarfullum höfundum, sem kannað hafa flestar eða allar færar leiðir í gamanskrifum, að róa enn og aftur á sömu mið og senda frá sér verk sem reynslan hefur sýnt að muni falla flestum í geð. Hitt er krefjandi, að leita nýrra aðferða, nýrra forma, jafnvel nýrra vídda. Þetta vita allir sem fengist hafa við skapandi störf. Og nú veit Súsanna það líka. Því miður get ég ekki eytt meira rými í að útskýra formfræðilega uppbyggingu verksins „Örfá sæti laus“ fyrir Súsönnu — heldur ekki hugmyndafræði verksins, föflu og fléttu, hvað þá minni, vísanir eða þemu. Sannarlega væri mér það ljúft í góðu tómi, en ég vil síður spilla fyrir væntanlegum áhorfendum ISLANDSBANKI íslandsbanki hf. kt. 421289-5069 Kringlunni 7, Reykjavík Útboð bankavíxla 7. flokkur 1990 Útboðsfjárhæð kr. 1.000.000.000.- 45-120 daga víxlar 1. útgáfudagur 20. september 1990 Forvextir nú 10,25 - 10,75% Umsjón: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Gríptu tækifæríö! GoldStar síminn m/símsvara á aðeins kr. 9.952.- (stgr..m/vsk). • Sími og símsvari í einu tæki • Fjarstýranlegurán aukatækja úr öllum tónvalssímum - hvaöan sem er • 10 númera skammvalsminni • Fullkomnar leiðbeiningar á íslensku • 15 mánaöa ábyrgö • Póstsendum. KRISTALL HF. SKEIFAN 118- SÍMI 685750 Minnum á GoldStar tölvurnar og símkerfin Karl Ágúst Úlfsson „Hún heldur sumsé að sýningin „Orfá sæti laus“ sé ekki faglega unnin. Þeir sem komið hafa í leikhús áður hafa veitt því athygli að margir af færustu fag- mönnum íslensks leik- húss hafa starfað að sýningunni. Höfundar verksins hafa saman- lagt ríflega þrjátíu ára reynslii af fagmannleg- um vinnubrögðum sem höfundar leikins gam- anefnis, jafnt í útvarpi og sjónvarpi sem á leik- sviði.“ ánægjunni af að greina verkið eftir eigin skynjun og hugarflugi. Þó get ég ekki annað en staldrað ögn leng- ur við misskilninginn um „niðurlægj- andi stöðu“ fyrmefndra leikkvenna. Svo virðist sem skelfilegust örlög leikkvenna séu þau að leika „skop- stælingar af sjálfum sér og öðrum starfskonum leikhússins". Nú er það svo að leikverkið „Örfá sæti laus“ er gamanleikur. Þessu hafa margir veitt athygli. Athugult fólk hefur einnig tekið eftir því f tímans rás að í gamanleikjum bregður oft fyrir skopstælingum. Þetta er trúlega gert vegna þess að það þykir fyndn- ara að skopstæla fólk og fyrirbæri heldur en að stæla það án skops. Spakir menn hafa einnig haft það á orði að sá einn geti talist sannur húmoristi sem sjái það skoplega í sínu eigin fari og nánasta umhverfi sínu. Þetta vita allir sem hafa hú- mor. Nú veit Súsanna það líka. Og þá er það „sú mynd sem blas- ir við“, eins og Súsanna kemst svo hnittilega að orði í grein sinni, og á við kvenfólkið í sýningunni. „Heimsk gellá sem vísar til sætis, hvíslari sem splæsir líkama sínum fýrir eina skít- arullu, prímadonna sem þarf að sitja undir andstyggilegum lýsingum á sjálfri sér, þar til hún rýkur reið út af sviðinu — og verður þar með að Heba heldur við heilsunni Ný námskeiö 8. okt. Holl hreyfing Þol - magi, rass, læri Teygjur - slökun Mismnnandi flokkar HEILSURÆKTIN HEBA Auðbrekku 14, Kópavogi símar 642209 og 641309.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.