Morgunblaðið - 04.10.1990, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.10.1990, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTOBER 1990 Islensk-ameríska félagið 50 ára eftirLáru Margréti Ragnarsdóttur Um þessar mundir á íslensk- ameríska félagið 50 ára afmæli. Þótt félagið hafi ekki haft hátt hef- ur það unnið dyggiiega að gagn- kvæmri kynningu og samskiptum milli þjóðanna. íslensk-ameríska félagið var stofnað árið 1940 að frumkvæði Ragnars Ólafssonar lögfræðings. Hánn var þá nýkominn frá námi í Bandaríkjunum og þar hafði hann kynnst öflugri starfsemi American Scandinavian Foundation sem þá hafði tengsl við sams konar félög á öðrum Norðurlöndum. Við heimkomuna fékk Ragnar til liðs við sig fjóra valinkunna menn sem allir höfðu verið í Bandaríkjun- um um lengri eða skemmri tíma. Þeir voru Ásgeir Ásgeirsson, síðar forseti íslands, Jónas Jónsson frá Hriflu, Sigurður Nordal prófessor og Thor Thors síðar sendiherra. Saman stóðu þeir að stofnun félags- ins, voru allir í fyrstu stjórn þess, og var Sigurður formaður. Aðalverkefni félagsins þá sem nú var að greiða götu íslenskra námsmanna og veita upplýsingar um skóla í Bandaríkjunum. Síðan var einnig efnt til funda og skemmt- ana og voru þá oft fengnir þekktir menn til að koma fram. Þessi hefð hefur haldist, m.a. má geta þess að félagið hefur árlega gengist fyr- ir haustfagnaði sem er opinn öllum sem áhuga hafa á samskiptum þjóð- anna. Á árunum 1953—1965 var dr. Benjamín Eiríksson formaður fé- lagsins. Hann beitti sér þá meðai annars fyrir því að Lyndon B. Johnson þáverandi varaforseti Bandaríkjanna flutti ávarp á fundi sem íslensk-ameríska félagið efndi til í Háskólabíói, og var þar húsfyll- ir. Þá gaf félagið út minningarrit um John F. Kennedy forseta, og birtust í því greinar og kvæði bæði á ísiensku og ensku til minningar um hinn látna forseta. Thor Thors sjóðurinn og 350 námsmenn Einn merkasti og gagnlegasti þátturinn í fimmtíu ára sögu ís- lensk-ameríska félagsins eru styrk- veitingar úr Thor Thors sjóðnum og önnur fyrirgreiðsla við náms- menn. Samstarfið við American Scandinavian Foundation hefur ávallt verið mikið frá stofnun fé- lagsins. Árið 1965 gekkst forseti American Scandinavian Foundat- ion, Peter Strong, fyrir stofnun Thor Thors sjóðsins. Tveimur árum síðar var safnað miklu gjafafé hér- lendis, eða 50.000 dollurum. Ásgeir Ásgeirsson, forseti íslands afhenti gjafaféð til American Scandinavian Foundation. Nú hafa tæplega 350 námsmenn notið aðstoðar sjóðsins allt frá upphafi, þar af 315 islend- ingar. Á síðasta ári námu styrkveit- ingar úr Thoi’ Thors sjóðnum um þremur og hálfri milljón króna. Meðal þeirra sem unnið hafa á vegum félagsins í stjórn sjóðsins nánast alveg frá upphafi má nefna Þórhall Ásgeirsson fyrrverandi ráðuneytisstjóra, Þórunni Jónsdótt- ur Boulter skrifstofustjóra og Sig- urð Helgason stjórnarformann Flugleiða. 50 ára afmælishátíð Hálfrar aldar afmælishátíð ís- lensk-ameríska félagsins verður haldin nk. laugardag 6. október, enda tengist sú helgi opinberum degi Leifs Eiríkssonar hins heppna í Bandaríkjunum. Félagið hefur á undanförnum árum tekið upp þá hefð að halda árlegan fagnað sinn í tengslum við þennan dag til að minnast landafundanna. I þetta sinn mun haustfagnaðurinn verða með afmælisbrag og dagskráin fjöl- breytt. Athöfn við styttu Leifs Eiríkssonar Efnt verður til sérstakrar há- tíðarathafnar við styttu Leifs Eiríkssonar á Skólavörðuholti. Þar fiytja ávörp borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson, sendi- herra Bandaríkjanna á íslandi, Charles E. Cobb og formaður ís- lensk'-ameríska félagsins, Ólafur Stephensen. Athöfninni stýrir há- skólarektor Sigmundur Guðbjama- son, en 50 skátar, íslenskir og bandarískir standa heiðursvörð. Athöfnin hefst kl. 15.00. Spurningakeppni grunnskólanema — spennandi verðlaun Við hátíðarathöfnina við styttu Leifs Eiríkssonar verður formlega hleypt af stokkunum spurninga- keppni meðal grunnskólanema alls Lára Margrét Ragnarsdóttir staðar á landinu. Síðar verður nán- ar greint frá fyrirkomulagi spum- ingakeppninnar. Sigurvegari keppninnar, en nafn verður dregið úr réttum lausnum, dettur heldur betur í lukkupottinn. Verðlaunin em ferð sigurvegarans til Banda- ríkjanna með heimsókn í Hvíta hús- ið. En farmiðinn verður ekki bara einn, því sigurvegarinn fær að bjóða öllum bekknum sínum með ásamt kennara. Ljósmynda- og málverkasýningar Ljósmyndasýning á verkum hins þekkta bandaríska ljósmyndara Imogene Cunningham verður opnuð á Kjarvalsstöðum kl. 16.00. Enn- fremur var um síðustu helgi opnuð myndlistarsýning Nena Allen á verkum unnum á íslandi. Sú sýning „Hálfrar aldar afmælis- hátíð Íslensk-ameríska félagsins verður haldin nk. laugardag- 6. októ- ber, enda tengist sú helgi opinberum degi Leifs Eiríkssonar hins heppna í Bandaríkjun- um. Félagið hefur á undanförnum árum tekið upp þá hefð að halda árlegan fagnað sinn í tengslum við þennan dag til að minn- ast landafundanna.“ er í húsakynnum Menningarstofn- unar Bandaríkjanna við Neshaga. Útgáfa hátíðarbókar Félagið gengst fyrir útgáfu bókar um ýmsa þætti í sögu félagsins. Bókin er mjög vönduð að öllum frá- gangi og efni og er þar um merkt heimildarrit að ræða. Margir félags- menn hafa lagt þar hönd að verki en Siguijón Ásbjörnsson hefur haft umsjón með útgáfunni. Ritstjóri er Jón G. Hauksson blaðamaður. Hátíðarkvöldfagnaður Hápunktur afmælisins verður svo hátíðarkvöldfagnaður sem haldinn verður í Átthagasal Hótels Sögu og hefur félagið boðið til hans sér- Tryggt uppeldi er forvarnarstarf eftir Jónínu Sigurðardóttur Ör þróun íslensks þjóðfélags síðustu áratugi hefur haft í för með sér miklar breytingar fyrir börn þessa lands, bæði til góðs og ills. Fjölmiðlar hafa ljallað talsvert um aukið ofbeldi meðal barna og ungl- inga upp á síðkastið, og má leiða líkur að því að þessi aukning endur- spegli ýmislegt sem aflaga hefur farið í umsjá og uppeldi bamanna. Samfara stórfelldum þjóðfélags- breytingum virðist ljóst að þeir sem síst skyldi, blessuð börnin, hafa orðið fyrir miklum búsifjum, og er svo að sjá að oft og tíðum hafi gleymst að sjá hagsmunum þeirra borgið. Hér er um að ræða þá umönnun sem foreldrar geta veitt, sem og þá valkosti sem bjóðast -utan heimilisins, á leikskólum. Því verður ekki neitað að börn eru misjafnlega sett hvað rétt þeirra til veru á leikskólum snertir. Þar vegur þyngst hvort bamið kemur frá foreldrum í hjónabandi eða ein- stæðu foreldri, en börn einstæðra foreldra ganga fyrir um leikskóla- pláss eins og kunnugt er. Ekki er verið að fara fram á að neitt verði frá þessum bömum tekið þó að á þetta atriði sé bent, enda em ein- stæðir foreldrar síst ofsælir með sitt hlutskipti. Hitt er umhugsunar- efni hvers vegna börn giftra for- eldra fá ekki að búa við sama ör- yggi í þessum efnum. Nú kynni einhver að segja að hjón hljóti að eiga auðveldara með að sjá um böm sín, bæði í efnalegu tilliti og félagslegu. Staðreyndin er hins vegar sú að launakerfið í landinu býður ekki upp á neitt val fólks við að sjá efnahagsþörfum heimilisins fullnægt. Bæði móðirin og faðirinn verða að vinna utan heimilisins, fullan vinnudag i flest- um tilfellum ásamt einhverri auka- vinnu. Hér erum við komin að kjama málsins:' Hvaða áhrif kann það að hafa á lítið barn að búa við það að skipta um dagmömmur nokkmm sinnum á ári, allt frá unga aldri? Börnin okkar eru alveg eins og við fullorðna fókið hvað það snertir að þeim er mjög nauðsynlegt að hafa reglu á lífí sínu, enda á vaninn stór- an þátt í því að skapa ró í bamshug- Jónína Sigurðardóttir „Sköpum börnum okk- ar frá upphafi þær að- stæður sem líklegastar eru til að gera þau að nýtum þjóðfélagsþegn- um.“ anum. Ef við lítum á hagsmuni nokkm eldri barna en þeirra sem eru hjá dagmömmum eða á leikskól- Fjórar ábendingar til Þjóðhagsstofnunar eftir Gunnar Tómasson „Allar ábendingar sem geta stuðlað að framförum [í vinnu- brögðum okkar] eru vel þegnar,“ segir í athugasemd forstjóra Þjóð- hagsstofnunar við gagnrýni undir- ritaðs á rökbrestum íslenskra emb- ættismanna við útreikning hlutfalls vaxtakostnaðar í þjóðartekjum (Morgunblaðið, 6. september). 1. „Málið snýst einfaldlega um það hvort nota eigi nafnvexti eða raunvexti við mat á vaxtakostnaði,“ segir í athugasemd forstjórans. Þetta er ekki rétt — hlutfall nafn- vaxta af landsframleiðslu á verðlagi hvers árs er nákvæmlega hið sama og hlutfall raunvaxta af landsfram- leiðslu á föstu verði. 2. „Við þetta bætist að mismun- andi mat á vöxtum hefur alls ekki áhrif á hlutdeild launa í þjóðartekj- um, heldur hefur það einungis áhrif á hvernig sá hluti þjóðartekna sem telst ekki til launa ... skiptist milli lánveitenda og hagnaðar af at- vinnurekstri.“ Þetta er ekki rétt — lánveitendur hafa einnig vaxtatekjur af lánum til heimila, ríkis og sveitarfélaga, sem voru samtals 55% af 470 millj- arða heildarskuldum við lánakerfið um síðustu áramót. 3. „Þjóðhagsstofnun hefur að sjálfsögðu ekki annað að ieiðarljósi við gerð þjóðhagstekna en að þeir gefi sem réttasta og sannasta mynd af efnahagsþróuninni á hverjum tíma.“ Þetta er ekki rétt — eins og fram kemur í grein Bjama Braga Jóns- sonar og KriStjóns Kolbeins um við- fangsefnið í 1.-2. hefti Fjármála- tíðinda 1990, þá er útreikningur Gunnar Tómasson raunvaxta að íslenskum hætti ný- breytni hagfræðideildar Seðlabanka íslands. Alþjóðlegir þjóðhagsreikninga- staðlar eru endurskoðaðir af fremstu sérfræðingum heims á véttvangi hagfræði og þjóðhags- reikninga þegar þurfa þykir, svo „Hér skal fullyrt, að samsuða raunvaxta og tekjuliða á verðlagi hvers árs að hætti Þjóð- hagsstofnunar og Seðlabanka mun ekki til eilífðarnóns flokkast undir fagleg vinnu- brögð utan landsteina.“ þeir gefi sem réttasta og sannasta mynd af efnahagsþróuninni á hveij- um tíma. Hér skal fullyrt, að samsuða raunvaxta og tekjuliða á verðlagi hvers árs að hætti Þjóðhagsstofn- unar og Seðlabanka mun ekki til eilífðarnóns flokkast undir fagleg vinnubrögð utan landsteina. 4. „Af þessu má ráða að skrif Gunnars í umræddri grein eru hreinlega byggð á misskilningi." Þetta er ekki rétt — sjá ábending- ar í 1.-3. lið hér að ofan. Höfundur er hagfræðingur. um förum við að nálgast hugtakið „lyklabörn“, en þetta orð kom upp með þjóðinni á þeim tíma er konur þyrptust út á vinnumarkaðinn. Ef við lítum aðeins nánar á hvað þetta felur í sér má segja í fyrsta lagi, að hér ljúki mismuninum á þeim börnum sem koma frá einstæðum foreldrum og hinum sem alast upp hjá báðum foreldrum. Orðið sjálft endurspeglar því miður þann nötur- lega veruleika að börnin sem undir skilgreininguna falla mega sætta sig við að vera ein heima heilu og hálfu dagana, og þurfa að sjá um sig sjálf í skóla og hvað eina annað sem þau stunda. Þau böm sem hafa búið við það frá barnæsku að hafa haft mjög fáa fasta punkta í tilverunni og verða síðan „lyklabörn" hljóta að eiga mjög erfitt með að öðlast þá örygg- iskennd og festu sem þeim er nauð- synleg til að ná fótfestu fótfestu í lífinu upp á eigin spýtur. Því miður kemur þetta ekki síst niður á nám- inu. Mörg þeirra flosna upp í skóla og ganga til liðs við hópa eða klíkur sem síðan verður til þess að margt misindsverkið er unnið í skjóli fjöl- dans. Ætla má að börn sem þurft hafa að ganga í gegnum þann harða skóla að vera hjá fjölmörgum dag- mæðrum, með tilheyrandi rótleysi eins og áður hefur verið vikið að, og síðan verða „lyklabörn" hljóti að eiga erfiðara uppdráttar en þau sem notið hafa umönnunar á leik- skóla hjá faglærðu fólki. Þau börn sem lent hafa á villigöt- um á unglingaldri hafa í ýmsu til- liti orðið þjóðfélaginu kostnaðar- söm. Komið hefur verið á fót með- ferðarstofnunum, og þangað hafa allt of margir þurft að leita. Sjálf- sagt er það svo að alltaf verður um nokkra aðila að ræða sem fara vill- ir vegar þrátt fyrir að þeir hafi notið alls hins besta í uppvextinum. Reynum að hafa þá sem fæsta, en nota frekar þá fjármuni sem spar- ast í öflugt forvarnarstarf. Sköpum börnum okkar frá upphafi þær að- stæður sem líklegastar eru til að gera þau að nýtum þjóðfélagsþegn- um. Talsverð vakning hefur verið í þjóðfélaginu í þá átt að styðja betur hagsmuni heimilanna. Eitt af lykil- atriðunum í þessum efnum er að tryggja öllum bömum leikskóla- pláss sem þess þurfa með. Höfundur á sæti í starfshópi um dagvistarmál á vegum BSRB.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.