Morgunblaðið - 04.10.1990, Síða 25

Morgunblaðið - 04.10.1990, Síða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 1990 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTOBER 1990 25 S^rgiisttMiiMfr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. SAMEINING ÞYSKALANDS Toppfundur um börn Asama tíma og við íslending- ar fjöllum um það ófremd- ar ástand með harm í huga að slysatíðni á íslenzkum bömum er meiri en tíðkast víðast hvar erlendis og sjálfsvíg ungra drengja fleiri en víðast erlendis efna Sameinuðu þjóðirnar til toppfundar um börn og málefni þeirra í því skyni að draga at- hyglina að vandamálum og sorglegri stöðu barna víða um heim. Þessi fundur hefur verið harðlega gagnrýndur, m.a. af belgískum ráðherra, eins og fram hefur komið hér í blaðinu, vegna þess að því hefur verið haldið fram að um hégómaskap hafí verið að ræða og þeir ijár- munir sem renna til slíkrar ráð- stefnu komi börnum að engu gagni en séu til þess eins að varpa ljóma á hégóma þeirra sem halda slíka ráðstefnu og taka þátt í henni. Ekki verður tekin afstaða hér á þessum vett- vangi til þess hvort þessi gagn- rýni á rétt á sér eða ekki en hitt hlýtur að vekja athygli sem fullyrt hefur verið að öryggis- gæzla vegna þeirra sem sóttu ráðstefnuna hafi kostað hvorki meira né minna en á Ijórða hundrað milljóna íslenzkra króna. Þessir peningar verða að a.m.k. ekki ungum borgur- um þessa heima til hjálpar eða aðstoðar. En sík ráðstefna gæti þó rétt hlut fjölda barna víðsvegar um heim. Vonandi verður það raunin. Þá yrði ráð- stefnan árangursrík og ekki einungis í því skyni haldin að beina athyglinni að þeim pólitíkusum sem hvort eð er baða sig í sviðsljósinu öllum stundum, og þá ekki sízt í fjöl- miðlum. Stjómmálamenn nær- ast á þessu ljósi einsog kunnugt er en þeir gleymast einatt fljótt þegar á því er slökkt. Vel má hafa í huga að talið er að 2.800 börn hafi dáið úr kíghósta í heiminum þessa tvo daga sem toppfundur um börn stóð yfir, 8.000 úr mislingum, 4.300 úr stífkrampa, 5.500 úr malaríu, 22.000 úr niðurgangi og 12.000 úr lungnabólgu, svo ekki sé talað um aðra sjúkdóma sem heija á varnarlaus börn víða um heim; hungur og of- beldi margskonar. Vonandi tekst Sameinuðu þjóðunum að koma vandamál- um barna í heiminum til skila svo að hlutur þeirra verði réttur og mörg þeirra lifi áfram sem annars dæju úr skorti, sjúkdóm- um og illri aðbúð yfirleitt. Kjarni málsins er sá að við verð- um að leggja fram miklar fjár- hæðir til að gera það sem unnt er fyrir þessi börn og veita þeim alla þá aðstoð sem tiltæk er. Oft þarf einungis herzlumun til að bjarga lífi barns. Bólusetn- ing kostar lítið í okkar augum en er foreldrum í fátækum lönd- um einatt um megn. Við eigum að beina ljóskastaranum að þessum vandamálum. Ellefu þúsund börn deyja á degi hveij- um úr niðurgangi vegna þess að foreldrar þeirra kunna ekki skil á því að unrit er að bjarga lífi þeirra með sykursaltsblöndu til að stöðva sjúkdóminn. Sjö þúsund börn deyja daglega vegna þess að þau fá ekki þá bólusetningu sem þarf til að bjarga lífi þeirra þótt hún þyki sjálfsögð við venjulegar að- stæður og kosti lítið. Fullyrt er að fjörutíu þúsund börn deyi daglega við einhveijar slíkar aðstæður sem lýst hefur verið. En maðurinn hefði ráð til þess að fækka þessum dauðsföllum um þrjátíu til þijátíu og fimm þúsund á dag ef notaðar væru þær aðferðir læknisfræðinnar sem nú þekkjast beztar og þau lyf og sú tæknilega kunnátta sem við njótum til að mynda í okkar landi. Fátækt er forsenda þeirra hörmunga sem hér um ræðir. Við þekkjum þessa gömlu vofu úr okkar eigin sögu. Margir íslendingar hafa dáið úr fátækt og skorti. Enn búa milljónir manna við hungursneyð og margir deyja úr skorti. Vera má að eitthvert bruðl sé á veg- um Sameinuðu þjóðanna og hégómi embættismanna og stjórnmálamanna sé meiri en vera ætti. En ef hægt er að beizla þennan hégóma í þágu sjúkra og vannærðra barna í heiminum, þá er betur farið en heima setið. Við eigum að gera allt til að búa betur að þessum börnum og veita þeim aðstoð sem vinna að því að bæta hag þeirra og aðstæður. Starfandi eru margar hjálparstofnanir víða um heim og engin ástæða til annars en ýta undir þær með fjárframlögum. Vel má vera að það gæti verið raunbezta fram- lag okkar, lítillar þjóðar, að beijast gegn sjúkdómum og hungri í heiminum því slík bar- átta er oft viðráðanleg og ætti. ekki að vera okkur um megn fjárhagslega. Slík barátta væri verðugur minnisvarði um þrautseigju íslenzku þjóðarinn- ar á langri hörmungargöngu gegnum svörtustu miðaldir. Kyrrlátur fögmiður setti svip sinn á há- tíðarhöldin í Berlín Bcrlín. Frá Önnu Bjamadóttur, fréttáritara Morgunblaðsins. ÞÚSUNDIR Þjóðverja voru kömnir á stjá í miðborg Berlínar þegar í gærmorgun og spókuðu sig í sólskininu á fyrsta degi sameinaðs Þýskalands. Samkomur og skemmtiatriði voru víða um borgina en formleg hátíðarhöld hófust með guðsþjónustu í Maríukirkjunni. Leiðtogar þjóðarinnar, sendiherrar og gestir komu síðan saman í Fílharmoníusalnum þar sem Sabine Berg- mann-Pohl, fv. forseti a-þýska þingsins, Rita Siissmuth, forseti þýska þingsins, Walter Momper, forseti efri deildar þýska þings- ins, og Richard von Weizsácker, forseti Þýskalands, tóku til máls. Sjónvarpað var beint frá athöfn- inni í Fílharmóníusalnum, sem er skammt frá því þar sem múrinn skipti borginni áður. Fór allt fram samkvæmt dagskrá þar til austur- þýskur karlmaður gekk í skynd- ingu að ræðupúltinu og vildi fá að láta í ljós skoðun hins óbreytta íbúa landsins. Vandræðalegt ástand skapaðist. Gestir tóku að klappa þegar maðurinn neitaði að stíga úr stólnum og að lokum var hann leiddur í burtu af öryggis- vörðum. Leiðtogar landsins lögðu allir áherslu á mikilvægi framtíðarhlut- verks Þýskalands í Evrópu. Þeir sögðu að Þjóðveijar myndu stefna að aukinni og nánari samvinnu allra Evrópuþjóða. „Við viljum þjóna heimsfriði í sameinaðri Evr- ópu,“ sagði Weizsácker. Islendingar eiga síðasta sendiherrann Hjálmar W. Hannesson, sendi- herra íslands í Þýskalandi, var meðal gesta í Fílharmóníuhúsinu. Hann tók við sendiherraembættinu í Bonn í fyrrahaust og var einnig sendiherra í Austur-Þýskalandi. Það dróst að afhenda trúnaðar- skjölin þar. Var hann loks boðaður til þess í lok ágúst. Egypski sendi- herrann afhenti skjöl sín sama dag en Hjálmar var síðasti sendiher- rann í sögu alþýðulýðveldisins til að afhenda þjóðhöfðingja þess trúnaðarskjöl þjóðar sinnar. Austur-Þýskaland var formlega kvatt á þriðjudagskvöld. Kurt Mas- ur, hljómsveitarstjóri, sem hefur alla tíð starfað í A-Þýskalandi, nú síðast í Leipzig, en mun bráðlega taka við stjóm Fílharmoníunnar í New York, stjómaði flutningi 9. sinfóníu Beethovens á hátíðarsam- komu ríkisstjómar gamla landsins. Sinfónían var leikin í stað a-þýska þjóðsöngsins, en hann var ekki fluttur opinberlega á þriðjudag. Vestur-þýski þjóðsöngurinn, nú hinn þýski, hljómaði hins vegar víða og var leikinn formlega á miðnætti. Hoffmann von Fallersle- ben samdi „Lied der Deutschen" árið 1841 við lag Josephs Haydn. Það var þjóðsöngur Þýskalands eftir 1922 en Vestur-Þjóðverjar sungu aðeins þriðja vers hans eftir heimsstyrjöldina síðari og Austur- Þjóðveijar gleymdu honum upp til hópa. Dagblöð birtu texta þjóð- söngsins á þriðjudag. í mann- þrönginni við Brandenborgarhliðið sá fréttaritari hins vegar engan taka undir með forsöngvuram, þegar þjóðsöngurinn var fluttur á miðnætti. Um miðnætti á Unter den Linden Þrengslin við hliðið urðu gífurleg Reuter Hátíðahöldin í fyrrinótt við gamla þinghúsið í Berlín, Reichstag. rúmum klukkutíma fyrir miðnætti. Fólk -streymdi að gamla þinghús- inu, Reichstag, sem er norðvestan við hliðið, það er vestan við hinn horfna múr en Brandenborgarhlið- ið sjálft var austan við hann. Hin formlega sameiningarathöfn fór fram fyrir framan þinghúsið. Lög- regla varð að skjóta þremur við- vörunarskotum upp í loftið til að hemja mannfjöldann. Var um tíma hætta á því að einhveijir kynnu að troðast undir í mannþrönginni. Fréttaritari valdi sér stöðu hálftíma fyrir miðnætti austan við Brandenborgarhliðið, það er á hinu fræga breiðstræti Unter den Lind- en. Þaðan sást á þak gamla þing- hússins í fjarska. Fánar blöktu við hún. Töldu þeir sem þarna stóðu í sljjóli tijánna, að fánarnir yrðu dregnir niður og upp aftur á mið- nætti í tilefni sameiningar ríkjanna. Það gerðist ekki, kirkju- klukkur hringdu tveimur mínútum fyrir tólf en fánarnir blöktu áfram. Þjóðsöngurinn var leikinn og kona nokkur hrópaði: „Prosit Deuts- chland!" (Skál Þýskaland) og saup úr kampavínsflösku. Örfáir kysst- ust en annars var lítið um fagnað- arlæti eða að menn létu í ljós til- finningar sínar. . Fólk varpaði öndinni léttar og hrópaði af hrifningu þegar glæsi- leg flugeldasýning lýsti upp himin- inn fimm mínútur eftir miðnætti. Sýningin stóð í 20 mínútur en ókyrrð skapaðist þegar hún var um það bil hálfnuð og ýmsir reyndu að komast leiðar sinnar, flestir höfðu þó þolinmæði til að horfa á hana alla. Gleðin á sameiningarhátíðinni jafnast ekki á við einlæga og hömlulausa ánægju Berlínarbúa 9. nóvember síðastliðinn þegar múrinn féll. Þá var iðandi og stjórnlaust mannhaf alls staðar. Fólk brosti og skálaði í kampavíni. Hátíðin nú er skipulögð og stemmningin líkust blöndu af 17. júní og gamlárskvöldskæti á Is- landi. Berlínarbúi úr vesturhlutanum sagði að hátíðin hefði tekist vel. „Hún var kyrrlát og án ofsafeng- innar ánægju yfir sameiningu ríkjanna,“ sagði hann. „Nágrannar okkar hljóta að fagna því. Hávær þjóðargleði hefði getað skotið þeim skelk í bringu." Austur-Þýskaland „neðan- málsathugasemd í sögunni“? eftir Sæmund G. Halldórsson Nú þegar þýsku ríkin sameinast formlega aðeins tæpum ellefu mán- uðum eftir að Berlínarmúrinn féll mætti búast við að almennur fögn- uður ríkti í báðum hlutum Þýska- lands og að hinn nýi þjóðhátíðar- dagur landsins, 3. október (áður var það 17. júní!) verði raunverulegur hátíðisdagur. Almennir borgarar í vestur-þýska velferðarríkinu hafa hins vegar látið sér fátt um finnast og sú spurning sem oftast heyrist er sú sem frambjóðandi sósíaldemó- krata, Oskar Lafontaine, hefur sett á oddinn: Hvað á þetta allt saman að kosta og hver á að borga brús- ann? í Austur-Þýskalandi hrandi ekki aðeins stjórnkerfið heldur Ííka allt efnahagskerfið svo að segja á einni nóttu. Ósamkeppnisfær ríkisfyrir- tæki („kombínöt") og geysistórir ríkisbúgarðar urðu gjaldþrota þús- undum saman og um ein milljón af níu milljónum vinnandi fólks er nú atvinnulaus. Framleiðni og verg- ar þjóðartekjur hraðlækka en vest- rænar fjárfestingar sem áttu að bjarga málunum láta bíða eftir sér. Astæðan er annars vegar óvissa um lagalegt eignarhald á lóðum og fyr- irtækjum og hins vegar eru fyrir- tæki, húsakostur, vegir, símasam- band og umhverfi í hörmulegra ástandi en nokkurn hafði órað fyrir. Öfugsnúið ástand Hingað til hafa fyrst og fremst vestur-þýsk fýrirtæki, sem bjóða vörur og þjónustu, lagt sig fram við að ná til sín austur-þýska mark- aðinum, stóra iðnfyrirtækin halda að mestu að sér höndum nema þau sem hafa keypt upp gjaldþrota framleiðendur í austri til að geta selt sína framleiðslu á þessum nýja markaði, án þess að byggja þar upp ný atvinnutækifæri. Og þó að Austur-Þjóðveijar viti að þeir stofni sínu eigin atvinnuöryggi í hættu með hverri einustu vestrænni vöru sem þeir kaupa, standa þeirra eigin vörur óhreyfðar í hillunum meðan vörur í litskrúðugum umbúðum studdar af ágengum auglýsingum yfirtaka markaðinn. Afleiðingin hefur orðið sú að mjög öfugsnúið ástand er að myndast. Vestur-þýskt efnahagslíf hefur tekið mikinn kipp og framleiðendur anna varla auk- inni eftirspum á sama tíma og allt er í kalda koli í austur-þýskum iðn- aði og viðskiptalífi. Þar ríkir nú mikið óöryggi meðal almennings og alger óvissa um framtíðina, fólk virðist jafnvel vera að glata öllu sjálfstrausti. Kvarta undan hroka Biskup evangelísku kirkjunnar í Berlín-Brandenburg, Gottfried Forck, sagði fyrir nokkrum dögum að sú tilfmning ágerðist að hér sam- einuðust ekki tvö ríki heldur gleypti annað hitt án nokkurs tillits til borg- ara þess ríkis og að svo virtist sem vestur-þýsk stórfyrirtæki ætluðu viljandi að horfa á öll 'fyrirtæki austurhlutans fara á hausinn til að geta náð þeim undir sig. Austur-Þjóðveijar kvarta mikið undan óþolandi sjálfsánægju og hroka ríkra „frænda“ úr vestri og þeim finnst þeir 'vera niðurlægðir. Hagfræðingar benda þó á að engin leið hafí verið til að sameina and- stæð efnahagskerfí landanna smám saman eftir að landamærin voru opnuð og að seinkun á grandvallar- breytingum hefði aðeins valdið meiri fólksflótta. Austur-Þýska- landi var að blæða út, daglega flutt- ust allt að 4.000 manns vestur yfír landamærin eftir að þau voru opn- uð, til þessa dags yfír 600.000 manns. Þetta breytir þó ekki því að almenningur í þýska alþýðulýð- veldinu var engan veginn búinn undir svona harkalega breytingu til hins verra. Allt ber hér að sama branni, þrátt fyrir ailan skyldleika sameinast núna íbúar tveggjá gjörólíkra ríkja sem vita sáralítið hvorir um aðra og vita ekki meira en svo hvernig þeir eiga að taka þessum atburðum. Margir hafa bent á að Vestur-Þjóð- veijar eigi í dag meira sameiginlegt með nágrönnum sínum í vestri, eins og t.d. Hollendingum og Frökkum, heldur en þessum nýju löndum sínum. Þess vegna gremst það mörgum, sérstaklega fólki undir fertugu, að þeim hefur ekkert tæki- færi gefist til að segja álit sitt á þessum ráðagerðum í lýðræðisleg- um kosningum — þessi neikvæða stemmning kemur fram í öllum flokkum. Stj órnarskrártryggð Opinskáasti fulltrúi þessarar af- stöðu er frambjóðandinn Lafontaine sem hefur aðallega spurt hver eigi að greiða skattana sem hljóti að verða settir á en hefur hingað til gefið fá svör við þeirri spurningu hvað hann vilji gera öðruvísi en Helmut Kohl. Ilann játar það sjálf- ur hiklaust að þessir atburðir hafi komið sér í opna skjöldu en að því sé að hyggja að hann sé barn upp- lýsingarinnar og sambandslýðveld- isins. Jöfnuður lífskjaranna liggi honum nær en eining ríkisins. Hann hæðist að talinu um „föðurland". Lafontaine hefur tekið upp hugtak- ið stjórnarskrártryggð (Verfass- ungspatriotismus) sem hann segir einkenna Vestur-Þjóðveija öllu frekar en föðurlandsást. (Þetta hug- tak er ættað frá Frankfurt-skólan- um svokallaða, heimspekingunum, Dolf Sternberger og Júrgen Hab- ermas, og lýsir einkar vel hugar- ástandi ungra Vestur-Þjóðveija.) Reyndar er ekki nema örstuttur tími liðinn síðan allt upplýst fólk hefði haldið því blákalt fram að íbúar þessara tveggja ríkja væru orðnir tvær mismunandi þjóðir, meira að segja í splunkunýrri Þýskalands- sögu eftir ungan sagnfræðing, Júrgen Mirow að nafni, sem kom út 1990, stendur þessi setning: „Greinilega eru Sambandslýðveldið Þýskaland og þýska alþýðulýðveldið á leið með að verða að mismunandi ríkjaþjóðum eins og áður gerðist í Austurríki og enn fyrr í Sviss.“ Núna gerast breytingarnar hins vegar svo hratt að margt bendir til þess að austur-þýski rithöfundurinn Stefan Heym muni hafa rétt fyrir sér þegar hann segir, að eftir nokk- ur ár verði þýska Alþýðulýðveldið ekki annað en neðanmálsathuga- semd sögunnar. Tungan breytist Á þessu eina ári hefur meira að segja tungumálið breyst svo í Austur-Þýskalandi að ekki er eftir Reuter Fyrstur í heiminn eftir sameiningu Ina Schirmer frá Berlín strýkur nýfæddum syni sínum Jakobi um vangann. Snáðinn kom í heiminn skömmu eftir miðnætti 3. október og telst vera fyrsta barnið sem fæðist í sameinuðu Þýskalandi. nema lítill hluti af þeim orðum og hugtökum sem sérkenndu málið þar í Iandi og sem flest, en ekki öll, voru upprunnin af hugmyndafræði- legum ástæðum. Öruggt má þó telja að lífsreynsla heilla kynslóða muni setja sitt mark á sameinað Þýska- land um langa framtíð. 1 dag er munurinn öllum Ijós þó ekki væri nema fyrir það eitt að launþegar í austurhlutanum hafa tvisvar til þrisvar sinnum lægri tekjur heldur en meðaltekjur í samskonar störfum í vesturhlutanum. í framtíðinni kynni annar munur að verða mikil- vægari; Austur-Þjóðveijar eru sparsamir og nægjusamir og hafa kynnst ófrelsi af eigin raun og gætu þess vegna átt það til að beita sér meira í daglegri pólitík heldur en ópólitískir og værukærir góð- borgarar í Vestur-Þýskalandi. En auk þess verður hið sameinaða Þýskaland, eins og forsætisráð- herrann fyrrverandi, Lothar de Maziere, hefur bent á „svolítið meira mótmælendatrúar, svolítið norðlægara og svolítið austlægara", en hið gamalkunna sambandslýð- véldi — og bætum við: miklu fijáls- ara, stærra og sjálfstæðara. Höfundur er háskólakennari í' íslensku í Bonn og Köln. Aðstandendur Nýja bíós kynna myndina „Öruggara kynlíf“. Kvikmyndafélagið Nýja bíó: Fræðslumynd um al- næmi og kynsjúkdóma KVIKMYNDAFÉLAGIÐ Nýja bíó hefur gefið út fræðslumyndina „Öruggara kynlíf,,. í myndinni er fjallað um alnæmi og kynsjúk- dóma og hvemig unnt ér að lifa öruggu en jafnframt skemmtilegu kynlífí þrátt fyrir hættuna á að smitast af þessum sjúkdómum. Handritið að myndinni skrifuðu Mark Schoen, kynfræðingur, Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, kynfræðing- ur, og Sonja B. Jónsdóttir, dag- skrárgerðarmaður. Á kápu mynd- arinnar kemur fram að Mark Scho- en er sérfræðingur í gerð kyn- fræðsluefnis á myndböndum og notkun slíkra myndbanda við kennslu. Hann hefur framleitt íjöl- margar myndir sem notaðar eru við kynfræðslu í Bandaríkjunum og víðar. Sigríður Jakobínudóttir, hjúkr- unarfræðingur og starfsmaður landsnefndar um alnæmisvamir er þulur myndarinnar. Einnig koma fram í myndinni Sigurður Guð- mundsson, sérfræðingur í lyflækn- ingum og smitsjúkdómum, sem fræðir áhorfendur urn sjúkdóminn alnæmi, og Rannveig Pálsdóttir, sérfræðingur í húð- og kynsjúk- dómum, en hún segir frá þeim kynsjúkdómum sem algengastir eru hér á landi og afleiðingum þeirra. Myndin er 25 mínútna löng og fyrsta myndin þessarar tegundar sem gerð er á Islandi. Könnun Verðlagsstofnunar: Mikill verðmunur á físki í verslunum Nýlega kannaði Verðlagsstofn- un verð á físki í 46 fiskbúðum og matvöruverslunum á höfuðborgar- svæðinuVog 18 verslunum utan þess. Niðurstöður könnunarinnar sem eru birtar í 11. tbl. verðkönnunar Verðlagsstofnunar frá þessu ári sýna m.a. að mikill verðmunur er á fiski eftir verslunum og lands- hlutum. Sem dæmi má nefna eftirfar- andi: 1. Á höfuðborgarsvæðinu var verðmunur á einstökum fiskteg- undum allt að 149%. Lægsta verð Hæsta verð Verðmunur Rauðspretta, heil 160 399 149% Karfaflök 230 510 122% Kinnar saltaðar 220 487 ’ 121% Saltfískur, útvatn. 300 550 83% Rauðsprettuflök 320 550 72% Ýsa heil 220 330 50% Smálúðuflök 550 790 44% Stórlúða í sneiðum 538 730 36% Ýsuflök með roði 410 550 34% Utan höfuðborgarsvæðisins var enn meiri verðmunur á einstök- um físktegundum. Lægsta verð Hæsta verð Verðmunur Rauðspretta, heil 49 315 543% Rauðsprettuflök 123 496 267% Stórlúða í sneiðum 275 956 248% Gellur nýjar 280 743 165% Ýsa heil 159 258 62% Ýsuflök með roði 313 450 44% 2. í flestum tilvikum var fískur á höfuðborgarsvæðinu seldur á lægra verði í fiskbúðum en í mat- vöruverslunum. Þannig var meðal- verð í nær öllum tilvikum lægra í fiskbúðum en í matvöruverslunum. Þessi verðmunur á meðalverði í fiskbúðum og matvöruverslunum var hins vegar minni nú en í fyrri verðkönnunum á fiski. Að jafnaði var meðalverð í matvöruverslunum um 5% hærra en í fiskbúðum. Lægsta verð á einstökum fiskteg- undum á höfuðborgarsvæðinu var í öllum tilvikum nema einu i fisk- búðum þar af í átta tilvikum af 14 í Fiskbúðinni Sæbjörgu, Braga- götu 22. 3. Fiskur var oftast ódýrari á þeim stöðum utan höfuðborgar- svæðisins sem könnunin náði til, en á höfuðborgarsvæðinu. Má sem dæmi nefna að meðalverð á ýsuflök- um var 15% hærra á höfuðborgar- svæðinu en utan þess, smálúðuflök voru 50% dýrari á höfuðborgar- svæðinu og stórlúða 26% dýrari. 4. Verðlagsstofnun gerði sams konár könnun á fiskverði i október á síðasta ári og nú var gerð. í ljós kemur að ýsa hefur að meðaltali hækkað um 18% á tæpu ári. Er það meiri hækkun en sem nemur al- mennum verðlagshækkunum. Skýr- ingarinnar á því er að leita í hækk- andi fiskverði á útflutningsmörkuð- um en íslenskir fisksalar þurfa að etja kappi við útflytjendur í inn- kaupum á fiski. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.