Morgunblaðið - 04.10.1990, Page 48
BYSSUR OG SKOTFÆRI
Heildsöludreifing:
I.Guðmundsson, sími :24020
FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Rafmagnsveitur:
Evrópumet
í vanskilum
VANSKILAHLUTFALL á raf-
magnsreikningum er mun hærra
hér á landi en víðast hvar í Evr-
ópu og nema áætluð vanskil á
þessu ári um 10% af veltu raf-
veitnanna, sem er áætluð 9 millj-
arðar, um 900 milljónum króna.
Að sögn Eiríks Briem hjá Raf-
magnsveitum ríkisins og Þórsteins
Ragnarssonar hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur er vanskiiahlutfall hér
miklu hærra en á Norðurlöndum
og víðast hvar í Evrópu.
Innan rafveitnanna sjá menn fyr-
ir sér tímaháða taxta, sem bætt
mælitækni gerir mögulega, til að
draga úr fjárfestingarkostnaði raf-
- veitna með tímaháðum töxtum, þ.e.
að rafmagnsverð hjá almenningi
miðist við hvenær dags rafmagn
er notað.
Sjá nánar bls. B12
Sambandið:
Nýju fyrir-
tækin almenn-
ingshlutafélög
ENDURSKIPULAGNINGU Sam-
bandsins í þá veru að breyta deild-
um þess í sjálfstæð hlutafélög
hefur miðað það vel að ætla má
að hún geti tekið gildi um næstu
áramót, eins og að hefur verið
stefnt.
Sigurður Markússon, stjórnarfor-
maður Sambandsins, segir í viðtali
við viðskiptablað Morgunblaðsins í
dag að hann muni ekki eftir öðru
máli, þá fjóra áratugi sem hann hafí
starfað hjá Sambandinu, sem unnið
Mínnsta sala á sementi
hérlendis síðan árið 1970
hafi verið að af eins mikilli ein-
drægni og almennum áhuga og þess-
kri endurskipulagningu.
Sigurður segir ennfremur að ein-
hver þessara nýju félaga muni taka
á sig mynd almenningshlutafélags.
Áður en til þess komi verði þessi
félög þó að vinna sér tilverurétt á
þeim hlutabréfamarkaði sem sé í
uppsiglingu hér á landi.
Sjá „Við viljum opna hliðin...“ B6.
ÚTLIT er fyrir að sementssala
verði 10-12% minni á þessu ári en
í fyrra og er það hlutfallslega
svipaður samdráttur í sementssölu
og varð í fyrra frá árinu áður. í
áætlun Sementsverksmiðju ríkis-
ins á Akranesi fyrir þetta ár var
gert. ráð fyrir að salan yrði um
110 þúsund tonn, og þótti sú áætl-
un að sögn Gylfa Þórðarsonar
Ragnhildur Helgadótt-
ir gefur ekki kost á sér
til þingframboðs á ný
RAGNHILDUR Helgadóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, hefur ákveðið að gefa
ekki kost á sér til þingframboðs
í komandi alþingiskosningum.
Ragnhildur skipaði þriðja sæti á
lista flokksins í Reykjavík í kosn-
ingunum 1987 en hún var fyrst
kjörin á þing 1956.
Ragnhildur Helgadóttir situr ný
þing Evrópuráðsins í Strassborg, en
undanfamar vikur hefur hún verið
erlendis í erindum Alþingis og Evr-
ópuráðsins. í samtali við Morgun-
blaðið sagðist Ragnhildur hafa til-
kynnt formanni Sjálfstæðisflokksins,
formanni þingflokks sjálfstæðis-
manna og formanni sjálfstæðis-
kvennafélagsins Hvatar í Reykjavík,
að hún ætlaði ekki að taka þátt í
prófkjöri' Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík.
Ragnhildur sagði, þegar hún var
spurð um hvers vegna hún hefði tek-
ið ákvörðun um að hætta þing-
mennsku: „Eg hef setið samtals um
það bil aldarfjórðung á þingi. Ég var
fyrst kjörin þegar ég var enn við nám
í Háskóla Islands og hef setið á þingí
með hléum síðan. 'Mér fínnst tíma-
bært að hætta á meðan ég hef fulla
starfskrafta og húsmæður hafa aldr-
ei lent í vandræðum með að nýta þá.
Hins vegar er mér engin launung á
því, að ég hef mikinn áhuga á margs-
konar störfum og ekki þar með sagt
að ég sé að gefa yfírlýsingu um að
setjast í helgan stein.“
I samtalinu kom fram, að það
væri sérstakt andrúrnsloft á þingi
Evrópuráðsins um þessar mundir í
Strassborg, þegar Þýskaland væri
að sameinast og Ungveijar og Pól-
veijar að ganga inn í ráðið, sem var
stofnað um það leyti, sem Þýskaland
klofnaði, af þjóðunum er vildu standa
vörð um lýðræði í álfunni. Ragnhild-
ur sagði, að haft hefði verið á orði
síðastliðinn laugardagsmorgun að þá
væri íslenskt andrúmsioft í þingsaln-
frainkvæmdastjóra SR nokkuð
svartsýn. „Nú lítur út fyrir að við
megum þakka fyrir að salan nái
105 þúsund tonnum," segir hann.
Gylfi sagði að mesti samdrátturinn
hafi komið fram mánuðina júlí, ágúst
og september, þegar sementssala
hafí verið langt undir áætlun. Mesti
Ragnhildur Helgadóttir
um, þegar tekið var á móti forsætis-
nefnd Norðurlandaráðs undir forystu
Páls Péturssonar, alþingismanns,
annar íslenskur þingmaður, Eiður
Guðnason, hefði verið með framsögu
í ræðustól og hún sjálf stjórnað fundi
þingmannanna. Undir lok samtalsins
sagði Ragnhildur:
„Mér þætti mjög vænt um að geta
komið á framfæri innilegu þakklæti
til fjölda kjósenda Sjálfstæðisflokks-
ins sem hafa á undanförnum árum
stutt mig til starfa á Alþingi.“
samdrátturinn nú kemur fram á höf-
uðborgarsvæðinu, eftir að sements-
sala til landsbyggðarinnar hafði áður
drégist saman. Gylfi segir að svo
virðist sem það séu einkum minni
íbúðabyggingar sem valdi samdrætti
nú, í fyrra var það fremur atvinnu-
húsnæði.
Þessi sala, um 105 þúsund tonn á
árinu, er langt fyrir neðan þau mörk
sem talin eru þurfa til að reka Se-
mentsverksmiðjuna á hagkvæman
hátt, en til þess þarf að sögn Gylfa
um 120 þúsund tonn á árí.
Gylfí segir að komi ekki til miklar
framkvæmdir á borð við virkjanir og
álver stefni í enn meiri samdrátt á
næsta ári, jafnvel allt niður í 95
þúsund tonn. Sala hefur ekki verið
minni en nú síðan 1970, en það ár
og 1969 voru mjög rýr vegna krepp-
unnar sem hér varð í kjölfar hruns
síldarstofnsins 1967 og verðlækkun-
ar á erlendum mörkuðum um leið.
Pálmi Kristinsson framkvæmda-
stjóri Verktakasambands íslands
segir að ekki hafi orðið teljandi sam-
dráttur í byggingariðnaði þegar á
heildina er litið, hins vegar megi ef
til vill skýra þennan samdrátt í se-
mentssölu með samsetningu fram-
kvæmda. Þetta ár hafi verið minna
um nýframkvæmdir og þá steypu-
vinnu sem þeim fylgir, en tiltölulega
meira unnið við frágang húsnæðis/
Iðnaðarráðherra um álverssamninginn:
Lít svo á að stjórn-
in standi öll að málinu
JÓN Sigurðsson iðnaðarráðherra segist líta svo á að ríkisstjórnin öll
standi að þeim áfanga í álverssamningum sem hann hyggst staðfesta
með fulltrúum erlendu fyrirtækjanna í dag.
Ýmsir ráðherrar, þar á meðal for-
sætisráðherra, hafa sagt að iðnaðar-
ráðherra bindi engan nema sjálfan
sig með því að staðfesta áfanga í
samningaviðræðunum á þennan
hátt.
Þegar þetta var borið undir Jón
Sigurðsson sagði hann að þetta
væri áfangi í samningunum sem
staðfestur væri til þess að leggja
grundvöll að lokasamningunum.
„Það er ekki gert með annað í huga
en að standa við það af beggja
hálfu,“ sagði hann.
—Og að því stendur ríkisstjórnin
öll um leið?
„Jú, égjít svo á. En iðnaðarráð-
herra kemur fram fyrir þennan
málaflokk," sagði Jón Sigurðsson.
Fulltrúar álfyrirtækjanna Alum-
ax, Hoogovens og Gránges komu til
landsins í gær og munu þeir, ásamt
iðnaðarráðherra, hitta fulltrúa Ey-
firðinga klukkan 11.30 í dag og full-
trúa Reyðfirðinga klukkan 12.
Klukkan 15 koma fulltrúar Suður-
nesja á fund ráðherra. Blaðamenn
hafa síðan verið boðaðir á fund
klukkan 15.30 og þá fer undirskrift-
in fram.