Morgunblaðið - 29.01.1991, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1991
Tilvistarvandi EFTA
eftir Steingrím
Gunnarsson
Fríverslunarsamtök Evrópu
(EFTA) eru ekki ánægð með gang
viðræðna um evrópska efnahags-
svæðið. (EES) og lá við að þær
sigldu í strand í desember síðast-
liðnum. Ástæðan er ofur einföld.
EFTA hefur slegið af flestum kröf-
um sínum og fallið frá öðrum til
að liðka fyrir samningum, en Evr-
ópubandalagið (EB)' hefur aftur á
móti staðið fast á sínu og heldur
aukið kröfur sínar en hitt.
Hugmyndin um EES er komin
frá Jacques Delors, forseta fram-
kvæmdastjórnar EB, sem hugsaði
hana sem leið fyrir EFTA að innri
markaði EB. Þar með vildi hann
bæta markaði hinna sjö aðild-
arríkja EFTA við markað EB-ríkj-
anna tólf og á þann veg draga úr
þrýstingi einstakra EFTA-ríkja um
aðild að bandalaginu. í sem fæst-
um orðum á EES að statfa á eftir-
farandi hátt: EFTA-ríkin, sem
gerðu hagkvæma fríverslunar-
samninga við EB á árunum 1372-
1973, eiga að innleiða „frelsin íjög-
ur“, hornsteina innri markaðarins
1993, „íjórfrelsið“ svokallaða á við
fijálsa flutninga á vöru, fjár-
magni, fólki og þjónustu. „Fjórfrel-
sið“ nær ekki til þandbúnaðar og
skiptir það okkur íslendinga máli
því að fiskur og fiskveiðar flokkast
þar undir.
Verði af stofnun EES munu 19
ríki eiga aðild að því með samtals
um 350 milljónum íbúa, og innan
þessa svæðis geta fyrirtæki og
fólk flust til að vild. Vöruverslun
og viðskipti með Ijármagn og þjón-
ustu verða óhindruð. Með því að
ryðja úr vegi viðskiptahindrunum
milli EFTA og EB gera menn sér
góðar vonir um að styrkja sam-
keppnisaðstöðu EFTA-EB út á við,
myndi EFTA hafa áhrif á ákvarð-
anatökuna um það hvernig sjóður-
inn yrði notaður og þannig á innan-
hússmál hjá bandalaginu. Leiðin
sem EB hefur valið til að EFTA
láti eitthvað af hendi rakna til þró-
unarsvæða EB er að fá greiðari
aðgang að landbúnaðarmörkuðum
og fiskimiðunrEFTA-landanna.3 I
þessu samhengi þarf enga sérstaka
glöggskyggni til að koma auga á
sérstöðu Islands í EFTA-hópnum.
Hún er augljós.
Fyrrnefndir þættir viðræðnanna
um EES að viðbættri stífni EB í
ákvarðanatökumálinu gerir samn-
ingsaðilum erfitt fyrir, og um tíma
heýrðust þær raddir í EFTA-hópn-
um, sem efuðust um einlægni EB
í viðræðunum almennt. Það þarf
ekki að líta þannig á, heldur leiðir
afstaða EB í EES-málinu í ljós
styrkleikahlutföll viðsemjenda og
að EB-menn hafi þrýst EFTA-lið-
inu upp að veggnum. Upphaflega
var gert ráð fyrir að samkomulag
næðist fyrir lok síðasta árs, en sú
varð ekki raunin, og er miðað við
að ganga frá samkomulagi núna í
vor eða í síðasta lagi um mitt sum-
ar. Tíminn er naumur, því væntan-
legir EES-samningar verða að fá
samþykki umbjóðenda samnings-
aðila, þ.e. þeir verða að fara fyrir
ráðherraráð EB og þing banda-
lagsins, fyrir þjóðþingin og í Sviss
verður þjóðaratkvæði um málið.
Ef EES-dæmið gengur upp eiga
EFTA-löndin að hafa innleitt EB-
reglurnar hinn fyrsta janúar 1993.
Til að EFTA se'm stofnun verði
hæf í EES-samstarfinu þarf að
gera umfangsmiklar breytingar á
stofnsamningi og uppbyggingu
samtakanna og munu þær breyt-
ingar að öllum líkindum leiða til
þess að EFTA verði breytt í yfir-
þjóðlega stofnun. Heyrst hefur að
í stað 100 manna starfsliðs EFTA
nú verði þörf á 2.000 manns til
að sinna verkefnum samtakanna
þegar EES er orðið að veruleika.
Forysta EFTA-hópsins á loka-
spretti EES-viðræðnanna er í
höndum Austurríkismanna og
reynir nú mikið á samningaleikni
þeirra. Það er ekki úr vegi hér að
benda á þá skondnu staðreynd að
á einhveiju viðkvæmasta samn-
ingsstigi viðræðnanna skuli forysta
EFTA falla í skaut Austurríkis,
sem hefur þegar sótt um aðild að
EB (17. júlí 1989). Lúxemborg
veitir ráðherraráði EB forstöðu á
sama tíma og ætti það að auðvelda
EES samkomulag og sætta svo-
kölluð suður-norður viðhorf innan
bandalagsins hvað EES-viðræð-
urnar áhrærir.
Síðastliðið haust gætti vaxandi
svartsýni í EFTA-hópnum um
framhald viðræðnanna, og yfirlýs-
ing Svíþjóðar um að ætla að leggja
fram umsókn um inngöngu í EB
vorið 1991 bætti ekki andrúmsloft-
ið og veikti samningsstöðu EFTA
enn frekar. Ekki er ólíklegt að
Noregur og jafnvel Finnland fylgi
fordæmi Svíþjóðar. Það gæti leitt
til þess að EB semji við íjögur
EFTA-landa samtímis um inn-
göngu í EB. Þá væri EB búið að
ná kjörstærð að mati margra
áhrifamanna innan EB og eftir í
EFTA væru þá Sviss, Liechten-
stein og ísland.
Skipan mála í Evrópu hefur leitt
til þess að ríki sem áður lutu stjórn
kommúnista vilja nú ganga í Evr-
ópubandalagið. EB á i viðræðum
við Tékkóslóvakíu, Ungveijaland
og Pólland um aukin tengsl og
mun að öllum líkindum verða sa-
mið við þessi ríki á breiðari grund-
velli en t.d. þegar Fríverslunar-
samningamir voru gerðir milli
EFTA og EB á árunum 1972-
1973. Búist er við að þessi lönd
fái greiðan aðgang að innri mark-
aðnum og að EB veiti þeim allt
að tíu ára aðlögunartíma til að
bæta samkeppnisstöðu sína. Þessir
samningar munu greiða fyrir efna-
hagslegum og ekki síst pólitískum
samruna Evrópu, en það þýðir
ekki endilega að Evrópubandalag-
inu væri akkur í að fá þessi lönd
sem fullgild aðildarríki.
Þessi mál í heild eru risavaxin
að umfangi, en ef samningar tak-
ast, annars vegar um EES og hins-
vegar á milli EB og kommúnista-
ríkjanna fyrrverandi í Austur- og
Mið-Evrópu, mun komast á lag-
girnar evrópskt efnahagssvæði
sem ekki einungis nær til ríkja
Vestur-Evrópu.
Samtímis þessari þróun i Evrópu
eru í gangi samningaviðræður milli
Bandaríkjanna og Mexíkó um
Steingrímur Gunnarsson
„Samningstilboð EFTA
um að falla frá flestum
fyrirvörum um að gild-
andi EB reglur verði
teknar upp innan EES
er háð skilyrði. Það er
að viðunandi lausn fáist
á þátttöku EFTA-ríkja
í ákvarðanatöku innan
EES í framtíðinni. Hag-
stæð niðurstaða fyrir
EFTA í viðræðunum
um ákvarðanatökuna
er helsta baráttumál
EFTA-hópsins í samn-
ingalotunni sem hófst
nú í janúar.“
fríverslun og er reiknað, með að
Fríverslunarsvæði Norður-
Ameríku (Mexíkó, Bandaríkin og
Kanada) verði að veruleika um líkt
leyti og Innri markaður EB. Á
Norður-Ameríkusvæðinu eru um
360 milljónir íbúa. Allar þessár
viðræður austan hafs og vestan
endurspegla þróunina í heimsvið-
skiptunum í átt til stærri viðskipta-
heilda og skýra um margt tilveru-
vanda EFTA.
Leiðir þátttaka í EES til aðildar
að EB? Svarið við þessari spurn-
ingu ræðst mikið til af niðurstöðu
samninga um ákvarðanatökuna
innan EES. Nái niðurstaðan of
skammt fyrir EFTA-ríkin þá er
og þá sérstaklega gagnvart Banda-
ríkjunum og Japan. Innan EES
mun aukið fijálsræði leiða til auk-
innar samkeppni sem á að skila
sér í lægra vöruverði til neytenda.
Eftir sem áður munu upprunaregl-
ur og tollaeftirlit vera nauðsyn-
legt, því að EES verður ekki tolla-
bandalag.
Stefnt er að því að EES verði
að veruleika 1. janúar 1993, þ.e.
um leið og innri markaður EB. Til
að auðvelda aðlögun, verða
EFTA-löndin að taka upp gildandi
EB-reglur. Hafi EFTA í upphafi
viðræðna farið fram á undantekn-
ingar til langs tíma frá EB-reglum,
þá hafa Fríverslunarsamtökin snú-
ið við blaðinu síðan og eru nú reiðu-
búin að falla frá flestum fyrirvör-
um, með ákveðnum skilyrðum þó.
Vib á Sjanghæ höfum fengið til liös viö okkur
Kínverjann JIAO YOUNG; en hann starfaði áöur á
Fragrant Hill Hotel
sem er 5 stjörnu hótel í Peking.
JIAO YOUNG valdi saman á tilboösmatseöil
úrval rétta af nýjum matseðli Sjanghæ
og tilreiðir þá eins og honum einum er lagiö.
Tilboðið gildir öll kvöld
frá 29. janúar til 8. febrúar.
FORRÉTTUR
Glóöuð svínarif m/Hoi sin sósu
SÚPA
Szechuansúpa (sterk)
AÐALRÉTTUR
Fiskiseiðar m/sérstakri sósu yfirmatreiðslumeistarans
Kjúklingur m/ostrusósu
Nautakjöt m/chilisósu
og kaffi eba te á eftir
Allir þessir réttir kosta abeins 1.290,- kr.
Frí heimsendingarþjónusta.
Laugavegi 28b, sími 16513
REIKNISTOFNUNOG
ENDURMENNTUNARNEFND
HÁSKÓLA ÍSLANDS
TÖLVUNOTKUN (PC-TÖLVUR)
GRUNNNÁMSKEIÐ
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái trausta grunnþekk-
ingu á aimennri notkun einkatölva. A námskeiðinu er farið vel í
tvö algengustu notkunarsvið einkatölva, þ.e. ritvinnslukerfið Orð-
snilld (WordPerfect) og töflureikni (PlanPerfect) auk MS-DOS stý-
rikerfisins. Ætlast er til að þátttakendur geri æfingar milli tíma
LEIÐBEINANDI:
Ásrún Matthíasdóttir, tölvunarfræðingur og kennari.
TÍMI OG VERÐ:
4. febrúar - 22. apríl (4. mars ekki með), mánudagskvöld kl.
19.30-22.00. Verð kr. 23.500,-. Öll námsgögn innifalin.
Ath.: Verzlunarmannafélag Reykjavíkur, BSRB og SFR styrkja
félagsmenn sína til þátttöku í þessu námskeiði.
Skráning fer fram í síma 694940, en nánari upplýsingar fást í
sfmum 694923 og 694924.
ra S PRENTARAR SEM AÐRIR LIKJA E F T I R EaESiKS
Hágæöa ritvinnsluprentari
Hljóölaus
Gæöaletur
Hewlett Peckard hágsedaprentarar
EINSTAKT TILBOD
Hewlett Packard DeskJet 500 - kr. 63.000, með VSK
Mikið rekstraröryggi
Mjög nettur
Tilbúínn fyrir Windows 3
Góð greiðslukjör 58.590 stgr. m/VSK eða t.d.
MUNALÁN
25% útborgun og 4.427,- á mánuði í 12 mánuði.
Gerðu verðsamanburð.
M ÖRTÖLVUTÆKNI W
TÖLVUKAUP HF ■ SKEIFUNNI 17 ■ SÍMI: 68 72 20