Morgunblaðið - 29.01.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1991
19
„ Morgunblaðið/KGA
Herra Olafur Skúlason biskup setur séra Jón Dalbú Hróbjartsson inn í embætti prófasts í Reykjavíkur-
prófastsdæmi vestra. Til vinstri í kór situr Jónas Gíslason vigslubiskup.
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra:
Jón Dalbú settur prófastur
BISKUP íslands, herra Ólafur Skúlason, setti Jón Dalbú Hróbjarts-
son, sóknarprest í Laugarneskirkju, inn í embætti prófasts í
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra í Laugarneskirkju á sunnudag-
inn. Reykjavík var áður eitt prófastsdæmi en er nú tvö, Reykjavík-
urprófastsdæmi vestra og eystra. Prófastur í Reykjavíkurprófasts-
dæmi eystra er Guðmundur Þorsteinsson, dómprófastur og sóknar-
prestur í Árbæjarkirkju.
Séra Jón Dalbú sagði í samtali
við Morgunblaðið að starfið væri
spennandi og legðist vei í sig.
Hann sagði að prófastarnir tveir
í Reykjavík myndu vinna að sam-
eiginlegum verkefnum í framt-
íðinni. Til dæmis yrði unnið að
samhæfingu í æskulýðsmálum í
söfnuðunum og tekið yrði á mál-
efnum aldraða. Auk þess yrði full-
orðinsfræðsla í grundvallaratrið-
um kristinnar trúar efld.
Sérstakan áhuga sagðist Jón
Dalbú hafa á svokallaðri fjöl-
skylduþjónustu sem byggðist upp
á því að ungu fólki, sem hygðist
ganga í hjúskap, yrði boðið upp á
fræðslu um málefni fjölskyldunn-
ar. Einnig yrði fjölskyldum boðið
upp á fræðslu og aðstoð.
Austasta kirkjan í Reykjavíkur-
prófastsdæmi vestra er Langholts-
kirkja en sú vestasta er Seltjarnar-
neskirkja. Reykjavíkurprófasts-
dæmi eystra nær yfir Kópavog,
Breiðholt, Árbæ og Grafarvog. Tíu
prófastsdæmi eru á landinu öllu.
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
Dökki sogfiskur hugsanlega
stoppaður upp
Dökki sogfiskur, sem rækjubáturinn Driffell BA veiddi í Arnarfírði
á fimmtudag, drapst um borð í Heijólfi á sunnudag. Hugsanlegt er
að súrefnisskortur hafi orðið þessum kynjafiski að aldurtila, að sögn
Kristjáns Egilssonar forstöðumanns Fiska- og náttúrugripasafns
Vestmannaeyja. Dökki sogfiskur verður því ekki á meðal lifandi fiska
í safninu, eins og vonast var til, en Kristján segir að ef til vill verði
fiskurinn stoppaður upp og hafður til sýnis í safninu. Þessi dökki
sogfiskur er sá eini, sem náðst hefur lifandi hér, svo vitað sé. Jón
Halldórsson, skipstjóri á Driffelli, heldur á kynjafiskinum.
BRAUÐRIST E20
RAFMAGNSPAN N A
HANDÞEYTARI
AÐUR KR. 2.995
ÁÐU R KR. 8.900
ÁÐUR KR. 2,930
IMÚ 1.995
IMÚ 5.500
IMÚ 1.990