Morgunblaðið - 29.01.1991, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐID ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1991
Reuter
Því var mótmælt í Riga í Lettlandi í gær að svarthúfurnar svokölluðu, sem eru sovéskar sérsveitir,
handtóku fimm félaga í Þjóðfylkingu landsins 20. janúar síðastliðinn. *
Tökin hert á sovésku efnahagslífi:
KGB fær hlutverk alls-
herjar endurskoðanda
Kunnur harðlínumaður segir að borgarastyrjöld virðist óumflýjanleg
Moskvu. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, hefur fengið öryggis-
lögreglunni KGB aukin völd. Sovéskur ofursti, Viktor Alksnis að
nafni, sem var einn helsti talsmaður þess að herinn léti til skarar
skríða í Eystrasaltsrikjunum, segir að borgarastyijöld virðist óum-
flýjanleg í Sovétríkjunum.
Alksnis, sem er einn hinna
„svörtu ofursta“ eins og lýðræðis-
sinnaðir þingmenn kalla þá, sakar
Gorbatsjov um að hafa svikið
bandamenn sína með því að stöðva
aðgerðir hersins í Eystrasaltsríkj-
unum. Alksnis á sæti í Æðsta
ráði Sovétríkjanna og er helsti leið-
togi þingflokks harðlínumanna
sem nefnist „Sojuz“ eða Samband-
ið. Hann er ofursti í hemum í
Lettlandi og hefur mánuðum sam-
an hvatt til þess að herinn stöðvi
ólguna í Eystrasaltsríkjunum. í
nóvember sagðist hann myndu
hvetja til þess að Gorbatsjov segði
af sér ef hann gripi ekki til rót-
tækra aðgerða.
Jeltsín seg-
ir Gorbatsj-
ov vera að
missa tökin
Washington. Reuter.
BORIS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, sagði í viðtali við
bandaríska sjónvarpsstöð á
föstudag að Míkhaíl Gor-
batsjov, forseti Sovétríkj-
anna, væri að „ganga af göfl-
únum“ og hann óttaðist að
Sovétríkin væru á barmi
borgarastyijaldar.
Jeltsín spáði því að herinn
myndi ekki styðja víðtækar
hemaðaraðgerðir gegn almenn-
ingi þótt Gorbatsjov fyrirskipaði
slíkt. Af þeirri ástæðu hefði
yfirstjórn sumra hersveita verið
„færð undir KGB úr höndum
hersins sjálfs“, sagði Jeltsín.
Jeltsín sagði að fjögur
stærstu lýðveldi Sovétríkjanna,
Rússland, Hvíta-Rússland,
Úkraína og Kazakhstan, myndu
setja á stofn sérstakt ríkjasam-
band ef Sovétstjórnin gerði til-
raun til að hrifsa öll völd í sínar
hendur.
Gorbatsjov samþykkti
aðgerðirnar
Alksnis segir að Gorbatsjov hafi
lagt blessun sína yfir stofunun
Þjóðfrelsisnefndar Litháens. Þegar
aðgerðimar í Litháen hófust fyrir
hálfum mánuði vitnaði herinn til
þess að nefndin færi með lögmæt
völd í landinu. Alksnis segir að
Gorbatsjov hafi hins vegar ekki
staðið við loforð sitt um að skáka
ríkisstjóm Litháens með því að
koma á beinni forsetastjóm í
landinu.
„Forsetinn sveik okkur. Hann
er hræddur við að taka á sig
ábyrgð," sagði Alksnis í viðtali við
vikublaðið Argumentí í Faktí.
Hann líkti þessu við að skurðlækn-
ir hæfi aðgerð á sjúklingi, en skildi
sjúklinginn svo eftir á skurðar-
borðinu. Alksnis sagði ekki útilok-
að að herinn tæki völdin í sínar
hendur í Sovétríkjunum.
Allt var með kyrrum kjömm í
Eystrasaltsríkjunum um helgina.
Talsmaður stjómvalda í Litháen
sagði þó að einn maður hefði slas-
ast þegar hermaður, sem stöðvaði
bifreið hans í Vilnius aðfaranótt
sunnudags til að leita í bílnum,
skaut í jörðina. Kúlan endurka-
staðist og hæfði manninn í fótinn.
FJÓRTÁN manns a.m.k. voru
myrtir fyrir nokkru þegar þeir
reyndu að flýja frá Sovétríkjun-
um til Tékkóslóvakíu. Það er
fréttaritari danska dagblaðsins
Jyllandsposten í Vín sem hefur
þetta eftir tékkneskum þing-
manni, Peter Kulan að nafni.
Kulan fór að landamæruhum í
síðustu viku. Þegar hann kom aftur
tii Prag sagði hann frá því að
fimmtán vopnaðir Sovétmenn,
líklega liðhlaupar úr hernum, hefðu
reynt að flýja yfir til Slóvakíu. Sové-
skir landamæraverðir hefðu stöðvað
Ekki er ljóst hversu mikinn
stuðning Alksnis hefur í hemum.
En háttsettir liðsforingjar í
stærstu borgum Litháens, sem
Reuíers-fréttastofan hefur rætt
við undanfama viku, taka allir
undir skoðanir hans.
Tökin hert á mörgum sviðum
Gorbatsjov gaf út tilskipun á
laugardag þar sem hann heimilar
KGB og innanríkisráðuneytinu að
fara inn í öll fyrirtæki landsins —
þarmeð talin samvinnufyrirtæki
Sovétmanna og erlendra aðila —
og fara yfir reikninga þeirra og
birgðahald. Þetta er að sögn gert
í þeim tilgangi að vinna á svarta-
markaðsbraski og skipulögðum
glæpum. Tilskipun í síðustu viku
um innköllun allra 50 og 100 rúblu
seðla var gerð í sama tilgangi.
Framkvæmd hennar var frestað
til mánaðamóta vegna þess hve
miklu uppnámi hún olii meðal fólks
sem lagt hafði fé til hliðar en sá
fram á að geta ekki fengið nema
1.000 rúblur hvert fyrir stóru
seðlana sína.
Einnig hefur löggæsla verið
hert og verða hermenn og sjóliðar
lögreglu til fulltingis í stærstu
borgum Sovétríkjanna um helgar
og á frídögum. Borgarstjóm
Moskvuborgar hefur fordæmt
þessa síðastnefndu ráðstöfun og
spáir því að herinn noti þessi
auknu völd sín til að koma í veg
fyrir mótmæli sem honum eru
ekki að skapi.
ferð mannanna með ofangreindum
hætti. Tékkneska innanríkisráðu-
neytið sem ber ábyrgð á landa-
mæravörslu segist hafa upplýsingar
um tilfelli sovétmegin landamæ-
ranna sem hafði dauða í för með
sér. Ráðuneytið hefur ekki viljað
gefa nánari upplýsingar.
Tékkneskur blaðamaður sagði
hins vegar í samtali við fréttaritara
Jyllandsposten að blóðbaðið mætti
rekja til þess að fimmtán sovéskir
hermenn hefðu reynt að flýja til
Ungveijalands.
Fjórtán Sovétmenn
myrtir á landamænim
Loftárásir banda-
manna draga úr
olíustreyminu
Dhahran, Lundúnum. Reuter, The Daily Telegraph.
LOFTÁRÁSIR bandamanna á dælustöðvar við Mina al-Ahmadi olíu-
lindina virtust í gær hafa dregið úr rennsli olíu í Persaflóa. Árásin
var gerð á Iaugardag en umhverfissérfræðingar sögðu í gær að fimm
til ellefu milljónum olíufata hefði verið hleypt í sjóinn. Bandamenn
hafa sakað Iraka um skipuleg „umhverfishryðjuverk" en íraska
herstjórnin fullyrðir að olíulekinn hafi komið til eftir árásir banda-
manna á tvö írösk olíuskip. Sérfræðingar segja að áratugir kunni
að líða þar til lífríkið á þessum slóðum kemst aftur í eðlilegt horf
og því er spáð að fiskimið í norðurhluta flóans og dýralíf allt þar
um slóðir hafi orðið fyrir óbætanlegu Ijóni.
Heimildarmenn Reuters- frétta-
stofunnar í Dhahran í Saudi-Arabíu
sögðu í gær að eftirlitsferðir yfir
olíubrákina hefðu leitt í ljós að veru-
lega hefði dregið úr lekanum í sjó
fram. Kváðust þeir ekki geta fullyrt
hvort enn væri einhver olía eftir í
leiðslunum sem liggja frá olíulind-
inni og fram í sjó eða hvort loftárás-
ir bandamanna hefðu ekki skilað
tilaetluðum árangri.
Á laugardag gerðu bandarískar
sprengjuþotur af gerðinni F-lll
loftárásir á olíuleiðslurnar og var
nýjum leysistýrðum flugskeytum
beitt við árásirnar sem fram fóru
um nótt. Norman Schwarzkopf,
yfirforingi herliðs bandamanna í
Saudi-Arabíu, sagði á blaðamanna-
fundi á sunnudag að hann væri
bjartsýnn um að árásin hefði verið
árangursrík. Svo virðist sem
sprengjum hafi verið varpað á dælu-
stöðvar og oiíuleiðslur sem liggja
frá lindinni í olíutanka við strönd
Kúveit.
Umhverfíssérfræðingar við
Persaflóa sögðu í gær að olíuflekk-
Verður landhern-
aði frestað fram
í miðjan febrúar?
Liðhlaupar draga upp dapurlega
mynd af ástandi íraska hersins
London. Daily Telegraph.
HUGSANLEGT er, að flugher bandamanna fari í 70-100.000 árásar-
ferðir á írak og Kúveit — fjórum eða fimm sinnum fleiri en farn-
ar hafa verið — áður en landhernaður hefst. Er þetta haft eftir
heimildamönnum innan bandaríska varnarmálaráðuneytisins, sem
segja, að fyrri spár um 10-daga-stríð hafi verið óskhyggja stjórn-
málamanna en ekki komnar frá mönnum í hernum.
„Ég tel óliklegt, að árásarferð-
ima komist í 100.000 en lofthem-
aðinum er langt í frá lokið,“ sagði
Anthony Cordesman, sérfræðingur
á vegum bandaríska varnarmála-
ráðuneytisins, um helgina. Hann
benti á, að enn væri meginhluti
íraska flugflotans óskemmdur og
svo virtist sem Saddam Hussein
gæti haft samband vjð og stjórnað
hernum. Þá hafa írakar skotið
Scud-eldflaugum á ísrael og
Saudi-Arabíu á hverri nóttu.
Hernaðarsérfræðingum ber þó
saman um, að hemaðarmáttur Ir-
aka minnki með degi hverjum.
Samkvæmt upplýsingum frá
flóttafólki, fréttariturum og gervi-
hnöttum hefur olíuframleiðsla ír-
aka minnkað um helming og allar
helstu raforku-, fjarskipta- og
samgöngumiðstöðvar hafa verið
eyðilagðar. Flugflotinn er ef til
vill óhultur í byrgjunum en hann
kemur ekki að neinu gagni þar.
Annað stig hemaðaraðgerðanna,
árásimar á úrvalssveitir Saddams,
Lýðveldisvörðinn, stendur nú yfir
og verið að meta árangurinn af
árásunum þessa dagana.
Þeir fáu, írösku hermenn, sem
tekist hefur að flýja, hafa gefið
dapurlega mynd af ástandi íraska
hersins. Segjaþeir, að hermennirn-
ir svelti, baráttuhugurinn sé eng-
inn og það eina, sem komi í veg
fyrir fjöldauppgjöf, séu þeirra eigin
varnarvígi, gaddavírsgirðingar og
jarðsprengjubelti.
Margir hallast að því, að land-
hernaðurinn og árás á Kúveit af
sjó hefjist ekki fyrr en um miðjan
febrúar en þá er stystur sólargang-
ur og flóðhæð mest á þessum slóð-
um. Það kemur sér betur fyrir
landgönguliðið, að sjór standi hátt
og þegar næturmyrkrið er svartast
nýtast innrauðar nætursjár land-
hersins til fullnustu.