Morgunblaðið - 29.01.1991, Qupperneq 30
-30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1991
Persaflóastyij öldin;
Island ekki stríðsaðili
>
- segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra
STYRJÖLDIN við Persaflóa var
rædd lengi og ítarlega utan dag-
skrár í sameinuðu þingi í gær.
Kristín Einarsdóttir (SK-Rv)
hafði beðið um þessa umræðu.
Þingmaðurinn óttaðist að Islend-
ingar yrðu þátttakendur í þess-
uiHLÓfriði.
f Kristín Einarsdóttir (SK-Rv)
vísaði til 5 gr. í sáttmála Norður-
Atlanthafsbandalagsins: „Aðilar
eru sammála um að vopnuð árás á
einn þeirra eða fleiri í Evrópu eða
Norður-Ameríku skuli talin árás á
þá alla. Fyrir því eru þeir sammála
um að ef slík vopnuð árás verði
gerð að þá muni hver þeirra í sam-
ræmi við rétt þann til eigin varnar
og sameiginlegrar, sem viðurkennd-
ur er í 51. gr. sáttmála Sameinuðu
þjóðanna, aðstoða aðila þann eða
þá sem á er ráðist með því að gera
þegar í stað hver um sig og ásamt
hinum aðilunum þær ráðstafanir
sem hann telur nauðsynlegar, og
er þar með talin beiting vopnavalds
>til að koma aftur á og varðveita
öryggi Norður-Atlanthafssvæðis-
ins“. Í 9. gr. væru ákvæði um varn-
arnefnd sem gerði tillögur um fram-
kvæmdir m.a. 5. gr. Kristín taldi
íslendinga ekki vera skuldbundna
til að gerast stríðsaðilar og innti
utanríkisráðherra og forstætisráð-
herra eftir því hvort það væri ekki
einnig þeirra skilningur. Hún spurði
einnig um hvort ríkisstjórnin hefði
mótað afstöðu vegna hugsanlegrar
árásar á Tyrkland eða önnur
^NATÓ-ríki.
Rséðumaður rakti einnig hörm-
ungar styijalda, taldi ekki nóg hafa
verið gert til að afstýra þessu of-
beldi sem engan vanda leysti. Henni
væri hulin ráðgáta hvers vegna
ekki hefði verið hægt að fallast á
að kröfu íraka um að leysa Pal-
estínuvandamálið samhliða því að
þeir dregðu heri sína frá Kúvæt.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra sagði stríð þetta
hafa hafíst 2. ágúst síðastliðinn
með hernámi Kúvæts. Hernaðarað-
gerðir gegn árásaraðilanum, Irak,
hafi ekki hafist fyrr en eftir 5 mán-
uði og 12 ályktanir Sameinuðu þjóð-
anna. í þeirri síðustu væri aðild-
»> arríkjum veitt heimild að grípa til
allra ráða í samstarfi við lögmæt
stjórnvöld í Kúvæt til að knýja Irak
til að draga herlið sitt til baka. Við
umræður um þessa ályktun var öll-
um ljóst að vopnavaldi kynni að
verða beitt.
Utanríkisráðherra sagði 5. gr.
Hjörleifur Guttormsson (Ab-
Al) hefur lagt fram fyrirspurn til
utanríkisráðherra um „skipulags-
nefnd um öryggis- og varnarmál".
Þingmaðurinn vill fá upplýst: 1.
Hvað veldur því að utanríkisráð-
herra hefur nýlega skipað nefnd
sem samkvæmt skipunarbréfí er
m.a. ætlað að samræma áætlanir
sem varða: a) varnar- og liðsdreif-
ingaráætlanir varnarliðsins á ís-
landi, vamir hernaðarlega mikil-
Jón Baldvin Hannibalsson
Atlantshafssáttmálans vera að
flestra mati mikilvægustu grein
sáttmálans. 5. grein yrði ekki virk
með neinum sjálfkrafa hætti. Sá
aðili sem yrði fyrir árás gæti farið
fram á að Atlantshafsráðið og varn-
armálanefnd þess kæmi saman og
tæki ákvarðanir á grundveili 5. gr.
Allar ákvarðanir innan Atlants-
hafsráðsins væru teknar með fullri
samstöðu. Utanríkisráðherra sagði
að ef Atlanthafsráðið mæti það svo
að 5. grein yrði virk, væri það
ákvörðunarefni stjórnvalda í hverju
landi hvernig með það mál skyldi
fara. Ráðherrann vildi ekki gefa
yfírlýsingar um hvernig brugðist
yrði við aðstæðum sem ekki væru
enn orðnar.
Ræðumaður greindi m.a. frá því
að Atlanthafsráðið hefur varað ír-
aka við að ráðast á Tyrkland, því
þá gæti 5. grein komið til fram-
kvæmda. Einnig hefðu í öryggis-
skyni þijár flugsveitir verið sendar
til Tyrklands. Tyrkneska þingið
hefði einnig heimilað ríkisstjórn að
verða við beiðni Sameinuðu þjóð-
anna um aðstoð við að framfylgja
ályktunum Sameinuðu þjóðanna.
íslendingar skuldbundnir
Ráðherrann ítrekaði að Island
væri ekki styijaldaraðili í Persa-
flóaátökunum og yrði það ekki með
neinum sjálfkrafa hætti hvorki að
því er varðaði samþykktir Samein-
uðu þjóðanna né hvað varðaði 5.
gr. Atlantshafssáttmálans. Ut-
anríkisráðherra sagði sér þó skylt
að taka fram að íslendingar væru
skuldbundnir með samþykktum
vægra staða, b) birgða- og stjórn-
stöðvaáætlanir til stuðnings lið a),
c) varnar- og liðsaukaáætlanir Atl-
antshafsbandalagsins á Norður-
Atlantshafi, d) stuðningsáætlanir
viðtökulands (Host Natíon Support
Plans), e) neyðaráætlanir Almanna-
varna ríkisins, fjarskipta- og stjórn-
kerfi.
Hjörleifur vil! einnig fá að vita
2. hvetjir hafi verið skipaðir í þessa
nefnd, 3. var haft samráð innan
ríkisstjórnarinnar áður en þessi
nefndarskipan var ákveðin?
Kristín Einarsdóttir
sínum á öllum tólf ályktunum Sam-
einuðu þjóðanna til að fylgja fram
þeirri stefnu sem þar væri mótuð,
og verða við óskum — eftir getu
og vilja — um aðstoð til að fram-
fylgja þessum ályktunum.
Utanríkisráðherra rakti í nokkru
máli hvað ríkisstjórnin hefði gert
til að afstýra þeim ófriði sem nú
væri skollinn á, t.a.m. tillögur ut-
anríkisráðherra Norðurlanda. Þar
var m.a. gert ráð fyrir að Samein-
uðu þjóðirnar lýstu sig reiðubúnar
að beita sér fyrir ráðstefnu um
lausn djúpstæðra og langvarandi
deilumála m.a. milli ísrael og
Araba, sérstaklega Palestínu-
manna. Ræðumaður lagði áherslu
á að þetta væri ekki tenging á
Palestínumálinu og Persaflóaátök-
unum. Tillögurnar norrænu ráðher-
ranna voru skilyrtar við að írakar
drægju herlið sitt frá Kúvæt.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra tók undir málflutning
utanríkisráðherra um að ísland yrði
ekki sjálfkrafa stríðsaðili. Eyjólfur
Konráð Jónsson (S-Rv) sagði m.a.
augljóst að fjölþjóðaher banda-
manna væri her Sameinuðu þjóð-
anna. Þetta væri styijöld Samein-
uðu þjóðanna. Við hefðum stutt
ailar ályktanir þeirra samtaka og
bærum sömu siðferðislega ábyrgð
og aðrar fijálsar þjóðir. Ólafur
Ragnar Grímsson lagði áherslu á
að íslendingar væru ekki í stríði
og yrðu það ekki nema þeir ákvæðu
það sjálfir.
Ásgeir Hannes Eiríksson (B-
Rv) taldi engum blöðum um að
flétta að ísland væri komið í stríð
vegna þeirra samþykkta og sátt-
mála sem við værum aðilar að.
Ásgeir taldi orð 5. gr „sem hann
telur nauðsynlegar" vera túlkunar-
atriði. Væri átt við þann aðila sem
yrði fyrir árásinni eða þann aðila
sem ætti að koma þeim fyrrnefnda
til hjálpar? Stefán Valgeirsson
(SFJ-Ne) taldi margt óljóst í langri
umræðu. Talað væri út og suður.
„Hver er niðurstaðan? Rugl.“ Olaf-
ur Þ. Þórðarson (F- Vf) sagði
m.a. að menn yrðu að svara því
hvað skyldi gera ef ofbeldismönnum
skyldi liðið að vaða yfir aðra. Anna
Ólafsdóttir Björnsson (SK-Rn) og
Guðrún Helgdóttir (Ab-Rv) töluðu
mjög máli friðar og gagnrýndu vit-
firringu styijaldar og einnig
stríðsgleði fjölmiðla.
Stuttar þingfréttir:
Varið land
Sl
HUGEFLI
Lærðu að virkja óbeislaða
orku undirvitundarinnar á
námskeiði sem byggir á
nýjustu rannsóknum í
Dáleiðslu, Gestalt og Neuro
Linguistic Programming
aðferðafræðinni (NLP).
KYNNING
í KVÖLD
að Hótel Loftleiðum
kl. 20.30
AÐGANGUR
ÓKEYPIS OG
ÖLLUM OPINN
NAMSKEIÐ
MEÐ
ÁBYRGÐ!
☆
Á
ÆSIR
Morgunblaðio/Arni Sæberg
Prófessor Jón Steffensen og þýski minjavörðurinn Karl-Heinz Opol-
ony virða fyrir sér nokkra muni sem geymdir eru í Nesstofu.
Læknasafnið í Nesstofu:
Ýmsir munir dýr-
mætir fyrir sögu
læknisfræðinnar
- segir þýskur minjavörður sem að-
stoðar við viðgerðir
ÝMSIR munir í Nesstofu eru fá-
gætir og dýrmætir fyrir sögu
læknisfræðinnar. Þetta er álit
þýsks minjavarðar sem staddur
er hér á landi til aðstoðar við
viðgerðir á munum tengdum
læknisfræðinni í Nesstofu á Sel-
tjarnarnesi.
Karl-Heinz Opolony hefur starf-
að í sjö ár við læknasafnið í Ingol-
stadt í Bæjaralandi, eitt besta safn
Þýskalands á þessu sviði. Það er
Nesstöfa og Goethe-stofnunin á ís-
landi sem standa að komu hans
hingað til lands. Karl-Heinz sagði
það hafa komið sér mjög á óvart
hve margir sjaldgæfir munir væru
til í Nesstofu.
„Jón Steffensen hefur unnið mik-
ið og gott starf við að safna saman
og skrá muni. Hér eru margir dýr-
gripir, ekki aðeins fyrir læknisfræð-
ina sem slíka, heldur einnig fyrir
söguna og alþýðumenninguna,"
segir Karl-Heinz.
Tvennt kom honum einkum á
óvart. „Það er með ólíkindum
hversu vel munir hafa varðveist hér
á landi, þrátt fyrir veðurfarið sem
þið búið við og svo er skráning
Jóns mjög nákvæm og vel gerð.
Það er þó mikil vinna eftir til að
koma öllu í sýningarhæft stand, en
þetta er góð byijun.“
Safnið í Ingolstadt hefur aðstoð-
að samskonar safn í Leníngrad og
nú hafa þeir tekið Nesstofu undir
sinn verndarvæng. Safnið ætlar að
gefa Nesstofu ýmis rafmagnstæki
sem tengjast læknisfræðinni og
einnig vonaðist Karl-Heinz til að
koma aftur hingað til enn frekari
viðgerða.
Jón Steffensen sagði mikinn feng
í að fá Karl-Heinz og þau tengsl,
sem nú væru komin á við safnið í
Ingolstadt, væru mikilvæg. „Hann
er mjög natinn við að ganga vel frá
munum sem tímans tönn hefur far-
ið misjöfnum höndum um. En til
að hægt sé að gera safnið gott
þarf fé og það hefur skort. Það er
ekki einu sinni nægilegt fé til að
halda í horfinu á Þjóðminjasafn-
inu,“ sagði Jón.
Þeir sem áhuga hafa á því að
skoða læknasafnið í Nesstofu geta
haft samband við Þjóðminjasafnið.
Klarinettleikarar á
Háskólatónleikum
VORSTARF Háskólatónleika
héfst miðvikudaginn 30. janúar
kl. 12.30 í Norræna húsinu. Alls
verða 12 tónleikar á misserinu.
Á fyrstu tónleikunum koma fram
klarinettleikararnir Kjartan
Oskarsson, Oskar Ingólfsson og
Sigurður I. Snorrason. Kjartan leik-
ur auk þess á basset-horn.
/ -
Á tónleikunum verða flutt verk
eftir þijá miðevrópska tónsmiði.
Fyrsta verkið er Kórall eftir ung-
verska tónskáldið Laszló Kalmar (f.
1931). Þá munu þeir flytja Diverti-
mento nr. 5 Kv 439b eftir Wolfgang
Amadeus Mozart (1756-1791). Að
lokum leika þeir Fimm þætt op. 112
eftir Jenö Takács (f. 1903).
(Frcttatilkynning)