Morgunblaðið - 29.01.1991, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANUAR 1991
Tökum aó okkur hverskyns þorraveislur.
Matreiðslumenn með áratuga reynslu.
Þorramatur við öll tækifæri.
í trogunum okkar er:
Sviðasulta, hrútspungar, lundabaggar,
bringukollar, lifrarpylsa, blóðmör,
hangikjöt, rófustappa, harðfiskur,
hákarl, flatbrauð, smjör, stld, pottbrauð,
ítalskt salat.
Verð kr. 1.190.-
Minning:
Sigríður Bjarna-
dóttir frá Hömrum
Fædd 14. febrúar 1893
Dáin 19. janúar 1991
Sigga á Hömrum — orðin hljóma
í eyrum mér eins og ljúf tónlist, ljúf
eins og hún sjálf, þessi kona sem
hefur orðið mér kærari en nokkur
annar mér vandalaus. Frá því ég
nokkurra mánaða gömul kom í
fyrsta skipti í baðstofuna til hennar
á Hömrum hafa leiðir okkar legið
saman, í nálægð og íjarlægð i hart-
nær hálfa öld. Hamrar, Sigga og
Jóhannes urðu hluti af lífi mínu, þar
sem saman tvinnuðust leikir og
störf, lífsreynsla og, þroski, gamall
og nýr tími. Og nú er hún horfin á
braut og löngu og farsælu lífsstarfi
lokið. Eftir stöndum við öll sem elsk-
uðum hana og þökkum fyrir að hafa
fengið að hafa hana hjá okkur svo
lengi-.
Sigríður Bjarnadóttir fæddist í
Minnibæ í Grímsnesi 14. febrúar
1893. Foreldrar hennar voru Bjarni
Jörgensson bóndi þar og kona hans
Ragnhildur Jónsdóttir. Bjarni vár
sonur Jörgens bónda á Stærribæ,
Bjarnasonar og konu hans, Stein-
unnar Bjarnadóttur bónda á Vatns-
leysu, Einarssonar. Móðir Steinunn-
ar var Vigdís Halldórsdóttir, prests
á Torfastöðum, Þórðarsonar. Móðir
Vigdísar var Vigdís Pálsdóttir,
prests á Torfastöðum, Högnasonar,
„Presta-Högna“, prest á Breiðabóls-
stað í Fljótshlíð, Sigurðssonar. Móð-
ir Vigdísar Pálsdóttur var Þórdís
Asmundsdóttir, bónda í Asgarði,
Sigurðssonar, föður Sigurðar, lan-
gafa Jóns forseta. Ragnhildur, móð-
ir Sigríðar, var dóttir Jóns söðla-
smiðs, Björnssonar, á Arakoti á
Skeiðum, síðast á Hömrum. Móðir
Jóns var Ragnhildur Jónsdóttir,
prests á Klausturhólum, Jónssonar,
prests í Hruna, Finnssonar, biskups
í Skálholti, Jónssonar. Móðir Ragn-
hildar var Margrét Kolbeinsdóttir,
prests og skálds í Miðdal, Þorsteins-
sonar. Móðir Ragnhildar og amma
Sigríðar var Katrín Snorradóttir,
bónda aðHömrum í Grímsnesi, Jóns-
sonar og konu hans Sigríðar Einars-
dóttur, bónda á Hrygg í Hraungerð-
ishreppi, Jónssonar.
Að Sigríði stóðu eins og sjá má
styrkir stofnar sunnlenskra ætta þar
sem saman fléttuðust greind og
dugnaður. Sjálf var hún einstaklega
vönduð kona til orðs og æðis og lét
alls staðar gott af sér leiða á langri
ævi. I tæp 98 ár lifði hún og starf-
aði, óijúfanlega tengd bænum sínum
Hömrum, þar sem hún sleit barns-
skónum og stýrði búi í nær hálfa
öld. Það var sem forlögin hefðu
ætlað henni Hamra þar sem forfeður
hennar höfðu búið á þriðju öld, sex
ættliðir mann fram af manni. Þegar
hún er aðeins rúmlega ársgömul, sú
níunda í röð tólf systkina, kemur
móðursystir hennar Ingibjörg hús-
freyja á Hömrum að Minnibæ. Ingi-
björg og maður hennar Jörgen, sem
var föðurbróðir Sigríðar, höfðu átt
fimm börn og misst þau öll. Erindi
Ingibjargar var að biðja systur sína
að gefa sér barn í lítinn kjól sem
hún hafði meðferðis. Ragnhildur
kvaðst ekki vilja gefa henni barnið
en féllst á að lána henni Sigríði í
litla kjóiinn.
Þar með voru örlög Sigríðar ráðin
og hún tengd Hömrunum órjúfandi
böndum. En allt er í heiminum hverf-
ult og þegar hún var rétt rúmlega
fimm ára andaðist fóstra hennar.
Sorgin sat lengi í litlu barnshjarta.
Sigríður var áfram hjá Jörgen
fóstra sínum og föðurbróður á
Hömrum, en við búsforráðum tóku
nú Sigríður móðursystir hennar og
maður hennar Kristinn Jónsson.
Árið 1904 keypti Kristinn vesturbæ-
inn á Hömrum, en þar hefur löngum
verið tvíbýli, og ólst Sigríður upp
þar uns hún stofnaði sitt eigið heim-
ili í austurbænum árið 1920.
Ragnhildur móðir Sigríðar mun
hafa viljað taka litlu stúlkuna sína
til sín er fóstra hennar dó, en Sigríð-
ur móðursystir hennar sem hafði að
hluta alist upp með henni mátti á
ekki af henni sjá. Lítið var um skóla-
göngu fyrir tæpri öld hjá þeim sem
þá uxu úr grasi. Tólf ára fékk hún
þær sex vikur náms sem áttu eftir
að endast henni allt lífið, og vorið
1907 fermdist hún upp á kverið.
1917 fékk hún svo tilsögn í hannyrð-
um hjá Sigríði Hildi systur Guð-
mundar á Efri-Brú. Aðeins einu sinni
dvaldi Sigríður fjarri Hömrum á
sínum yngri árum en það var vetur-
inn 1918-19 er hún fékk tilsögn í
matreiðslu og fatasaumi hjá Sigríði
í Einarshúsi á Eyrarbakka, systur
Guðmundar oddvita. Vitnaði hún oft
í veru sína þar og hversu ánægjuleg
og gagnleg hún hefði verið.
Það var svo árið 1920 sem Sigríð-
ur giftist manni sínum Jóhannesi
Jónssyni frá Þórisstöðum og bjuggu
þau svo allan sinn búskap á Hömr-
um, en Jóhannes lést 20. febrúar
1968. Þau Sigrður eignuðust þijú
börn, Ingibjörgu Tönsberg, kennara
í Reykjavík, Jóhönnu, kennara í
Reykjavík og Gunnar, bónda á Höm-
rum.
Sigríður var komin á miðjan aldur t
er ég man fyrst eftir henni. Hamra-
heimilið hafði þó áður komið við
sögu hjá fjölskyldu minni þar sem
föðurbróðir minn Elías ólst þar upp
að hluta hjá Sigríði móðursystur
Sigríðar og Kristni manni hennar.
Auk þess kom faðir minn á heimili
RAÐAUGIYSINGAR
FÉLAGSSTARF
SJÁLFSTÆDISPLOKKURINN
F É L A G S S T A R F
Akranes - þorrablót
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akranesi heldur sitt árlega þorra-
blót föstudaginn 1. febrúar nk. á Heiðabraut 20 kl. 20.00.
Þorramatur, glens og söngur.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir fimmtudagskvöld til Óla Grét-
ars í síma 11135 eða 12800. Mætið vel og takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
Akureyri - Akureyri
Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri verður hald-
inn í Kaupangi við Mýrarveg miðvikudaginn 30. janúar kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar.
3. Kosningar.
4. Önnur mál.
Fulltrúar fjölmennið.
Stjórnin.
Sauðárkrókur
Almennur fundur verður í Sjálfstæðisfélagi
Sauðárkróks í dag, þriðjudaginn 29. janúar,
kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Ræðumaður fundarins verður Hjálmar
Jónsson.
2. Kosning fulltrúa á landsfund.
3. Almennar umræður.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Sjálfstæðiskonur
á Sauðárkróki!
Aðalfundur Sjálfstæðiskvennafélags Sauðárkróks verður haldinn i
Sæborg miðvikudaginn 30. janúar kl. 20.30.
Dagkrá: ,
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kjör landsfundarfulltrúa.
3. Inntaka nýrra félaga.
4. Önnur mál.
Kaffiveitingar. Konur fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
Aðalfundur
Sjálfstæðiskvennafélagið Eygló heldur aðalfund fimmtudaginn 31.
janúar kl. 20.30 í Ásgarði, félagsheimili sjálfstæðismanna.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosningar framundan.
3. Önnur mál.
Sjálfstæðiskvennafélagið Eygló,
Vestmannaeyjum.
Vestmannaeyjar:
Aðalfundur
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Vestmannaeyja verður haldinn í As-
garði í kvöld, þriðjudaginn 29. janúar 1991, kl. 21.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Fulltrúar á landsfund.
3. Önnur mál.
Aðalfundur Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík
Aðalfundur Fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfé-
laganna í Reykjavik
verður haldinn í
Átthhagasal Hótels
Sögu í kvöld, þriðju-
daginn 29. janúar,
kl. 20.30 stundv-
íslega.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf
samkvæmt reglugerð Fulltrúaráðsins.
2. Ákvörðun um framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik við
næstu alþingiskosningar.
3. Ræða: Davíð Oddsson, borgarstjóri.
Fundarstjóri: Ólafur B. Thors.
Siglufjörður
Fulltrúaráðsfundur verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu 29. janúar kl.
20.30.
Fundarefni:
1. Kjör landsfundarfulltrúa.
2. Önnur mál.
Stjórn fulltrúaráðs.
Ráðstefna um ferðamál
í Valhöll, Háaleitisbraut 1, Reykjavík, laugardaginn 2. febrúar kl.
13.00-16.00.
Dagskrá:
Kl. 13.05 Ráðstefnan sett:
Sigríður A. Þórðardóttir, formaður Landssambands sjálf-
stæðiskvenna.
Kl. 13.10 Þróun ferðamála á Islandi:
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri. Fyrirspurnum svar-
að að erindi loknu.
Kl. 13.50 jsland, land gæða, hreinieika og heilbrigðs lífs:
Baldvin Jónsson, markaðsstjóri. Fyrirspurnum svarað að
erindi loknu.
Kl. 14.30 Kaffi.
Kl. 14.15 Auknar vinsældir íslands fyrir ráðstefnuhald og hvatn-
ingarferðir:
Hildur Jónsdóttir, markaðsstjóri. Fyrirspurnum svarað að
erindi loknu.
Kl. 15.25 Hvert stefnir i ferðamálum á íslandi?
Friðrik Sophusson, alþingismaður. Fyrirspurnum svarað
að erindi loknu.
Kl. 16.00 Ráðstefnuslit.
Ráðstefnustjóri: Þórunn Gestsdóttir, ritstjóri.
Landssamband sjálfstæðiskvenna.
Stjórnin.
Stjórnin.