Morgunblaðið - 29.01.1991, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1991
39
án þess að æðrast og án þess að
kvarta.
Hún var dugleg, samviskusöm
og ósérhlífin og það mátti treysta
því að hún mætti til vinnu ef hún
á annað borð komst fram úr rúm-
inu. Það var einkennandi fyrir
Mæju að hún sagði oft áður en hún
veiktist: Maður má þakka fyrir að
hafa heilsu til þess að geta unnið.
Eftir að hún veiktist breytti hún
þessu og sagði: Maður má þakka
fyrir á meðan maður getur unnið.
En hún gerði betur og vann lengur
en getan leyfði og fannst það einna
erfiðast við veikindin þegar hún
varð að hætta því.
Mæja var góð manneskja og tal-
aði aldrei illa um neinn. Hún var
vinur í raun og rækti sína vini vel
og þá skipti ekki máli hvort vinkon-
uraar voru í næsta nágrenni, fyrir
vestan, norðan eða erlendis, það
reyndist henni létt að halda góðu
sambandi við þær allar. Þessi rækt-
arsemi skilaði henni góðum arði í
veikindunum og þá átti hún marga
góða að. Hún var líka einstaklega
trygglynd og besti vitnisburður um
það er hvemig hún annaðist Gunnu
systur sína sem var alltaf barn þó
hún eltist. Gunna var, eins og
Mæja orðaði það sjálf, „hennar
bam“ og þar sem hún eignaðist
ekki barn sjálf naut Gunna allrar
hennar móður- og systurumhyggju
og ástúðar sem í henni bjó.
Það var aðdáunarvert að sjá hve
óþreytandi hún var að reyna að
gleðja Gunnu, fara með hana það
sem hana langaði og létta henni
lífið á allan hátt. Hennar eigin veik-
indi viku fyrir veikindum Gunnu og
þegar hún dó brosti Mæja í gegnum
tárin og sagði: Það er gott að hún
þarf ekki að þjást lengur og að
henni líður vel núna.
Þetta segjum við um Mæju nú,
aðeins tæpum þremur mánuðum
seinna. Mæja var ’ einnig í mjög
nánu sambandi við móður sína,
Emu, og þegar hún bjó ekki hjá
henni hittust þær mæðgur nær
daglega.
Eftir að systurnar veiktust um-
vafði Erna þær móðurkærleika
sínum, hún hætti að vinna til að
geta hugsað um stelpurnar sínar,
eins og hún sagði, og vakin og sof-
in annaðist hún þær og gerði allt
sem hún gat fyrir þær gert. Hun
hefur verið ólýsanlega dugleg í
þessum miklu raunum sem hún
hefur þurft að þola og fyrir hana
fylgir þessi litla bæn:
Ó, Guð minn, vek þá hugsun mér í huga
við hveija neyð og sorg og reynslusár,
þá styrkist ég og læt mig böl ei buga,
og brosið skín í gegnum öll mín tár.
(Matth. Jochumsson þýddi.)
En í myrkrinu er ennþá ljós og
hennar ljós eru synirnir, tengdadæt-
ur og barnabörnin sem hafa stutt
hana og verið henni sá styrkur sem
hún þarfnaðist í þessari miklu sorg.
Guð gefi Emu og þeim öllum
styrk.
Við vitum að Mæja á góða heim-
komu í vændum, þar sem bæði fað-
ir hennar og Gunna systir taka á
móti henni.
Við biðjum þeim systrum Guðs
blessunar og þökkum þeim sam-
fylgdina.
Starfsfélagar í Glerborg
108 Reykjavík. Sími 31099
Björgvin Eiríksson,
Eskifirði - Minning
Fæddur 15. febrúar 1954
Dáinn 31. desember 1990
Þegar ég tek mér penna í hönd
til að minnast með fáeinum kveðju-
orðum góðs bernskuvinar míns,
Björgvins Eiríkssonar, finn ég best
hve mikils ég sakna hans, enda
þótt samverustundir okkar hafi allt-
of fáar verið síðan við lukum námi
við Gagnfræðaskóla Eskifjarðar.
En þá skildu leiðir og við höfum
lengst af síðan búið hvor í sínum
landshlutanum.
Er ég nú lít til baka, er margs
að minnast af kynnum mínum við
Björgvin. Hann var góður og far-
sæll bekkjar-, leik- og vinnufélagi.
í 9 ár vorum við bekkjarbræður.
Fyrst í barna- og unglingaskóla
Eskifjarðar og síðan í hinum ný-
stofnaða gagnfræðaskóla á sama
stað. Vorum við I fyrsta árgangin-
um, sem útskrifaðist sem gagn-
fræðingar frá Eskifirði.
Björgvin var ávallt samviskij-
samur í námi sem vinnu og hið
mesta prúðmenni í allri framkomu.
Þær voru margar stundirnar, sem
við áttum saman í leik, svo sem á
skíðum, skautum, stýrissleðum, í
knattspyrnu, en þar þótti Björgvin
standa vel fyrir sínu. Og ófáar fór-
um við gönguferðirnar upp í hlíðina
fyrir ofan bæinn á veturna, og þá
oftast upp með gijótánni.
Þá minnist ég og þess sumars,
er við sem unglingar unnum við
sorphreinsun á Eskifirði með þeim
Valgeiri Daviðssyni og Lárusi
Kjartanssyni. Þetta þótti nú fremur
óþrifaleg vinna í þá daga, enda
aðstæður á alla vegu allt öðruvísi
og verri en þekkist í dag. Krakkarn-
ir stríddu okkur Björgvin mikið á
þessari vinnu okkar, en við snerum
bökum saman og bárum okkur vel.
Já, allt þetta voru ógleymanlegir
og góðir tímar, sem nú skjótast upp
á yfirborðið við skyndilegt fráfall
Björgvins, sem lést á besta aldri,
aðeins tæplega 37 ára.
Foreldrar hans voru _ Oddný
Björgvinsdóttir og Eiríkur Ólafsson,
sem um árabil ráku sjoppu og
bensínafgreiðslu Skeljungs á Eski-
firði. Oddný lést fyrir aldur fram
árið 1974, þá 7 barna móðir.
Björgvin, sem var afar viðkvæm-
ur persónuleiki, tók skyndilegt frá-
fall móður sinnar mjög nærri sér.
Og er mér nær að halda að hann
hafi seint náð að sætta sig við orð-
inn hlut í þeim efnum.
í nokkur ár bjó Björgvin í
Reykjavík. Hóf hann þar nám við
Vélskóla íslands, auk þess sem
hann keypti sér þar íbúð. En at-
vinna hans var lengst af sjó-
mennska.
Sumarið 1990 flutti hann svo til
æskustöðvanna og réð sig sem há-
seta á skuttogarann Holmanes
SU-1 frá Eskifirði. Björgvin þótti
samviskusamur og duglegur starfs-
kraftur og því eftirsóttur í vinnu.
En Björgvin gekk ekki heill til
skógar hvað heilsu varðaði. Átti
hann á tíðum erfiðar stundir sökum
lasleika, sem hann var haldinn. En
að hann skyldi kallaður á brott svo
skjótt sem raun hefur orðið á kom
öllum á óvart.
Um leið og ég kveð góðan vin
og félaga, Björgvin Eiríksson, og
óska honum velfarnaðar á nýjum
leiðum, sendum við Bára Eiríki föð-
ur hans og systrum svo og öðrum
aðstandendum okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur.
Megi minningin um góðan dreng
vera þeim huggun harmi gegn.
Að leiðarlokum kveð_ ég minn
gamla vin með orðum Jonasar:
Dáinn, horfmn, harmafregn
hvílíkt orð mig dynur yfir.
En ég veit að látinn lifir
það er huggun harmi gegn.
Emil Thorarensen
t
Bróðir okkar,
GUÐMUNDUR JÓHANNESSON,
Svínavatni,
Austur-Húnavatnssýslu,
lést í héraðssjúkrahúsinu Blönduósi 25. janúar sl.
Steingrímur Jóhannesson,
Helga Jóhannesdóttir.
t
Möðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR HREFNA SIGFÚSDÓTTIR,
Valfelli,
Vogum,
lést á Landspítalanum 27. janúar sl.
Sólveig Jónsdóttir, Ólafur Karlsson,
Sigfús Jónsson, Bergljót Sigurðardóttir,
Kristján Jónsson,
Finnur Jónsson,
barnabörn óg barnabarnabörn.
t
Móðir mín,
UNNUR HERMANNSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 25. janúar.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 1. febrúar
kl. 10.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóhanna Antonsdóttir.
t
Útför
ÞÓRU ÞORSTEINSDÓTTUR
frá Háholti,
Furugerði 1,
sem andaðist 18. janúar, verður gerð frá Kirkju Óháða safnaðar-
ins v/Háteigsveg, miðvikudaginn 30. janúar kl. 13.30.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna,
Þóra Skúladóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
mannsins míns, föður, tengdaföður og afa,
INGÓLFS TÓMASSONAR,
Lönguhlið 25,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á hjartadeild Landspít-
alans fyrir góða umönnun og hlýju öll þessi mörgu ár.
Herfríður B. Tómasdóttir,
synir, tengdadætur og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
STEINUNNAR AUÐUNSDÓTTUR,
Baldursgötu 15.
Sigrún Bergsteinsdóttir,
Sigríður Bergsteinsdóttir,
Guðbjörg Bergsteinsdóttir,
Georg Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur hlýhug við andlát
og útför móður okkar, fósturmóður, tengdamóður og ömmu,
SIGURJÓNU EINARSDÓTTUR
frá Siglufirði.
Anna Jónsdóttir,
Gunnlaugur Jónsson,
Sigríður Samúelsdóttir,
Þuríður Andrésdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför föður okkar og tengdaföður,
ÁRNA SÆMUNDSSONAR,
Bala,
Þykkvabæ.
Lovísa Anna Árnadóttir,
Sigríður Theódóra Árnadóttir,
Guðlaugur Árnason,
Svava Þuríður Árnadóttir,
Rut Árnadóttir,
Óskar Gfslason,
Guðrún Guðnadóttir,
Jón Árnason,
Unnsteinn Þorsteinsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, sonar og bróður,
GÍSLAS. REIMARSSONAR,
Háaleiti 28,
Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss og Heilsugæslu
Keflavíkur fyrir ómetanlegan stuðning.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Guðrún Sigurvaldadóttir,
Þorbjörn Gislason,
Gunnar Gislason,
Jóhanna Gísladóttir,
Reimar Marteinsson
og systkini.
Lokað
Afgreiðslur okkar verða lokaðar frá kl. 12.00
þriðjudaginn 29. janúar vegna jarðarfarar MARÍU
SOPHIU BJARNADÓTTUR.
Glerborg hf.