Morgunblaðið - 13.04.1991, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 13.04.1991, Qupperneq 57
JOAQHAOUAJ QIGAJHM'JOflOM 1 LAUGARDAOUR 13. APRIL 1991 -57 I I I I I I I I Vinniim gegn hvaladrápi VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS ?U£'..-ykíd(K$- i.f* \ Til Velvakanda. Margt hefur verið rætt og ritað að undanförnu um nauðsyn þá, að taka aftur upp veiðar á hrefnum og öðrum stórhvelum, og í sjón- varpsþáttum hafa þessi mál borið á góma. Hinir gróðafíknu sjá engar hindr- anir í vegi gegn hvaladrápi, aðrar en nokkra afturhaldsseggi á vegum alþingis. Hvalveiðimenn horfa stjörfum augum á væntanlegan hagnað, en loka algjörlega augum fyrir þeim skelfilegu þjáningum, sem þessar veiðar valda dýrunum. Að mínu mati — og flestra ann- arra — ætti aldrei að leyfa veiðar á hvölum, nema þá helst vegna knýjandi nauðsynjar, — sem nú er ekki fyrir hendi, og alls ekki nema alveg væri tryggt, að þær kostuðu dýrin engar þjáningar. En það er nú alveg víst, að þjáningalaus aflíf- un hvala þekkist ekki, drápstæknin er ekki á því stigi, enda hirðuleysi um slík atriði oft í lágmarki. Enn er því í fullu gildi ljóð Höllu frá Laugabóli, þeirrar merkiskonu, sem mjög vel setti sig inn í spor annarra, og fann til með þeim, sem þjáningar liðu. í kvæði sínu um hrefnuna mælir hún á þessa leið: Loksins er hún alveg dauð, upp að þurru landi dregin, margur sér þann mikia auð matarþurfi, og verður feginn, hrefnukjötsins fína, feita, flestir munu glaðir neyta. Athupll nú einhver spyr er nú hrefnan fljót að deyja? Svarið verður svo sem fyr, sjö tíma hún varð að heyja stríð við menn og dapran dauða, dröfn er svelgdi blóðið rauða. Bægslum fast hún barði í sjó, blóðið rann úr særðu holdi, þannig menn og mótor dró, mikið var hvað skepnan þoldi, saklaus fyrir seka kvalin sjávarhetja fjell í valinn. Loðkápa forsetans við útförina ósmekkleg’ Fyrr í vetur þegar íslenski forset- inn mætti í útför Olafs Noregskon- ungs ásamt fyrirmönnum alls stað- ar að úr veröldinni stakk eitt í aug- un flestu öðru fremur. En það mátti greinilega sjá í öllum heimsins fréttatímum að einn þjóðarleiðtogi heimsins kinokar sér ekki enn við að klæðast og nota loðfeld sér til þæginda en þjóð sinni og sjálfum sér til minnkunnar í augum heims- byggðarinnar. En það var annars ástkær forseti vor frú Vigdís Finn- bogadóttir. Vita forsetinn og helstu fataráð- gjafar hans ekki að vart finnst nokkur þjóðarleiðtogi í heimi hér sem notar enn í dag loðfeld við opinber störf, og reyndar ekki held- ur í einkaerindum? En svo er að sjá að ekki hafí þessi viðhorfsbreyting í aukinni mannúð í garð dýra á öll- um Vesturlöndum náð til fóstur- jarðarinnar. Og er það undarlegt mjög í öllum alþjóðasamskiptunum nú á tímum. Það er greinilegt að smælingar heimsins sem urðu svo ólánssamir að vera skapaðir með loðfeld sér til hlýju og varnar verði enn að greiða það verk skapara síns með lífi sínu hér á landi. Og líka að þessir sömu smælingjar verði að halla sér upp að einhveijum öðrum miskunnsömum samveija en for- seta íslenska lýðveldisins. Því þar á bæ eru greinilega sumir jafnari og aumari en aðrir. Er það dapurlegt til þess að vita nú á tímum aukinn- ar umræðu um meiri samúð og virð- ingu í garð flestra hinna dýranna sem gista þessa plánetu með okkur samveijunum. Því legg ég til að flaggað verði í hálfa stöng fyrir loðdýrunum í til- efni alls þessa á afmælisdag Ólafs heitins Noregskonungs þann 2. júlí í sumar, eins mikill dýravinur og hann var í þessu lífi hér að sögn þeirra sem til þekktu. Það höfum við loðdýravinir að minnsta kosti hugsað að gera. Magnús H. Skarphéðinsson Verndum þessi stóru og fögru dýr hafsins. Verum þeim vinir en ekki óvinir. Þeir eru á því haf- svæði, sem við eignum okkur. Rán- yrkja slík leiðir ekki til góðs. Stofn- um heldur til skoðunarferða handa innlendum og erlendum ferðamönn- um á hvalaslóðir. Slíkar ferðir yrðu heilladrýgri en hvaladráp, og mundu e.t.v. einnig gefa mikið í aðra hönd. Njótum þeirra töfra, sem skoðun á hinu stórbrotna dýralífi hafsins hefur upp á að bjóða, án allrar löngunar til dráps og útrým- ingar. Ingvar Agnarsson Skipstj órnarmenn Verið ávallt minnugir ábyrgðar ykkar á öryggi skipveija. Sjáið um að öll öryggistæki séu í lagi og að hver einasti skipveiji kunni meðferð þeirra og viti hvernig og hvað hann eigi að gera á neyðarstundu. HÚSFÉLÖG ATH! Gluggaþvottur Gerið pantanir tímanlega. HÖRÐUR ÓLAFUR Uppl.: s: 45246 — 666736 . Hreinar rúður í sumar og sól ------ - - - ■ Geymiö auglýsinguna- íslandsmeistaramótið ■ VAXTARÆKT 1991 verður haldió ó, 14. apríl HÓm ISLMÖ Forkeppni byrjar kl. 14.00 HREirSTI Veró aógöngumiÓD kr. 500,- Úrslitakeppni byrjar kl. 20.00 Veró aógöngumiða kr. 1.300,- Borðhald byrjar kl. 18.30 Verð ó mat kr. 2.000,- Jón Páll kynnir Óvænt skemmtiatriði Boróopantanir ó Hótel íslondi Forsalo aðgöngumióa ó líkamsræktarstöðvum Happdrætti. Dregió veróur úr seldum mióum ó úrslitakeppninni. Glæsilegasta vaxtaræktarmót f ró upphafi MORGUNFUHDUR í MÚLAKAFFI I 4 4 í Mest seldu rúmin í Bandaríkjunum. Hágæða dýnur í mörgum verðflokkum. Marco Opið virka daga frá kl. 10—18, laugardaga frá kl. 11—14. Langholtsvegi 111, sími 680690 Magnús Jónsson og Valgerður Gunnarsdóttir, frambjóðendur Alþýðuflokksins í Reykjavík, halda fund í Múlakaffi, , laugardagsmorguninn 13. apríl kl. 9.30. Komið og kynnist skýrri stefnu jafnaðarmanna, valkosti gegn stefnuleysi. ^ísland í A-flokk!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.