Morgunblaðið - 22.05.1991, Qupperneq 14
Ht-
leei ÍAM ,S2 ÍIUDAaUXIVQlM GiaAJHMUOÍIOM
22. MAl 195T
Sönghópurinn Camerata Vocale.
CAMERATA VOCALE
Kirkjulistahátíð
__________Tónlist______________
Jón Ásgeirsson
Sönghópurinn Camerata Vocale
frá Freiburg hélt tónleika á annan
í hvítasunnu í Langholtskirkju en
þessi frábæri kór er hér í heimsókn
á vegum kirkjulistahátíðarinnar. Á
efnisskránni voru söngverk eftir
Mendelssohn, Gesualdo, Schönberg,
Bruckner, Poulenc, Verdi og Reger.
Tónleikarnir hófust á sama verki
og kórinn söng við setningu hátíðar-
innar, mótettu við 43. sálm Davíðs
eftir Mendelssohn. Ekki féll þar
skugginn á frekar en í fyrra skiptið
en þar á eftir söng kórinn tvö re-
sponsorium eftir Gesualdo. De pro-
fundis við 130. sálm Davíðs, mót-
etta eftir Schönberg, fylgdi þar á
eftir en Gesualdo og Schönberg
voru báðir tímamótamenn, þó 300
ár liggi millum sögu þeirra. Bæði
verkin eru falleg og voru vel sung-
in en fyrir undirritaðan var flutn-
ingurinn á De profundis stórkostleg
upplifun.
Anton Bruckner átti tvö næstu
verk en það voru Locus iste og Ave
Maria, sem eru meðal vinsælustu
smáverka höfundarins. Þá söng
kórinn fjórar stórfallegar mótettur
eftir Poulenc og tvö verk eftir
Verdi, Laudi alla virgine Maria, sem
gefið var út 1889, með öðrum
söngverkum undir nafninu Quattro
pezzi sacri, ogPater noster (1880).
Tónleikunum lauk með tveimur
fallegum smáverkum, Und unser
lieben Frauen Traum og Nachtlied,
eftir Regen. Þessi tekníski og þrum-
andi höfundur átti það einnig til
að leika sér að einfaldleikanum á
undursamlegan máta.
Það þarf í raun ekki að tíunda
neitt sérstakt um söng kórsins, því
þar fer saman stórkostleg ögun og
listfengi, sem byggir ekki eingöngu
á góðri kunnáttu, heldur og sterkri
tilfinningu fyrir því smágerðasta
og því sem stórt er í sniðum. Cam-
erata Vocale frá Freiburg er af-
burðagóður kór og stjórnandi hans
Winfried Toll er mikill listamaður í
túlkun og fagurri mótun söngs.
26600
alllr þurfa þak yílr höfuúlú
4ra-6 herb.
RÁNARGATA. Gullfalleg 4ra
herb. risib. Suðursvalir. Nýl. hús.
LEIFSGATA - LAUS. 4ra
herb. íb. á 3. hæð. Arinn. 30 fm
innréttaður skúr með snyrtingu.
KLAPPARSTÍGUR. 4ra 5
herb. íb. á 1. hæð í timburh. Sér-
inng. Verð 4,4 millj.
SÓLHEIMAR - LAUS. 5
herb. íb. í háhýsi. Verð 8 millj.
SÖRLASKJÓL. 5 herb. hæð.
Parket. Suðursv. Útsýni. V. 9 m.
2ja-3ja herb.
BIRKIMELUR. Vorum að fá í
einkasölu mjög vel umgengna 3ja
herb. endaíb. á 3. hæð í blokk.
(bherb. í risi fylgir ásamt tveimur
sérgeymslum og frystikl. Björt íb.
m/suðursv. Verð ca 7,0 millj.
SKIPASUND. 3ja herb. risíb.
Svalir. Útsýni. Verð 6 millj.
ENGIHJALLI. 3ja herb. ib. í
lítilli blokk. Verð 6,1 millj.
Einb./raðh. - parh.
BÁRUGATA - einb. með aukaíbúð. Húsið er kj., hæð og ris. Nýyfirfar- ið þak, hiti í stéttum. Falleg lóð, bílskúr. V. 16 millj.
VESTURBERG. Einbýi ish. 5 svefnherb. Bílsk. Út- sýni. Nýklætt að utan. Verð 13,0 millj.
FÍFUSEL - RAÐHÚS. 4
svefnherb., stofa og forstherb.
Góð íb. i kj. Verð 14 millj.
Faslelgtaþlámlan
Austurstræti 17 - S. 26600
Þorsteinn Steingrímsson, Ig. fs.
Kristján Kristjánsson, hs. 40396.
__________Tónlist_______________
Jón Ásgeirsson
Kirkjulistahátíð prófastdæmanna
í Reykjavík var sett í Hallgríms-
kirkju sl. laugardag og komu þar
fram fjórir kórar, Dómkórinn undir
stjórn Marteins H. Friðrikssonar,
Kór Langholtskirkju undir stjórn
Jóns Stefánssonar, Mótettukór
Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar
Áskelssonar og kórgestir hátíðar-
innar Camerata Vocale frá Freiburg
undir stjórn Winfried Toll.
Hjalti Hugason lektor Kennara-
háskóla íslands og formaður
Kirkjulistahátíðar setti hátíðina.
Þorsteinn Pálsson kirkjumalaráð-
herra _og biskupinn yfir íslandi,
herra Ólafur Skúlason, fluttu ávörp.
Helga Bachmann og Helgi Skúlason
fluttu hátíðarljóð eftir Matthías Jo-
hannessen og lok hins talaða orðs
var bæn, sem séra Ragnar Fjalar
Lárusson flutti.
Allir fjölluðu ræðumenn um gildi
listar og tilvist hennar í tilbeiðsl-
unni en því mætti bæta við, að þar
sem skilgreining á list sleppir, taka
við áhrif hennar á tilfinningar
manna. Fegurð og tiginleiki listar
bera í sér frjó sem blómstrar með
sama hætti og gerist í trúarlegri
upphafningu og þegar fjallað er um
fagurfræði listar verður vart hjá
því komist að tengja hana hug-
myndum manna um gott og illt.
Margir hafa haldið því fram að t.d.
siðfræði og fagurfræði sé í raun
ekki hægt að greina í sundur, að
gott sé fagurt og fagurt sé gott og
að tilbeiðslan og hrifningin sé há-
stig upplifunar á þessum þáttum.
Sú mannbót sem list getúr verið
manninum verður því ekki aðgreind
frá þeirri siðbót sem trúin er.
Kirkjan þarf því ekki að afsaka
þá eyðslu sem óhjákvæmilega fylg-
ir blómlegri kirkjulist. Miklu heldur
að harma það, að ekki hafi verið
nóg unnið. Engin stofnun manna á
jafn stóran hlut í listsköpun og
kristin kirkja, hlut sem er bundinn
trúaijátningu kynslóðanna í
óbundnu máli, ljóðum, myndverk-
um, byggingum og tónlist og er
ótjúfanlegur hluti af sögu kirkjunn-
ar og vestrænni menningu. Saga
listar er ekki einangrað fyrirbæri.
List er hluti af hugsun og tilfinn-
ingu manna og ef til vill nær eina
leið mannsins til að fanga hið óskil-
greinanlega og í hrifningu sinni,
að upplifa návist dásamleikans.
Eitt örbrot slíkrar upplifunar
barst gestum hátiðarinnar er allir
kórarnir sungu saman í lokin sálm
Þorkels Sigurbjörnssonar Til þín
drottinn hnatta og heima. Söngur
kóranna allra var góður en þó með
nokkrum mun í blæ og raddmótun.
Dómkórinn söng Faðir vor, fallega
tónsett af Jónasi Tómassyni við
þann texta sem Oddur Gottskálks-
son gaf okkur íslendingum í því
listaverki sem þýðing hans á Bibl-
íunni er. Þá söng Dómkórinn mót-
ettuna Sá gerir mikið sem elskar
mikið, eftir Siegfried Thiele við
texta eftir Kempis. Söngur kórsins
undir stjórn Marteins H. Friðriks-
sonar dómorganista var mjög góð-
ur.
Kór Langholtskirkju undir stjórn
Jóns Stefánssonar flutti með glæsi-
brag söngverkið Stælið, eftir Þorkel
STARFSÁRI Nýja tónlistarskól-
ans er að Ijúka og munu nem-
endur á síðustu námsstigum
halda nokkra tónleika í tilefni
þess.
í dag eru það nemendur i strok-
hljóðfæra-, gítar og blásturshljóð-
færadeildum skólans sem halda
tónleika. Á morgun eru það nem-
endur í söng sem syngja og á
Sigurbjörnsson. Mótettukórinn
undir stjórn Harðar Áskelssonar
söng Kyrie úr messu eftir Frank
Martin. Verk þetta er undursam-
lega fallegt og er samið fyrir tvo
kóra. Mótettukórinn söng verkið
með sérlega fallegri hljóman. Þetta
fallega verk verður flutt í heild á
tónleikum Mótettukórsins 1. júní
nk. í Seltjarnarneskirkju, þar sem
eingöngu verða flutt verk eftir
Frank Martin. Camerata Vocale
flutti mótettu eftir Mendelssohn,
Richte mich Gott op. 78 nr. 2 og
var söngur þeirra mjög fallega
mótaður, bæði hvað snertir söng
og útfærslu ýmissa nákvæmnisat-
riða og auðheyrt að stjórnandinn
Winfried Toll er afburða góður kór-
stjóri.
Tónleikum lauk með samsöng
allra kóranna og sungu þeir fyrst
tveggja kóra mótettu eftir Mend-
elssohn op. 78 nr. 1 glæsilegt verk,
sem hljómaði tignarlega og eins og
fyrr greinir frá, sálm eftir Þorkel
Sigurbjörnsson. Fyrir undirritaðan
var þetta stór stund og þó sérstak-
lega flutningurinn á sálmi Þorkels.
Nicolas Kynaston
Orgelleikur
Orgelleikarinn Nicolas Kynaston
er gestur á kirkjulistahátíðinni og
lék hann á orgel Bústaðakirkju sl.
mánudag. Á efnisskránni voru verk
eftir Mozart, Bridge, J.S. Bach,
Dupré og Reger.
Kynaston flutti orgelfantasíuna
í f-moH eftir Mozart með töluverðri
reisn. í tveimur smáverkum eftir
Frank Bridges og Suite Bretonne
eftir Marcel Dupré lék Kynaston
sér að þeirri fallegu raddskipan sem
nýja orgelið býður upp á og var
flutningur hans mjög fínlega út-
færður í þessum fallega ofnu tón-
verkum.
Prelúdía og fúga í C-dúr (BWV
547) eftir J.S. Bach var svolítið
háskalega flutt, en Kynaston fór á
kostum í Fantasíu og fúgu yfir
Bach eftir Max Reger. Það fer ekki
á milli mála að Kynaston er frábær
orgelleikari og verður skemmtilegt
að heyra hann á næstu tónleikum
hans í Dómkirkjunni nk. miðviku-
dag, en þar mun hann m.a. flytja
sónötu eftir Elgar og smáverk eftir
John Bull og Wiiam Boyce, sem
trúlega hafa ekki fyrr verið flutt
hér á landi.
föstudaginn eru það nemendur úr
píanódeild sem leika. Á laugardag-
inn klukkan 17 eru síðan skólalok.
í vetur stunduðu tæplega 300
nemendut' nám í skólanum og
kennarar voru 33. Allirtónleikarn-
ir heljast klukkan 18 í sal skólans
að Grensásvegi 3.
(Fréttatilkynning)
SVERRIR KRISTJANSS0N, LÖGG. fast.
HÚS VERSLUNARINNAR 6. HÆÐ
íf If
FASTEIGN ER FRAMTIÐ
FASTEIGNASALA í SÓKN
BLIKANES - EINBYLI
Ca 200 fm mjög fallegt og gott einb. á einni hœð. Bílskúr innb. undir húsið.
Fallgur arkitektúr. Stórar stofur m/arni. Stór sólverönd og svalir. Húsið stendur
hátt, mikið útsýni. Lóðin er stór, mikið rœktuð og falleg. Eign í sérklassa. Ákv.
sala.
SMAÍBÚÐAHVERFI - EINB./TVÍB.
Vorum að fá í sölu fallegt og gott 225 fm einb. ásamt 50 fm bílsk. Húsiö er kj.
og tvær hæðir. í húsinu eru m.a. 7 svefnherb. og mjög rúmg. stofa. Auðvelt
að innr. 2ja herb. íb. m/sérinng. í kj. Húsið losnar fljótl. Mjög góð eign.
BOLLAGARÐAR - EINBYLI
Nýtt í einkasölu 217 fm einbhús, hæð og ris. Á hæðinni er forstofa, snyrting,
hol, stofa, boröstofa og blómaskáli. Stórt vandað eldh. og þvottaherb. í risi með
mikilli lofthæð eru 4 stór svefnherb. og stórt bað. Svalir sem hæglega má
byggja yfir. Húsið er á hornlóö. Áhv. ca 7 millj. langtímalán.
SELJAHVERFI - ÞINGASEL
Fallegt og vel staðsett hús á tveimur hæðum. Húsiö er 272 fm + geymslurými
og 40 fm bílsk. í húsinu eru 5 svefnherb., tómstundaherb., stórar stofur, garð-
stofa með arni, 3 baðherb. o.fl. Til greina koma skipti á góðu minna sérbýli.
HEIÐARGERÐI
Gott steinhús, byggt 1956, hæð og ris, 148 fm nettó. Góð staðsetning. Fal-
legur garður. Bilskúrsréttur. Góð eign.
HJARÐARHAGI
Falleg og björt ca 130 fm efri hæð í þríb. Húsið er í mjög góðu standi. Hæðin
er eldhús, bað, þvottaherb., 3 svefnherb. og stór stofa. Mjög stórar suöursv.
útaf stofu og svefnherb. Ákv. sala eða skipti á 3ja herb. íb.
FRAKKASTIGUR - HÆÐ + RIS
Falleg og björt hæö og ris í nýl. steinh. ásamt bflskýli. Áhv. góö lán.
SOLHEIMAR - LAUS
Mjög góö 116 fm fb. á 8. hæö. Fallegar innr. og vönduð íb. Húsvörður.
ENGIHJALLi
Glæsii. 110 fm fb. á 1. hæö. f 2ja hæða blokk. 3-4 svefnherb., stór stofa. Nýl.
teppi og parket. Mjög góð eign. Suöursv.
ASBRAUT - KOP.
Góð björt íb. á 4. hæð ásamt bílsk. Mikið útsýni. Sérinng. af svölum.
Nýi tónlistarskólinn;
Nemendatónleikar