Morgunblaðið - 22.05.1991, Page 16

Morgunblaðið - 22.05.1991, Page 16
16 KTÖRGUNBILAÐÍÐ MIÖVIKUD'AGI'R “22.í MAÍ )ÍS5ÖI Er í aðsigi atlaga að þjóðarsátt? eftir Þröst Ólafsson Sársaukafull voru örvæntingaróp forystumanna Alþýðubandalagsins síðustu dagana fyrir myndun ríkis- stjórnarinnar. Hróp þeirra báru bæði vott um sálarangist og þján- ingar en líka ógnun. Einkum hefur Ólafur Ragnar Grímsson látið í sér heyra og sendi meira að segja frá sér persónulegt 1. maí ávarp í anda stríðsyfirlýsing- ar. Þau neyðaróp sem heyrðust með- an á myndun ríkisstjórnarinnar stóð minntu mig á örvæntingu Ríkharðs III í samnefndu leikriti Shakespear- es, þegar hann sigraður en ófelldur getur ekki flúið, því hann er bæði bæklaður og hestlaus. Hann býður hverjum sem er pól- itíska aleigu sina — sem vissulega var ekki mikils virði — fyrir að út- vega sér hest. „My kingdom, my kingdom, for a horse.“ Það var einnig margt boðið falt af fulltrúum Alþýðubandalagsins vikuna fyrir stjórnarmyndunina og stundum fannst mér á tali gamalla samheija að pólitísk aleiga banda- lagsins væri föl, bara ef það fengi að vera með í ríkisstjórn. Vissulega er sárt að horfa upp á þjáningu annarra, jafnvel þótt hún sé pólitísks eðlis. Menn mega þó ekki gleyma því, að þjáning getur göfgað þroskaðar sálir, að sama skapi og hún kallar fram ofstopa og ofbeldi hjá þeim sem hafa nei- kvætt og úfið hugarfar. Þegar sú greining formanns AB um „nýjan veruleika“ og „tvær fylk- ingar“ ásamt áskorun um „liðsafn- að“ birtist, var mér ljóst að Alþýðu- bandalagið hafði lítið breyst og ekkert lært. Þar á bæ hefur alltaf verið byij- að á núllpunkti eftir ríkisstjórnar- samstarf — eins og ekkert hafi gerst — öll reynsla samstarfsins vð erfiða stjórnun hagsmunasamfé- lagsins er þurrkuð út á kosninga- nóttinni. Það er eins og annars dagfars- prúðir samstarfsmenn breytist í hóp skemmdarverkamanna, sem búa sér til þann veruleika sem þóknast þeim til að réttlæta það sem á eftir skal koma. Það mætti halda að sama þjóðfélagsástandið gengi í gegnum eðlisbreytingu á einni nóttu og fyrrum samráðherrar breyttust í svikara eftir hádegi. Ég minnist eftirmála ríkisstjórn- arsamstarfs 1971-1973 og aftur 1980-1983, hvernig allar tillögur og hugmyndir um meiri stöðugleika og grundvallarbreytingar gufuðu upp um leið og ljóst var að banda- Nú getur VISA greiðslukortið þitt „opnað" þér dyr í bókstaflegri merkingu erðsins Fáðu þér AMDI aðgangskerfi og þú getur notað VISA greiðslukortið þitt sem lykil. Sjón er sögu ríkari, hafðu samband við sölumenn VARA og fáðu nánari upplýsingar. VISA OG VARI - ÞÆGINDI OG ÖRYGGI VARI ^91-29399 ALHLIÐA ÖRYGGISÞJÓNUSTA SÍÐAN 1969 Þröstur Ólafsson * „A þessu verður þjóðin að átta sig. Hún verður að gera sér grein fyrir því, að meðal stjórnmál- aflokka landsins er einn sem hefur hafið undir- búning að pólitískri skemmdarstarfsemi á efnahagskerfi landsins. Það er ástæða til að óttast þetta.“ lagið myndi lenda í stjórnarand- stöðu. Sérstaklega var þessi afstaða áberandi eftir reynslu flokksins í ríkisstjórn Gunnars heitins Thor- oddsen. Þá fór Alþýðubandalagið með lyklavöld í ijármálaráðuneytinu og tókst þar á við afar erfið viðfangs- efni í samningum á vinnumarkaði. Á sama tíma brann verðbólgubálið glaðar en dæmi eru til hérlendis fyrr eða síðar. Þá ræddu sumir okkar það opin- berlega að jafnvægi og stöðugleiki væri lykilatriði fyrir afkomu launa- fólks og þjóðarinnar allrar, en einn- ig að þetta væri útilokað án faglegr- ar og pólitískrar samstöðu allra sterkustu flokkanna og þróttmestu hagsmunasamtakanna. Eg setti allt frá árinu 1975 oft fram hugmyndir um samsteypu- stjóm eftir nýsköpunarmynstri, þ.e. A-flokkarnir auk Sjálfstæðisflokks, sem ein gæti valdið þessu verkefni. Þessar hugmyndir fengu ætíð hina verstu útreið í bandalaginu og slík hugsun jafnaðist á við stéttar- svik. Sérstaklega var atlagan grimm árin eftir 1983. Bandalagið var neytt til að viður- kenna efnahagslegan veruleika, þegar það bar sjálft ábyrgð á stjórn landsins. Þegar það var'utan stjórnar varð það aftur að þröngsýnum stéttar- baráttuflokki með vegakort frá ár- unum um miðbil aldarinnar, og þeir sem þekkja röksemdafærslu stétt- arbaráttunnar vita að siðferði henn- ar tekur um of mið af gömlu regl- unni, sém segir að tilgangurinn helgi meðalið, og af því að Alþýðu- bandalagið sé eini stéttarbaráttu- flokkurinn í landinu væri framvinda stéttarbaráttunnar á ábyrgð þess innan stjórnar sem utan. Þess vegna skiptir Alþýðubandalagið um ham eftir því hvort það er í ríkisstjórn eða utan. Það skýrir einnig tví- skinnung í málflutningi: Sömu málsatvik metin á mismunandi hátt eftir því hver stóð að þeim. Hlut- lægni var framandi orð og oft notað fremur sem skammaryrði. Sú mikla reynsla sem bandalagið hafði öðlast með stjórnarþátttöku sinni hefði getað orðið dýrmætur grundvöllur fyrir málefnalega úr- vinnslu og þróun flokksins til ábyrgðarmeiri afskipta og nútíma- legri stefnumótunar í átt að jafnað- armennsku. Þó var óraunhæf kröfugerð á gi'undvelli stéttarbaráttunnar inn- takið í stjórnmálastefnu Alþýðu- bandalagsins á árunum milli 1983 og 1988. Meðal aðila vinnumarkaðarins komu fram á þessum árum mótaðar hugmyndir um kjarasátt og kjara- bætur án hárra prósentuhækkana launa, fyrst um haustið 1984 síðar í febrúar 1986. Forystumenn Alþýðubandalags- ins börðust hatrammlega gegn þessu og beittu Þjóðviljanum til hins ítrasta bæði í máli og myndum og reyndu að ræna alla þá ærunni sem nálægt þessu komu. Þeir báru vissulega ekki beina ábyrgð á því að þessar tilraunir misheppnuðust, >n þeir kyntu vel undir óraunhæfum kröfum, sem leiddu til skelfilegrar niðurstöðu í kjaramálum haustið 1984. Auðvitað geri ég mér grein fyrir að ýmislegt hefur breyst í Alþýðu- bandalaginu frá þessum árum, en þó er greinilega margt óbreytt enn. Ég hafði satt best að segja vonast til þess að pólitísk menning banda- lagsins hefði þroskast á þann veg að það réðist ekki á verk sem það I hefur sjálft tekið þátt í að vinna. En nú heyri ég aftur sama tóninn og fyrr, nema hvað tilfinningaleg sárindi eru mun meiri núna. Nú skal safna liði til stórátaka í haust. Ríkisstjórnin skal ekki fá tæki- færi til að sýna hvað hún vill. Jafn- vel þótt það kosti óstöðugleika og aukna verðbólgu. Ríkisstjórn sem ekki hefur al- þýðubandalagsráðherra innanborðs má aldrei dafna. Rudolf Firkusny Tónleikar á vegum Tónlistar- felagsins 1 Islensku ________Tónlist___________ Ragnar Björnsson Við upphaf tónleikanna minnt- ist Rut L. Magnússon Rudolfs Serkins, píanóleikarans heims- fræga, sem er nýlátinn og eignast hafði marga aðdáendur og vini hér á landi. Áheyrendur risu úr sætum og minntust Serkins, og Firkusny, sem mun hafa verið sérstakur vin- ur Serkins, lék gamalt þýskt sál- malag, „Nun komm der Heiden Heiland“ (Nú kom heiðinna hjálp- arráð), í útsetningu Busonis. Sál- malagið lék Firkusny af þeim inni- leik og látleysi, sem aðeins snill- ingum er gefíð. Að leik loknum huldi Firkusny nótnaborðið svörtu loki flygilsins og gekk út af svið- inu. Óvenjulegt upphaf ógleyman- legra tónleika. Þegar listin hefur náð þeim aldri í einum manni, að óperunni nálgast áttrætt er hún búin að ganga í gegn um síur freistinga, misskilnings, ofurviðkvæmni, sýndarmennsku og fleiri mann- legra veikleikaþátta, eftir stendur beinagrind með því einu holdi sem þörf er á, svo að myndin stendur hrein og óbijáluð eftir, ein tegund fullkomnunar, miklu lengra verður ekki náð. Þvílíkt sem þetta fór um hug manns undir leik Firkusnys. Firkusny er ekki sá eini sem sannar þessa kenningu, nefna má marga hljóðfæraleikara (og stjórn- endur) sem náð hafa þessum aldri og búnir eru að hreinsa sig af syndum freistinganna, nóturnar, eins og tónskáldið gekk frá þeim, koma til manns ótruflaðar af skiln- ingsleysi eða ofskynjun flytjan- dans, öll gagnrýni hættir að vera til. Sú hugsun læðist að manni, að frá því að vera tvítugur og áhugaverður, þurfti hljóðfæraleik- arinn árin fram til áttræðs til þess

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.