Morgunblaðið - 22.05.1991, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1991
Ég hafði alltaf á tilfinningunni
að Gummi næði að sigra í þessari
baráttu því alltaf var hann hress í
bragði og aldrei þegar ég kom í
heimsókn til Hildar og Sverris
heyrði ég svartsýnistal í Gumma.
Hann gerði að gamni sínu og var
með ýmsa framtíðardrauma, þannig
hafði hann mikinn hug á að læra
flug, því minnist ég þess sérstak-
lega þegar ég bauð Gumma með
mér í flug til Egilsstaða í septem-
ber síðastliðnum og hann sat
frammi í stjórnklefanum hjá okkur,
áhuginn var ósvikinn og spurning-
arnar sýndu að þarna fór maður
sem spáð hafði í hlutina.
Ég minnist Gumma hversu hlý-
lega hann svaraði i síma og hve
einlæglega hann tók á móti manni,
þá var hann óvenjulega natinn og
þolinmóður að kenna mér nýja leiki
sem hann var með í tölvunni sinni,
t.d. „flugherminn“, enda snerist
áhugi hans mjög að allri tækni.
Segja má að Gummi hafi verið
hepginn í óheppni sinni, því betri
foreldra hefði hann vart getað eign-
ast. Og veit ég að Sverrir stjúpfað-
ir hans hefur staðið mjög með hon-
um og reynst honum sem besti fað-
ir alla tíð og þá nefni ég ekki móð-
ur hans sem ávallt hefur verið hon-
um stoð og stytta, hlýtur hennar
missir að vera nær óbærilegur. En
fullvissan um að ekki var betur
gert og minningin um góðan dreng
sefar vonandi sárasta harminn nú
þegar Guð hefur ákveðið annan
starfsvöll fyrir góðan dreng.
Þó söknuðurinn sé mikill, elsku
vinir, þá munið að tíminn læknar
öll sár.
Svanhildur, Sverrir, Erna Katrín
og Berglind, megi Guð standa með
ykkur.
Blessuð sé minning Guðmundar.
Kjartan B. Guðmundsson
Að morgni 13. maí kvaddi ástkær
systursonur minn þennan heim.
Guðmundur eða Gummi eins og við
kölluðum hann fæddist í Reykjavík,
15. júlí 1970. Hann var því aðeins
tvítugur. En þó að árin væru ekki
mörg, þá varði hann þeim vel enda
var Gummi skynsamur og vel gef-
inn drengur og yndi okkar allra.
Hann var búinn að heyja harða
baráttu við sjúkdóm sinn í 3 ár og
svo þegar að skilnaðarstundinni
kom, var hann sáttur við að kveðja,
því hann vissi að hans hlutverki
væri lokið hér í tilveru okkar jarð-
neskra manna. En önnur og meiri
hlutverk bíða hans í öðrum og æðri
heimi.
Það er sannfæring mín að honum
Gumma mínum líði vel. Því minn-
ingin um hann er svo Ijúf, að hún
léttir okkur þá raun að sjá á bak
svo fögrum og góðum frænda.
Eins og spámaðurinn Kahlil Gibr-
an sagði „þegar þú ert sorgmæddur
skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú
munt sjá, að þú grætur vegna þess
sem var gleði þín.“
Ég þakka Gumma fyrir þær góðu
stundir sem við áttum saman í
gegnum árin og þann hlýja hug og
kærleik sem hann sýndi fjölskyldu
minni og þá sérstaklega henni
Hörpu Rós.
Sælir eru hjartahreinir, því að
þeir munu Guð sjá. Matt. 5.8.
Ég og fjölskylda mín vottum
systur minni og fjölskyldu hennar
okkar dýpstu samúð.
Með ástarkveðju.
Imba, Gummi og Harpa Rós
Mig langar til að minnast vinar
míns, Guðmundar Kaaber, með ör-
fáum orðum. Ég kynntist Gumma
fyrir fáeinum árum og varð okkur
strax vel til vina. Það var þó ekki
fyrr en fyrir um það bil ári að við
fórum að hafa meira samband hvor
við annan. Gummi átti við erfiðan
sjúkdóm að stríða sem að lokum
leiddi hann til dauða. Ég mun seint
gleyma öllum bíóferðunum okkar
sem og þeim stundum er við spiluð-
um saman billjard.
Gummi var sannur vinur, alltaf
tilbúinn að gera allt fyrir alla og
vildi hann öllum vel. Gummi átti
góða foreldra sem og systkini, sem
hann var stoltur af. Foreldrar
Gumma eru hjónin Svanhildur Guð-
mundsdóttir og Sverrir Örn Kaa-
ber. Þau hafa orðið fyrir þeirri sáru
sorg að missa son, vel gefinn og
góðan dreng. Fátt er erfiðara en
að kveðja góðan vin, þótt hvíldar
virtist þörf er söknuðurinn sá sami.
Guð gefi foreldrum og ættingjum
styrk í sorginni.
Jónas Eiríkur Nordquist
Hví var þessi beður búinn
barnið kæra, þér svo skjótt.
Svar af himni heyrir trúin
hljóma gegnum dauðans nótt.
Það er kveðjan: „kom til mín!“
Kristur tók þig heim til sín.
Þú ert blessuð í hans hðndum,
hólpin sál með ljóssins öndum.
(B. Halld.)
Nú er elsku frændi og vinur minn
horfinn af þessum heimi. Þegar
Gummi var 18 ára í blóma lífsins
fór að draga úr þreki hans og getu.
Hann var kominn með hvítblæði.
Þessi frétt var mikið áfall fyrir fjöl-
skyldu hans og vini.
Við Gummi áttum margar góðar
stundir saman, en við vorum miklir
og góðir vinir þótt tíu ára aldurs-
munur væri á okkur. Þær fyrstu
voru við tjörnina í Reykjavík, þang-
að fórum við til að gefa öndunum
brauð og njóta lífsins. Á 9 ára af-
mælisdegi Gumma fórum við ásamt
foreldrum hans og Emu elstu syst-
ur hans í sumarfrí til Ítalíu. Síðar
tóku við sumarbústaðaferðir á
hvetju sumri í mörg ár og þá var
nú margt brallað og gert sér til
gamans. Engan hef ég þekkt sem
hafði jafn mikinn áhuga og gaman
að kvikmyndum, oft kom sér það
vel hve hann gat stytt sér stundir,
er hann var orðinn sjúkur við það
að horfa á góðar myndir. Gummi
var prúður og yfirvegaður drengur.
Þegar hann varð veikur hélt hann
ró sinni og reisn af mikilli aðdáun.
Hann naut einstakrar aðhlynn-
ingar og hjúkrunar á Landspítalan-
um og læknar gerðu allt sem í
mannlegu valdi stóð honum til
hjálpar. Langar mig til þess að
þakka öllu þessu fólki fyrir allt það
sem það gerði fyrir hann og okkur
aðstandendur hans, til að létta okk-
ur öllum þennan tíma. Oft vaknaði
von um bata en því miður varð svo
ekki. En nú er komið að kveðju-
stund og alltof stuttri ævi er lokið,
en ég veit að honum líður vel og
er laus við alla vanlíðan.
Hann hefur átt góða heimkomu
hinumegin. Elsku bróðir, mágkona
og frændur, megi guð gefa ykkur
styrk á þessum erfiðu tímum, en
tíminn læknar öll sár.
Margrét Kaaber
Bak við mig bíður dauðinn,
ber hann í hendi styrkri
hyldjúpan næturhimin
helltan fullan af myrkri.
(Úr Bikamum eftir Jóhann Siguijónss.)
Gummi er dáinn og það er erfitt
að sætta sig við það. Það er erfitt
43
að missa þann sem manni þykir
vænt um.
Gummi var vinur minn. Ég
kynntist honum fyrst sumarið 1988
í gegnum Ernu systur hans. Ein-
mitt þetta sumar veiktist hann.
í þrjú ár hef ég fylgst með hetju-
legri og æðrulausri baráttu hans
við hvítblæði, enda var Gummi
bæði sterkur og hugrakkur. En
þrátt fyrir þessi miklu veikindi var
hann jafnan í góðu skapi þegar ég
hitti hann. Hann gerði aldrei mikið
úr veikindum sínum og vildi ekki
njóta neinnar vorkunnar.
Þó að Gummi sé dáinn munum
við sem þekktum hann alltaf eiga
góðar minningar um góðan dreng
og þær stundir sem við áttum sarri-
an.
Elsku Hildur, Sverrir, Erna,
Katrín og Berglind. Missir ykkar
er mikill og bið ég góðan Guð um
að styrkja ykkur í þessari miklu
sorg. Tobba
BIFREIÐA- OC ÞJÓNUSTUDEILD
JÖTUNSHF. HEFJA SÝNINCAR-
OC ÞJÓNUSTUFERÐ UM LANDIÐ
ÞANN21. MAÍN.K.
VIÐ SÝNUM M.A. CHEVROLET
CORSICA FÓL KSBIFREIÐ,
CHEVROLET BLAZER OC HINN
VINSÆLA ISUZU ÞALLBÍL
UÞÞHÆKKAÐAN OG BREYTTAN.
VIÐSKIÞTA VINUM OKKAR
CEFST KOSTUR Á AÐ RÆÐA VIÐ
SÖLUMENN OC ÞJÓNUSTUFULLTRÚA.
NOTIÐ ÞETTA EINSTAKA TÆKIFÆRI
TIL AÐ SKOÐA OC PRÓFA NÝJU
BÍLANA FRÁ OKKUR.
SYNINGARSTAÐIR
STAÐIR DAGS.
VÍK 21. MAl
HÖFN 21. MAÍ
DJÚPIVOGUR 22. MAl
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR. 22. MAÍ
RE YÐA RFJÖRÐUR . .. 22. MAl
NORÐFJÖRÐUR 23. MAI
ESKIFJÖRÐUR 23. MAI
EGILSSTAÐIR 23. MAÍ
SEYÐISFJÖRÐUR .... 24. MAl
VOPNAFJÖRÐUR.... 25. MAÍ
ÞÓRSHÖFN 25. MAÍ
HÚSAVlK 25. MAÍ
HÚSAVlK 26. MAl
AKUREYRI 26. MAÍ
DALVÍK 27. MAl
ÓLAFSFJÖRÐUR .... 27. MAÍ
SIGLUFJÖRÐUR 27. MAl
SAUÐARKRÓKUR ... 28. MAl
BLÖNDUÓS 28. MAÍ
HVAMMSTANGI 29. MAl
BORGARNES 29. MAl
■mukítfft
HOFÐABAKKA 9 112REYKJAVÍK SÍMI91-67000
BÍLASALA....67 43 00 ÞJÓNUSTUD....68 65 00