Morgunblaðið - 22.05.1991, Page 57

Morgunblaðið - 22.05.1991, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDA:GUR'22. MADU99I 37 VELVAKAWDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. ÍO-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS STEFNAI ÁFENGIS- MÁLUM Landsfundur Sjálfstæðisflokks- ins ályktaði m.a. um áfengismál. Þar segir að lögfest skuli „fíkni- vamanefnd sem beijist með áróðri og markvissum aðgerðum gegn notkun fíkniefna. Fíknivarnanefnd hafi til ráðstöfunar fjármagn sem nemi 2 prómillum af brúttótekjum ríkissjóðs af áfengi“. Hvað er brúttótekjur ríkissjóðs af áfengi? Er það söluverð alls áfengis sem ríkið selur? Það dettur manni í hug, því að til er tóbaks- vamanefnd sem fær lögum sam- kvæmt 2 af þúsundi hverju sem tóbakssalan nemur. 35% afsláttur ÚTSALA á telefaxtækjum Sanyo sanfax515 Verðlistaverð kr. 117.207,- 1 Dráttarvélaeigendur: Dráttarvélar og stórvirk vinnutæki eru hættuleg í meðförum, ef ekki ef farið að öllu með gát. Hugsið ykkur tvisvar um áður en þið látið slík verkfæri í hendur á unglingum eða jafnvel bömum. Hugleiðing vegna ráðherravals Þeir sem skapa þjóðum lög / þurfa mikið veganesti, / verða að skilja dulin drög / drauma fólksins, hjartaslög / bænir þess og bresti. Svo kveður gengið góðskáld, þrátt fyrir góðar gáfur gerði skáldið mörg mistök í lífi sínu, þó held ég að enginn sé reiður því nú, enda mannlegt að gera mistök. Það er samt slæmt ef í 26 manna þingflokki sjálfstæðismanna finnast ekki nema þrír, sem telja eitthvað athugavert við það að hefja til ráð- herra alþingismann sem var yfir- strikaður af ca. 15% kjósenda sinna. Mér finnst að þó útstrikanirnar væru aðeins 5% þá hefði sá þing- maður ekki siðferðilegan rétt til að taka að sér ráðherraembætti svo fremi sem einhver annar kæmi til greina í starfið. Ég vek athygli á að þingflokkur- inn, með því að velja þann útstrik- aða fremur en aðra sem unnu auk- ið fylgi í síðustu kosningum, lítils- virðir kjósendur sína svo ekki sé meira sagt. Við kjósendur erum vonandi ekki allir eins gleymdir og fyrrverandi forsætisráðherra, hæpið er því að afsaka þingflokkinn með heimsku, það hljóta aðrar ástæður að valda þessum mistökum flokksins, ég vona þó að þetta andlega fall þeirra boði fararheill hæstvirtrar ríkis- stjórnar og ráðherrar hennar, sá útstrikaði sem aðrir, gefi sér tíma til að kynnast æðaslætti þjóðfélags- ins og hafi samviskuna með í ráðum þegar til lagasetninga kemur, þá verður niðurlag vísunnar sem hug- leiðingar mínar byijuðu með ekki heimfært á þá hæstvirtu ráðherra. Því valdhafar sem lítið skilja / lúta aldrei fólksins vilja / koma öllu á vonar völ / verða sjálfir þjóðar böl. Mín ósk var að ráðherrar yrðu aðeins átta, fækkun um einn er þó spor í rétta átt til sparnaðar. Framsóknartungur segja nú að i fyrrverandi formaður sé að hefna sín og njóti til þess meirihluta stuðnings í þingflokki Sjálfstæðis- I flokksins. Ég er mjög undrandi ef í 26 manna þingflokki er meirihluti fyrir nokkru öðru en því að taka allar ákvarðanir eftir opnar umræð- ur og frjáls skoðanaskipti svo sem stefna flokksins býður. Minnumst þess að allt orkar tví- mælis þá gert er. Skeð er skeð, gefum nýjum ráðherrum tíma til að sýna hvað í þeim býr, sjáum svo hvað setur. Ég óska Viðeyjarstjóm- inni allrar farsældar og vona að hún megni að aflétta skattaáþján síð- ustu stjóma og bæta lífskjör þjóðar- innar, markmiðið er að dagvinnu- tekjur í lægstu launaflokkum nægi til framfærslu. Sú mikla kaupmátt- arskerðing sem varð á síðustu tveim ámm gerir úrlausn þessara mála enn brýnni og nauðsyn þess meiri að stjórnin megi ganga á guðs veg- um til góðra verka. Pálmi Jónsson, Sauðárkróki. Honda*91 Civic 3ja dyra 16 ventla Verð frá 815 þúsund. GREIÐSLUSKILMÁLAR FYRIR ALLA. UHONDA VATNACÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900 Um fíkniefnanefnd er það að segja að þeir sem tala um stofnun hennar munu yfirleitt gera ráð fyr- ir að hún taki við af áfengisvarna- ráði. Þar er því ekki um neitt ný- mæli að ræða. Hvort tóbaksvarna- nefnd-eigi að hverfa inn í fíkniefna- nefnd er ekki vitað, en víst er tóbak- ið fíkniefni þó ekki sé það vímuefni. Tilboðsverð kr. 76.000,- stgr. Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 • Sími 680780 J Um starfsfé fíknivarnanefndar er þetta að segja. Áfengissalan 1990 nam 7.264 milljónum króna, 2% af þeirri fjárhæð er 14,5 milljón- ^ ir, sem er mun minna en varið hef- ur verið til áfengisvarna síðustu ár. Er þá stefna Sjálfstæðisflokksins í áfengismálum niðurskurður á framlögum til áfengisvarna? H.Kr. RAYMOND WEIL GENEVE L E TEMPS CRÉATEUR OTHELLO Þunn, aðeins 3,5 mm, nútímaleg hönnun, handunnin með 18 K. gullhúð, vatnsþétt, ól úr krókódílaskinni. Útskriftargjöfín í ár GARÐAR ÓLAFSSON, úrsmiður, Lækjartorgi, sími 10081' V^terkur og k./ hagkvæmur auglýsingamiðill! JWtrgiutiMiiblb mSSSSmSSSSSSBBBSBSSSSSBSSSSSSBSSSSSmSm HEMSVE)BIM)UR MSdiiesser KRINGLUNNI - SKEIFUNNI - AKUREYRI Söluaðili: HAGKAUP BALESTRA er ný kynslóð nærbuxna, saumaðar í heilu lagi úr 100% bómul - Engin samsetning. Fáanlegar í 3 útfærslum og 6 mismunandi litum. BALESTRA - fullkomið frelsi í hreyfingum 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.