Morgunblaðið - 28.05.1991, Page 1

Morgunblaðið - 28.05.1991, Page 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 117. tbl. 79. árg. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAI 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Nýkjörinn forseti Georgíu: Myrkraöflin frá Moskvu fá ekki að leika lausum hala Tíflis. Reuter. ZVIAD Gamsakhurdia vann yfirburðasigur í forsetakosningum í Ge- orgíu sem fram fóru á sunnudag. Voru þetta fyrstu almennu forseta- kosningarnar í sögu Sovétríkjanna. Gamsakhurdia hefur verið forseti Georgíu, kosinn af þingi landsins, síðan sl. haust. Á fréttamannafundi í gær lagði hann áherslu á að stjórn sín aðhylltist Iýðræði og mannrétt- indi. „En við munum heldur ekki leyfa myrkraöflunum frá Moskvu að leika lausum hala né sljórnleysi að breiðast út í Georgíu." Gamsakhurdia hlaut 87% greiddra atkvæða. Hann er 52 ára gamall og sat árum saman í fangelsi vegna andófs gegn stjómvöldum. Samtals voru sex menn í framboði. Allir sögð- ust frambjóðendumir stefna að auknu sjálfstæði Georgíu en eigi að síður sakaði Gamsakhurdia andstæð- inga sína um að ganga erinda örygg- islögreglunnar, KGB, og Moskvu- stjórnarinnar. Einn keppinauta hans, hagfræðingurinn Valerian Advadze, sem hlaut 6% atkvæða, sagði í sam- tali við /íeuíers-fréttastofuna að Reuter Óbreyttur borgari í Addis Ababa heldur klúti fyrir vitin um leið og skriðdrekar stjórnarhersins fara hjá. Voru þeir á leið að forsetahöllinni en helst var óttast, að forsetavörðurinn reyndi að veita skæru- liðum viðnám. Eþíópíustjórn skipar hermönnum að leggja niður vopn: Skæruliðaherinn bjóst til að leggja undir sig Addis Ababa London. Reuter. STJÓRNVÖLD í Eþíópíu skipuðu í gær hermönnum sínum að leggja niður vopn og gáfust þar með í raun upp fyrir skæruliðum. Var búist við, að skæruliðaherinn tæki höfuðborgina, Addis Ababa, á hverri stundu og fulltrúi Bandaríkjastjórnar í friðarvið- ræðum Eþíópíustjórnar og skæruliða í London bað þá raun- ar að taka að sér að tryggja lög og reglu i borginni. í tilkynningu stjórnarinnar sagði, að hermönnum hennar hefði verið skipað að leggja niður vopn til að koma í veg fyrir meira bióðbað og til að greiða fyrir friðarviðræðunum milli stjórnvalda og skæruliða en þær hófust í London í gær. Var ennfremur farið hörðum orðum um Mengistu Haile Mariam, fyrram herstjórnanda, sem flýði land í síðustu viku, fyrir að sinna ekki áskorunum samstarfsmanna sinna um að semja um frið. Hafði yfirlýs- ingin ekki fyrr verið birt en leiðtog- ar skæruliða skipuðu þeim að halda inn í Addis Ababa og var búist við, að þeir næðu henni á sitt vald á nokkrum klukkustundum. Herman Cohen, fulltrúi Banda- ríkjastjórnar, sem hafði milligöngu um viðræðurnar í London, sagði í gær, að rétt væri, að liðsmenn EPRDF, skæruliðahreyfmgarinnar, sem sótt hefur að Addis Ababa, færa inn í borgina til að halda þar uppi lögum og reglu en Tesfaye Dinka, forsætisráðherra og fulltrúi stjórnvalda í viðræðunum, var því andvígur. Sagði hann, að friðarvið- ræðurnar væru þar með orðnar að engu. Leiðtogar EPRDF, sem áður aðhylltist marxisma, hafa lýst yfir, að þeir vilji koma á samfylkingar- stjórn í Eþíópíu og efna síðan til fijálsra kosninga en margir óttast þó, að enn sé grunnt á alræðis- hyggjunni. Skæruliðahreyfingarnar i Eþíópíu eru tvær helstar, EPRDF og EPLF, Frelsisfylking Eritreu, en sú síðarnefnda hefur barist gegn stjórnvöldum í Addis Ababa í um 30 ár. íbúar höfuðborgarinnar, þrjár milljónir að tölu, biðu þess í gær milli vonar og ótta hvað verða vildi en þeir óttast ekki aðeins skæraliða heldur einnig leifar stjórn- arhersins en margir hermannanna hafa farið ránshendi um borgina. Georgíumenn væru sálsjúk þjóð. „Fólk er undir þrýstingi og maður verður var við skítkast, rógburð og ásakanir um að hinir og þessir séu útsendarar Kremlar," sagði hann. Gamsakhurdia fagnaði sigrinum í gær ásamt þrjú þúsund stuðnings- mönnum á Dynamo-leikvanginum í Tíflis en þar eru sæti fyrir 90.000 manns. Eitt þúsund þjóðvarðliðar Georgíu gengu fylktu liði um völlinn og hylltu forsetann. Stjórnvöld í Georgíu hafa átt í útistöðum við íbúa Suður-Ossetíu, sjálfstjórnarhéraðs í Georgíu, og kosningarnar á sunnudag náðu ekki þangað. Forsetinn beindi spjótum sínum hins vegar einkum að arm- enska þjóðarbrotinu í Georgíu í ræðu sinni á Dynamo-leikvanginum og sakaði það um að ætla að sölsa hluta Georgíu undir sig. „Óhóflegt frjáls- lyndi okkar og samningavilji skaðar okkur. Við viijum ekki að kastist í kekki en þeir [Armenarnir] eru til- búnir til ævintýramennsku og ögrana.“ Um helgina tóku stjórnvöld í Ge- orgíu þátt í því ásamt Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Armeníu og Moldovu að mynda samstarfsráð lýð- velda sem keppa að fullu sjálfstæði frá Sovétríkjunum. 223 farast er alelda þota splundrast og hrapar á fjall í Tælandi: Vangaveltur um hryðjuverk en ástæður slyssins enn ókunnar Ban Huay Khamin í Tælandi, Seattie. Reuter. 223 MENN fórust er alelda austurrísk farþegaþota af gerðinni Boeing 767-300 splundraðist á flugi og hrapaði á skógi vaxið fjall í Tælandi á sunnudagskvöld. Enginn um borð í þotunni komst lífs af og fremsti hluti hennar fannst í fjögurra kílómetra fjar- lægð frá braki afturhlutans. Ekki var vitað um tildrög slyssins í gær. Austurrísk lögregluyfirvöld drógu í efa fregnir um að sprengju hefði verið komið fyrir í þotunni. Þotan hafði millilent í Bangkok á leiðinni frá Hong Kong til Vínar og hrapaði um 200 km norðvestur af tælensku höfuðborginni. Hún hvarf af ratsjárskermum flug- turnsins í Bangkok um sextán mínútum eftir flugtak og áhöfnin hafði ekki tiikynnt um neina erfið- leika. Þotan var í eigu austurríska flugfélagsins Lauda-Air, sem Niki Lauda, fyrrum heimsmeistari í kappakstri, stofnaði. Lauda sagði að skömmu eftir að fýrst var skýrt frá flugslysinu hefði maður hringt í alþjóðaflugvöllinn í Vín og sagt að sprengja hefði af misgáningi verið sett i þotuna á flugvellinum í Bangkok. Hún hefði átt að fara í þotu bandaríska flugfélagsins United Airlines. Alfred Rupf, tals- maður öiyggisgæslunnar á Rínar- flugvelli, sagði að maðurinn hefði einungis verið „að geta sér þess til hvað kynni að hafa gerst“. Talsmenn United Airlines í Bang- kok sögðu að enginn flugvél hefði farið frá borginni á sama tíma og austurríska þotan. Samkvæmt fyrstu fréttum kom upp eldur í þotunni áður en hún splundraðist og hrapaði. „Ég sá eldhnött á lofti og svo kom gífur- leg sprenging," sagði sjónarvott- ur. 213 farþegar voru í þotunni og tíu í áhöfninni. Um 300 björgun- armenn reyndu að ná líkum fórn- Björgunarmenn á slysstað. Brakið úr vélinni dreifðist yfir margra km stórt svæði. arlambanna úr logandi braki þot- unnar í gær. Stærsti hlutinn úr þotunni var um tveir fermetrar. Það torveldaði starf björgunar- manna að þúsundir manna klifu fjallið til að komast yfír farangur farþeganna, sem lá á víð og dreif um skógiendið. Búist var við að björgunarstarfið tæki tvo daga. 83 Austurríkismenn voru í þot- unni, 53 Hong Kong-búar, 39 Tælendingar og 48 af öðru þjóð- erni. Á meðal farþeganna var háttsettur embættismaður Sam- einuðu þjóðanna, Donald Macint- osh, sem hefur barist gegn eitur- lyfjasmygli í Tælandi. Talsmaður Sameinuðu þjóðanna vísaði á bug getgátum um að Macintosh hefði verið á ferð í leynilegum erinda- gjörðum og að eiturlyfjasmyglar- ar hefðu grandað þotunni til að ráða hann af dögum. Sjá „Fyrsta vélin sinnar teg- undar ...“ á bls. 29.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.