Morgunblaðið - 28.05.1991, Síða 2
M0R6UNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1991
Heilbrigðisráðherra:
Nýir yfirlæknar verði
ráðnir á Heilsuhælið
innan eins mánaðar
'ml&MM ’r-.
Krá slysstaðnum.
Tuttugu konur meiddust er rúta valt við Kolkustíflu:
„Það var eins og veg-
nrinii ryuni í sundur“
- segir Elísabet Sigurgeirsdóttir, ein kvennanna
TUTTUGU konur meiddust þegar vegarkantur gaf sig undan
rútu skammt frá Kolkustíflu við Blönduvirkjun síðdegis á laugar-
dag. Flytja þurfti eina konuna flugleiðis til Reykjavíkur þar sem
hún gekkst undir aðgerð. Hún er ekki talin lífshættulega slösuð.
Fimm aðrar voru fluttar með sjúkrabílum til Blönduóss og Sauðár-
króks en hinar hlutu allar minniháttar meiðsli, skrámur og mar-
bletti. Að sögn Elísabetar Sigurgeirsdóttur, einnar kvennanna,
sem allar eru í kvenfélaginu á Blönduósi, voru þær í skoðunar-
ferð um virlqunarsvæðið, ásamt bílstjóra og leiðsögumanni, og
voni á leið frá útsýnisstað niður að Kolkustíflu þegar vegarkant-
urinn gaf sig skyndilega undan rútunni, sem rann eina sex metra
niður brekku utan vegar og valt svo á hliðina utan í moldarbarð.
„Það var eins og vegurinn, sem og skorða systur mína sem sat
er nýr og breiður, rynni í sundur
og rútan rann þarna niður kant-
inn. Það bjargaði okkur að það
varð moldarbarð fyrir. Hefði þetta
verið aðeins utar hefðum við lent
á stórgrýti og innar var ennþá
hærri kantur,“ sagði Elísabet.
Hún sat í miðri rútunni vinstra
megin en rútan valt á hægri hlið-
ina. „Ég náði að halda mér fastri
fyrir innan mig og við sluppum
furðu vel en ég tognaði samt illa
á handleggjum," sagði hún. Elísa-
bet sagði að konan sem slasaðist
verst hefði setið í sætinu fyrir
aftan ökumanninn og því ekki
haft í neitt að grípa þegar rútan
fór á hliðina.
Menn í vinnubúðum Lands-
virkjunar horfðu á óhappið og
voru komnir að eftir andartak,
að sögn Elísabetar, sem lauk
miklu lofsorði á framgöngu þeirra
og annarra björgunarmanna, svo
og ökumanns rútunnar, en björg-
unar- og hjálparsveitir komu að á
skammri stundu með fimm sjú-
krabíla. Auk þeirra var hjúkrunar-
fræðingur meðal kvenfélags-
kvennanna og veitti hún fyrstu
hjálp ásamt hjúkrunarfræðingi úr
Landsvirkjunarbúðunum. „Það
vildi til að þetta var allt saman
rólegt og gott fólk, og yfirvegað,
þannig að björgunarstarfið gekk
afskaplega vel fyrir sig og þjón-
ustan sem við fengum bæði hjá
Landsvirkjun og á sjúkrahúsinu á
Blönduósi, þar sem kölluð var út
aukavakt, var til hreinnar fyrir-
myndar," sagði Elísabet Sigur-
geirsdóttir.
Alþjóðahvalveiðiráðið:
Þyðingarlaust að starfa
ef ekkert miðar áfram
— segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA, Sig-
hvatur Björgvinsson, hefur að
tillögu landlæknis gefið rekstrar-
stjórn Heilsuhælisins í Hvera-
gerði mánaðarfrest til að ráða í
stöður yfirlækna, með því skil-
yrði að ekki verði teknir inn
nýir sjúklingar á meðan. Stjórnin
vék tveimur yfirlæknum hælisins
úr starfi á laugardaginn.
Ólafur Ólafsson, landlæknir, átti
í gær viðræður við stjórnendur
Heilsuhælisins, starfandi lækni og
hjúkrunarforstjóra, auk læknanna
tveggja, sem sagt var upp störfum
á laugardaginn, þeirra Gísla Einars-
sonar og Snorra Ingimarssonar.
Landlæknir segir að í ljósi þess-
ara viðræðna hafi hann lagt til við
heilbrigðisráðherra, að rekstrar-
Leiddist
biðin og ók
á ljósastaur
UNGUR maður, sem grunað-
ur er um ölvun, ók bíl, sem
hann hafði tekið í leyfisleysi,
á ljósastaur í Ólafsvík að-
faranótt laugardagsins og
lenti eftir það í átökum við
eiganda bílsins.
Maðurinn var ásamt fjórum
öðrum að koma af dansleik í
Röst og nam bíllinn staðar við
hús í bænum, þar sem einn
fimmmenninganna fór heim til
sín og annar, eigandi bíisins,
skrapp inn með honum. Þegar
félaga þeirra fór að lengja eftir
manninum hljóp bílstjórinn,
sem var sá eini allsgáði í hópn-
um, inn í húsið að sækja hann
en á meðan settist annar þeirra
tveggja, sem eftir voru, undir
stýri og ók á brott. Hann hafði
farið skamman veg þegar hann
ók á ljósastaurinn. Við það valt
bíllinn, sem er Toyota fólksbif-
reið, og er stórskemmdur eftir
en hvorugan mannanna sakaði.
Skömmu síðar kom eigandinn
á staðinn og þegar lögregla
kom að voru þeir komnir í hár
saman eigandinn og ökumaður-
inn.
Sölufélag garð-
yrkjumanna:
Verð á gúrk-
um hækkar
HEILDSÖLUVERÐ á íslenskum
gúrkum hjá Sölufélagi garð-
yrkjumanna hækkaði í gær í 250
kr. kílóið, en lægst var verðið
þegar framboðið náði hámarki í
lok apríl, eða 130 kr. kilóið.
Heildsöluverð á tómötum er nú
440 kr. kílóið án virðisauka-
skatts, en að sögn Níelsar Mar-
teinssonar, sölustjóra hjá Sölufé-
laginu, er búist við að það lækki
samfara auknu framboði um
miðjan næsta mánuð.
Níels sagði að framboð á íslensk-
um tómötum hefði náð því að full-
nægja eftirspurn þrátt fyrir að
framboð hefði verið nokkru minna
vegna tjóns er varð hjá garðyrkju-
bændum í óveðrinu í byijun febr-
úar. Hann sagði að framboðið
myndi væntanlega ná hámarki um
2-3 vikum seinna nú en áður, eða
um miðjan næsta mánuð, og þá
mætti búast við verðlækkun í kjöl-
farið.
stjórn hælisins verði gefinn mánað-
arfrestur til að ráða í stöður yfir-
læknanna, en á meðan verði ekki
teknir inn neinir nýir sjúklingar.
Hann sagði að jafnframt hefði
verið gerð krafa um, að faglegt
forræði á Heilsuhælinu yrði í hönd-
um lækna, eins og á öðrum stofnun-
um, sem féllu undir lög um heil-
brigðisþjónustu.
Sjá nánar frétt á miðopnu.
Tvö umferð-
arslys í
Skagafirði
HARÐUR árekstur tveggja
fólksbifreiða varð á blindhæð við
eyðibýlið Melbreið á Ólafsfjarð-
arvegi að kvöldi laugardagsins.
Farþegi í öðrum bílnum var flutt-
ur í sjúkrahús á Akureyri.
Dauðaslys varð á þessari blind-
hæð á síðasta ári.
Þá valt bifreið skammt frá Hofs-
ósi seinnihluta sunnudagsins. Far-
þegi í bflnum var fluttur í sjúkra-
húsið á Sauðárkróki og þaðan með
sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Vestur-Húna-
vatnssýsla:
Þyrla flytur
fjögurra ára
bam á Borg-
arspítalann
Hvammstanga.
FJÖGURRA ára stúlka slasaðist
undir hádegi á laugardag á Graf-
arkoti í Vestur-Húnavatnssýslu
þegar hún féll af hestbaki. Þyrla
flutti stúlkuna á Borgarspítalann
í Reykjavík én meiðsli hennar
reyndust minni en talið var í
fyrstu.
Slysið varð með þeim hætti að
stúlkan, Fanney Dögg Indriðadótt-
ir, fór á bak hesti ásamt eldri syst-
ur sinni. Hundur á bænum glefsaði
í tagl hestsins, sem fældist og datt
stúlkan fram af.
Hesturinn fór yfír stúlkuna með
þeim afleiðingum, að hún hlaut
opið beinbrot á upphandlegg, sár í
munn og áverka á mjöðm. Þyrla
landhelgisgæslunnar flutti stúlkuna
á Borgarspítalann, þar sem gert var
að sárum hennar. Hún er nú komin
heim aftur og er líðan eftir atvikum.
Karl
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra segir að þýðing-
arlaust sé fyrir Islendinga að
taka þátt í starfi Alþjóðahval-
veiðiráðsins ef ekkert miði þar
í rétta átt. Hann segir að tregðu
hafi gætt hjá meirihluta ráðsins
að vinna á grundvelli stofnsátt-
mála þess, að vernda hvala-
stofnana í því skyni að hagnýta
þá.
í setningarræðu sinni á 43. árs-
fundi hvalveiðiráðsins í gær í
Reykjavík sagði Þorsteinn, að
ríkisstjóm íslands teldi að þær
ákvarðanir sem ráðið tæki á fund-
inum muni hafa djúpstæð áhrif á
framtíð stofnunarinnar. Og ef ráð-
ið myndi í störfum sínum fást við
atriði sem ætlað væri að koma í
veg fyrir vísindalega stjómun
hvalveiða, myndu líkur á samvinnu
innan ráðsins hverfa með öllu.
Þorsteinn vildi í samtali við
Morgunblaðið ekki segja hvaða
niðurstaða af fundinum væri við-
unandi fyrir íslendinga, að mati
ríkisstjómarinnar, en sagði að
staðan yrði metin að fundinum
loknum. íslensk stjórnvöld hafa
farið fram á að hvalveiðiráðið út-
hluti þeim takmörkuðum veiði-
kvótum á hrefnu og langreyði_ á
grundvelli bráðabirgðatillagna Is-
lendinga meðan niðurstaða hefur
ekki fengist í endurskoðun veiði-
stjórnunaraðferða ráðsins.
Þorsteinn sagði að lögð væri
áhersla á að fá viðbrögð við þess-
um tillögum og einnig áhersla á
að ráðið gerði eitthvað í alvöru til
að flýta endurskoðun stjórnunar-
reglnanna. íslendingar munu í dag
kynna formönnum sendinefnda á
ársfundinum tillögur sínar.
Formaður sendinefndaríslands
á ársfundinum nú er Guðmundur
Eiríksson. Aðrir nefndarmenn eru
Kjartan Júlíusson, Jóhann Sigur-
jónsson, Hörður Bjarnason, Konr-
áð Eggertsson, Gísli Már Gíslason,
Árni Kolbeinsson, Guðjón A. Krist-
jánsson, Kristján Loftsson, Jón
Gunnar Ottósson, Gylfi Gautur
Pétursson og Óskar Vigfússon.
Sjá nánar um ársfundinn á
miðopnu.
Álviðræður:
Starfsleyfi og umhverfis
mál rædd í Þýskalandi
FUNDUR íslendinga og Atl-
antsáls um umhverfismál nýrr-
ar álverksmiðju á Keilisnesi
hófst í Þýskalandi í gær. Jón
Sigurðsson iðnaðarráðherra
telur að starfsleyfi nýs álvers
ætti að liggja fyrir í kjölfar
fundarins, eða því sem næst.
Jón Ingimarsson er fulltrúi iðn-
aðarráðuneytisins á fundinum,
Ólafur Pétursson er frá Hollustu-
vernd ríkisins, Sigurbjörg Sæ-
mundsdóttir er frá umhverfis-
ráðuneyti og auk þess sitja fund-
inn fulltrúar frá Vatnsleysu-
strandarhreppi.
Fundinum lýkur á morgun, og
kvaðst iðnaðarráðherra gera sér
vonir um að starfsleyfi nýrrar ál-
bræðslu yrði nánast frágengið,
að afloknum þessum fundi.