Morgunblaðið - 28.05.1991, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1991
23
Kentruck
Vandaðir
lyftarar á
lægsta verðinu
ÁRVÍK
ÁRMÚLI 1 - REYKJAVÍK - SlMI 687222 -TELEFAX 687295
aldrei hefur aldursmunur okkar heft-
að þessa dýrmætu vináttu, enda all-
Afmæliskveðja:
Magnúsína Olsen,
ísafirði - Áttræð
ir jafnir í hennar augum, stórir,
smáir, ungir sem aldnir. Síðan við
kynntumst fyrst, er ég kom með
lítinn son minn og leigði hjá henni
á Tangagötunni, hefur hún verið
okkar Magga, svo og allrar flöl-
skyldu minnar. Nú hefur hún selt
fjöiskylduhúsið á Tangagötunni, og
keypt sér íbúð í Hlíf, íbúð aldraðra
á ísafirði, og á hún þar yndislegt
athvarf fyrir ævikvöldið.
Inn í Tunguskógi hefur hún átt
til íjölda ára sumarbústað, þar sem
hún dvaldi löngum áður yfír sumar-
mánuðina með börn sín, og síðan
barnabörnin. Og veit ég að hún á
þaðan góðar og ljúfar minningar úr
sambýlinu við aðra skógarbúa, sem
bjuggu þar áður fyrr yfir alla sumar-
mánuðina.
Fyrir nokkrum árum tók hún að
sér að verða amma barnanna á leik-
skólanum Eyrarskjóli, og fór þangað
vikulega og oftar til þess að lesa
fyrir þau og njóta félagsskapar
þeirra. Og er leið að jólum gleymd-
ust þau ekki, leikskólabörnin henn-
ar, því hvert og eitt fékk jólapakka
frá Möggu ömmu sem vandvirknis-
lega höfðu verið valdir eftir áhuga-
málum hvers. Svona er hún Magga
mín, allaf tími og umhyggja fyrir
aðra. En ef fólk langar til þess að
gleðja hana, þá er það alltaf allt of
mikil fyrirhöfn, finnst henni.
Elsku Magga. Þakka þér ómælda
yndislega vináttu liðinna ára. Þakka
þér sömuleiðis göngutúrana okkar,
skógarferðirnar, svo og allar sam-
verustundirnar okkar, svo og sér-
stöku stundanna um jólin.
Til hamingju vinkona með 80 árin
og megi heilsan vera þér góð á
ævikvöldinu. Kærar kveðjur til þín
frá mér, Kristjáni Inga svo og öllum
í fjölskyldunni.
Takk fyrir okkur.
Bjarndís
Hún vinkona mín, heiðurskonan
Magnúsína Olsen, er áttræð í dag,
28. maí. Hún er ein af þeim Isaijarð-
ardætrum sem Isafjörður á, og á
Isaijörð, í orðsins fyllstu merkingu.
Undirrituð kynntist henni fyrir 20
árum en þar áður í endurminning-
unni, er hún ein af þeim sem heils-
aði alltaf smáfólkinu í bænum með
bros á vör, og gaf sér alltaf tíma
til þess að heilsa vinum og kunningj-
um, á förnum vegi og spyija hvern-
ig fólki liði.
Það er alveg sérstakt brosið henn-
ar Möggu, og ekki síðri hjartahlýjan
og yndislega viðmótið hennar. Alla
tíð hefur hún átt svo mikið að gefa
okkur vinum sínum og ekki síður
fjölskyldunni. Fjölskyldan, börnin
hennar, barnabörnin, langömmu-
börnin svo og börn systkina hennar,
og aðrir niðjar hafa alltaf verið
Möggu mikils virði, og hefur hún
sannarlega verið iðin við að rækta
þau bönd.
Hún Magga á sérstakan og litrík-
an feril hér í bæjarlífinu. Óhætt er
að segja að hún hafi ásamt manni
sínum heitnum, Símoni Olsen, en
hann var norskur, verið frumkvöðull
að nýjum atvinnuiðnaði, ekki bara á
Isafirði, heldur um landið allt, en
það eru rækjuveiðar og rækju-
vinnsla. Símon var einn af fyrstu
skipstjórum við landið, að heíja
þessa veiðar með eiginkonu sína að
dyggum bakhjarli, því á sínum tíma
var þetta vissulega að fara út í óviss-
una. En með þrautseigju og dugnaði
gekk þetta upp og mun þessi sjávar-
iðnaður halda þeirra merki um
ókomna tíð. Rækjuverksmiðju
byggðu þau á Isafirði en þar var í
fararbroddi sonur þeira, Ole N.
Olsen, og varð samstarfsfólkið þar
alla tíð eins og stór samhent ijöl-
skylda, og alltaf velkomið á heimili
Möggu á Tangagötu 6 og hefur
ávallt verið gestkvæmt á þeim bæ.
En lífið hennar Möggu hefur ekki
alltaf verið dans á rósum. Hún og
Símon eignuðust 4 börn. Elst er
Inga Rut, býr á ísafirði, síðan var
Ole, en hann er látinn fyrir nokkrum
árum, Kristján, hann drukknaði
mjög ungur með föður sínum á mb.
Karmoy, _ bát fjölskyldunnar, við
veiðar í ísafjarðardjúpi árið 1961.
Yngstur var Marthen. Hann dó tæp-
lega þrítugur frá konu og þremur
börnum. Urðu þeir feðgar Möggu
og ljölskyldunni harmdauði, enda
allir í blóma lífsins. Kristján hafði
nýlega eignast son áður en hann dó,
og hlaut litli drengurinn nafn föður
síns, Kristján. Gæfan er hverful og
lífið getur haft hendur kaldar. Litli
Kristján lést af slysförum aðeins 10
ára gamall og var hann jafnframt
einkabarn móður sinnar, Snjólaugar
Guðmundsdóttur. Þrátt fyrir alla
þessa erfiðleika í einkalífinu bugað-
ist hún ekki, heldur stóð uppi sem
eikin sem bognaði um stund en
brotnaði ekki. Aðal styrkurinn henn-
ar þá og hefur verið alla tíð, er trú-
in, en Magga er mjög trúuð kona
svo og glaða lundin og jákvæðu við-
horfin hennar.
Hún ólst upp í góðum systkinahóp
og hefur svo sannarlega haft gott
veganesti frá elskulegum foreldrum
út í lífsbaráttuna. Magga er mjög
hreinskiptin, skýr og viðræðugóð
kona. Margar ánægjustundir höfum
við átt í að ræða lífsins gang, og
Ljósritunarpappír er bestur trefjaríkur, vel
pressaður og með réttu sýrustigi, svo að
hann geymist vel.
Skurðurinn þarf líka að vera hárnákvæmur,
til að pappírsarkirnar loði ekki saman.
Með vaxbornum umbúðum er mögulegt að halda
réttu rakastigi á pappírnum, eftir að hann er fluttur
úr sérhönnuðum pappírsgeymslum og settur á
markað.
Láttu fagmenn ODDA tryggja þér rétta
ljósritunarpappírinn.
- ÞAR SEM PAPPÍRINN FÆST
HÖFÐABAKKA 3 121 REYKJAVÍK
SÍMI: 83366