Morgunblaðið - 28.05.1991, Síða 24
1661 1AM HUOAGUIÖIOT (IIÖ AJQM LT05IÓM
MORGDNBLAÐIÐ ÞEIÐJDDAGUR 28. MAÍ1391'
Fjölbrautaskólinn Breiðholti:
Um 250 útskrifuðust
FJÖLBRAUTASKÓLA Breiðholts var slitið í íþróttahúsinu við Aust-
urherg fimmtudaginn 23. maí. 247 nemendum voru afhent lokapróf-
skírteini og þar af luku 140 stúdentsprófi.
Berglind Reynisdóttir náði best-
um árangri á stúdentsprófi úr dag-
deild skólans, en hún var á náttúru-
fræðibraut. Magnús Bjamason náði
bestum árangri nemenda kvöldskól-
ans, en hann var á viðskiptabraut.
Kristín Arnalds, skólameistari
gerði grein fyrir starfi og prófum
’ dagskóla en Stefán Benediktsson,
og félagsstörf. Svava Helga Carlsen
hlaut viðirkenningu fyrir félags-
störf en hún er fyrsta konan sem
gegnir starfi formanns nemendaf-
álgs dagskólans. Dúx skólans,
Berglind Reynisdóttir, hlaut einnig
viðurkenningu. Félag íslenskra
snyrtifræðinga og Landssamband
iðnaðarmanna veittu nemendum
Frá útskrift nýstúdenta við Menntaskólann við Hamrahlíð.
Morgunblaðið/Ingibjörg
aðstoðarskólameistari,
nemendum kvöldskólans prófskírt-
eini og fór yfir starf vetrarins. í
dagskólanum voru 1386 nemendur
og 970 í kvöldskólanum. Kennarar
við skólan voru 138.
Rótarýklúbburinn Breiðholt og
Soroptimistaklúbburinn Reykjavík
IV, veittu nemendum í fyrsta skipti
viðurkenningar fyrir námsárangur
afhenti einnig viðurkenningar.
Vilberg Viggósson lék á píanó
og kór Fjölbrautaskólans söng und-
ir stjóm Emu Guðmundsdóttur.
Nýstúdentamir Berglind Reynis-
dóttir og Eyrún Jóhannesdóttir léku
á píanó og flautu. Fjölmargar ræð-
ur voru fluttar og þar á meðal flutti
fulltrúi tíu ára stúdenta ávarp.
MH slitíð í 25. sinn
Morgunblaðið/Bjami
Hvítu kollarnir komnir á sinn stað og stúdentsprófið að baki.
MENNTASKOLANUM við
Hamrahlíð var slitið í 25. sinn
laugardaginn 25. maí. Braut-
skráðir voru 126 stúdentar, 42
karlar og 84 konur.
Flestir úrskrifuðust af félags-
fræðibraut, 44 talsins, 38 útskrif-
uðust af náttúrufræðibraut, 26 af
nýmálabraut, 16 af eðlisfræði-
braut og 2 af tónlistarbraut.
Nokkrir nýstúdenta útskrifuðust
af tveimur brautum.
Bestum árangri á stúndents-
prófi náði Elín Margret Thorlacius
af náttúrufræðibraut, en hún hlaut
einkunnina 9 eða 10 i 124 eining-
um og þar af 10 í 57 einingum.
Kristín Helga Þórarinsdóttir, stúd-
ent af nýmálabraut, hafði eink-
unnina 9 eða 10 að baki 116 ein-
ingum og þar af 10 í 43.
Sverrir Einarsson, rektor MH,
Nýútskrifaðar blómarósir úr Menntaskólanum við Hamrahlíð, ásamt
einum fulltrúa karlstúdenta.
240 útskrifast úr Verslunarskóla íslands;
Fjölmennasti útskriftar-
hópur í sögu skólans
VERSLUNARSKÓLA íslands var slitið sl. laugardag og lauk þar með
86. starfsári skólans. Alls voru brautskráðir 240 nemendur og er það
fjölmennasti hópur sem brautskráður hefur verið frá skólanum. Þar
af voru 217 sem luku stúdentsprófí úr dagskóla og öldungadeild, og
25 luku verslunarmenntaprófi, en tveir þeirra luku einnig stúdentspróf-
Valdimar Hergeirsson skólastjóri
hélt brautskráningarræðu við skóla-
slitin og afhenti nemendum próf-
skírteini. Valdimar hefur gegnt stöðu
skólastjóra í eitt ár, meðan Þorvarð-
ur Elíasson hefur verið í leyfi. Þor-
varður mun hins vegar taka við skól-
astjóminni frá og með næsta skóla-
ári og mun Valdimar þá halda áfram
fyrra starfi sínu sem yfirkennari
skólans, en hann hefur um 30 ára
skeið gegnt því starfi.
Við skólaslitin þakkaði Valdimar
samstarfsfólki sínu og nemendum
fyrir „lærdómsríkt og ánægjulegt
ár“, eins og hann komst að orði. Við
nemendur sagði hann meðal annars:
„Því fylgir nokkur eftirsjá að skilja
við líflegan og góðan félagsskap en
það er okkur huggun og uppörvun
að vita að þið verðið hluti af þeirri
samstæðu heild sem slær skjaldborg
um Verslunarskóla íslands og eruð
þið alltaf velkomin í þetta hús.“
Þá greindi Valdimar frá manna-
breytingum í skólanefnd Verslunar-
skólans. Hilmar Fenger, sem átt hef-
ur sæti í skólanefndinni í 20 ár, hef-
ur ákveðið að draga sig í hlé. Hann
var formaður nefndarinnar í þtjú ár.
Ennfremur hættir Kristján Jóhanns-
son störfum í nefndinni, en í þeirra
stað koma viðskiptafræðingamir
Bjarni Snæbjörn Jónsson og Hilmar
Baldursson. Árni Þ. Árnason tekur
við formennsku skólanefndarinnar
frá og með 1. júní næstkomandi.
Verðlaun fyrir framúrskarandi
námsárangur voru veitt og var dúx
skólans Axel Hall úr stærðfræði-
deild. Hann hlaut aðaleinkunnina
9,34, en auk hans fengu þrír nemend-
ur dagskóla 1. ágætiseinkunn, Erla
Sigurðardóttir op Sif Hannesdóttir
úr hagfræðideild og Hilmar Gunnars-
son úr stærðfræðideild. Einn nem-
andi öldungadeildar, Elna Sigrún
Sigurðardóttir, fékk 1. ágætisein-
kunn. 66 stúdentar fengu 1. ein-
kunn, 113 fengu 2. einkunn og 26
stúdentar fengu 3. einkunn. Auk
bókaverðlauna skólans fyrir hæstu
meðaleinkunnir gáfu eftirfarandi að-
ilar verðlaun fyrir ýmsar námsgrein-
ar:
Jóhann Ólafsson formaður Versl-
unarráðs íslands ávarpaði sam-
komuna og afhenti verðlaun sem
Verslunarráð veitir fyrir bestan
árangur í viðskiptagreinum. Verð-
launasjóður Hjartar Jónssonar kaup-
manns og Mál og menning veittu
verðlaun fyrir bestan árangur í ís-
lensku, Minningarsjóður um dr. Jón
Gíslason fyrrverandi skólastjóra
Verslunarskólans fyrir bestan
árangur í erlendum tungumálum,
Raungreinasjóður fyrir besta
árangurinn í raungreinum, stærð-
fræði og tölvufræðum, og Almenna
bókafélagið veitti verðlaun fyrir best-
an árangur í sögu.
í ræðu skólastjóra kom fram að í
verslunarmenntadeild skólans er lögð
mikil áhersla á hagnýt verkefni og
tölvunotkun við úrlausn þeirra.
Stjórnunarfélagið veitti verðlaun og
viðurkenningar fyrir bestan árangur
í lokaverkefni deildarinnar og einnig
fyrir hæstu einkunn í deildinni.
Hæstu aðaleinkunn í verslunar-
menntadeild hlaut Sólveig Kr. Ás-
geirsdóttir.
Að lokinni afhendingu prófskír-
teina og verðlauna flutti Hildigunnur
Sverrisdóttir fulltrúi nýstúdenta
kveðjuávarp frá stúdentum. Að því
loknu hélt nýkjörinn forseti nemend-
afélagsins, Gísli Marteinn Baldurs-
son, ræðu og afhenti viðurkenningar
fyrir félagsstörf á liðnu skólaári.
Olafur Egilsson sendiherra íslands í
Moskvu útskrifaðist frá Verslunar-
skólanum fyrir 35 árum og var hann
viðstaddur brautskráninguna. Hann
ávarpaði samkomuna og færði skó-
lanum safn geisladiska með valinni
tónlist til minningar um Jóhannes
L.L. Helgason skólafélaga sinn, sem
lést á síðastliðnu ári. Jóhannes
tengdist Verslunarskólanum á marg-
an hátt og gegndi meðal annars stöðu
formanns skólanefndar.
gerði meðal annars að umtalsefni
í skólaslitaræðu sinni þann hóp
nemenda sem nú innritast í fram-
haldsskóla eftir grunnskólapróf og
þá sem höfð áunnið sér rétt til
setu í framhaldsskólum fyrir ald-
arfjórðungi, á fyrsta starfsári MH.
I máli hans kom fram að nú
setjast um 80 af hundraði grunn-
skólanema í framhaldsskóla en
fyrir 25 árum fór fjórðungur nem-
enda í framhaldsskóla. Þessi fjölg-
un nemenda leggur þá kvöð á
skólana að koma til móts við mis-
munandi þarfir nemenda.
Menntaskólinn við Hamrahlíð
er fyrst og fremst hefðbundinn
bóknámsskóli sem býr nemendur
undir nám í háskóla en að undan-
INNLENT
förnu hefur farið fram ítarleg
umræða innan skólans um hvernig
gefa mætti nemendum frekari
kost á að ráða samsetningu eigin
náms en verið hefur. Tekist hefur
að móta stefnu innan skólans sem
tekur í auknu mæli mið af sérþörf-
um nemenda, en leggur þeim jafn-
framt aukna ábyrgð á herðar.
Rektor ræddi einnig um öld-
ungadeildina við skólann, nýfram-
kvæmdir við skólann og síðan vék
hann að viðhaldi skólahúsnæðisins
sem í mörgu er ábótavant. Að lok-
um gat hann um blómlegt félags-
líf nemenda á önninni.
Sigríður Theodórsdóttir, kenn-
ari við MH, ávarpaði nýstúdenta
og aðra gesti. Fulltrúi nýstúdenta
flutti ávarp og fulltrúar 10 og 20
ára stúdenta færðu skólanum gjaf-
ir.
Kór Menntaskólans við Hamra-
hlíð, undir stjóm Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur, söng auk þess sem
nokkrir kórfélagar léku á hljóð-
færi og sungu einsöng.
Axel Hall, dúx Verslunarskólans:
A von á að verk-
fræðin verði vaJin
„ÉG HEF verið að velta fyrir mér að fara annaðhvort í hagfræði
eða verkfræði í Háskólanum næsta ár. Ég á frekar von á að verk-
fræðin verði fyrir valinu, en tek endanlega ákvörðun í sumar,“
sagði Axel Hall, dúx Verslunarskólans. Axel fékk 9,34 í aðaleinkunn
og auk verðlauna fyrir hæstu aðaleinkunn fékk hann verðlaun fyr-
ir hæstu einkunn í íslensku, ensku, þýsku, erlendum tungumálum
og sögu.
„Ég hef verið í stærðfræðideild
Verslunarskólans í þijú ár og hef
kynnt mér námsefnið í verkfræð-
inni sem kennt er í Háskóla ís-
lands. Ég komst að raun um að
með því að stunda vel námið í
stærðfræðideild VÍ hef ég góðan
undirbúning fyrir verkfræðinámið.
Það hefur orðið ör þróun í stærð-
fræðikennslu í Verslunarskólanum
og nú er undirbúningur í stærð-
fræðideildinni sambærilegur við
það besta sem gerist í stærðfræði-
kennslu á landinu."
Axel fékk verðlaun í húmanísk-
um námsgreinum, en hann segist
hafa sérstaklega gaman af rök-
fræði. „Stærðfræðin er svo rökræn,
þess vegna höfðar hún vel til mín,“
segir hann. Hann hefur verið hæsti
nemandi skólans síðastliðin þijú ár.
„Ég ákvað að fara í Versló vegna
þess að það er sá skóli sem býður
uppá það besta og nýjasta hveiju
sinni. Ég hef verið mjög ánægður
í skólanum og hef eignast vini sem
ég á von á að eiga alla ævi.“
Þegar Axel er spurður hvort
hann sé ekki draumanemandi allra
kennara, svarar hann að bragði:
„Nei, það held ég ekki. Ég er óskap-
Axel Hall, dúx Verslunarskól-
ans.
lega erfiður nemandi og spyr mik-
ið. Ég vil fá sem mest út úr kennsl-
unni og á móti legg ég mikið á mig
í náminu. Ég segði ósatt ef ég segði
að það væri ekki vinna að fá svona
háar einkunnir. Þetta er spurning
um skipulagningu, aga og vinnu.
Svo mega menn náttúrlega ekki
vera nautheimskir!" segir hann.