Morgunblaðið - 28.05.1991, Síða 26
Si
MÖÉtíÚMBLAÐÍÐ' ÞÚtÖJÚBÁÚÚR128v RIÁÍ 1991
Bandarísk umhverfisverndarsamtök:
Danir sagðir heims-
ins mestu hvalveiði-
menn í nýrri skýrslu
Kaupmaiinahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
í SÍÐUSTU viku birtu bandarísk umhverfisverndarsamtök, Envir-
onmental Investigation Agency, skýrslu um ástand hvalastofna
og hvalveiðar. í skýrslunni eru Danir sakaðir um að vera sú þjóð,
sem drepur flesta hvali, aðallega smáhvali og höfrunga.
Skýrslan er birt í tilefni af fundi
Alþjóðahvalveiðiráðsins í Reykja-
vík. í henni eru Danir sagðir
stunda hvaladráp við Grænland
auk þess sem grindhvaladráp Fær-
eyinga er skrifað á reikning Dana.
Einnig er bent á að margir smá-
hvalir drepist vegna fiskveiða
Dana í Norðursjó þar sem þeir
festist í fiskinetum. Það mál hefur
áður verið rætt í Danmörku.
Ýmsar sjónvarpsstöðvar í
Bandaríkjunum hafa sagt frá
skýrslunni og um leið birt myndir
frá grindhvaladrápinu í Færeyjum.
Embættismenn úr danska sjáv-
arútvegsráðuneytinu og danskir
sjávarlífræðingar segja ásakanirn-
ar alveg út í hött. Færeyingar
veiði grindhvali sem ekki séu í
hættu og hvaladráp vegna fisk-
veiða séu órannsakað mál. Það sé
því út í hött að setja Dani efst á
lista þeirra semí gangi harðast
fram í hvalveiðum.
Fundur Hvalveiðiráðsins í
Reykjavík og stefna Dana þar var
rædd á danska þinginu á fimmtu-
dag. Uffe Ellemann-Jensen ut-
anríkisráðherra hefur lagt til við
ríkisstjórnina að Danir samþykki
hvalveiðar í ábótaskyni en meiri-
hluti þingmanna er á móti því,
þ.e. þingmenn jafnaðarmanna,
Sósíalíska þjóðarflokksins og rót-
tækra vinstrimanna.
Samtök atvinnulífsins í samvinnu
við Iðnlánasjóð og
Fiskveiðasjóð boða til:
KYNNINGARFUNDAR
UM FYRIRTÆKJANET
29. MAÍ1991
Fundurinn verður haldinn á Hótel Holiday Inn þann
29. maí nk. og stendur frá kl. 8.45 til 16.00. Verðið er
3.400,- kr. og er hádegisverður og fundargögn innifal-
in. Þátttaka tilkynnist sem fyrst einhverjum af eftirfar-
andi samtökum:
Vinnuveitendasambandi íslands í síma 91-25455
Félagi íslenskra iðnrekenda í síma 91-27577
Alþýðusambandi íslands í síma 91-83044
Útflutningsráði íslands í síma 91-688777
Landsambandi iðnaðarmanna í síma 91-621590
Samstarfsnefndar atvinnurekenda í sjávarútvegi í
síma 91-11480.
ÞRÍRÉTTA
MATSEÐILL
^ 1. júní 6
Rokksýning sem allir tala um
og engiiin vill missa aí
SÍÐASTA SÝNING
Réttarhöld yfir um 200 manns hófust í Kúveit á
vegum þarlendra stjórnvalda í byijun maímánaðar.
Sakbomingunum, sem flestir eru Palestínumenn, er
gefíð að sök_ að hafa aðstoðað íraska hernámsliðið
eftir innrás íraka í Kúveit í ágúst á síðasta ári. Á
myndinni gætir kúveiskur hermaður þriggja íraskra
kvenna sem bíða eftir því að koma fyrir rétt. Konurn-
ar vom ákærðar fyrir að hafa skotið skjólshúsi yfir
íraskan hermann meðan á hernáminu stóð. Konum-
ar sögðu að hermaðurinn væri ættingi þeirra.
Egyptaiand:
Þriðjungiir erlendra
skulda afskrifaður
Kaíró. Reuter.
17 RÍKI, sem aðild eiga að París-
arklúbbi vestrænna lánar-
drottna, ákváðu á laugardag að
afskrifa um þriðjung af öllum
erlendum skuldum Egypta á
næstu þremur árum með því skil-
yrði að þeim tækist að koma á
efnahagsumbótum.
FYRIR skemmstu rann út frest-
ur til að skila tilboðum í rekstur
bresku óháðu sjónvarpsstöðv-
anna. 40 tilboð bárust í 16
rekstrarleyfi til sjónvarps-
rekstrar.
í Bretlandi er sjónvarp sent út
á 4 rásum. BBC sendir út á tveim-
ur, 16 óháðar stöðvar senda út á
rás 3 og ein óháð stöð sendir út
á rás 4.
Stjórn Margaret Thatcher, fyrr-
verandi forsætisráðherra, ákvað
að nú yrði leyfunum fyrir rás 3
úthlutað til hæstbjóðanda að upp-
fylltum ákveðnum gæðakröfum.
Nýjum starfsleyfum verður úthlut-
að í október af sjónvarpsráði, sem
metur umsóknirnar. Leyfið er til
10 ára og hefst árið 1993.
40 tilboð bárust í þau 16 leyfi,
sem óskað var eftir tilboðum í.
Mest er sóst eftir rekstrarleyfum
á Suður-Englandi á Lundúna-
svæðinu. Þijár af núverandi stöðv-
um fengu engin gagntilboð og
halda því sínum leyfum, ef sjón-
varpsráðið fellst á tilboð þeirra.
Sumar af núverandi stöðvum
standa illa fjárhagslega. Þetta á
sérstaklega við um TVS Televis-
ion, sem sendir út í suður- og
suðvesturEnglandi. Talið er ólík-
legt að sú stöð hafi fjárhagslegt
Ríkin féllust á að afskrifa um tíu
milljarða dala eða tæpan helming
skuldar Egypta við þau. 15% skuld-
arinnar verða afskrifaðar 1. júlí,
15% eftir átján. mánuði og 20% 1.
júlí 1994. Egypska stjórnin hafði
farið fram á að helmingur skuldar-
innar yrði afskrifaður þegar í stað
bolmagn til að standa keppinaut-
um sínum á sporði. Almennt er
þó talið ólíklegt, að miklar breyt-
ingar verði þegar leyfunum verður
úthlutað. Engar upplýsingar hafa
verið gefnar um tilboðin.
Borgaralegu flokkamir hafa nú
verulegar áhyggjur af velgengni
óánægjuframboðsins Nýs lýðræðis
og vilja halda því fram að flokkur-
inn standi ekki undir 42 þingsætum,
frambjóðendur hans séu ekki nægi-
lega frambærilegir. Nú verða bæði
Hægri flokkurinn og Þjóðarflokkur-
inn að einbeita sér að því í kosninga-
baráttunni að reyna að yfirvinna
vinsældir Nýs lýðræðis. Ingvar
Carlsson forsætisráðherra hefur
lýst áhyggjum sínum yfír því að
og sagt að Vesturlönd hefðu hag
af efnahagslegum stöðugleika í
Austurlöndum nær.
Þetta samkomulag er bundið því
skilyrði að egypska stjómin standi
við samning, sem hún hefur gert
við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um
efnahagslegar umbætur. Stjórnin
hyggst koma á fijálsu markaðshag-
kerfi eftir þriggja áratuga miðstýr-
ingu og boðaði nýlega harðar efna-
hagsaðgerðir, meðal annars hækk-
un skatta og orkuverðs.
Bandaríkjastjórn afskrifaði um
sjö milljarða dala skuld Egypta fyrr
á árinu og hafði beitt sér fyrir því
að vestrænir lánardrottnar gerðu
svipaða samninga við þá. Mörg ríki
að Egyptar hefðu fengið mikla
efnahagsaðstoð í kjölfar stríðsins
fyrir botni Persaflóa og brýnna
væri að afskrifa skuldir annarra
ríkja. Auðug Persaflóaríki hafa af-
skrifað sjö milljarða dala skuld
Egypta til að þakka þeim aðstoðina
í stríðinu.
óánægjuframboði eins og Nýju lýð-
ræði skuli takast að fá jafn mikla
athygli og raun ber vitrii.
Síðan Þjóðarflokkurinn og Hægri
flokkurinn kynntu sameiginlega
stefnu sína í þjóðmálum og efna-
hagsmálum fyrir fjórum mánuðum
hafa þeir tapað um 10% fylgis síns.
Kosningar fara fram í Svíþjóð 15.
september nk. og þurfa allir flokkar
að nota tímann vel fram að þeim.
Kosningabaráttan hefst formlega í
lok júlí.
Bretland:
Margir bjóða í starfs-
leyfi sjónvarpsstöðva
St, Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, frcttaritara Morgunblaðsins.
Nýju lýðræði eykst
enn fylgi í Svíþjóð
Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara Morgunblaðsins.
EF kosið yrði í Svíþjóð í dag fengi nýi stjórnmálaflokkurinn Nýtt
Iýðræði nærri 12% atkvæða og 42 þingmenn kjörna. Nýjasta skoðana-
könnunin bendir til þess að Hægri flokkurinn haldi áfram að tapa
fylgi og í fyrsta skipti í meira en eitt ár eykst jafnaðarmönnum
fylgi og stjórnarflokkurinn fær yfir 30%.