Morgunblaðið - 28.05.1991, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÍ) VÐSKIPII/ÍIlIVDINULÍF 'ÞRIÐ.ÍL'UAGUK 28. MAÍ .1991
0 tölva
uskjai upp i stora 1
druð notenda eru t
tímis við tölvuna.
Morgunblaðið/KGA
TIMAMOT — Fimmtugasta Time Manager námskeiði Stjórn-
unarfélags íslands lauk í endaðan apríl sl. Rúmlega 2.500 manns
hafa sótt námskeiðin, sem öllum hefur verið stjórnað af Anne Böge-
lund-Jensen yfirleiðbeinanda Time Manager. A myndinni sést Anne
Bögelund-Jensen skála við Láru Margréti Ragnsdóttur, fyrrverandi
framkvæmdastjóra Stjórnunarfélagsins.
:X*}\ %
Mndiið Júxtœhi
(verði fyrir
eiiutaklingo
M fmteki
«1 öllum stterðum
iV - y
Nec/Nefax 170
Verö kr. 56.163 stgr. m/vsk.
Tatung / Myfax 3900
Verö kr. 42.297 stgr. m/vsk.
Póstur og sími býður mikið og gott úrval af áreiðanlegum og
vönduðum faxtækjum. Tækin eru af öllum stærðum og gerðum,
þau minni henta einstaklingum og litlum fyrirtækjum og þau
stærri eru fyrir mikla notkun og tilvalin fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Öll tækin eru á góðu verði og úrvalið er meira en þú heldur.
Komdu í söludeildir Pósts og síma og þú finnur örugglega
faxtæki sem hentar þér og þínu fyrirtæki.
Nec/ Nefax 300
Verö kr. 108.710 stgr. m/vsk.
PÓSTUR OG SÍMI
Söludeildir í Kirkjustræti, Kringlunni, Ármúla 27
og á póst- og slmstöðvum um land allt
Danmörk
Mikil veltu-
og sölu-
aukning hjá
LEGO
LEGO-fyrirtækið danska er
meira veldi en margan grunar
og er stöðugt að færa út
kvíarnar. Síðustu þijú ár hef-
ur salan aukist hröðum skref-
um en vegna óhagstæðrar
gengisþróunar voru tekjur
fyrirtækisins þó minni á
síðasta ári en 1989. Eins og
fyrr er rekstur dótturfyrir-
tækjanna, LEGO Systems Inc.
í Bandaríkjunum og LEGO
AG í Sviss, ekki gerður upp
sérstaklega en hjá þeim starfa
meira en 1.600 manns. Finnst
forráðamönnum fyrirtækisins
best að hafa þennan háttinn á
með tilliti til samkeppninnar
og forvitinna blaðamanna.
Á síðasta ári jókst velta LEGO
A/S-samsteypunnar um 7,6% og
var þá um 39 milljarðar ísk. Ef
gengisþróunin hefði verið hag-
stæðari hefði hún orðið eitthvað
yfir 40 milljarðar og má nefna
sem dæmi, að aðeins velta LEGO
Systems „minnkaði" af þessum
sökum nærri 800 milljónir ísk.
Á síðasta ári var hagnaður
LEGO-samsteypunnar fyrir
skatt um 4,47 milljarðar ísk. eða
11,5% minni en 1989.
Á liðnu ári jókst salan á lego-
kubbum um 15% en vegna þess,
að eftirspurnin var meiri en gert
hafði verið ráð fyrir, jókst um
leið tilkostnaðurinn við fram-
leiðsluna, ekki síst stjórnunar-
kostnaðurinn. í Evrópu var sölu-
aukningin 14%, í Bandaríkjun-
um 15% og um 25% á öðrum
mörkuðum. Sem fyrr eru helstu
markaðslöndin Þýskaland,
Bandaríkin, Bretland, Frakkland
og Ítalía en allt stefnir í, að
bandaríski markaðurinn verði
orðinn stærstur eftir nokkur ár.
LEGO selur framleiðsluna til
118 landa og að sjálfsögðu hefur
ekki gengið jafn vel alls staðar.
í Japan jókst salan til dæmis
sama sem ekkert í fyrra og það
þótt japanski leikfangamarkað-
urinn sé talinn sá næststærsti i
heimi. Hafa forráðamenn LE-
GOs fullan hug á bæta úr því
og hafa nú á pijónunum stofnun
sérstaks sölufélags í Tókýó.
Á síðasta ári fjárfesti LEGO
meira en nokkru sinni, fyrir rúm-
lega sex milljarða ísk., en eins
og nú horfir er viðbúið, að það
met standi ekki lengi.