Morgunblaðið - 28.05.1991, Síða 36

Morgunblaðið - 28.05.1991, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1991 161 brautskráðist frá Verkmenntaskólanum: Framhaldsskólinn er fjár- festing til framtíðarinnar - sagði Bernhard Haraldsson skólameistari við skólaslitin VERKMENNTASKOLANUM á Akureyri var slitið í sjöunda sinn við hátíðlega athöfn í íþróttahöllinni á Akureyri á laugardag. Við það tækifæri brautskráðist 161 nemandi frá skólanum, stúdentar, sjúkraliðar, sjókokkar og nemar í ýmsum iðngreinum. I upphafi skólaársins sl. haust voru liðlega 1.000 nemendur innritaðir í dagskóla og nærri 200 í öldungadeild. A vorönn voru kenndar 2.135 stundir í viku hverri, eða rúmlega 400 kennslustundir dag hvern við skólann, en kennarar eru 92 auk stundakennara. Um tveir þriðju hlutar nem- endahópsins eru Akureyringar, margir koma úr nærliggjandi byggðum og eru 9 af hveijum 10 úr kjördæminu. Bernharð Haraldsson skólameistari lagði áherslu á það í ræðu sinni við skólaslitin, að nemendanna væri þörf hér á svæðinu. „Kynnist heiminum, lærið hið góða af honum en komið aftur, þvi hér er ykkar þörf.“ Bernharð gerði mikla aðsókn að framhaldsskólum m.a. að umtalsefni og sagði að sam- kvæmt lögum um framhalds- skóla væri hann nú fyrir alla, nemendur ættu völ á fjölbreyttu bók- og verklegu námi sem til þeirra höfði. Þetta væri göfug hugsjón, en yrði aldrei nema * Morgunblaðið/Rúnar Þór Elva Þórisdóttir með dóttur sinni, Ásdísi Oddu. hjóm eitt ef hún ekki væri tekin alvarlega. „Tvennt er þó öðru brýnna: að samfélagið skilji að skólinn er ekki aðeins útgjaldaliður á fjárlögum, ekki bruðl og óráð- síða, heldur fjárfesting vegna framtíðarinnar og að hann sem stofnun og starfsmenn hans skipi þann sess í samfélaginu sem þeim ber. Á tímum aukinn- ar samvinnu milli ríkja og ríkja- hópa, á tímum bandalaga um efnahags- og stjórnmál er smá- þjóð eins og okkur íslendingum lífsnauðsyn að standa sem fastast í ístaðinu, að beita öllum ráðum til að hverfa ekki spor- laust í ríkjahópinn. Við verðum að horfast í augu við þá stað- reynd, að við erum aðeins rúm- lega 250.000 að tölu, dropi í útsæ 5.400 milljóna manna. Þess vegna verðum við að eiga vel Bára Eyfjörð Heimisdóttir af náttúrufræðibraut, dúx VMA. menntað ungt fólk, ekki bara langskólagengið með erlendar og innlendar háskólagráður, heldur líka og ekki síður með menntun af annarri gerð, menntun þar sem fer saman hugur og hönd, þar sem starf er gert mikilvægt af sjálfu sér. Þess vegna er framhaldsskólinn ekki bruðl heldur íjárfesting,“ sagði Bemharð m.a. í ræðu sinni. Röskun á starfsemi FSA í sumar: Áhersla lögð á bráðaþjónustu Dregið úr innlögnum á legudeildir RÖSKUN á starfsemi Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri verður með svipuðum hæjtti í sumar og var í fyrrasumar. Áhersla er lögð á að sinna bráðþjónustu, dregið verður úr innlögnum á legudeild- ir, skurðstofur verða reknar með helmingsafköstum, en starfsemi nokkurra deilda verður óskert yfir sumarmánuðina. Fá þarf til starfa yfir 100 hjúkrunarfræð- inga og um 30 lækna yfir sumar- mánuðina auk fjölda sérhæfðs starfsfólks. Að því hefur verið unnið á síðustu vikum og mánuð- um, en gengið nokkuð erfiðlega. Vignir Sveinsson skrifstofustjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, FSA, sagði að röskun á starfsemi sjúkrahússins yrði hliðstæð í sumar og verið hefði síðasta sumar. Ástæður þess að gripið er til sér- stakra aðgerða í rekstri sjúkrahúss- ins yfir sumarmánuðina eru einkum tvær. í fyrsta lagi nægja fjármunir þeir sem spítalinn hefur tií umráða ekki til að halda uppi fullum afköst- um í rekstri allt árið og í öðru lagi er skortur á sérhæfðu starfsfólki til afleysinga. Yfir sumarmánuðina þarf að fá afleysingafólk fyrir u.þ.b. 100 hjúkrunarfræðinga og 30 lækna, auk mikils fjölda annars sérhæfðs starfsfóiks sem tekur út sín samningsbundnu leyfi. „Það hefur gengið frekar erfið- lega að fá starfsfólk, en við höfum þó fengið það fólk sem þarf til að geta haldið uppi bráðaþjónustunni. Það hefur tekið langan tíma að fá fólk til starfa og við höfum ekki fengið þann fjölda sem við þurf- um,“ sagði Vignir. Hann ástæðurn- ar einkum tvær, skort á hjúkrunar- fræðingum og mikla samkeppni um þá og einnig leyfðu fjárlög sjúkra- hússins ekki að fullri starfsemi væri haldið úti. Á FSA verður haldið uppi fullri þjónustu fyrir slysa- og bráðatil- felli, en starfsemi gjörgæslu-, fæð- ingar- og slysadeildar verður óskert í sumar. Skurðstofur verða reknar með helmingsafköstum, en innlögn- um og þar með aðgerðum á hand- lækninga-, bæklunar-, háls-, nef- og eyrna-, augn- og kvensjúkdóma- deildum verður haldið í lágmarki. Öllum bráðatilfellum verður þó Gagnfrapða- skólinn Is- landsmeistarí SVEIT Gagnfræðaskóla Akur- eyrar varð Islandsmeistari í Is- landsmóti grunnskólasveita í skák, en mótið fór fram í Reykja- vík um helgina. Tólf sveitir tóku þátt í mótinu og voru tefldar sjö umferðir eftir Monradkerfi. Röð efstu sveita varð þannig að Gagnfræðaskólinn á Akureyri hlaut 21 vinning, Æfingaskóli Kennarahá- skólans 20,5 vinninga, Breiðholts- skóli fékk 19 vinninga og Hólabrekk- uskóli 16. í sigursveit GA voru Þór- leifur Karl Karlsson, Örvar Arn- grímsson, Pétur Grétarsson og Páll Þórsson, en varamaður var Helgi P. Gunnarsson. Bestum árangri sveitar- manna náði Þórleifur, 6 vinningum af 7, og Páll 7 vinningum af 7. Liðs- stjóri var Þór Valtýsson. sinnt, en dregið úr innlögnum á öðrum legudeildum. Með þessum aðgerðum er starf- semin í heild dregin nokkuð saman á tímabilinu 1. júní til 15. septem- ber, án þess að til lokunar deilda þurfi að koma. Talið er að með þessum aðgerðum megi ná mark- miðum um nauðsynlegt aðhald í rekstri og veita starfsfólki samn- ingsbundin leyfi. Hestamannafé- lagið Léttir: Elvar, Birna og Hólmgeir hlutskörpust GÓÐ þátttaka var í hinni árlegu firmakeppni Hestamannafélags- ins Léttis á Akureyri, sem haldin var hringvelli félagsins í Breið- holti. í unglingaflokki varð Elvar Jón- steinsson á Freyju í 1. sæti, en hann keppti fyrir Eimskip, í 2. sæti varð Þórir Rafn Hólmgeirsson á Feld, sem keppti fyrir Akoplast og í 3. sæti var Erlendur Óskarsson á Stubb, sem keppti fyrir Bautann, Smiðjuna og Bautabúrið. Knapaverðlaun hlaut Elín Margrét Kristjánsdóttir á Vara, en hún keppti fyrir Mat og Mörk. í kvennaflokki sigraði Birna Björnsdóttir á Jörfa, en hún keppti fyrir Véjbátatryggingu Eyjaíjarðar, Herdís Ármannsdóttir á Elvu varð í 2. sæti, en hún keppti fyrir Matvöru- markaðinn, en í 3. sæti varð Aldís Björnsdóttir á Aron og keppti hún fyrir Lögmenn í Brekkugötu. Hugrún ívarsdóttir á Rosa hlaut knapaverð- laun, en hún keppti fyrir Utvegs- mannafélag Eyjaijarðar. Hólmgeir Valdimarsson á Sabínu sigraði í karlaflokki, en hann keppti fyrir Stjörnuapótek, í 2. sæti varð Birgir Arnason á Skotta, en hann keppti fyrir S.J.S. verktaka og í 3. sæti varð Björn Þorsteinsson á Drafnari og hlaut hann einnig knapa- verðlaun, en hann keppti fyrir Jón Bjarnason úrsmið. KEA gaf eignarbikara til fyrir- tækjanna og Hestasport gaf knapaverðlaun. Margrét frá Munka- þverá 100 ára MARGRÉT Júlíusdóttir ’ frá Munkaþverá í Eyjafirði varð 100 ára á laugardaginn, 25 maí. Margrét býr nú á Dvalar- heimilinu Hlíð á Akureyri, en afmælið var haldið í Laxdals- húsi, elsta húsi bæjarins og hinu fyrsta sem Margrét kom í sem barn í kaupstaðarferð. Föðursystir Margrétar, Rann- veig Laxdal, og maður hennar, Eggert Laxdal er húsið er kennt við, bjuggu í húsinu og þangað kom Margrét í heimsóknir sem barn og var það fyrsta húsið sem hún dvaldi í á Akureyri, fyrir 97-8 árum. Margrét fæddist að Munka- þverá í Eyjafirði 25. maí árið 1891 og ólst þar upp hjá foreld- rum sínum. Hún giftist Jóni Jó- hannessyni árið 1914 og hófu þau búskap á hluta jarðarinnar Munkaþverár, en þau bjuggu lengi félagsbúi með bræðrum Margrétar, Jóni og Hallgrími. Margrét missti mann sinn árið 1934, en hélt áfram búskap eftir lát hans fram til ársins 1959, en þá fluttist hún til Akureyrar ásamt Jóni bróður sínum og fjöl- skyldu hans. Síðustu tíu ár hefur Margrét búið á Dvalarheimilinu Hlíð, hún er ern og hefur fótavist á hverjum degi, sjón hennar er góð sem og heyrn og hún er ungleg og létt á fæti. Nærminni hennar hefur Morgunblaðið/Rúnar Þór Margrét Júlíusdóttir frá Munkaþverá varð 100 ára laugardaginn 25. maí og hélt hún upp á afmælið í Laxdalshúsi, elsta húsi á Akureyri. Við hlið hennar er Sólveig Kristjánsdóttir. veislunni, þar sem mikið var sung- ið og tók afmælisbarnið þátt í söngnum af lífi og sál. nokkuð hrakað síðustu ár, en gamla tímann man hún vel. Yfir 70 manns voru í afmælis-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.