Morgunblaðið - 01.06.1991, Side 32

Morgunblaðið - 01.06.1991, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JUNI 1991 Evrópuviðræður: Utanríkisráðherra segir stöðu samninganna nánast óbreytta EVRÓPUBANDALAGIÐ hefur enn ekki farið fram á tvíhliða viðræð- ur við Islendinga en Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir að við séum reiðubúnir til viðræðnanna ef bandalagið óskar eftir. En við værum ekki reiðubúnir að veita veiðiheimildir í skiptum fyrir tollfrjálsan aðgang sjávarafurða. Evrópska efnahagssvæðið og hugsanlegar tvíhliða viðræður við Evrópubandalagið voru ræddar í utandagskrárumræði í gær að beiðni Halidórs Ásgrímssonar (F-Al). Halldór Ásgrímsson (F-Al) sagði tilefni þessarar umræðu vera frétt og viðtal við utanríkisráðherra um að Evrópubandalagið væri reiðubúið að hefja tvíhliða viðræður um rammasamning, jafnhliða samningaviðræðum um evrópskt efnahagssvæði. Halldór vildi fá að vita hvort þarna væri aðeins um að ræða framhald þeirra viðræðna sem staðið hefðu allar götur síðan 1976. Hvort verið væri að flytja deiluna um að veiðiheimildir kæmu i stað tollaívilnana yfir í formlegrar tvíhliða viðræður? Við hveija yrði rætt? Yrði það eingöngu sjávarút- vegsdeildin eða utanríkismáladeild- in? Halldór var þeirrar skoðunar að mjög varhugavert væri að flytja ágreiningsmálin yfir í tvíhliða við- ræður, þótt hann gæti fallist á að áfram yrði kannað hvort mögulegt væri að ná rammasamningi um sjávarútvegsmál og að því loknu, tekin ákvörðun um hvort gengið skyldi til tvíhliðna viðræðna. Það myndi fyrst og fremst ráðast af því hvort krafan um veiðiheimildir væri á borðinu af hálfu Evrópubanda- lagsins. Óbreytt staða Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra sagði að samnings- staðan væri nánast óbreytt. Samn- ingarnir væru áfram á borðum EES-samninganna, þ.e. um evr- ópskt efnahagssvæði. Kröfur Evr- ópubandalagsins um veiðiheimildir væru óbreyttar. Og við höfnuðum þeim kröfum og settum fram óskir um tollfijálsan, hindrunarlausan aðgang fyrir okkar sjávarafurðir að markaði evrópska efnahags- svæðisins. Horst Krenzler aðal- samningamaður Evrópubandalags- ins hefði skýrt frá því að bandalag- ið myndi leita tvíhliða viðræðna við þær þjóðir sem þessi mál helst vörð- uðu. Hvað okkur Islendinga snerti, táknaði þetta að við værum við því búnir að taka upp tvíhliða viðræður um einhvers konar samstarfs- eða Friðrik Sophusson fjármála- ráðherra telur það sína embætt- isskyldu að framfylgja viðaukuni búvörusamnings en bendir á að það sé á valdi Alþingis að sam- þykkja nauðsynlegar lagabreyt- 'ingar til að þeir komist til fram- kvæmda. I gær var umræða utan dagskrár um búvörusamning þann sem gerð- ur var milli ríkisins og Stéttarsam- bands bænda. Steingrímur J. Sig- fússon (Ab-Ne) vildi fá skýr svör um hvort staðið yrði við samning- inn. Friðrik Sophusson fjármála- ráðherra sagði að það sem sig varð- aði sem fjármálaráðherra væri sá hluti búvörusamningsins sem fyrir- rennari hans hefði skrifað undir. Það væru viðaukarnir með þeim fyrirvörum sem væru um samþykkt Alþingis. Nauðsynlegar lagaheim- iidir hefðu nú þegar fengist til að hrinda í framkvæmd þeim skyldum sem fælust í fyrsta viðauka. Það rammasamning af því tagi sem áður hefðu farið fram. Evrópu- bandalagið hefði enn ekki farið formlega fram á viðræður en við værum hins vegar við því búnir. Enda hefði allar götur síðan 1972 verið ráð fyrir því gert. Núverandi ríkisstjórn væri tilbúin til, eins og fyrri ríkisstjórn, að taka upp tvíhliða viðræður ef Evrópubanda- lagið óskaði eftir. En hann lagði áherslu á og ítrekaði að samnings- staða okkar væri óbreytt. Samn- ingsstaða Fríverslunarbandalags Evrópu, EFTA, væri óbreytt og tvíhliða viðræður táknuðu ekki und- ir neinum kringumstæðum það að við værum fallnir frá þeirri grund- vallarstefnu að veita ekki veiðiheim- ildir til EB í íslenskri fiskveiðilög- sögu. Hjörleifur Guttormsson (Ab- Ai) sagði „kröfu“ EB um sérstakar viðræður vera tíðindi. Honum virt- ust EFTA-ríkin ekki tala lengur einni röddu. Hluti af EFTA-ríkjun- um beindi nú EB til sérviðræðna við íslendinga og að því sem upp- lýst hefði verið einnig Norðmenn til að ræða stöðuna. Og á morgun færu þrír ráðherrar til Noregs. Nú væri komið að því, að fá skrifað uppá fórnarkostnaðinn sem ut- anríkisráðherra hefði verið svo tíðrætt um í fyrravetur. Kristín Einarsdóttir (SK-Rv) sagði m.a. að það væri nú farið að renna upp fyrir mönnum að EES-viðræðurnar snerust ekki um fisk heldur fjór- frelsið svonefnda. Nú bærust af því fregnir að EFTA væri að hlaupa frá stuðningi við kröfur Islendinga, jafnvel heyrst óljósar fréttir um að samið yrði um evrópskt efnahags- svæði án þess að ljóst væri hvort íslendingar fengju að flytja toll- fijálst inn á markaði EB. Ræðu- maður sagði kvennalistakonur hafa bent á að í stað samninga um EES hefðum við átt að taka upp tvíhliða viðræður við EB um viðskiptamál og fara fram á endurbætur á gild- andi samningi. gerðir í viðauka nr. 2. Það væri embættisskylda fjármálaráðherra að fylgja fram þeim samningi eins og öðrum þeim samningum sem fjármálaráðherra hefði skrifað und- ir. Fyrirvarinn sem gerður væri, væri um samþykkt Alþingis um fjárveitingar til þeirra verkefna sem þar væru nefnd. Fjármálaráðherra benti á að stundum hefði það gerst að fjárveitingar hefðu breyst þrátt fyrir fyrirliggjandi samning. Ráð- herrann vildi taka það skýrt fram að með þeim orðum væri hann ekki að lýsa því yfir að ekki yrði staðið við samninginn, heldur einungjs að svara eins skýrt og mögulegt væri spurningu um embættisskyldu fjár- málaráðherra. Steingrímur J. Sigfússon (Ab- Ne) þakkaði fjármálaráðherra skýrt svar. Hann liti á það sem sína skyldu að fullnusta samninginn og undirbúa þar með nauðsynlegar lagabreytingar. Eyjólfur Konráð Jónsson (S-Rv) greindi frá því að utanríkis- málanefnd væri um þessar mundir að fjalla um þessi mál með aðal- samningamanni okkar. Þessi mál væru í deiglunni. Allir vissu að þrír ráðherrar væru á leiðinni til Nor- egs. En meginatriðið væri að enginn hefði léð máls á því að veita Evrópu- bandalagsþjóðum neinar veiðiheim- ildir innan íslenskrar fiskveiðilög- sögu. Það væri líka alveg fast að við krefðumst tollfrelsis fyrir okkar afurðir. Aðalatriðið væri að við værum sameinuð um þessi meginat- riði. Halldór Ásgrímsson (F-Al) sagðist skilja það svo, að hér væri um það að ræða að halda áfram þeim viðræðum sem hefðu staðið allt frá 1976. Mikilvægt væri að sameiginlegur skilningur væri milli EB og okkar um form viðræðn- anna. Hann innti nánar eftir því hvort þessar viðræður yrðu við ut- anríkismáladeildina eða sjávarút- vegsdeildina. Ef eingöngu væri um að ræða framhald á því sem áður hefði farið fram væri eðlilegt að þær yrðu við sjávarútvegsdeildina. Matthías Bjarnason aldursfor- seti þingmanna setti fyrsta fund í Alþingi í gær samkvæmt nýjum þingsköpum og breyttri stjórnar- skrá. Að aflokinni kosningu kjör- bréfanefndar var Salóme Þor- kelsdóttir valin forseti Alþingis. Að lokinni kosningu forseta þingsins óskaði Matthías Bjarnason hinum nýkjörna forseta til ham- ingju með kjörið og bað hana að taka við fundarstjórn. Þingforseti þakkaði aldursforseta fyrir góðar óskir og þingmönnum fyrir það traust að kjósa hana til þessa emb- ættis. Forseti Alþingis vonaði og vænti þess að þingmenn legðust á eitt um að veita hinni nýju skipan brautargengi svo hún mætti verða þingi og þjóð til framdráttar og gæfu. Næst á dagskrá var kjör fögurra varaforseta þingsins. Geir H. Ha- arde upplýsti að tekist hefði sam- komulag milli þingflokkanna um kjör varforsetanna sem ásamt for- seta þingsins mynduðu forsætis- nefnd þingsins. Sjálfstæðisflokkur- inn gæfi eftir það varaforsetaemb- ætti sem hann hefði fengið í sinn hlut ef hann hefði beitt þingstyrk sínum. Geir sagði þetta vera gert til að undirstrika þá samstöðu sem verið hefði um þær breytingar sem gerðar hefðu verið um daginn og í þeirri von að samstarf yrði með sama hætti í hinni nýju forsætis- nefnd. Þeir vildu láta á það reyna hvort samstarf allra þingflokka í forsætisnefnd um þingstörfin gæti orðið farsælt. En hann lét þess getið að þessi ákvörðun nú hefði ekki sjálfstætt fordæmisgildi, hvorki þegar nýir varaforsetar yrðu kosnir í haust né síðar. .Samkvæmt samkomulaginu voru Jón Helgason (F- Sl), Gunnlaugur Stefánsson (A-Al), Hjörleifur Gutt- ormsson (Ab-Al) og Kristín Einars- dóttir (SK-Rv) kjörin varaforsetar Alþingis. Forseti Alþingis óskaði þeim til hamingju með kjörið og minnti á að sín og þeirra biði mikið verkefni við að undirbúa þingstarfið sem hæfist í haust eftir hinum nýju þingsköpum. Að svo búnu var geng- ið til kosninga í fastanefndir Al- þingis. Ef um eitthvað annað væri að ræða, yrðu þær væntanlega við utanríkis- deildina. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra áréttaði að ekki væri verið að flytja samninga okkar við Evrópubandalagið yfir í tvíhliða viðræður. Ef formleg ósk bærist frá Evrópubandalaginu um að taka upp þráðinn um rammasamning þá hefðum við lýst því yfir af okkar hálfu að þær viðræður ættu að fara fram við utanríkisdeildina þótt það væri hennar mál hvort hún kallaði sjávarútvegsdeildina til þeirra við- ræðna. Engin breyting hefði orðið á því að EFTA talaði einni röddu. Afstað- an væri enn sameiginleg. Hann taldi þá stund vera að nálgast að fram- kvæmdastjórn Evrópubandalagsins gerði sér grein fyrir því að synjun Islendinga á einhliða veiðiheimild- um væri pólitísk alvara sem yrði ekki breytt. Spurningin væri um jafnvægi í þessum samningum, við íslendingar héldum því fram að við þyrftum ekki að taka á okkur ein- hvern fórnarkostnað sem aðgöngu- miða að þessu svæði. Á dagskrá annars fundar Alþing- is var einungis eitt dagskrármál. Tillaga um frestun á fundum Al- þingis. Davíð Oddsson forsætisráð- herra mælti fyrir tillögu til þings- ályktunar um samþykki til frestun- ar á fundum Alþingis til september- ' loka, nema kalla þyrfti það saman samkvæmt 23. gr. stjórnarskrár- innar. Tillagan var samþykkt sam- hljóða en Salóme Þorkelsdóttir þingforseti frestaði fundi í hálfa klukkustund svo fastanefndum Al- þingis gæfist færi á að velja sér formenn og varaformenn. Skilin eftir Hjörleifi Guttormssyni (Ab-Al) sagði sérkennilegt að tvö EFTA-ríki væru að ræða sín á milli hvernig ætti að ,jafna á merinni", ná jafn- vægi í heildarsamningum. Hjörleif- ur taldi að tvíhliða viðræður myndu veita öðrum EFTA-ríkum færi á að skilja okkur eftir. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra taldi naunsylegt að taka skýrt fram að viðræðufundur sá, sem væri fyr- irhugaður í Ósló að beiðni norska forsætisráðherrans, væri samráðs- fundur en alls ekki samningafundur af neinu tagi. Kristín Einarsdóttir taldi ljóst að ESS-viðræðurnar væru komnar í hið mesta óefni og hún ítrekaði að við hefðum strax átt að fara í tvíhliða viðræður um allt samningssviðið, bæði sjávarútvegs- mál og önnur mál. Ólafur Ragnar Grímsson (Ab-Rn) sagði að ut- anríkisráðherra hefði ekki svarað til um það, ef Evrópubandalagið færi formlega fram á viðræður, hvort ekki yrði ítrekað að þær yrðu eingöngu á grundvelli þeirra við- ræðna sem fram hefðu farið síðan 1976. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sagði þessari spurningu þegar svarað en vildi gjarnan endurtaka að engin breyt- ing hefði orðið; ekki væri verið að taka þessa samninga um evrópskt efnahagssvæði og færa yfir í tvíhliða viðræður. Það eina sem breyst hefði væri að aðalsamninga- maður EB hefði loks svarað já- kvætt áður framkomnum óskum íslendinga um tvíhliða viðræður; taka þráðinn upp aftur. Eftir fundarhléið gerði þingfor- seti grein fyrir úrslitum af nefndar- fundunum; hveijir væru nú formenn og varaformenn fastanefnda þings- ins. í fundarlok þakkaði þingforseti öllum þeim sem unnið hefðu að því að koma hinni nýju skipan Alþingis á og óskaði þingmönnum og starfs- fólki Alþingis gleðilegs sumars. Að svo búnu las Davíð Oddsson forsæt- isráðherra forsetabréf sem veitti forsætisráðherra umboð til að fresta fundum Alþingis fram til septemberloka. Samkvæmt þessu umboði var Alþingi síðan frestað. Friðrik Sophusson: Embættisskylda ráð- herra að framfylgja við- aukum búvörusamnings sem eítir stæði væru stuðningsað- Salome Þorkelsdóttir kjörin forseti Alþingis Alþingi frestað Alþingi var frestað á fimmta tímanum eftir hádegi í gær. Form- lega verður þessu þingi ekki slitið fyrr en um mánaðamót septemb- er og október. Þar sem þinginu hefur ekki verið slitið heldur það enn umboði sínu og er unnt að kalla það saman til aukafundar ef þörf krefur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.