Morgunblaðið - 13.08.1991, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1991
45
GÆLUDÝR
Tók hrafnsunga í fóstur
Grétar Hannesson varð heldur en
ekki undrandi þegar hann var
á gönguferð með föður sínum um
Svartagil í Þingvallasveit í maí síð-
astliðnum og þeir feðgar gengu fram
á lifandi hrafnsunga. Unginn hafði
greinilega orðið viðskila við foreldra
sína, hann var kaldur, horaður og
tísti ámátlega. Grétar vissi að ef
hrafnsunginn yrði skilinn eftir myndi
hann innan skamms deyja úr hungri
og vosbúð. Hann spurði því pabba
sinn hvort hann fengi ekki að taka
hann heim og hlúa að honum þar.
Leyfið var veitt og síðan fluttu þeir
ungann til heimilis þeirra í aust-
urhluta Reykjavíkur. í borginni var
hrafninn fljótur að ná sér enda var
hvergi sparað við hann í mat.
Þrátt fyrir að hann hafi vaxið og
dafnað í sumar og sé nú orðinn að
myndarlegasta hrafni er ekkert far-
arsnið á honum. Grétar hefur því
eignast fremur óvenjulegt gæludýr
sem er hefur til þessa ekki fengist
í gæludýraverslunum
í samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins sagðist Grétar hafa langað
í gæludýr en ekki hafa grunað að
það yrði með þessum hætti. „Það
hefur verið mjög gaman að hafa
krumma í fóstri.
Við pabbi smíðuðum búr handa
honum inni í bílskúr og þar sefur
hann. Við geymum hann líka í búr-
inu þegar nágrannarnir grilla því
annars stelur hann öllu kjötinu frá
þeim. Að öðru leyti er hann úti
mestallan daginn en þegar hann
þreytist vill hann komast inn í búrið
og hvíla sig.
Hann fer sjaldan langt frá húsinu
og aldrei lengi í einu. Hann er af-
skaplega gæfur og hræðist yfirleitt
ekki ókunnuga.
Ég veit reyndar ekki hvers kyns
hann er en við skírðum hann ígor.
Nafnið var valið vegna þess að hjálp-
armaður Frankensteins hét ígor en
einnig er það fornafn Sikorskys, hins
kunna þyrlusmiðs."
Grétar segir að fá vandamál fylgi
því að hafa hrafn sem gæludýr.
„Hann fær ekki að koma inn í íbúð-
arhúsið og búrið geymum við inni í
bílskúr. Hann getur verið stríðinn
en börnunum í götunni finnst samt
mjög gaman að leika við hann.
Honum finnst líka mjög gaman
að leika sér en ef þau gerast of
ágeng, getur hann orðið smeykur.
Þá hleypur hann undir bíl og kemur
ekki aftur fyrr en látunum hefur
linnt. Hundar og kettir hér í ná-
grenninu hafa yfirleitt látið hann í
friði.
ígor er þó á varðbergi gagnvart
þeim og ef honum finnst þeir vera
komnir fullnærri sér, reisir hann upp
kambinn og krunkat' reiðilega. Þá
eru dýrin ekki lengi að forða sér.“
Það þarf að sinna Igori eins og
öðrum gæludýrum. Grétar hreinsar
búrið hans reglulega og veitir honum
félagsskap. „Mig langar til að kenna
honum einhveijar listir en slíkt er
örugglega tímafrekt og ég hef aldr-
ei tamið _dýr áður. Svo getur það
gerst að ígor fljúgi frá okkur einn
góðan veðurdag.
Ennþá er hann bara ungi en þeg-
ar hann verður kynþroska getur vel
verið að hann fljúgi í buríu í maka-
leit eða þá að einhver maki finni
hann. Gerist slíkt viljum við alls
ekki hindra það.
ígor ræður því sjálfur hvort liann
fer eða verður um kyrrt enda gæti
ég ekki hugsað mér að lialda honum
hér nauðugum," sagði Grétar Hann-
esson að lokum
Grétar Hannesson
og Þórir Reynir
Þórisson ásamt
hrafninum Igor.
Morgunbladið/Árni Sæberg
ígor er mjög gæfur og hér leyfir hann Grétari að halda á sér.
Stefán Halldórsson, sæbarinn Austfirðingur kominn í höfn.
AUSTFIRÐIR
Aldamótabarn
Hann er á dvalarheimilinu —
Stebbi á Höskuldsey, eins og
við köllum hann. „Ég er Austfirðing-
ur. Það má segja aldainótabarn.
Fæddur 9. júní 1903 í Sandvík. Til-
heyrir Norðfjarðarhreppi. Þar voru
7 býii eða fleiri þá en nú auðn. Þar
var stutt í sjóinn. Foreldrar mínir,
Elísabet Bi-ynjóifsdóttir og Halldór
Halldórsson. Ég man ekkert eftir
mér þar. Þá lá leiðin til Fáskrúðs-
íjarðar að Fögruey. Þar stofnaði
pabbi verslunarfélag. Það stóð stutt.
Síðan í Hafnarnes. Þegar hvalstöðin
á Fögruey lagðist niður fór eigand-
inn, kafteinn Bovl til Suður-Afríku.
Hann gaf pabba timbur í lítið hús.
Við vorum 6 systkinin. Ég er einn
eftir. Byijaði snemma á sjó. Við
bræðurnir fengum að fara í skekt-
unni til að afla til matar. Mörg býli
voru á Hafnarnesi. Það var verstöð.
Komst í nær 100 íbúa. Öll björg var
úr sjónum. Mannlífið gott, en ekki
mikið um skemmtanir.
Það var sótt stutt á mið, en svo
komu trillurnar og þá var lengra
sótt. Það þótti sjálfsagt fyrir unga
menn að fara til Vestmannaeyja á
vertíð. Ég fór þangað ungur maður.
Þá voru bátarnir ekki stórir, svona
8 tonna. Ég var fyrst með Árna
Finnboga á útveg Gísla J. Johnsen.
Það var fínn maður, já báðir. Ég var
einnig hjá Þórði á Bergi. Hann var
kraftajötunn og mér óskiljanlegt
hveiju hann gat lyft. Hann var allt-
af ljúfur. Ekki liefði verið gott að
hafa hann reiðan móti sér með alla
þessa krafta. Ég var lengst hjá hon-
um. Við fiskuðum vel að þeirra tíma
hætti. Já, ég kom víða við. Ég
kvæntist ungur Ástu Þorbjarnar-
dóttur. Við eignuðumst einn son,
Halldór. Missti hana eftir stutta
sambúð, en var svo heppinn að eign-
ast aðra konu, Gyðu Jónsdóttur frá
Breiðafirði. Það var til þess að ég
flutti mig um set. Fékk ábúð í Bílds-
ey hjá Olafi Hvanndal, þá eiganda
hennar. Það var 1940. Og með eyja-
gangi fór ég á vertíð. Við gátum
ekki lifað á því sem eyjan gaf. Égv
var með Markúsi Þórðarsyni. Svo
náði ég í Höskuldsey, þar var viti,
og mikið af fugli og dún og sára-
stutt á miðin. Þar leið okkur Gyðu
vel. Ég frétti af því að Höskuldsey
væri laus og fór strax til Reykjavík-
ur og ræddi við vitamál og það var
auðsótt. Við vorum seinast í Elliða-
ey, en svo urðum við að flytja í land,
það gerði léleg heilsa konunnar. Og
í Stykkishólmi hefi ég verið síðan
og nú eftir lát Gyðu, á dvalarheimil-
inu og líður vel.
Vissulega var gott að búa á eyjun-
um og þar var oft gestkvæmt á
þeirra tíma vísu. Svo kom talstpðin
og ekki spillti það, en hún var ekki
ofbrúkuð. Nei, það ar farið vel með
allt en á eyjunum skildi ég talið frá
í gamla daga um matarkistuna á
Breiðafirði. En eyjarnar fóru í eyði
hver af annarri. Það gerði fólksfæð-
in. Eyjarnar krefjast mannafla. En
hann var ekkhfyrir hendi.
En ég hefí verið lánsamur um
dagana og í æsku var mér gefin
létt lund,“ segir Stebbi að lokum.
★ Pitney Bowes
Frímerkjavélar
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 9 -105 Reykjavík
Sfmar 624631 /624699
HERRASK0R
Kr. 1.995.-
Útsalan
er hafín
Toppskórinn,
Veltusundi, sími 21212.
BORGARTÚN 29, SÍMI 20640
t
r