Morgunblaðið - 13.08.1991, Page 52

Morgunblaðið - 13.08.1991, Page 52
ffgmtfrlafrife SYKURLAUSfMf^ ÞRIÐJUDAGUR 13. AGUST 1991 VERÐ I LAUSASOLU 100 KR. A Alsamningur í öllum meginatriðum frágenginn: Forsvarsmenn Atlantsáls telja byggingu álvers vísa Frá fundi álviðræðuað- ila með fréttamönnum í gær. Frá vinstri eru dr. Jóhannes Nordal for- maður álviðræðunefnd- ar, Jón Sigurðsson iðn- aðarráðherra, Paul Drack stjórnarformað- ur Alumax og Per Olaf Aronsson forstjóri Granges. ísinn brotinn fyrir frekari samninga um stóriðju hér á landi, segir formað- ur íslensku álviðræðunefndarinnar EFNISLEGT samkomulag hefur tekist um öll meginatriði samning- anna milli Islands og Atlantsálsfyrirtækjanna um nýtt álver á Keilisnesi. Þetta var staðfest á fundi forstjóra álfyrirtækjanna Þr*g83a sem niynda Atlantsál og íslenskra viðræðuaðila í gær. í kjölfar þess fundar var greint frá þessu samkomulagi á fundi með fréttamönnum. Jóhannes Nordal, formaður islensku álvið- ræðunefndarinnar, segir að samkomulagið bijóti ísinn fyrir frek-- ari samninga um stóriðju hér á landi. Þeir Paul Drack, stjómarfor- maður Aiumax, Bond Evans for- stjóri Alumax, Max Koker for- stjóri Hoogovens og Per Olaf Ar- onsson forstjóri Gránges sögðu allir að þótt fjármögnunarviðræð- um væri ólokið og endanlegir samningar yrðu ekki lagðir fyrir stjórnir fyrirtækjanna fyrr en í byijun næsta árs, teldu þeir að Atlantsál myndi reisa nýtt álver á Keilisnesi. Paul Drack stjórnarformaður Alumax og Jón Sigurðsson iðnað- arráðherra sögðu að í kjölfar þess- arar staðfestingar gætu Atlant- sálsaðilamir nú snúið sér alfarið að því að semja við bankastofnan- ir og lánveitendur á hinum alþjóð- lega fjármagnsmarkaði um fjár- mögnun framkvæmdanna. Drack sagði að bankar í tveimur löndum á meginlandi Evrópu hefðu þegar sýnt áhuga, en meiri óvissu gætti hvað varðar áhuga bandarískra banka. Ráðherra sagði að heimildarlagafrumvarp <*^yrði lagt fram á Alþingi á þeim grundvelli sem staðfestur hefði verið í gær. Dr. Jóhannes Nordal formaður íslensku álviðræðunefndarinnar sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann teldi það samkomu- lag sem nú lægi fyrir mjög vel ásættanlegt, en það væri að sjálf- sögðu ekki gott að segja nákvæm- lega til um hvernig heildarútkom- an yrði. „Þessu fylgir náttúrlega afskaplega margt annað, og margvíslegar aðrar tekjur sem við komum til með að hafa af raforku- samningnum," sagði Jóhannes. „Þá tel ég það ekki síður mikil- vægt að með þessum samningum btjótum við að mörgu leyti ísinn að nýju. Það hefur verið stöðnun í uppbyggingu orkufreks iðnaðar hér og ég tel afar mikilvægt að samningar þessir leiði til fram- kvæmda, og opni þannig fyrir áframhaldandi fjárfestingum í þessum greinum á íslandi." Jóhannes sagði jafnframt: „Ég tel að þróun efnahagslífsins geti ekki orðið nema upp á við á næstu sex til níu mánuðum, sem er jú sá tími sem þarna skiptir máli. En það er bara spumingin um hversu hratt batinn á sér stað. Því hraðar sem hann kemur, þess mik- ilvægara, því tímaáætlunin er þröng fyrir okkur. Við þurfum að geta byijað framkvæmdir næsta vor.“ Sjá frásögn af fundi álvið- ræðuaðila með fréttamönn- um í gær á bls. 13. Morgunblaðið/Bjarni Ósk þjóðþings Litháen vegna atburða þar: Island fjalli um valdbeit- ingu fyrir Oryggisráðinu ÞJÓÐÞING Litháen hefur beðið ríkisstjórnir íslands og Danmerkur að fjalla í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um valdbeitingu af hálfu Sovétríkjanna og leita sjálfstæði Litháens vemdar. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir upplýsingar vanta um atburði undangenginna vikna í Litháen. Erfitt sé að bregðast við erindinu meðan engar sannanir liggi fyrir um ábyrgð á morðum landamæra- varða þar. Litháísk stjórnvöld þurfi að láta í té niðurstöður hlutlægr- ar rannsóknar svo unnt sé að fara með málið fyrir Öryggisráðið. Jón Baldvin segist telja stutt í formlegt stjómmálasamband við Litháen, hann geti þó ekki sagt Forsætisráðherrar Norðurlanda: Sameiginlegnr vilji til •að ljúka EES-samningi FORSÆTISRÁÐHERRAR Norðurlandanna lýstu í gær yfir sameigin- legum vilja sínum til að leggja sitt af mörkum til að ljúka megi samningum um Evrópskt efnahagssvæði í næstu samningalotu Evr- ópubandalagsins og EFTA, sem fram fer í september. Ráðherrarnir gáfu út yfirlýsinguna í lok fundar síns, sem haldinn var í Reykjavík í gær. „Til að samningar um Evrópskt efnahagssvæði geti gengið í gildi samhliða stofnun hins innri mark- aðar Evrópubandalagsins hinn 1. ianúar 1993 er nauðsynlegt að full- *gerður samningur verði undirritað- ur í haust,“ segir í yfirlýsingu ráð- herranna. Þar segir einnig: „Til að tryggja að þessi víðtæki og mikil- vægi samningur geti tekið gildi, er nauðsynlegt að bæði EFTA-ríkin og aðildarríki Evrópubandalagsins leggi sitt af mörkum til að fundin •'erði lausn á þeim álitamálum, sem '*enn eru óútkljáð." Ingvar Carlsson, forsætisráð- herra Svíþjóðar, vísaði því á bug í gær að hann væri að gæla við hug- myndir um EES-samning án Is- lands og Noregs. Hann sagði í sam- tali við Morgunblaðið að aðeins ef allt annað þryti, væri hugsanlegur t.d. tvíhliða samningur Svía við EB sem millibilsfyrirkomulag þar til Svíþjóð yrði veitt aðild að bandalag- inu. Gro Harlem Brundtland leggur í viðtali við Morgunblaðið áherslu á að allir samningsaðilar verði að leggja eitthvað af mörkum til þess að EES-samningur megi nást í haust. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi forsætis- ráðherranna í gær að ekkert benti til að ísland sækti um aðild að EB á þessari öld, og að ef’ EES-samn- ingarnir færu út um þúfur, myndi líkurnar á umsókn frekar minnka en hitt. Fundur ráðherranna var reglu- bundinn sumarfundur, en forsætis- ráðherrar Norðurlandanna hittast að jafnaði tvisvar á ári. Auk EES- viðræðnanna var á dagskrá fundar- ins skýrsla samstarfsráðherra Norðurlanda um norrænt samstarf og þróun þess með hliðsjón af EES- samningunum. Einnig var rætt um ástandið í Eystrasaltslöndunum og Júgóslavíu og fleiri evrópsk málefni. Sjá fréttir á bls. 22 og viðtal við Gro Harlem Brundtland á miðopnu. nákvæmlega hvenær. Málið sé til umfjöllunar í ríkisstjórn og einungis eigi eftir að fullnægja nokkrum formsatriðum. Landsbergis, forseti Litháen, hafi í bréfi lýst áhuga á að Jörundur Hilmarsson málvísinda- maður verði ræðismaður landsins á Islandi. Jörundur segist búast við að svara kalli verði stjórnmáíasam- band tekið upp og starfíð muni þá aðallega felast í milligöngu um sam- skipti landanna. Beiðni þjóðþings Litháens um aðstoð barst í upphafi mánaðarins í ályktunarformi. Eyjólfur Konráð Jónsson formaður utanríkismála- nefndar Alþingis segir málið hafa, verið rætt í nefndinni og samstaða ríkt um að taka erindinu af fullri alvöru. Þó þurfi að athuga það bet- ur áður en hlaupið sé til. Paul Schliiter forsætisráðherra Danmerkur sagðist í gær ekki geta sagt til um afstöðu stjórnar sinnar. Utanríkismálanefnd danska þings- ins hefur enn ekki komist til að ræða beiðni Litháa, að sögn Þor- steins Ingólfssonar ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneyti. Jón Baldvin Hannibalson segir ekki hægt að ásaka Sovétstjórn í Öryggisráði SÞ án frekari sannana, helst þurfi niðurstöður dómsrann- sóknar að liggja fyrir. Formaður utanríkismálanefndar segist telja að formlegt stjórnmála- samband við Litháen hljóti nú að vera skammt undan. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir vilja Alþingis og ríkisstjórnar liggja fyrir, spurningin sé ekki hvort heldur hvenær. Menn vilji sjá hvort samningar Litháens og rússneska lýðveldisins séu gild viðurkenning að þjóðarétti og hvort Litháen geti síðan tryggt sendimönnum aðgang að landinu og frá því. Svarið við því hvenær stjórnmálasamband verði tekið upp grundvallist á því sem Litháen sé fyrir bestu. Skaftár- hlaup tekið að réna „HLAUPIÐ virðist vera að réna,“ sagði Oddný S. Gunn- arsdóttir húsfreyja í Hvammi í Skaftárdal í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld. „Það er hætt að vaxa hérna fyrir utan og okkur virðist það vera að fjara. Það gerist yfirleitt nokkuð hægt.“ Samkvæmt Snorra Zóphon- íassyni vatnamælingamanni hefur Skaftá lækkað verulega þó áhrif þess hafi rétt verið farin að sjást í Skaftárdal í gærkvöld. Hún mun síðan halda áfram að lækka uns venjulegu rennsli er náð. Snorri varð ekki var við að gos undir eystri Skaftárkatli í fyrrinótt hefði nein áhrif á rennsli árinnar. „Hún hélt áfram að lækka eins og hennar er háttur. Línuritin sýndu enga breytingu.“ Sjá bls. 23.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.